Vísir - 31.07.1974, Side 1
VISIR
64. árg. — Miðvikudagur 31. iúll 1974. —137. tbl.
Utanþingsstjórnin 1944
á sýningu í Laugardal
Þetta ráðuneyti sat, þegar lýð-
veldi var stofnað á Þingvöllum
1944. Einar Arnórsson, Björn
Þórðarson, Sveinn Björnsson,
forseti, Vilhjálmur Þór og Björn
Ólafsson. Og þessa heiðurs-
menn má sjá sitja rikisráðsfund
á sýningunni ÞRÓUN i Laugar-
dalshöll. Nánarum sýninguna á
bls. 3.
Ólga vegna
Elmarskœru
— sjá íþróttir
í opnu
„Sama
þrjózkan
einkenni
beggja,#
íslendinga og
r
Israelsmanna
— baksíða
„ÆTLAÐI
EKKI AÐ
DREPA
HANN"
— segir tilrœðis-
maður Atla Dam
— baksíða
Vegirnir í
allra lakasta
ástandi
— baksíða
Söngurinn og
kílóin voru
hennar vörumerki
— Nú-síða bls. 4
,,Nei, eiginlega ekki.”
,,Ekki einu sinni kvenfólks-
ins? ”
„Jú, við vorum að drepast úr
kvenmannsleysi.”
Jan Godal bætir inn i. ,,Já, ætli
við höfum ekki helzt saknað
kvennanna.”
Hilmar Hauksson segir okkur
frá því, hvernig standi á ferðum
hans og hinna Islendinganna um
borð. ,,Ég er með stýrimanns-
réttindi, hef verið sjómaður og er
ævintýramaður. Ég greip þvi
tækifærið, er það bauðst og ég
frétti um fyrirhugaða ferð.
Þetta er ákaflega fjörugur og
skemmtilegur hópur, sem tekur
lifinu ekki allt of alvarlega. Þegar
við vorum að dóla undansuður-
ströndinni spiluðum viö bara og
sungum og steiktum okkur læri
yfir kolaeidi.
Bátarnir sigla mjög vel. Við
lentum i brælu undan Noregi og
stóðum að sjálfsögðu i austri,
þegar gaf á bátana, en þessir bát-
ar væru fullfærir þótt veðrið hefði
verið margfalt verra.
Vandamálið er hins vegar það, að
kjölurinn er grunnur, og þá rekur
þvi mikið undan vindi. Við getum
heldur ekki beitt þeim nema 30
gráður upp i vindinn. Þess vegna
miðaði okkur svona seint.”
Jan Godal sagðist hafa siglt
svipuðum bátum i nokkur ár og
hann gæti tekið undir það, að
þetta væru góðir sjóbátar.
Auk Hilmars Haukssonar eru
þrir Islendingar um borð. Tveir
eru Akureyringar og meðlimir i
Sjóferðafélagi Akureyrar. Þeir
heita Haraldur Ásgeirsson, sem
er prentari, og Stefán Sigtryggs-
son.
Forsprakki íslendinganna er
Kjartan Mogensen, garðyrkju-
maður. Hann sagði blaðinu um
tildrög sinnar þátttöku:
„Ég dvaldist i Noregi fyrir
tveim árum og kynntist þá Godál,
leiðangursstjóranum. Þá sagði
hann mér frá þessum draumum
sinum um Islandssiglingu og ég
benti honum á 1100 ára afmælið á
þessu ári. Við pöntuðum bátana,
en það var óvist fram á siðustu
stundu hvort þeir yrðu báðir
gjafir til Islendinga. Svo var það
ákveðið að við héldum i hann. Ég
vil bara taka fram, að við höfum
fengið stórkostlegar móttökur i
Noregi og eins hér i Grindavik.”
Bátarnir héldu frá Grindavik i
morgun og verða i Keflavik i sið-
asta lagi 2. ágúst.
— JB
Að víkinga sið komu
norsku og íslenzku víking-
arnir, sem verið hafa á
siglingu til Islands, til
Grindavíkur kl. 8 í gær-
kvöldi, öllum að óvörum.
