Vísir - 31.07.1974, Page 4
4
Söngurínn og kílóin
voru hennar vörumerki
Á þriðjudaginn lézt í
London bandaríska popp-
söngkonan AAama Cass
Eliot, sem varð heims-
fræg er hún söng með
söngflokknum „AAamas
and the Papas" og hélt
síðan f rægð sinni við með
því að koma ein fram á
skemmtunum og í sjón-
varpsþáttum.
Hún var aðeins 33 ára gömul
er hún fannst látin i gistiibúð i
London, en þar hafði hún verið
að skemmta undanfarnar vikur.
Talið er að banamein hennar
hafi verið köfnun — hún var með
skinkusamloku i annarri hend
inni er vinir hennar brutust inn i
ibúðina, og er talið að henni hafi
svelgzt á brauðbita og kafnað i
rúminu, þar sem hún lá.
Mama Cass var sú þekktasta
i söngflokknum „Mamas and
the Papas”, sem varð heims-
frægur með laginu „Monday-
Monday” og „California
dreaming’.l.Auk hennar voru i
flokknum John Phillips,
Michelle Gilliam og Denny
Doherty.
Þegar söngflokkurinn leystist
upp árið 1968, byrjaði Mama
Cass að syngja ein á báti — fyrst
i Las Vegas, þar sem hún fékk
40 þúsund dollara fyrir að koma
fram i nokkur skipti, en siðan
viða um heim.
Þá kom hún einnig mjög oft
fram i sjónvarpsþáttum bæði
sem söngkona og einnig sem
grinisti, en hún gerði þá oft mik-
iö grin að sinum mikla og stóra
likama.
Hún neitaði þvi alla tið, að
þyngd hennar stæði frægð henn-
ar fyrir dyrum.....Hún hjálpar
mér. Ég lit allt öðruvisi út en
Mama Cass var 119 kíló á þyngd
er brauðbiti varö henni að bana.
Hún var aðeins 33 ára gömul.
Þessi mynd var tekin I London
fyrir hálfum mánuði, og fylgdi
viðtali við hana i New Musical
Express, I tilefni af hljóm-
lcikunum i Palladium.
aðrar stjörnur. Það ruglast til
dæmis enginn á mér og Jane
Fonda” sagði hún eitt sinn.
Sagöist hafa étið
alla peningana
Mama Cass var skirð Cas-
sandra, þegar hún fæddist i
Baltimore fyrir 33 árum. Nitján
ára gömul fór hún að heiman og
ætlaði að gerast leikkona.
Þegar það gekk heldur illa hjá
henni, sneri hún sér að söngn-
um. Fyrst söng hún með þeim
Doherty og Tim Rose i söng-
flokk, sem kallaði sig „The Big
Three”, en siðan stofnaði hún og
Doherty ásamt tveim öðrum
söngflokkinn „Mugwumps”.
Sá flokkur fékk góða dóma hjá
gagnrýnendum, en náði engum
vinsældum meðal annarra. Þá
stofnaði hún ásamt Doherty og
Phillips söngflokkinn „Mamas
and the Papas” og hann sló
strax i gegn.
Plötur þeirra seldust i
milljónum eintaka og hvar sem
þau komu fram var uppselt —
sama hvað salurinn var stór.
Peningarnir streymdu inn til
þeirra, en Mama Cass vissi litið
hvað hún átti að gera við
þá....sagði stundum þegar hún
var að grinast, að hún hefði étið
þá alla — þess vegna væri hún
svona búttuð. •
Þessi flokkur hennar leystist
upp árið 1968 — fór hún þá að
koma fram einsömul. Plötur
hennar seldust vel — þar á
meðal „Dream a little dream
of me” og „Make your own kind
of loving” — og skemmtanir
hennar voru vel sóttar.
Smakkaði aldrei
vín eða tóbak
Framkoma hennar á sviðinu
féll vel i kramið hjá áhorfend-
um...hún lét brar.darana fjúka á
báða bóga og söng siðan eins og
engill á milli. Þá var hún einnig
mjög vinsæl meðal þeirra sem
kynntust henni. Hún smakkaði
aldrei vin, reykti ekki hass eða
þviumlikt, reykti ekki einu sinni
vindlinga..en hún sparaði ekki
við sig, ef matur var annars
vegar.
Hún giftist söngvaranum
James R. Hendricks árið 1963 en
þau skildu árið 1969. Þau áttu
eina dóttur, Vanessu, sem fædd-
ist 1967. Arið 1971 giftist hún svo
Donald Von Wiedenman, baróni
frá Bæjaralandi.
Mama Cass var á söngferða-
lagi um Bretland er hún lézt s.l.
þriðjudag. Hún kom fram i
Palladium i London þann 17. júli
s.l., og sagði þá hinum 2500
áhorfendum frá þvi, þegar hún
var handtekin og sett i fangelsi
árið 1967 fyrir að stela tveim
lökum og tveim lyklum úr hótel-
herbergi i London.
„Mér fannst lökin svo falleg,
en lyklarnir komu óvart með.
