Tíminn - 05.03.1966, Side 7

Tíminn - 05.03.1966, Side 7
LAUGARÐAGUR 5. marz 1966 TÍMIWN 7 gerð en neitar úrbótaathugun AKjReykjavík. föstudag. — Þau tíðindi gerðust í borgarstjórn Reykjavíkur í gærkveldi, að íhald- ið játaði að útgerðin í borginri ætti við mikla örðugleika að etja, en neitaði þó með öllu að hefja nokkra athugun á því, hvernig byggja mætti nýjan grundvöll und ir hana. Vísaði það tillögu Fram- sóknarmanna frá með vífilengju- tillögu, þar sem segir, „að ástand og horfur í útgerðarmálum Reykja vfkur eða atvinnuvegum borgar- innar almennt sé ekki svo alvar- legt eða uggvænlegt að ástæða sé til skipunar sérstakrar nefndar nú til rannsóknar á þessum málum, enda þótt erfiðleika hafi gætt hjá vissum þáttum útgerðarinnar." Mun slík játning og þó neitun um að reyna að snúast við til úr- bóta harla táknræn íhaldsafstaða eins og hún er nú til íslenkra atvinnuvega. Tillaga Framsóknarmanna var svohljóðandi: „f blaða- og tímaritagrein- um svo og í viðtölum, sem birzt hafa í dagblöðunum að undan- förnu við ýmsa forystumenn í út- gerðarmálum, liefur sú skoðun komið fram, að útgerð frá Reykja- vík fari minnkandi og vissar grein ar hennar muni jafnvel leggjast eggjast niður á næstunni, ef svo heldur fram sem nú horfir. Þá liafa frystihúsin í borginni haft lítið að gera vegna hráefna- skorts, það sem af er vetri, enda fiskleysi svo mikið að gera hefur þurft sérstakar ráðstafanir til öfl- unar neyzlufisks handa borgarbú- um. Sjávarútvegurinn er og hefur verið frá því fyrsta undirstöðuat- vinnuvegur Reykjavíkurborgar. Af þeim sökum hlýtur borgarstjórn- in að líta það mjög alvarlegum augum, ef verulegur samdráttur er orðinn eða fyrirsjáanlegur í þessari atvinnugrein og gera allt, sem í hennar valdi stendur til úrbóta, - þannig að undanhaldi verði snúið í sókn. Því samþykkir borgarstjórnin að beita sér fyrir stofnun nefndar er m.a. taki til meðferðar eftir- greind atriði: 1) . Hver hlutur útgerðarinnar er í atvinnulífi borgarinnar nú í dag og hvaða breytingar hafa orð- ið í þeim efnum síðustu árin. 2) . Hver áhrif það myndi hafa í framtíðinni, ef útgerð frá Reykja vík drægist verulega saman, frá því sem nú er, og þeir sem stunda þessa atvinnugrein hyrfu til ann- arra starfa. 3) . Hvernig aðstaðan í landi er til útgerðar og hvaða umbætur mætti gera, svo að aðstaða og skipulag yrði betra og hagkvæm- ara en nú er. 4) . Hverjar ráðstafanir mundi vænlegast að gera til áð auka út- gerð frá Reykjavík í framtíðinni. Borgarstjórnin kýs fimm menn f nefndina. Þá skal þess óskað við eftirgreind félagssamtök, að þau tilnefni hvert um sig einn mann í nefndina: Sjómannafélag Reykja víkur, Útvegsmannafélag Reykja- víkur, Skipstjóra og stýrimanna- félagið Ölduna og Félag fslenzkra botnsvörpuskipaeigenda. Nefndin ljúki störfum og skili áliti og tiUögum til borgarstjórn- ar eigi síðar en 1. október n.k. Kristján Benediktsson, borgar- fulltrúi Framsóknarflokksins hafði framsögu og sagði m.a.: — Svo virðist, sem allir undir- stöðuatvinnuvegir okkar íslend- inga, þ.e. landbúnaður, sjávarút- vegur og iðnaður eigi í miklum og vaxandi erfiðleikum um þessar mundir. Varla er haldinn svo fund ur hjá forsvarsmönnum þessara at vinnugreina, að ekki sé kvartað um erfiðleika í atvinnurekstrin- um, lánsfjárskort, háa