Vísir - 31.07.1974, Blaðsíða 6
&
Visir. Miövikudagur 31. júli 1974.
visib
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
Fréttastjóri:
Ritstjórnarfulltrúi:
Fréttastj. erl. frétta:
y Auglýsingastjóri:
Auglýsingar:
Afgrciðsla:
Ritst jörn:
Reykjaprent hf.
Sveinn R. Eyjólfsson
Jónas Kristjánsson
Jón Birgir Pétursson
Ilaukur Helgason
Björn Bjarnason
Skúli G. Jóhannesson
Ilverfisgötu 32. Simar 11G60 86611
Ifverfisgötu 32. Simi 86611
Siðuniúla 14. Sirni 86611. 7 linur
Askriftargjald 600 kr. á mánuði innanlands.
1 lausasölu 35 kr. eintakið. Blaðaprent hf.
Nixon í sjálfheldu
í Bandarikjunum sækja þeir aðilar nú að
Richard Nixon forseta, sem hafa vald til þess að
visa honum úr embætti. Dómsmálanefnd full-
trúadeildar Bandarikjaþings hefur lagt til, að
forsetanum verði stefnt fyrir öldungadeildina.
Tveir þriðju öldungadeildarmanna geta sett for-
setann af. Ekkert virðist geta hindrað þá ákvörð-
un fulltrúadeildarinnar að stefna forsetanum.
Eina von Nixons er sú, að vegna stjórnmála-
ástæðna myndist ekki nægilegur meirihluti i
öldungadeildinni gegn honum. Væntanlega verð-
ur það ekki fyrr en i desember, sem örlög Nixons
verða ráðin i þinginu. Hann hefur ætið gefið til
kynna, að hann ætli að biða meðferðar öldunga-
deildarinnar. Hitt er svo annað mál, hvernig
Nixon ætlar að stjórna landi sinu með nokkrum
myndugleik, eftir að fulltrúadeildin hefur stefnt
honum.
Ákvörðun dómsmálanefndarinnar er annað al-
varlega áfallið, sem Nixon verður fyrir á undan-
förnum dögum vegna Watergate-málsins og ann-
arra óheillaverka. f siðustu viku hafði Hæstiréttur
Bandarikjanna varnir Nixons að engu og dæmdi
hann til að afhenda 64 segulbandsspólur til sak-
sóknarans i Watergate-málinu. Einróma setti
hæstiréttur valdi forsetans þau mörk, að hann
gæti ekki haldið leyndum gögnum, sem nauðsyn-
leg eru til rannsóknar á sakamáli.
Andstæðurnar i máli Nixons eru að skýrast.
Þar standa menn ekki frammi fyrir öðru en þvi
að þola áframhaldandi setu forseta, sem hefur
misnotað vald sitt, eða visa honum úr embætti.
Við, sem búum við þingræðisstjórn, þar sem ein-
faldur meirihluti þings getur með vantrausti fellt
rikisstjórn, eigum erfitt með að átta okkur á þeim
krókaleiðum, sem Bandarikjamenn þurfa að fara
til að láta kjörinn forseta sinn bera ábyrgð á
gerðum sinum. öll hjól þeirrar vélar eru nú byrj-
uð að snúast i Washington, rúmum tveimur árum
eftir innbrotið i Watergate-bygginguna. Á öllum
þeim tima hefur forsetinn ekki getað sýnt fram á,
að hann hafi hreinan skjöld. Nýjar sakarástæður
hrannast þvert á móti upp gegn honum.
Lengi framan af — og ef til vill enn — taldi
Richard Nixon aðgerðir blaða og þingmanna i
Watergate-málinu stafa af pólitisku ofstæki.
Meðferð dómsmálanefndar fulltrúadeildarinnar
afsannar hins vegar þessa skoðun. Þar sameinast
pólitiskir andstæðingar og stuðningsmenn forset-
ans i fordæmingu sinni á gerðum hans. Enginn
sakar Hæstarétt Bandarikjanna um, að hann láti
pólitik ganga fyrir lögunum i dómum sinum. öll
rökfærsla Nixons er þvi komin i sjálfheldu.
