Tíminn - 27.02.1966, Page 11
SUNNUDAGUR 27. febróar 1966
TÍMINN
TOM TULLETT
2
eyjum? Baróninn þyrfti ekkert að hafa fyrir því, vegna þess
að svo vildi til að maður þessi var góðvinur hans.
Listaverkasalinn féllst fúslega áþ etta, og baróninn fór
á brott með myndirnar báðar. Hann kom aftur að fáum
klukkutímum liðnum, áður en listaverkasalann fór að gruna
nokkuð, en með slæmar fréttir. Sérfræðingurinn treysti sér
ekki til að votta að myndirnar væru ósviknar. Satt að segja
voru Þetta eftirmyndir, ágætar að sínu leyti, en samt eftir-
myndir.
Iistaverkasalinn var í öngum sínum, en baróninn sýndi
honum slíka hluttekningu að hann lét brátt huggast og tók
óhappinu af kjarki. Hann þakkaði vini sínum meira að segja
fyrir, því hann setti metnað sinn í að selja aldrei svikna
vöru.
Ekki leið á löngu að baróninn hætti daglegum heimsókn-
um, og listaverkasalinn var nú farinn að jafna sig svo að
hann gat athugað myndirnar rólega. Hann komst 'að raun
iitti að þetta voru aðrar myndir en vinur hans hafði farið
með úr verzluninni. Auðséð var að hann hafði skilað eftir-
myndunum en hirt frummyndirnar.
Nú hafði gervibaróninn enn farið á stúfana og beitt sömu
aðferð. Hann hafði komið á hverjum degi í litla safnið
í Agen og vingazt við safnstjórann, sem var hrifinn af
fágaðri framkomu og þekkingu þessa nýja kunningja.
Að fáum vikum liðnum voru allir safnverðirnir farnir að
iáta baróninn njóta vinfengisins við safstjórann. Hann fékk
að fai-a allra sina ferða um safnið óáreittur, og einn morg-
uinn komst safnstjórinn að raun um að búið var að skera
einu myndina sem safnið átti eftir Goya úr rammanum.
Að kvöldi sama dags var lýst eftir baróninum í öllum
löndum heims með útvarpsskeyti, þar sem einnig voru talin
upp fjörutíu og átta önnur dulnefni sem hann hafði not-
að. Brátt tóku svarskeyti að berast í litla húsið í París.
Baróninn hafði sézt ásamt fylgdarliði á Spárii, Portúgal og;
ftalíu.
Viku síðar kom skarpskyggn leynilögreglumaður auga á
taminn apa í vörzlu roskins manns í hraðlest á leið norð-
ur Evrópu, og í sama klefa voru kona og ungur maður.
Leynilögreglumaðurinn fann málverk Goya undir blaða-
stafla í næsta klefa, og daginn eftir var farið með barón-
inn á staðinn þar sem hann hafði stolið myndinni.
Rannsók þessa máls var ósköp hversdagslegur viðburður
fyrir Alþjóðalögregluna. Nokkur önnur dæmi ættu að sýna
hvers konar fyrirspurnir það eru einkum sem berast hvaðan-
æva úr veröldinni í húsið vi ðRue Paul Valéry. Upphaf
langflestra er að fórnarlamb afbrotamanna snýr sér til lög-
reglunnar í heimabyggð sinni.
Eitt slíkt mál hófst þegar ungur maður laut frönskum
presti af lotningu. „Ég heiti von Brettenfeld prins. Ég varð
að flýja frá ættlandi mínu, Ungverjalandi, og skilja eftir
allar eigur mínar. Eitt sinn var ég auðugur, eins og faðir
minn var, en nú er svo komið að ég er örsnauður. herra
minn.“
Prestur var efagjarn í fyrstu, en ungi maðurinn var við
slíku búinn. Hann tók plögg upp úr vasa sínum. „Þessi
bréf,“ sagði hann, „eru frá nokkrum tignum klerkum í
Ungverjalandi, sem mér hefur veitzt sá heiður að eiga að
vinum. Þeir ráðlögðu mér að snúa mér til yðar ef í nauð-
irnar ræki, og þér mynduð hlaupa undir bagga með mér.“
Bréfin sannfærðu prestinn. Hann kannaðist ekki við bréf-
ritarana, en bréfhausar og stimplar voru kirkjulegir, og
efnið var að ungi maðurinn væri flóttamaður af auðugum
ættum. Prinsinn hélt áfram: „Ef þér sjáið yður fært að
hjálpa mér, herra minn, skal ég endurgjalda yður þúsund-
falt, og líkna bágstöddum löndum yðar, þegar mér tekst
að ná reiðufé mínu út úr Ungverjalandi."