Þeir höfðu verið að lóna undan
Alviðruhömrum i nær tvo sólar-
hringa og voru þvi orðnir svart-
sýnir á að þeir næðu á þjóðhá-
tiðina i Reykjavik, sem ætlunin
var. Við Vestmannaeyjar tók
Þorbjörn II frá Grindavik bátana
i tog. Vikingarnir voru nú með
hálfgert samvizkubit út af þess-
um endi, en um annað var ekki að
ræða, ef ná átti til Reykjavikur i
tæka tið.
„Það var bara eins og bátarnir
vildu ekki lengra, þegar komið
var undir Ingólfshöfða. Ingólfur
hefur sennilega lenti i þvi sama,
en okkur leizt litið á að taka okkur
vetursetu við Ingólfshöfða,”
sögðu sæbarðir og hraustlegir
vikingarnir, iklæddir lopapeys-
um.
Bodil Birkeland er eina konan
um borð og hefur mikla reynslu i
meðferð svipaðra báta. Við
spurðum hana, hvernig væri að
sjá Island með augum fyrstu
landnemanna.
„Ég verð bara að segja það, að
landið litur mjög vel út frá sjón-
arhóli vikinganna. Viö dóluðum
lengi undan suðurströndinni og
sýnin til jökla var stórfengleg.”
— Hvort hún hefði saknað
nokkurs um borð? Hún litur á alla
þessa fræknu vikinga i kringum
sig. „Einskis”. Hilmar Hauksson
er einn af fjórum Islendingum um
borð. Við spurðum hann lika,
hvort hann hefði saknað nokkurs.
Einhvern tlma hefði silk sjón vakið mikinn ugg manna I Grindavik. Hér voru þó ekki neinir óspektar
vlkingar á ferð, heldur Norðmenn og islendingar, sem vildu feta I fótspor Ingólfs á 1100 ára afmælinu.
Myndin var tekin I morgun, er þeir voru að halda frá Grindavlk. Ljósm. Bj. Bj.
„Leizt ekki á að hafa
vetursetu við Ingótfshöfða"
••
Víkingaskipin Orn og Hrafn komu til Grindavikur öllum að óvörum kl. 8 í gœrkvöldi
Grunur um LEIGJANDINN STÓÐ ÖLVAÐUR
ltreilli" I í MIÐJU ELDHAFINU
Grunur leikur á, að
það hafi verið af
mannavöldum, þegar
kviknaði i húsinu
númer 27 við, Þing-
holtsstræti i nótt.
Eldurinn kom upp I forstofu
hússins. Þegar lögreglan kom á
staöinn, stóð einn leigjandinn i
húsinu I forstofunni. Hann var
handtekinn, enda ölvaður, og
benti ýmislegt til þess, að hann
gæti verið valdur að brunanum.
Hann svaf úr sér vimuna I
fangageymslum i nótt, en átti að
fara til yfirheyrslu hjá
rannsóknarlögreglunni I morg-
un.
Talsverðar skemmdir urðu i
húsinu af völdum elds og reyks.
Reykurinn var mjög mikill, og
lagði hann um allt húsið. Þrir
Ibúar eru i húsinu, og leigja þeir
allir. Einn þeirra býr uppi i risi.
Reykurinn varð svo mikill, að
hann komst ekki niður, og
bjargaði sér þvi út á brunakaðli.
Húsið við Þingholtsstræti 27
er timburhús og stendur við
hliðina á gamla Farsóttarhús-
inu, sem nú er gistiskýli fyrir
útigöngumenn. Að sögn lögregl-
unnar sást enginn gesta þar á
ferli við húsið sem kviknaði i.
Oft munu þó vera brögð að
þvi, að rónar reyni að komast
inn i það hús, ef þeir fá ekki inni
i gistiskýlinu. Brjóta þeir þá
gjarnan rúður I kjallara hússins
og dvelja i honum.
Eldurinn kom upp um fimm-
leytið i nótt. Slökkviliðinu gekk
vel að ráða niðurlögum hans.
— ÓH