Ferðalög til Moskvu duga ekki einu sinni lengur
honum til álitsauka!
Siðustu áratugi hefur sú þróun orðið i banda-
risku stjórnarfari, að völd forsetans hafa orðið æ
meiri. Þetta kemur ekki sizt fram i utanrikismál-
um. Einmitt á þessum sama tima hafa alþjóðleg
afskipti Bandarikjanna þróazt i það horf, sem
þau eru i núna. Áhrifamáttur þessa mikla emb-
ættis er þvi ekki bundinnvið landamæri Banda-
rikjanna. Virðing þess skiptir allt mannkyn
miklu.
Nixon hefur sjálfur sagt, að það myndi gera
öðrum ókleift að sitja i forsetaembættinu og
gegna skyldum þess, ef hann léti af embætti við
núverandi aðstæður. Það ,sé skylda sin að gæta
virðingar hins háa embættis. Þessi orð hljóma nú
eins og öfugmæli. Með hverjum deginum, sem
Nixon situr i embætti sinu, mun virðing þess
þverra. —BB.
TILRAUNA-
GLASA-
AÐFERÐIN
Það vakti heimsat-
hygli á dögunum, þegar
upp kom i fyrirspurnar-
tima á ársþingi brezkra
lækna, sem haldið var i
Hull,v að á lifi væru þrjú
börn, sem orðið hefðu til
i tilraunaglösum á rann-
sóknarstofu.
Dr. Douglas Bevis frá
Leedsháskóla lýsti þvi
yfir, að á siðustu átján
mánuðum hefðu fæðzt
þrjú börn, sem orðið
hefðu til með þeim hætti,
að egg voru tekin úr legi
mæðra þeirra og þau
frjóvguð i tilraunaglös-
um, en siðan sett i
móðurkviðinn aftur.
Undrun manna yfir
þvi, hve læknavisindun-
um hefur fleygt fram,
var að vonum mikil og
kveikti auðvitað mikla
forvitni og löngun i að fá
fleira að heyra. —
Hvernig fóru visinda-
mennirnir að þessu?
Voru börnin eðlileg?
Hvar voru þau? Hvernig
þótti foreldrunum þessi
aðferð? — Tugir slikra
spurninga leituðu á.
Vart hafði þessum stórtíðindum
fyrr verið varpað fram, en málið
var strax sveipað einhverjum
leyndarhjúpi aftur. Upp komu
sfðan mótsagnir, sem ólu á tor-
tryggni, unz menn tóku opinber-
lega að rengja orð hins virta
læknis.
Hann ætlaði hinsvegar menn að
æra með undanfærslum sínum og
loðnum svörum næstu dagana
eftir tilkynninguna á ársþinginu.
Neitaði Bevis að segja til barn-
anna eða foreldra þeirra. Allt og
sumt sem hann vildi upplýsa var
það, að eitt þeirra væri i Eng-
landi, en hin tvö einhvers staðar i
Evrópu og að öll þrjú væru full-
komlega eðlileg. Bar hann
það af sér að hafa tekið þátt i
rannsóknunum og tilraununum,
sem leiddu til fæðingar barnanna,
og neitaði ennfremur að tilgreina
hverjir það heföu gert.
Margir ágætis sérfræðingar á -
þessu sviði véfengdu fljótlega
þessar fullyrðingar Bevis og létu i
ljós hneykslun sina á þvi, að hann
skyldi fullyrða út i bláinn, að
þessi aðferð hefði borið árangur
— án þess að færa máli sinu
nokkra stoð. Visindamenn á Bret-
landseyjum og annars staðar,
sem unnið hafa að tilraunum með
frjóvgun á rannsóknarstofum og
igræðslu, þvertóku fyrir það, að
þeir væru þessir menn, sem Bevis
vildi ekki nafngreina.
Timaritið „Newsweek” hafði
eftir einum frumkvöðla þessara
rannsókna, dr. Patrick Steptoe
við Oldham and District Hospi-
tal: „Eftir þvi sem mér er bezt
kunnugt um, hefur enginn hér á
landi eða annars staðar náð
árangri til þessa i þessari að-
ferð.”
