Tíminn - 11.03.1966, Page 3
\M 'f
<< ?: r; r- r, n >7 y, (■; r. k r .7, n v r/ v r< %v \ ■
‘ \ ’ r '< *i
■r. f. tfíM-: r-TjjT "í V-pí ’?
’! 1» "f,, v, r r/1; •• ).
FÖSTUDAGUR 11. marz 1966
TfMfNN
ISPEGLI TlMANS
Beatrix krónprinsessa og
Claus von Amsberg tilkynntu
nýlega að þær peningagjafir,
sem þau fá frá Hollandi, muni
renna til bama, sem á ein-
hvern hátt eru vansköpuð. Eiga
böm í Hollandi og Hollenzku
Vestur-Indíum að njóta þess-
ara peninga. Sagt er að 18 af
45 borgarráðsmönnum í Amst-
erdam hafi afþakkað boðið í
brúðkaup þeirra, Beatrix og
Clausar.
Nú í byrjun vikunnar fór
kóngafólkið í Evrópu að þyrp-
ast til Amsterdam til þess að
vera viðstatt brúðkaup Beatrix
ríkisarfa Hollands og Clausar
von Amsberg, en það fór fram
í gær. Meðal þeirra sem komu
á mánudaginn voru Anna Maria
drottniijg og Konstantin kon-
ungur ©-ikklands. Ásamt þeim
var Irene systir Konstantins.
Hér á myndinni sjást konungs-
hjónin, þegar þau komu til
Hollands.
Franska söngkonan Mireille
Mathieu hefur oft verið nefnd
hin nýja Edith Piaff. Hér sést
hún ásamt Ray Milland og er
myndin tekin áður en hún kom
Michele Mercier, sem er orð-
in fræg fyrir leik sinn í kvik-
myndunum um Angelique hef
ur nú lofað að koma til Dan-
merkur, þegar næsta kvikmynd
in verður sýnd. Hún hafði einn
ig lofað að koma þegar síðasta
myndin þar var sýnd en þá
var hún orðin dauðleið á
Angelique og öllu því, sem
henni fylgdi og sagði að hún
vildi aldrei framar leika í
L
Nýlokið er réttarhöldum í
morðmáli einu í Bandaríkjun-
um og er sagt að það hafi
verið ein saurugustu og sér-
kennilegustu réttarhöld aldar-
innar.
Árið 1964 fannst milljóna-
mæringurinn Jacques Mossler
í íbúð sinni í Florida og hafði
hann verið myrtur. Á líkama
hans voru 39 hnífsstungur. Var
það kona hans, Candace Mossler
sem kom að honum. Þremur
dögum síðar var Melvin Pow-
ers, systursonur frú Mossler,
handtekinn og grunaður um að
hafa myrt Mossler. Að sögn
lögreglunnar var móðursystir
hans með í ráðum. Voru þau
bæði ákærð fyrir morðið og
stóðu réttarhöldin í málinu i
34 daga. Reyndi lögreglan
að sanna að ástarsamband
hefði verið á milli frú Mossler,
sem er 45 ára og Powers, sem
er 24 ára. Var meðal annars
sagt, að þau hefðu átt í bréfa-
skriftum og voru lögð fram
bréf frá þeim í réttinum.
Frú Mossler, sem var erfingi
að öllum milljónum manns
síns réð sex lögfræðinga sem
verjendur þeirra og fór svo
að kviðdómurinn gat ekki orð
ið sammála og fór svo eftir að
kviðdómendur höfðu staðið í
atkvæðagreiðslum í 17 klukku-
stundir, að þau frú Mossler og
Powers voru sýknuð.
Hér á myndinni sést frú
Mossler ásamt dóttur sinni og
barnabarni.
fram í sjónvarpsþætti Ed Sulli
vans í bandaríska sjónvarpinu.
Er þetta í fyrsta sinn sem Mir-
eille Mathieu kemur fram í
bandaríska sjómvarpinu.
slíkum myndum. Skömmu síðar
lék hún í kvikmynd með Robert
Hussein (og klippt burtu alla
Angelique-lokkana) og virtist
það eitthvað hafa blíðkað hana,
því nú segir hún að það geti
komið fyrir alla að villast á
leið sinni til bankans.
*
Fyrsta og eina konan, sem
farið hefur geimferð fram að
þessu, Valentina Teresjkova er
nú að búa sig undir aðra geim-
ferð. Er hún nú í þjálfun
ásamt fleiri rússneskum kon-
um og stendur til að hún fari
með eiginmanni sínum í geim-
ferð áður en mjög langt um
líður.
