Tíminn - 12.03.1966, Blaðsíða 1

Tíminn - 12.03.1966, Blaðsíða 1
50 ÁRA ASÍ 50 ÁRA ASÍ 50 ÁRA ASI 50 ÁRA ASI / 24 SÍÐUR Aaglýsiag í Tímanuxn kemuT daglega fyrir augu 80—100 þúsund lesenda Gerizt áskrifendur að Tímanum. Hringið 1 sima 12323. 59. tbl. — Laugardagur 12. marz 1966 — 50. árg. Eysteinn Jónsson á miSstjórnarfund- inum í gær. Kramdist á milli skips og bryggju BS Ólafsfirði, föstudag. Seint í gærkvöldi vildi það slys til, að maður að nafni Gunnar Vilmundar- son féll í sjóinn á milli skips og bryggju og limlest- ist og kramdist, áður en hann náðist. Gunnar hugð- ist gæta að trillubáti sínum, sem hann var nýbúinn að setja á flot, en hann var bundinn utan á Guðbjörgu, en hann aftur utan á Ólaf bekk. Nokkur ólga og ó kyrrð var í höfninni, því mikill sjór var kominn úti Framhald á bls. 11. Hluti fundarmanna á mlðstiórnarfundlnum I gær. ABalfundur mið- stjórnar vel sóttur AK-Reykjavík, 11. marz. j klukkan að ganga átta. í gær- Aðalfundur miðstjórnar Fram- i kveldi störfuðu nefndir, og svo sóknarflokksins var settur í Fé-; mun einnig verða fyrir hádegi í lagsheimili Framsóknarmanna í j dag, en klukkan 2 e.h. hefst fund- Tjarnargötu 26 í Reykjavík klukk- j ur að nýju, og fara þá fyrst fram an 2 i dag og stóðu fundir til I kosningar, en síðan umræður og afgreiðsla mála. Fundurinn er mjög vel sóttur og vantaði mjög fáa miðstjórnarmenn til fundar í gær. Eysteinn Jónsson, formaður flokksins, setti fundinn og bauð Færeysk sílúarskip ætla aS landa á Austurlandi TÍMAMYNDIR—GE miðstjórnarmenn velkomna til fundar. Síðan stakk hann upp á Sigurði Tómassyni, bónda á Bark- arstöðum, sem forseta fyrsta fund arins, og ritarar voru kjörnir Tómas Árnason og Snorri Þor- steinsson og Einar Þorsteinsson. Síðan tók Sigurður Tómasson við fundarstjórn, og var gengið til dagskrár. Var fyrst á dagskrá yf- irlitsræða Eysteins Jónssonar for- manns flokksins. Flutti hann ýtar lega ræðu og ræddi bæði stjórn- málaviðhorfið, málefnabaráttu flokksins og félagsstarf. Að ræðu hans lokinni var skýrsla ritara flokksins, Helga Bergs, og skýrði hann frá flokksstarfinu í megindráttum á síðasta ári og ræddi næstu verkefni. Þá var skýrsla gjaldkera flokksins, Sigur- Framhald á bls. 11. SJ—Reykjavík, föstudag. Færeysk síldveiðiskip hafa nú fengið leyfi til að landa afla sínum á Eskifirði, og var einn bátur með 1500 tunnur búinn að boða komu sína, en hann varð að snúa aftur vegna veðurs. Jón Kjartansson er nú kominn á miðin norður af Færeyjum, og er Tíminn ræddi við útgerðarfé- lagið á Eskifirði, sem gerir bátinn út, hafði skipstjórinn tilkynnt, að lóðað hefði verið á mikla síld, en hún stæði djúpt og væri ekki hægt að ná henni á daginn. Síðan Jón Kjartansson kom á miðin hefur veður hamlað veiðum. Færeyingar hafa að undanförnu veitt mikla síld norður af Fær- eyjum, og eiga þeir í erfiðleikum með að landa í Færeyjum vegna þess hve síldarverksmiðjur eru fá- ar. Siglingin til íslands, sem tekur um þrjátíu klukkustundir, er mun styttri en til Danmerkur, og er því eðlilegt að Færeyingar æski lönd unar á Austfjarðahöfnum. Samþykkt fulltrúarráðsfundar Sambands ísl. sveitarfélaga: Stækka ber sveitarf élög HZ-Reykjavík, föstudag. Fundur fulltrúaráðs Sam- bands íslenzkra sveitarfélaga hélt áfram í dag, en eins og frá var skýrt í gær átti hann að standa í tvo daga. Fyrir fundinum lágu til afgreiðslu um tuttugu mál, ýmis eðlis. Voru m. a. tillaga stjórn- ar um auknar tekjur sambands ins, frumvarp um Lánasjóð sveitarfélaga, tillaga um breyt- ingu á lögum sambandsins og tillaga stjórnarinnar um stækk un sveitarfélaganna. Tímanum barst í kvöld fréttatilkynning frá fundi sambandsins í dag, þar sem skýrt er frá því að fundurinn hafi einróma sam- þykkt tillöguna um stækkun ' sveitarfélaga. Tillagan í heild fer hér á eftir: „Fulltrúaráðsfundur Sam- bands íslenzkra sveitarfélaga 1966 lýsir sig fylgjandi því, að tekin verði til endurskoðunar gildandi lagaákvæði um sveit- Framhald á bls. 11. Kveðja til Alþýðu flokksins Að samþykkt aðalfundar miðstjórnar Framsóknar- flokksins sendu formaður og ritari Framsóknarflokks- ins Alþýðuflokknum svo hljóðandi skeyti í gær: „Alþýðuflokkurinn, Reykjavík. Framsóknarflokkurinn sendir Alþýðuflokknum af- mæliskveðjur. Jafnframt þakkar Fram sóknarflokkurinn Alþýðu- flokknum samstarf um fjöl- mörg þýðingarmestu um- bótamál liðinna áratuga. F.h. Framsóknarflokksins Eysteinn Jónsson Heirri Beres.“

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.