Við höfum öll tekið eitthvað
svona með okkur einhvern tima
á ævinni...ekki satt”.
Þegar hún kom aftur til Eng-
lands nokkrum mánuðum siðar,
var hún handtekin, en málið var
látið niður falla.
„Ég var færð i fjögur fangelsi
hvert öðru verra” tjáði hún
hlustendunum sinum i Palládi-
um...” Ég ætlaði að viðurkenna
að hafa stolið lökunum, en ég
var svo reið út af meðferðinni,
sem ég fékk, að ég neitaði
þvi....Og vitið þið hvað, ég
komst upp með það. En nú vitið
þið allan sannleikann og lög-
reglan lika”.
Visir. Miðvikudagur 31. júli 1974.
P/INITB ÚTLÖND
Heilahimnu-
bólga hrjóir
Brazilíumenn
300 nianns að minnsta kosti eru talin
hafa látizt úr heilahimnubólgu, sem
sögð er ganga i stærstu borg Braziliu,
Sao Paulo.—
Heilbrigðisyfirvöld hafa neitað að
upplýsa nákvæmlega dánartöluna, en
blöðin i Braziliu telja sig hafa nokkuð
áreiðanlegar heimildir fyrir afleiðing-
um þessarar farsóttar.
Samkvæmt Jornal de Brasil dóu 267 af
þessum sjúkdómi á 17 fyrstu dögum
júlimánaðar, og i gær skýrði það frá 11
dánartilfellum til viðbótar. —
Heilbrigðisvöld Sao Paulo halda
þvi þó fram, að þessar tölur séu of háar.
Segjast þau hafa heft útbreiðslu veik-
innar, og veikindatilfellum fækki með
degi hverjum. — Þau hafa annars varizt
allra frétta af veikinni.
Lœknar í
verkfalli
Þeir 100.000 læknar á ítaliu, sem fóru i
tveggja sólarhringa verkfall, hafa nú
byrjað störf að nýju. Vinnuna lögðu þeir
niður til að mótmæla aðgerðarleysi
stjórnvalda i sjúkrahúsmálum.
Siðan hefur verið boðað annað tveggja
sólarhringa verkfall læknakandidata og
sjúkraliða dagana 6.-7. ágúst til þess að
fylgja eftir kröfunum um endurbætur i
sjúkrahúsum og heilsugæzlu ítaliu.
Jafnframt hafa eldri læknarnir i hótun-
um um enn róttækari aðgerðir, verði
kröfum þessum ekki sinnt.
Gömul gáta
upplýst
Lögreglan I Portúgal hefur nú lokið
rannsókninni á dauða Umberto Del-
gado, fyrrum frambjóðanda til forseta-
kosninga þar I landi. Heldur rannsókn-
arlögreglan þvi fram, að Delgado hafi
verið myrtur af erindrekum leynilög-
reglu fyrri stjórnar. — Delgado fannst
skotinn til bana i spænskum landa-
mærabæ 1965.
Rannsóknarlögreglan segist hafa sent
frá sér skýrslur eftir yfirheyrslur og
rannsókn á tiu mönnum, sem áður störf-
uðu i PIDE (leynilögreglunni), og er nú
aðeins eftir að gefa út formlega ákæru
og ákveða málflutningsdag. Þetta verð-
ur fyrsta málið, sem rekið verður fyrir
rétti gegn mönnum hinnar hötuðu
PIDE.
Meðal þeirra, sem sakaðir eru um að
hafa skipulagt morðið á Delgado, eru
yfirmaður PIDE, Fernando Silva Pais,
majór, og næstráðandinn, Agosthino
Barbiere.
Delgado bauð sig fram i kosningunum
1958 og hét þvi þá að reka Salazar for-
sætisráðherra, kæmist hann að. Hann
tapaði fyrir Americo Thomaz, sem nú
var settur frá i byltingu hersins.
Delgado leitaði hælis i Braziliu, en sneri
aftur til Portúgal 1965 undir fölsku
nafni, en var þá myrtur.
Sykurœvintýri
Mikill troðningur var i nýlenduvöru-
verzlunum i Sviþjóð hjá landamærum
Noregs i gær, en Norðmenn streymdu
yfir landamærin til að kaupa sykur.
Heilu áætlunarbilarnir höfðu verið
leigðir til sykurkaupaferða, og keyptu
farþegarnir upp nær allan sykurinn.
t einni verzluninni voru seldar 20
smálestir af sykri, þar sem salan hefur
verið stöðug og mikil i allt sumar.
Eðlileg dagsala þar hefur þó verið um 10
tonn.
En i gær var siðasti dagurinn, sem
menn máttu fara með ótakmarkað
sykurmagn úr landi, þvi að stjórnin
ákvað, að hér eftir væru 5 kg mesta
leyfilega magn.
Norðmenn hafa getað keypt sykur
miklu lægra verði I Sviþjóð en heima hjá
sér. Sviar greiða nefnilega niður sykur-
inn og hefur rikissjóður tapað miklum
fjárhæðum á þessum útflutningi Norð-
manna. En nú er sykurævintýrinu lokið.