Þessi atburður átti sér stað í janúar 1949 á heimili prests
sem starfaði í þjónustu erkibiskupsins í París. Þegar prins-
inn hafði tekið við éveim þúsund franka seðlum af prest-
inum, yfirgaf hann húsið með bugti og beygingum. f vasan-
um hafði hann bréf frá prestinum til Alþjóðlegu flótta-
mannahjálparinnar með beiðni um að unga manninum yrði
liðsinnt.
árið út í gegn barði svikahrappurinn dyra hjá einhverjum
presti hvenær sem hann komst í fjárþrot. í Strasbourg,
Bayonne, Toulouse, Maeon og fleiri borgum nefndi hann
nafn velgerðarmanns síns í París og bætti við: „Ég er skyld-
ur hans herradómi X og varð að flýja land mitt.“ Alitaf
UNDIR FÖLSKU FLAGGI
ANNE MAYBURY
45
gjarnan fá að skoða fatnað yðar,
ungfrú Ashlyn.
Hún fann augnaráð Rhodu hvíla
a sér, rannsakandi og íhugult.
Fenella blaðaði í tímariti. Ralp
sat með krosslagða fætur og starði
niður í gólfteppið.
Rhoda reis upp.
Ég ætla að setja inn matinn.
Hann er tilbúinn.
— Þá borðum við. Lögreglufull-
trúinn kvaðst koma aftur í kvöld
og ég vil ógjaman láta
ónáða okkur við máltíðina.
Meðan þau sátu að snæðingi
hafði Vonnie á tilfinningunni, að
öll biðu þess, að eitthvað sérstakt
gerðist. Fenella talaði stöðugt og
hló einum of hátt og tilgerðar-
lega. Ralph reyndi að vera glað-
legur og fyndinn, en virtist þving-
aður. Joss gamli var þögull og
Rhoda var hljóðlát og stillileg, þar
sem hún sat gegnt honum við
borðið.
Þau voru að drekka kaffi í stof-
unni, þegar dyrabjallan hringdi.
— Mér fannst ég heyra í bif-
reið, sagði Joss. — Það hlýtur að
vera lögregian.
Rhoda gekh fram, hin sátu graí-
kyrr og hlustuðu.
Svo kom Rhoda inn aftur.
— Það er verið að spyrja eftir
þér, SJyra
— Lögregian.
— Nei. F.’r.hver karlmað'ir.
Vinur þinn.
— Vinur? Hver gat það verið?
Nigel — eða einhver annar? Gat
einhver verið kominn frá Van-
couver og frétt að hún væri hér?
Það hafði staðið í blaðinu . . .
Hún stóð svo snögglega á fætur,
að minnstu munaði, að hún hras-
aði um bjarndýrsskinnið á gólf-
inu.
Hjartað barðist ákaft og fæt-
urnir voru eins og bráðið smér.
Þegar hún lokaði dyrunum að
baki sér og leit upp, sá hún, að
það var Nigel, sem stóð í gang-
inum. Hún fylítist örvæntingu og
gat varla hugsað til þess að tala
við hann. Henni tókst ekki að
leyna örvæntingargremjunni, sem
greip hana.
— Hvers vegna kemurðu hing-
að núna? Hvers vegna geturðu
ekki látið mig í friði?
— Ég vil tala við þig?
— Ekki núna, ekki aftur. Ég
get það ekki, sagði hún snöktandi.
— Sæktu kápuna þína.
— Nei, Nigel, gerðu það fyrir
mig ..
Hann greip um hönd hennar.
Rödd hans var lág og blíðleg.
— Ég ætla ekki að særa þig,
Vonnie. Ekki I þetta skipti. Gerðu
það fyrir mig —
Þau heyrðu fótatak úti fyrir.
Bæði hlustuðu. Nigel hélt enn um
hönd hennar. Svo var bjöllunni
hringt.
— Það er lögreglan, sagði
Vonnie rólega. — Þeir sögðust
ætla að koma. Þeir vilja tala við
mig.
Hún sleit sig frá Nigel og greip
um stigahandriðið til stuðnings.
Hún heyrði hreyfingu í stof-
unni. Svo var bjöllunni hringt aft-
ur.
Aðalfundur
Mótorvélstjórafélag íslands heldur aðalfund
sunnudaginn 6. marz kl. 14 að Bárugötu 11,
Reykjavík. Venjuleg aðalfundarstörf. Lýst stjórn-
arkjöri. Önnur mál.
Stjórnin. W ’ - '
Aðalfundur
Stéttarfélags verkfræðinga verður haldinn í
Glaumbæ, uppi, mánudaginn 28. febr. 1966 kl.