vexti, vinnu aflsskort og fleira af því tagi. Miklu sjaldnar heyrist talað um erfiðleika í land'búnaði af völd- um harðinda eða grasleysis, þótt slíkt komi stundum fyrir í viss- um landshlutum, eða erfiðleika í sjávarútvegi vegna aflaleysis og markaðstregðu. Þvert á móti hef- ur sjávarafli verið óvenjulega mik- ill síðustu árin og sala á sjávaraf- urðum eriendis gengið vel. Þann- ig sögðu frystihúsaeigendur í ályktun frá nýafstöðnum fundi sín um „að markaðir væru góðir fyrir hraðfrystar sjávarafurðir.“ Anávaraleysið alvarlegt: Við teljum að borgarstjórn Reykjavíkur geti ekki og megi ekki leiða hjá sér með afskipta- leysi þá alvarlegu þróun, sem á sér stað í sjávarútveginum og þeir, sem gerst þekkja, telja, að muni leiða til stórfellds samdráttar í þessari atvinnugrain og þá kannski fyrst og fremst hér í Reykjavík. Sjósókn og vinnsla aflans landi hefur verið og er enn sna þáttur í atvinnulífi borgarinnar. Hið versta er, að verulegur hluti af erfiðleikum sjávarútvegsins er heimatilbúinn, kemur þetta fram í greinum, sem ýmsir forystu- menn sjávarútvegsins hafa undan- farið ritað í blöðin, til þess að skýra þjóðinni frá því, hvernig málum hans sé komið. Öllum má Ijóst vera, að efnahagslegt sjálf- stæði þjóðarinnar og raunar stjórn arfarslegt líka byggist á því, að við eigum sjálfir okkar undir- stöðuatvinnuvegi. Skilningur á þessu má aldrei bresta. Framleiðslutækin og gjaldeyrisöfl- unin: Seðlabankinn segir okkur að gjaldeyriseign landsmanna vaxi. Ánægjulegt er það. En jafnframt ákveður ríkisstjórin meiri og meiri innilokun á fé landsmanna í Seðlabankanum í stað þess að veita fjármagninu út í atvianulíf- ið, til að byggja upp og endur- nýja framleiðslutækin, sem skapa gjaldeyrinn. Ef meiningin er að leggja sjávarútveginn í rúst eins og vel gengur með í sambandi við iðnaðinn, þá er þetta sjálfsagt ieið- in. En hætt er við, að gjaldeyris- eign okkar haldi ekki lengi áfram að vaxa með slíkum aðförum. Þegar þjóðin öðlaðist sjálfsfor- ræði og henni tók að vaxa ásmegin varð hlutverk höfuðborgarinnar meira og fjölþættara. Verzlunin óx, iðnaður reis á legg að nýju og samgöngur og störf í þágu hins opinbera urðu umfangsmeiri. En samt sem áður hélt sjávarútveg- urinn áfram að vera undirstöðu- atvinnuvegur borgarinnar og hef- ur svo verið til þessa dags. Þeim mun fábreyttari, sem at- vinnuvegirnir eru, þeim mun meira veltur á hverri einstakri atvinnu- grein. Það er sumt áþekkt með Kristán Benediktsson atvinnuveginum og rótum trjá- gróðursins. Ég vil þá víkja að tillögunni í einstökum liðum. Fyrstu þrír kaflarnir eru rökstuðningur fyrir aðalefni tillögunnar, nefndarskip- unini og verkefnum nefndarinn- ar. Bátaútvegurinn: En er nú þetta rétt, kann ein- Ver að spyrja? Er útgerð héðan 1 Reykjavík í samdrætti? Við skul . m fyrst líta á bátaútveginn. Báta- útvegsmenn í Reykjavík hafa með sér félag, sem heitir Útvegsmanna félag Reykjavíkur. Formaður þess félags Andrés Finnbogason segir í viðtali við Þjóðviljann 3. febrúar sl., með leyfi hæstvirts forseta: „Hér í Reykjavík eru 40—50 bát ar til staðar og bíða þeir flestir eftir netavertíð og hugsa sér að skrimta á þeim veiðum. Hvernig útkoman verður í vor er kvíðvæn- legt og Lenda flestir undir hamr- inum hjá borgarfógeta ög þá er slíkri útgerð lokið hér í Reykja- vík. f fyrravetur stunduðu hér í Reykjavík nálægt 60 bátar og var hluti af þeirri tölu aðkomubátar. Núna í vetur halda fisksalar hér í bænum úti einum eða tveimur bátum á línuveiðar til þess að veiða í soðið fyrir borgarbúa, en mörg fiskiðjuver í borginni eru að dragnast upp í verkefnaleysi.