Tíminn - 26.01.1966, Blaðsíða 2
/
2_______:___________• immn_________ MIÐVIKUDAGUK 26. janúar 1966
NV BÁTAHOFN, VATHSVEITA OG MALBIKUN
GflTNfl MEDAL MESTll BÆJARFRAMKVÆMDfl
Jón Guðjónsson hefur verið bæj
arstjóri ísafjarðarkaupstaðar í
átján ár samtals og hefur hæstan
starfsaldur núverandi bæjarstjóra
á íslandi Hann stendur nú á sjö-
tugu og mun láta af bæjarstjóra-
starfi sökum aldurs í ár Hann
er Vestfirðingur, fæddur á Sæbóli
á Ingjaldssandi. Að loknu verzl-
unarnámi í Reykjavík gerðist
hann starfsmaður Ásgeirsverzlun-
ar á Suðureyri í Súgandafirði, en
1917 gekk hann í þjónustu Eim-
skipafélags íslands í Reykjavík,
varð yfirbókari þess og gegndi
því starfi til ársins 1943, er hann
tók fyrst að sér bæjarstjórastarf-
ið á ísafirði, gegndi því til 1946,
tók það aftur að sér 1951 og hefy
ur gegnt því síðan. Er ég gekk á
hans fund á bæjarstjóraskrifstof-
unni, spurði ég hann fyrst þess,
hverjar veru mundu, að hans áliti,
helztu bæjarframkvæmdir í starfs-
tíð 'hans
, — Ég er helzt þeirrar skoðun-
ar, að nauðsynlegasta og bezt
heppnaða bæjarframkvæmdin hafi
verið vatnsveitan, svarar Jón bæj-
arstjóri Hér var við mikla erfið-
leika að etja árum saman sökum
skorts á vatni Hann varð æ til-
finnanlegri méð árunum eftir því,
sem fiskiðnaður jókst og tók sí-
fellt meira til sín af því vatni,
sem fékkst svo heimili og aðrar
stofnanir komust í stökustu vand-
ræði af vatnsleysi, Úr þessu var
reynt að bæta með nýrri vatns-
lögn fyrir allmörgum árum, en
hún kom að litlu haldi Því var
enn ráðizt í nýja vatnsveitu, sem
komst í gagnið 1960, og þá brá
svo við, að vatn reyndist yfrið
nóg til neyzlu og allra hluta og
Jón Guðjónsson, bæjarstjóri, og loftmynd af ísafjarðarkaupstað.
ur undirbúningur fyrir liendi, áð-
ur en kemur tií að nota slík tæki,
nóg af malarefni og mulningsvél-
ar og þarf að vera búið að ganga
frá öllum lögnum í göturnar
Þetta blessaðist ekki sem skyldi,
félagið var lágt niður og seldar
vélarnar, sem ísafjarðarkaúpstað-
ur keypti Og þegar þær voru
hingað komnar, gerbreyttist her
aðstaða til áframhalds malbikun-
ar gatna í bænum Alls hafa nú
verið malbikaðar götur hér, sem
Götumalbikun á ísafirði.
engin hætta talin á að vatnsskort-
ur geri aftur vart við sig í námni
framtíð, síður en svo Þá vildi
ég segja, að hin næstmerkasta bæj
arframkvæmd hér hafi hafizt með
nýrri gatnagerð, þ. e. malbikun
gatna í bænum Fyrst í stað var
hér notazt við mjög fuumstæð
verkfæri, en mesta furða, hvað
vannst, þó með þeim. Svo var
það fyrir nokkrum árum, ac Sam-
band íslenzkra sveitarfélaga stofn
aði félag, sem annast skyldi gatna
gerð og keypti hingað til lands
allmikið tæki til þeirra hluta En
af ýmsum ástæðum reyndist ekki
allsstaðar grundvöllur fyrir þeim
rekstri Það þarf að vera rækileg-
eru að flatarmáli 24 þúsund fer-
metrar og nokkuð að auki fyrir
bílastæði
— En hýað um hafnarfram-
kvæmdir hér á seinni árum?
— Jú, það verður vissulega að
teljast til merkustu bæjarfram-
kvæmda hér, stækkun hafarinnar,
bátahöfnin Framkvæmd þess
mannvirki' var sem sé mjög
skemmtile, Það var gert að fyrir-
sögn Hafna- og vitamálaskrifstof-
unnar, sem lagci til verkstjóra cg
stórvirk tæki krana, og afköst
hans voru undraverð og verkið
gekk eins og í sögu. Með mokstri
og uppfyllingu skapaðist þar á
skömmum tíma allstórt land og
ágætt athafnasvæði Það hefur
lengi verið mikill hugur í mönn-
um hérna að auka landrýmið á
Tanganum Bátahafnaruppfylling-
in er nú orðin 212 kantmetrar, þar
af nýi parturinn 108 metrar, það
sem vannst með stækkuninni í
fyrra.
— Og hér er allstór íþrótta-
völlur í uppsiglingu — niðri í
fjöru?
\
— Já, í hann hefur verið lögð
mikil vinna Þó mundi ég segja,
að ekki sé hyggilegt að byggja
íþróttavöll út í sjó, æðikostnaðar-
samt fyrirtæki Hér kom fram
uppástunga um að útbúa knatt-
spyrnuvöll og íþróttasvæði mni í
Tungudal, og það fannst mér fyrir
mitt leyti mjög góð hugmynd Er,
flestum þótti með því of iangt
farið út úr bænum með íþrótta-
vöU Þó held ég að smávægi'eg
vegalengd skipti ekki máli í fram-
tíðinni, því að mig grunar, að
byggð eigi eftir að rísa inpi í
fjarðarbotninum, og í þá átt fær-
ist byggðin En þessi leið var val-
in — að fylla upp allstórt svæði,
og því miður var ekk: heppileg
aðstaða þar til að koma við þeim
verkfærum, sem svo fljótt og vel
unnu verkið við stækkun bátahafn
arinnar Raunar hefur þessi stað-
ur, þar sem íþróttavöUurinn er
og verður, þann kost, að brekk-
an fyrir ofan er ákjósanleg fyrir
áhorfendasvæði
— Um eitt skeið rak kaupstað-
urinn kúabú, hvernig gekk það?
