Vísir - 31.07.1974, Page 3

Vísir - 31.07.1974, Page 3
Vísir. Miövikudagur 31. júll 1974. 3 „ÍSLENDINGASPJÖLL" STÖÐUGT í DEIGLUNNI" — segir Hrafn Gunnlaugsson Þetta skeyti frá Rahivle Pindi i Indlandi kom okkur jafnt á óvart og öllum öörum. Raunar hefur andi okkar Daviðs löngum veriö á þessum slóðum, en að hann tæki á sig likamsgerving, þvi bjuggumst við ekki við”, sagði Hrafn Gunn- laugsson, er við náðum tali af honum niðri I Iðnó i gær. Hrafn sagði okkur, að það hefði verið talað um að Jónatan Rollingston Geirfugl Máfur væri undir áhrifum Þórðar Breiðfjörð, en það hafi engan veginn verið sannað bókmenntalega. Það má benda á, að andi þeirra félaga Daviðs og Hrafns sendi fulltrúa sinn á frumsýninguna á „Islendingaspjöllum”. Það var Jósafat Flinstone Lundi, sem er mjög fallegur, uppstoppaður lundi. Er hann það góður fulltrúi Geirfugls, að allt, sem hann segir Hrafni og Davíð, jafngildir þvi, að hann hefði sagt það sjálfur, enda eins gott, þar sem Davið og Hrafn hafa ekkert umboð frá honum. Jósafat hefur sagt, að til þess að revian sé stöðugt ný af nálinni, ef pólitikin breytist eða þjóðlifið á einhvern hátt munu verða felldir niður kaflar úr reviunni og aðrir nýir settir inn i. Ekki má slá i hana á nokkurn hátt. Má þvi segja, að revian sé stöðugt i deiglunni Sýningar verða alls 10 i sumar og hefur verið uppselt á allar, nema þá siðustu, sem verður á sunnudaginn. Þar voru nokkrir miðar til i gær. Leikritið verður svo aftur tekið upp i haust —EVI— Davið Oddsson og Hrafn Gunnlaugsson ásamt Guðrúnu Ásmundsdótt- ur, leikstjóra „tsiendingaspjalla”. Þeir Davið og Hrafn (2/3 af Matthildingum) eru höfundar reviunnar, eða ef til vill réttara að segja, að andi þeirra, Jónatan Rollingstone Geirfugl, sé höfundurinn. Af- greiðsla Vísis flutt Vísismenn, sem starfa á af- greiðslu- og auglýsingadeild blaðsins, hafa svo sannarlega komizt i betra húsnæði frá þvl sem áður var. Þessi deild blaösins hefur nefnilega flutt aðsetur sitt, og er nú að Hverfisgötu 44. Þangað eiga inenn nú að fara með auglýsingar og annað þviumlikt, og þangað koma nú sölubörnin. Og það er betur búið að þeim, þvi að nú blða þau inni i ágætum sal, á meðan gengið er frá blaðinu á göturnar. — EA Um 6 þús. manns hafa nú séð sýninguna ’Þróun 874-1974’, sem nú stendur yfir I Laugardals- höllinni. Ætlun þeirra sem að sýning- unni standa er að hún sé fræð- andi um sögu og þróun atvinnu- lífs i landinu frá upphafi byggð- ar. Þess atvinnulifs, sem var undirstaða lifskjaranna og þar með bæði forsenda og snar þátt- ur þjóömenningarinnar, eins og hún var á hverjum tima. Að hún komi ungu kynslóðinni til þess að lita til baka og kynni henni, hvernig og við hvaða aðstæður afar þeirra og ömmur, langafar og langömmur, og á undan þeim allar hinar gengnu kynslóðir lifðu og störfuðu. Hver atvinnuvegur kemur fram sameinaður sem ein heild. Enginn einstakur aðili, fram- leiðandi eða seljandi, sýnir sinar vörur sérstaklega. Það kemur hins vegar fram, hvers islenzkur iðnaður er megnugur, hvað kemur frá sjávarútvegi og hvað frá landbúnaði, hver er hlutur verzlunar og viðskipta I þjóðfélaginu og hve mikilvægu og fjölbreyttu hlutverki sam- göngur gegna. Eitt af þvi, sem er að sjá á sýningunni, eru tvö hús, sem hlaðin hafa verið með gömlum hætti. Inni i þeim gefur að lita ýmis konar áhöld og muni, sem voru notaðir hér áður fyrr. Pott- ur stendur á hlóðum og þarna er gömul mjölkvörn, skriðbytta, reisla, kaffibrennslupottur, höggstokkur til þess að saxa kjötið á og sæti úr hvalbeini, sem notað var i hlóðaeldhúsi hér áöur fyrr. Alls konar linurit gefa upp- lýsingar um þróun land- búnaðarins svo langt sem heimildir ná. Sjávarútveginum eru gerð Itarleg skil sem öðru, og fisk- hjalli frá gömlum tima hefur verið komið upp með ýmsum af þeim áhöldum, sem notuð eru til sjós. Sveinn Davfðsson og Guðrlður Sigfinnsdóttir frá Neskaupstað skoða vatnspóstinn. Póstar sem þessi voru við vatnsból I Reykjavlk, áður en vatnsveita var lögð frá Gvendarbrunnum. Sveinn sagöi, að svona pósta hefði hann aldrei séð I sinurn heimabæ, enda varla þörf á þvl, vegna þess að lækur hefði runnið þar fram hjá hverjum bæ. Bæði voru sammála unr, að það skemmtilegasta viö sýninguna væri það gamla. PRENTSMIÐJUPOST UR BOLSÍUR í KRAMBÚÐ OG ÞRÓUN 874-1974 t deild verzlunarinnar er krambúð og kennir þar margra grasa. Þar sjáum við nokkra, sem eru að kaupa sér eitt kramarhús af bolsium.Bismark eða anis? spyr stúlkan, sem af- greiðir. Ekki var samt selt Jamaica romm, en tunna þann- ig merkt var i búðinni. Taft, sirs, rúsinur,snæri, skæri og allt mögulegt er I hillum eða hengt i loftið. í Reykjavikurdeildinni er likan af Reykjavik eins og hún var rétt fyrir aldamótin 1800. Það er likan af fálkahúsinu þar sem matur fyrir þá var geymd- ur, lifandi mýs og annað, fálka- eldhúsinu, sem ekki hefur verið eldhús af verri endanum, og svo húsinu, þar sem sjálfir fálkarn- ir, sem veiddir voru handa Danakonungi, voru geymdir. Fyrir ofan Silla & Valda húsið gefur að lita hús spunakvenn- anna og spunaverkstæðið er þar skammt frá. Stórt likan af Reykjavik eins og hún er nú er þarna einnig. Þá gefur að lita handvagn i 1/2 stærð, en slikur vagn var notaður af lögreglu til þess að flytja drukkna menn i fangelsi. Kvikmyndasýningar eru tvisvar á dag og hestaleiga er á daginn frá kl. 14-20. 1 kvöld er Álafoss með tizkusýningu og skólahljómsveit Kópavogs mun kl. 20.30leika fyrir utan Laugar- dalshöllina. EVI Starfsstúikur I Reykjavikurdeildinni skýra út llkan af Reykjavlk frá þvl fyrir aldamótin 1800. (Jr krambúðinni.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.