“ Þetta segir formaður Útvegs- mannafélags höfuðborgarinnar. Manninn þekki ég ekki, en mér er tjáð, að hann sé dugandi skip- stjóri og leggi ekki í vana sinn að fara með fleypur. Hann gefur líka þá yfirlýsingu í umræddu blaðaviðtali, að hann sé af sauða- húsi Sjálfstæðismanna og tryggur þeim stjórnmálaflokki í áravís, þótt það komi ekki kjarna þessa máls við. Árið 1963 voru gerðir út frá Reykjavík á vetrarvertíð 68 bát- ar og fiskuðu þeir samtals 21.904 lestir, sem ég hygg að sé aflamet á vetrarvertíð hér. Sl. vetur er tala bátanna, sem gerðir eru út héðan á vetrarvertíð komin niður fyrir 60 og í vetur hafa svo fisksalarnir gert út tvo báta á línu til að afla matfisks fyrir borgarbúa. Sú út- gerð hefur þí engan veginn dug- að svo sem allir vita og lengst af. það sem af er vetri, verið erf- itt að fá sæmilegan fisk í soðið. Mun mörgum sjálfsagt finnast anzi hart, að útgerðarmálum borgarinn ar skuli vera þannig komið að nýr fiskur fáist ekki vikum saman. Smábátarnir: Fyrir nokkrum árum var liéð- an frá Reykjavík töluverð útgerð smábáta, einkum yfir vor- og sum- artímann. Eigendur þessara smá- báta stofnuðu með sér félag er kallaðist Smábátaeigendafélagið Björg. Beitti félagið sér mjög fyr- ir að fá betri aðstöðu í höfninni fyrir smábátana, en mun hafa talað fyrir daufum eyrum ráða- manna hafnarinnar. Nú er útgerð þessara smábáta svo til með öllu hætt héðan. Eft- ir eru 4—5 trillukarlar, sem kall ast getur að stundi sjó héðan nokkuð að ráði. Aðrir, sem þessa atvinnu stunduðu hér, hafa ann- að hvort hætt henni eða flutt með báta sfna til annarra staða. Togaramir: Fyrir nokkrum árum voru gerð- ir út frá Reykjavík milli 30 og 40 togarar. í vetur er tala þeirra togara, sem gerðir eru út héðan komin niður í 18, en fjórir til viðbótar eru hér skráðir en stunda ekki veiðar. Bæjarútgerðin held- ur nú úti aðeins 5 af togurum sínum. Skúli Magnússon og Pétur Hall- dórsson liggja við Ægisgarð- inn sjálfsagt til lítillar ánægju fyr- ir hafnarstjórann og Þorsteinn Ingólfsson var seldur á sl. ári eins og kunnugt er. Árið 1960 náði togaraeign landsmanna hámarki og voru þá gerðir út 48 togarar. En þá byrjuðu líka fyrir alvöru erfiðleikar þessarar útgerðar. Ár- ið 1961 fækkar togurum, sem gerð- ir eru út í 40, 1962 í 37 og 1963 eru þeir 30. Og nú stunda aðeins 27 tog- arar veiðar á öllu landinu eftir því sem formaður F.Í.B. Loftur Bjarnason segir í grein í febrúar- hefti Ægis, þar af 18 frá Rvk. eins og fyrr segir. í grein Lofts kemur einnig fram, að afli togaranna árið 1965 hefur orðið 75.000 tonn og ankist frá árinu áður um 10.000 tonn. At- hyglisverðara er þó í þessu sam- bandi. að úthaldedagar togaranna voru mun fleiri árið 1964 en 1965. Árið 1964 var meðalafli á úthalds- dag 6,88 tonn en 1965 varð með- alaflinn á úthaldsdag 8,5 tonn. Þrátt fyrir þessa miklu aflaaukn- ingu hjá togurunum á sl. ári eru flestir þeirra reknir með halla. Stuðningur hins opinbera við togarana hefur verið