*
Prestur nokkur í Sussex í
Bretlandi hefur nú farið þess
á leit við söfnuð sinn, að hann
lesi ekki bækur Ian Flemings
um James Bond meðan fast-
an stendur yfir. Sjálfur er
presturinn mikill aðdáandi
James Bond en lét það álit
sitt í Ijós, að fólk ætti ekki
að lesa James Bond-bækur með
an á föstunni stæði, það ætti
að sýna sjálfsafneitun og hætta
að lesa þær meðan á föstu
stendur en lesa frekar bækur,
sem það annars myndi ekki
lesa.
*
Franski leikarinn Jean
Claude Brialy, (sem lék í mynd
inni Une Femme est une
Femme, ásamt Anna Karina,—
er nú kominn i söngtíma. Til
efnið er það, að hann á nú
að fara að leika í sjónvarps-
söngleik ásamt Anna Karina.
*
Mandy Riee Davies, hin 21
árs gamla söngkona, sem kunn
varð fyrir þátt sinn í Profumo-
hneykslinu, var sögð „hin kon
an“ í skilnaðarmáli, sem nú er
fyrir enskum rétti. Baronessa
Vivian Cervallo fékk skilnað
frá manni sínum, Pierre Cer-
vallo, vegna meintra hjúskapar-
brota. Baronnn og Mandy
vörðu ekki málið.
Á VÍÐAVANGI
Þrepahlaup
Um þessar mundir er töluvert
rætt um fyrirbærið þrepahlaup,
aðallega í sambandi við klaka
stíflur í Þjórsá, og hættu af
þeim fyrir væntanlega virkjun.
Fyrirbærið er sagt vera á þann
veg, að klakastíflur margar
myndast með millibilum í ánni,
þegar langir frostakaflar eru.
Þegar þiðnar brestur efsta
þrepið fyrir auknum vatns-
þunga og síðan koll af kolli
hvert af öðru, unz úr verður
ægilegt flóð með firnamiklum
jakaburði, sem ekkert stenzt fyr
ir.
Ferill núverandi ríkisstjórnar
í fangbrögðum við verðbólguna
líkist mjög þessu náttúrnfyrir
bæri. Aðgerðir hennar hafa ver
ið þær að mynda klakaþrcp í
farvegi verðbólgunnar, en eng
ar aðrar haldbærar stíflur. Sið
an hafa klakaþrepin brostið
hvert af öðru og verðbólguflóð
ið fallið fram nirsð sívaxandi
þunga, og segja má, að þessa
daga sé síðasta þrepið að bresta
fram, þegar ríkisstjórnin gefur
öllu lausan tauminn á þann veg
að hafa kaupgjald og laun í
vísitölutcngslum, en varpa
kostnaði við stuðning við at-
vinnuvegina beint út í verðlag
ið. Þar með hefur þrepahlaup
verðbólgunnar náð fullum
krafti og æðir fram, en ríkis
stjórnin heldur sér báðum hönd
um í ráðherrastólana.
„Stærsta heildin á
vinstri arminum"
Alþýðublaðið heldur áfram
að rekja afrekasögu sína í ís-
lenzkum stjórnmálum síðustu
hálfa öldina í tilefni af afmæl
inu sínu og segir i gær um
núvcrandi stöðu flokksins:
„Alþýðuflokkurinn hefur
sýnt ótrúlegan lífsmátt, og
hann hefur rétt úr sér eftir
hverja raun, aukið fylgi sitt á
ný og staðið heill eftir skamma
stund. Flokkurinn er nú stærsta
heildin á vinstra armi íslenzkra
stjórnmála, stærri en Sósíalista-
flokkurinn. Eina skynsamlega
leiðin til að styrkja þann arm
er því að efla Alþýðuflokkinn
og styrkja hann til nýrra átaka
í framtíðinni.“
„Raunir“ Aiþýðuflokksins,
sem hér er talað um, er hinn
endurtekni klofningur í hon-
um. Það er auðvitað ljótt að
brosa, þegar menn eða flokkar
hæla sjálfum sér á afmælisdag
inn, en fáir munu þó geta varizt
því, þegar Alþýðublaðið talar
um flokk sinn sem „stærstu
heildina á vinstra armi ís-
lenzkra stjórnmála" í vinnu-
mennskunni hjá íhaldinu.
Gltman við Jón
Eggert félagsmálaráðherra
Iýsti því yfir á Alþingi í gær,
að ríkisstjórnin ætlaði að inæta
útgjöldunum af stuðningnum
við sjávarútveginn með því að
lækka niðurgreiðslur, en ját-
aði hins vegar um leið, að ríkis
stjórnin væri ekki búin að koma
sér niður á það, á hvaða vörum
eða hvernig þetta ætti að
lækka. Minnast menn þá glím
unnar við Jón Sigurðsson, for-
mann sjómannasambandsins,
sem sagt var frá um daginn,
þegar hann kúgaði Gylfa, Egg-
ert og síðan alla ríkisstjórnina
til þess að fresta að sinni að
fella niður niðurgreiðslur á
Framhald á bls 12