GERFI-FRJÓVGUN
Stifluð leggöng eða fjarlægð eftir aðgerð
Eggjastokkur
Fiber-
ljós-
geisli
^Þroskað egg
Eggið tekið þann veginn að f
með sprautu fara i leggöngin))
2 Eggið komið i til-
raunaglas og sæði
sett sarnan við, en allt
geymt i vökva, sem
inniheldur ámóta efni og
finnst i leggöngunum
3Frjóvgað egg sett upp i legið
með sprautu.
Egg 40 stundum eftir frjóvgun....
....og svo 90 stundum eftir
frjóvgun.
Loks eftir þriggja daga skrif og
hávært umtal gekkst Bevis við
þvi að hafa sjálfur tekið þátt
þessari tilraun, sem hann hafði
greint frá á ársþinginu. En hann
neitaði eftir sem áður að tilgreina
aðra lækna eða foreldrana, sem
við tilraunina voru riðnir.
„Newsweek” greinir frá þvi, að
það hafi verið fyrir fimm árum,
að Steptoe og læknarnir Robert
Edwards og Barry Bavister urðu
fyrstir manna til þess að frjóvga
egg á rannsóknarstofu. Allt frá
þvi augnabliki hafa Steptoe og
Edwards unnið að tilraunum til
þess að yfirvinna ófrjósemi
kvenna með þvi að koma slikum
frjóvguðum eggjum aftur fyrir i
legi þeirra. Hjá þriðjungi þeirra
kvenna, sem ekki geta orðið
ófriskar, má kenna um stiflu i
Fallopiangöngunum, sem kemur
i veg fyrir að eggin nái að frjóvg-
ast og komast i legið. Steptoe og
Edwards hafa á brautryðjenda-
ferli sinum gefið slikum konum
hormónalyf til að örva eggja-
myndunina, og á öðrum sólahring
eftir lyfjagjöfina hafa þeir með
sérstöku áhaldi fjarlægt egg úr
kvið kvennanna.
Eggin eru geymd við sérstakar
aðstæður og sæði úr eiginmönn-
unum sett saman við. Þeim sem
frjóvgast, er komið fyrir i leginu i
gegnum leghálsinn. Þessi aðferð
hefur gefið ágætis árangur hjá
músum og kaninum á rann-
sóknarstofum. Tilraunir þeirra
Edwards og Steptoe á þeim 200
konum, sem til þeirra hafa leitað,
hafa ekki heppnazt i einu einasta
tilviki. Engin kona hefur orðið
ófrisk með þessari aðferð. Eggið,
sem komið hafði verið fyrir i kon-
unni, skolaðist venjulegast burt
næst þegar konan hafði tiðir.
Sumir sérfræðingar vilja kenna
þessu hormónagjöfinni, sem
raski jafnvægi hormónanna, og
hindri það, að eggið nái að festast
i leginu. — Á þessu sagðist Bevis
hafa ráöið bót, og var það hans
þáttur i tilraununum, sem leiddu
til fæðingar þriggja barna. Bevis
er sérfræðingur i efnaskiptum og
breytingum, sem eiga sér stað i
legi konunnar i upphafi með-
göngutimans.
Þessar tilraunir með fram-
leiðslu barna i tilraunaglösum
hafa vakið misjöfn viðbrögö
fólks. Þeir, sem helzt hafa sett sig
á móti þessu, bera kviðboga fyrir
þvi, að þannig gerð börn fæðist
óeðlileg.
Bevis hefur fyrir sina parta lýst
þvi yfir, að hann sé steinhættur
þessum rannsóknum héðan i frá.
Sagði hann, að sér yrði „illt” af
öllu umtalinu og skrifunum, sem
fylgt höfðu i kjölfar uppljóstrana
hans. Atti hann vart orð til að lýsa
hneykslun sinni á tilboði eins
brezku blaðanna um nær 12 millj-
óna króna borgun fyrir hans eigin
frásögn af þessum tilraunum.