óbreyttur að krónutölu síðan 193. Telur Loft- ur í áðurnefndri grein sinni, að hagur togaranna sé svipaður nú og hann var 1963 að frádreg- um þeim stuðningi, sem þá var í té látinn. Aðstoð við togarana: í desembermánuði sl. skipaði sjávarútvegsmálaráðherra nefnd er athuga skal hag og afkomu- horfur togaraútgerðarinnar og gera tillögur til ríkisstjórnarinn- ar um rekstur togaranna í fram- tíðinni. Verkefnið, sem við er að glíma, virðist ekki hlutfallslega stærra núna, en sú aðstoð, sem togurunum var í té látin 1963. Er vonandi að tal manna bæði hér í borgarstjórn og annars stað- ar um að veita togurunum heim- ild til veiða innan landhelginn- ar og að það mundi bjarga fjár- hag þeirra, þagni nú alveg. Landgrunnið allt: Sé það rétt, að um ofveiði á þorsk- og ísustofnunum við ísland sé að ræða, mundi það ekki bæta að taka togarana af karfamiðun- um t.d. og senda þá inn i sjálfa landhelgina til að skafa þar upp þorsk og ýsu. En hvaða ályktanir eigum við fslendingar að draga af þessum fregnum um ofveiði á þorskstofn- inum og rányrkju erlendra varð- andi ungfiskinn í landgrunninu? Mér finnst, að við getuim «*kki dregið af þessu aðra ályktun en þá, hver lífsnauðsyn okkur er að stækka landhelgina og fá umráð yfir landgrunninu öllu. Málgagn forsætisráðherrans og borgarstjór- ans, Morgunblaðið. lítur hins veg- ar dálítið öðru vísi á málið. Það lætur á sér skilja að skýrsla fiski- fræðinganna sé bending til okkar um það, að við verðum að draga saman seglin varðandi fiskveiðar í framtíðihnio ■( aukin sókn þýðir minnkandi afla, segir blaðið) en þess í stað að svipast um eftir nýj- um atvinnugreinum og vita víst allir, hvað blaðið á við í þeim efnum. Frystihúsin verkefnalaus: í Reykjavík og Seltjarnarnesi eru allmörg frystihús. í þessum húsum er bundið feikna fjármagn í vélum og tækjum auk húsanna sjálfra. Bátafiskurinn á vetrarvertíðinni hefur undanfarin ár verið stærsti hlutinn af hráefni flestra hrað- frystihúsana og við þau hefur unnið fjöldi manns, bæði karlar og konur. í vetur hafa þessi dýru og miklu atvinnutæki — hraðfrystihúsin — starfað með aðeins broti af af- kastagetu sinni vegna hráefnis- skorts. Þannig segir Tryggvi Ófeigsson útgerðarmaður og frystihúseigandi í upphafi greinar er hann reit í dagblaðið Visi hinn 4. febr. sl. „Hráefnaskortur hraðfrystihús- anna í Reykjavík og Hafnarfirði býður úrlausnar." Og hraðfrystihúsaeigendur. sem sátu á fundi hér í Rvk. í sl. viku gerðu langa og ítarlega ályktun, þar sem lýst er ástandi frystihúsa- iðnaðarins og horfum í þeirri at- vinnugrein í framtíðinni. f álykt- un þeirra segir m.a. „Fundur hrað frystihúsaeigenda haldinn í Rvk. 25. febrúar 1966 lýsir áhyggjum yfir að vaxandi verðbólga og mik- il samkeppni um takmarkað vinnu afl þjóðarinnar hefur leitt til auk- inna erfiðleika í hráefnisöflun og rekstri hraðfrystihúsanna. Áfram- hald þeirrar þróunar mun fyrir- sjáanlega leiða til samdráttar í hraðfrystingu sjávarafurða, þrátt fyrir það, að markaðir hafa verið góðir fyrir framleiðsluvörurnar." Forsvarsmenn freðfiskiðnaðarins telja það skyldu sína að vara við þeirri þróun í atvinnu og efna- hagsmálum, sem kynni að raska rekstursgrundvelli þessarar at- vinnugreinar." Framhald á 14. síðu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.