20.30.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Nigel gekk að dyrunum og opn-
aði.
I somu andrá þaut Vonnie að
klæðaskápnum til að ná í káp-
una sína. Kannski vildi lögreglu-
fulltrúinn tala við Joss frænda
fyrst. Meðan hann gerði það, ætl-
aði hún að ganga út með Nigel,
vita hvers vegna hann hafði kom-
ið, um stund ætlaði hún að gleyma
öllu stolti og öllum vonbrigðum
og auðmýkja sig og leita ráða hjá
honum, áður en hún purfti að
tala við lögreglufulltrúann. Hún
hafði engan annan hér í Englandi,
sem hún gat leitað til. Hún var
ein — og haldin ofboðslegri
hræðslu.
Það var enginn gluggi í fata-
ÚTVARPIÐ
í dig
Sunnudagur 27. febrúar
8.30 Létt morgunlóg: Hljómsveít
Francs Pourcels leikur frön&k lög
og hljómsveit Alfreds Hiuses
Iþýzk iög.
8.55 Fréttir.
Útdráttur
úr forustugreinum dagblaðanna.
9.10 Veðurfregnir. 9.25 Morgun
tónleikar. 11.00 Messa í Hallgríms
kirkju, Prestur: Séra Jakob Jóns
son dr. theol. Organleikari: Páll
Halldórsson. 12.15 I-iádegisútvarp.
13.15 Séra Pétur Dass og kvæða
flokkur hans „Norðuriands-
trómet“ Dr. Kristján Eldiám
þjóðminjavörður fjytur síðara
erindi sitt með ljó'öaþýðingu. 14.
00 Tónleikar í útvarpssal: Quatu
or Instrumental de Paris leikur.
15.30 Þjóðlagastund Troels Bendt
sen velur lögin og kynnir. 16.00
Veðurfregnir. „Skógar og velfiar":
Lúðrasveit veiðimanna í Biicke
borg ieikur. 16.30 Endurtekið
gamanefni frá gamlárskvöldi.
Stefán Jónsson gerir útdrátt úr
dagskránni um fugla ársins J965.
17.30 Barnatími: Helga og Huida
Valtýsdætur stjórna. 18.20 Veður
fregnir. 18.30 íslenzk sónglög:
Karlakórinn Geysir á Akureyri
syngur. 18.55 Tilkynningar 19.30
Frétir 20.00 Jörundur, Baldvin
Halldórsson leikari les kvæði
Þorsteins Erlingssonar um Jbrund
hundadagakonung. 20.30 Einsöng
ur i útvarpssal: Guðmundur Guð-
jónsson syngur lög eftir Sigfus
Halldórsson. Höfundurinn leikur
með á píanó. 20.50 Sýsiurnar
svara. Barðstrendingar og Dala-
menn svara spurningum báttar-
ins. Stjórnendur keppninnar-
Guðni Þórðarson og Birgtr ísleif
ur Gunnarsson. 22.00 Fréttir og
veðurfregnir. 22.10 Danslóg. ?3.
30 Dagskrárlok.
Mánudagur 28. febrúar
7.00 Morgunútvarp 12.00 Hádegis
Útvarp 13.15 Búnaðarþáttur: Frá
setningu búnaðarþings. Gisii
Kristjánsson
ritstjóri
tekur upp
hið markverðasta á fyrsta þing-
fundi 22. þ. m. 14.00 Við vinnuna:
Tónleikar 14.40 Við, sem heima
sitjum. 15.00 Miðdegisútvarp 16.
00 Síðdegisútvarp 17.20 Fram-
burðarkennsla i frönsku og
þýzku. 17.40 Þingfréttir. 18.00 Úr
myndabók náttúrunnar. Ingirn.
Óskars. segir frá lágfótu. 18.20
Veðurfregnir. 18.30 Tónleiknr. 19.
30 Fréttir. 20.00 Um daginn og
veginn Ragnar Jóhannesson cand.
mag. talar. 20.20 íslenzk tónlist
20.35 Á blaðamannafundi: Eiður
Guðnason sti 21.20 „í rökkurró
hún sefur“" Gömlu lögin. 21.30
Útvarpssagan: „Dagurinn og nótt
in“ Hjörtur Pálsson ies (61 22.00
Fréttir og veðurfregnir. Paldur
Pálmason les Passiusálma (18).
22.20 Hljómplötusafnlð G. GuSm.
stjórnar 28.10 A8 tafli Guðmund
ur Amlaugsson flytur skákþátt
23.45 Dagskrárlok.