Tíminn - 28.01.1966, Blaðsíða 7

Tíminn - 28.01.1966, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 28. janúar 1966 bbmh TÍMINN HBDHf Á reiðskóla í Þýzkalandi. — Ragnheiður er fremst á myndinni. NÁMSKEID I HESTAMENNSKU Ragnheiður Sigurgrímsdóttir er nýlega komin heim frá Þýzkalandi en þar hefur hún verið í reiðskóla í tæp tvö ár, og ætlar að hefja kennslu í reiðmennsku á vegum , hestamannafélagsins FÁKS í Reykjavík. — Hvemig stendur á áhuga þín um á hestum og hestamennskra? sku? — Bg byrjaði að sitja á hesti, þegar ég var 6 ára og sótti þá kýrnar fyrir föður minn, en hann býr í Holti, Ámessýslu. Vandist ég hestum sem krakki og hef alltaf gaman af þeim síðan. — Það vekur dálitla furðu, að þú skyldir hætta sem yfirflugfreyja hjá Loftleiðum, til þess að fara á á reiðsbóla. Hvernig stendur eigin lega á því? — Skýringin á því er ósköp ein- föld, ég var orðin þreytt á fluginu og vildi breyta til, enda búin að starfa sem flugfreyja í 7 ár. Eg þekkti Rosmary Þorleifsdóttur, en hún var eina hérlenda konan, sem hafði verið á reiðsbóla í Þýzka landi og þannig fébk ég áhuga á þessu námi, enda hvött til þess af Fáfes-mönnum. — Þú ert þá reiðkennari. RITSTJÓRI: OLGA ÁGÚSTSDÓTTIR — Já, reiðbennari og tamninga maður. — Hvenær hefjast námskeiðin hér í Reykjavík? — Þau hefjast í byrjun febrúar. Nú sem stendur er verið að skipu leggja þau. Ætlunin er að hafa tvo hópa á dag fyrir krakka, helzt ekki yngri en 10 ára, en þó kæmi til greina að taka duglega 8 og 9 ára krakka. Þegar fer að birta af degi er ætlunin að hafa námskeið fyrir fullorðna á kvöldin. Einnig Framhald á bls. 12 RÉTTUR VIKUNNAR Fiskréttír í ofni Soðin fiskflök í ofni (fyrir 4). 5-600 gr. fiskflök, ný eða hraðfryst. V2 msk. salt. 1-2 msk. smjör eða smjörlíki. Fiskurinn á að vera beinlaus og roðflettur raðað í eldfast mót. Salti stráð yfir, og smjör bitum raðað á. Ef mótið er loklaust, er bezt að setja málm pappír yfir. Bakað við hægan hita (175 gr) oa. 30 mínútur. Borðað með soðnum kartöfl um, hráu grænmetissalati. — Ennig er ágætt að búa til fisk sósu úr beinasoðinu, t.d. tómat- eða kaperssósu. (Gott er að setja sítrónusafa yfir fiskinn áður en hann er soðinn). Steiktur fiskur í ofni (fyrir 4). 5-600 gr. fiskflök, ný eða hraðfryst. Skorinn í stykki, raðað í smurt eldfast mót. Salti og pipar stráð yfir. Til að fá fjöl- breytni í þennan rétt má út- búa hann á mismunandi vegu. 1. Brauðmylsnu stráð yfir, smjörbitar eða rjómi látið yf- ir. Bakað. 2 msk brauðmylsna, 100 gr. smjörlíki. 2. Tómatbátar eða tómatkraft ur, lauksneiðar og rifinn ostur efst. Bakað. 1 dl tómatkraftur eða 2 tómatar. 1 laukur. 2 msk. rifinn ostur. 3. y2tesk karrý hrært út með 1 msk af vatni. 3 >msk af smjör líki. Látið yfir bakað. Með þessum fiskréttum er ágætt að hafa soðnar kartöflur eða hrærðar, hrátt salat eða grænkálsjafning (spínat eða njóla). Ef steinselja er fyrir hendi, er ágætt að klippa hana yfir fiskinn eða kartöflurnar. FISKBAKSTUR. 5-600 gr. fiskur hrár eða soð- inn í fremur smáum bitum 3 msk smjörlíki. 3 msk hveiti, 3-4 dl soð éða mjólk. 1-2 tesk salt. 2 egg. 2 tesk. sítrönusafi. (Rækjur sveppir eða tómatar) (Graslaukur, dill eða stem- selja). Vökvinn er hitaður að suðo. SmjörMkið er hrært lint, hveft ið lirært saman við, látið út í vökvann, soðið 5-8 mínútur. Salti stráð á. Kælt. Eggjarauðumar hrærðar vei í ein og ein. Bragðbætt með sítrónusaf- anum, söxuðum graslauk, dill eða steinselju. Síðast er stíf- þeyttuim hvítunum blandað saman við. Hellt yfir fískinn Framhald á bls. 12 LITURINN í ÁR ER HVÍTT Hinn snjóhvíti litur er allsráðandi hjá framleiðendum fatatízkunnar í heiminum. Það er sama hvaða flík er, allt skal vera hvítt, allt frá sokkum og skóm, nærfatnaði ytri- og innri fatnaði, að ógleymdum höfuðfatnaði. Þetta höfum við frá einum helzta tízkufréttaritaran- um í London. Það vekur dálitla furðu, að London er farin að sækja mikið á í tízkuheiminum og taka viðskipt- in frá París. Jafnvel Svíar, sem eru þekktir fyrir vand- aða klæðagerð, sækja í æ ríkari mæli fyrirmyndirnar til London. Það er ekki nóg, að framleiddur er hvítur fatnaður, það er einnig hugsað fyrir því að halda þessu hvítu og hreinu. Nú er farið að framleiða sérstakt krem í túbum til þess að halda kuldastígvélunum krítarhvítum, og einungis í London hafa efnalaugarnar komið upp yfir 1.000 sjálfvirkum hreinsivélum. Viðkomandi þarf aðeins að opna vélina, láta óhreint tauið í hana, stinga í hana mynt og fær hreinsuð 4 kg af þvotti fyrir sem svarar 120 krónum, og þetta þarf ekki að taka lengri tíma en 15 mínútur. Snyrtivörurnar hafa ekki verið skildar eftir, og nú skýra konurnar útlínur varanna með hvítum strikum (hvernig sem það er hægt) nota hvítt make-up og augna- háralit. Það er því brýnt fyrir öllum að láta sér ekki bregða, þótt þeir sjái vofu. Hér birtum við myndir af hvítu tízkunni, sem er ljóm- andi falleg og látum lesendum eftir að dæma um fal- Iegustu flíkina.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.