— Segja mætti, að nauðsyn hafi,
verið að auka mjólkurframleiðslu
hér hafi ekki verið nægileg mjólk
handa bæjarbúum En aðalástæð-
an fyrir því að bærinn réðist í að
hefja þennan búrekstur var sú,
að hér kom upp taugave’ ., og
þá var tekið það ráð af heilbrigð-
ástæðum, að mjólkurframleiðslan
færðist allmikið á hendur bæjar-
ins, sem rak í mörg ár kúabú á
tveim bæjum hér í grennd Kirkju
bóli og Seljalandi, en síðan var
mjólk flutt með Djúpbátnum inn-
an úr Djúpi og frá Önundarfirði
hingað til bæjarins. Þá var þetta
mál í rauninni leyst, því að Ön-
firðingar hafa svo góð búskapar-
skilyrði Mér finnst liggja í aug-
Tímamynd—GB
um uppi, að það sé ekki hagkvæmt
fyrir bæjarfélag að reka búskap.
Við vitum, að sveitafólk leggur
hart að sér við framleiðsluna og
vinnur öðruvísi en tíðkast í bæj-
um, vinnur þegar þörf er á vinn-
unni En hér var þessi kaupstað-
arbúskapur kominn í það horf, að
ekki varð hjá því komizt að kaupa
fólk í eftirvinnu og næturvinnu til
að vinna aðalstörfin Því var ekki
annað fyrir bæjarfélagið að gera
en leggja þann búskap niður Bú-
stofninn var seldur og jarðirnar
leigðar
— Og aðrar bæjarframkvæmdir
í seinni tíð?
— Það má nefna byggingu
sundhallar og skólanna, helmings
stækkun á gagnfræðaskólanum og
nýr barnaskóli, sem nú er í smíð-
um, verður allmikil bygging og á
að leysa af hólmi gamla barna-
skólahúsið, sem byggt var úr
timbri 1901 og er þó enn furðu-
gott hús Lengi hefur verið á döf-
inni að byggja hér nýtt elliheim-
ili ísafjörður var með fyrstu stöð-
um á landinu til að stofna elli-
heimili, eftir að hið myndarlega
sjúkrahús hér var komið í gagn-
ið, þá var gamla sjúkrahúsið tek-
ið undir élliheimili Þetta hús var
allgott á þeirra tíma vísu og hef-
ur verið notað svo að segja
óbreytt síðan 1925, en samsvarar
náttúrulega engan veginn þeim
kröfum, sem nú. eru gerðar til
slíkra stofnana Endanlega ákvörð-
un hefur þó ekki verið tekin í
þessu máli Loks má á það minn-
ast, að hér er mikill hugur í mönn
um vegna væntanlegs menntaskóla
fyrir Vestfirði Um byggingu er þó
ekki hægt að segja neitt ákveðið
að sinni, nema það, að búið er að
ákveða honum stað hér í bænum
Heilsufar í hérað-
inu yfírleitt gott
Ég gekk á fund héraðslæknis-
ins á ísafirði, Ragnars Ásgeirs-
sonar, til að spyrja hann um heil-
brigðismálin í bænum og
starfsemi sjúkrahússins, sem nefn
ist Fjórðungssjúkrahúsið á ísa-
firði
— Sjúkrahúsið hér var byggt
fyrir meira en fjörutíu árum, eða
árið 1924, og það var mest fyrir
forgöngu Vilmundar Jónssonar
fyrrv landlæknis, en hann var
hér lengi áður héraðslæknir
Sjúkrahúsið er að mestu hið sama
og það var upphaflega, og því
vitaskuld löngu orðið of lítið og
á eftir tímanum, sem eðlilegt er
Ný tæki til lækninga og rann-
sókna hafa síðan komið hér tii
sögunnar, og allsendis ónogt rými
til að koma þeim við, s nauð-
synlegt er Hér verðum við að
hafa rannsóknarstofur okkar uppi
á háalofti spítalans Yfirleitt er
spítalinn fullsetinn sjúklingum,
flestir sjúklingar hafa þar verið
í senn 42 og fæstir 35 mörg 'íðari
ár Hingað leita erlend skip mik
ið með sjúklinga og slasaða menn,
ig sú aðstoð fer vaxandi. r.d. á
árinu 1964 voru sjúklingar á Fjórð
ungssjúkrahúsinu 54 innanhéraðs,
236 sjúklingar utanhéraðs og 80
útlendin^ar og þeir hafa legið
þar að meðaltali eina viku hver
Sjúkrahússlæknir hefur verið hér
undanfarið ár Úlfur Gunnarsson
(skálds Gunnarssonar) Þar gegna
starfi tíma og tíma kandidatar og
læknastúdentar, en hér vantar
héraðslæknir
fastan lækni síðan Kjartan J. Jó-
hannsson fluttist héðan og tók við
héraði suður í Kópavogi Annars
er það um heilbrigðisástandið að
segja, að vfirleitt hefur það ver-
ið gott hér um slóðir í seinni tíð,
lítið um kvilla eða farsóttir