Tíminn - 13.03.1966, Blaðsíða 1

Tíminn - 13.03.1966, Blaðsíða 1
Auglýsing í Tímarnim kemur daglega fyrir augu 80—100 þásund lesenda I FYRRADAG HZ-Reykjavík, laugardag. Sif, flugvél 1 andhelgisgæzlunnar stóð í gær átta íslenzka báta að mcintum ólöglegum veiðum við Suðurland. Fjórir voru milli Eyja og lands, tveir út af Grindavík og tvcir út af Ingólfshöfða. Allir þessir bátar, sem eru undir 100 tonnum voru á togveiðum. ATTA BATAR I LANDHELGI Myndln var tekln á stofnfondi Sparisjóðs alþýðu á iFreyjugötu 27 síðastliðinn miðvikudag. Tímamynd Bj. Bj. AÐALFUNDI MIÐSTJORNAR SLITIÐ í DAG FB-Rvik, laugard. — Aðalfundi miðstjórnar Framsóknarflokks- ins var haldið áfram í dag. Nefnd ir störfuðu fyrir hádegi, og kl. 2 áttu kosningar að hefjast, en þar sem þeim var ekki lokið, þeg ar blaðið fór í prentun, verður ekki hægt að skýra frá úrslitum fyrr en á þriðjudaginn. Að kosn ingu lokinni átti að fara fram af greiðsla mála, en engir fund ir voru ráðgerðir í kvöld. Dagskrá sunnudagsins er á þá leið, að milli klukkan 10 og 12 verða lögð fram nefndarálit og þau rædd, en mál síðan afgreidd. Þá mun ritari flokksins flytja ávarp, og að lokum verður fundi slitið. Verkalýðsfélögsn stofna formlega Sparisjóð alþýðu SJ—Reykjavík, laugardag. í dag staðfesti Viðskiptamála ráðuneytið reglugerð um stofnun Sparisjóðs alþýðu en s.l. mlðviku dag var stofnfundur sparisjóðsins haldinn að Freyjugötu 27. Virðist ríkja einhugur meðal verkalýðsfé- iaganna um stofnun sparisjóðsins eftir að Hermann Guðmundsson, formaður Hlífar í Hafnarfirði, var gerður að oddamanni í stjórn sjóðs ins. ASÍ gaf eftirfarandi tilkynning út í dag: „Stofnfundur Sparisjóðs alþýðu var haldinn að Freyjugötu 27 9. marz s. 1. Á fundinum voru mættir milli 50—60 ábyrgðarmenn frá verkalýðsfélögunum innan Al- þýðusambandsins í Reykjavík og nágrenni. í dag mun ráðuneytið staðfesta reglugerð sparisjóðsins. í stjórn hans voru kjörnir á stofn fundinum Hermann Guðmundsson, Einar Ögmundsson og Óskar Hall grímsson. Auk þess kaus borgar stjórn Reykjavíkur í stjórnina þá Björn Þórhallssons og Marbús Stef ánsson." Jón Bjarnason, starfsmaður ASÍ, sagði af þessu tilefni, að stofnun sparisjóðs hefði verið hugsjón ASÍ um margra ára skeið. Hannibal Valdimarsson bar fram tillögu um þetta mál fyrir nokkrum árum og síðan hefur málið verið í athug un og unnið að undirbúningi þess Nú hafi lokaskrefið verið stigið. Eftir að Hermann Guðmundsson var kjörinnn oddamaður stjórnar innar, virðist full samstaða vera tiieðal pólitískra hagsmunahópa inn an ASÍ. Það er fagnaðarefni að Herforingjar taka völd í Indónesíu þetta skref skuli hafa verið stig ið, og ef þetta verður sterk stofn un, þá getur hún haft mjög mikla þýðingu fypir starfsemi ASÍ. Jón sagði að lokum, að enn væri ekkert hægt að segja um hvar sparisjóðurinn yrði til húsa, eða hvenær hann tæki til starfa. í gær eftir hádegið þegar Sif gæzluflugvél Landhelgisgæzl- unnar var á eftirlitsflugi við suð urlandið stóð hún 8 báta að meint um ólöglegum veiðum. Bátarnir voru þessir: Farsæll VE, Björgvin VE, Erlingur VE, Björn riddari VE, Sævaldur SU, Lundey RiE Kristjana KE, og Magnús Magnús son VE. Viðkomandi bæjarfógetar hafa tekið á móti a.m.k. fimm af bát- unum og gengið hefur verið frá afla þeirra og veiðarfærum. Mál þessara báta verða ekki tekin fyrir fyrr en skýrsla flugvélar- innar hefur verið staðfest fyrir rétti. Það mun sennilega verða eftir helgina, sem skýrsla flugvélarinnar mun staðfest hér. TARSIS KMUR / B0ÐIHINGAÐ NTB-D.iakarta, EJ-Reykjav. laug-1 Suharto hershöfðingja, yfir- ardag. manni hers landsins, öll pólitísk Súkarnó, forseti Indónesíu, var völd. Gerðist þetta í morgun, þeg í dag neyddur til að afsala sér ar hershöfðingjarnir í Indónesíu öllum völdum i landinu og fela I hótuðu Súkarno þvi, að ef hann KVEÐJA TIL A.S.I. Framsóknarflokkurinn sendir Alþýðusambandi íslands kveðju i tilefni af fimmtíu ára afmæli sambandsins og fer hún hér á eftir: Alþýðusamband íslands, Reykjavík. Framsóknarflokkurinn sendir Alþýðusambandi íslands afmæl- iskveðju. Flokkurinn þakkar Alþýðusambandinu forustu nm hagsmunamál íslenzkrar alþýðu í hálfa öld, og óskar, að störf þess megi verða giftudrjúg fyrir launastéttir landsins og ís- lenzku þjóðina. Fyrir hönd Framsóknarflokksins, Eysteinn Jónsson, Helgi Bergs. færi ekki að vilja fólksins, og af henti hershöfðingjunum völdin, myndi stúdentum þeim, sem síð- ustu tvær vikurnar hafa staðið fyrir fjölmennum og hröðum mótmælaaðgerðum i Djakarta, hleypt inn í höllina til hans. Eitt af fyrstu verkum Suhartós hins nýja ráðamanns Indónesíu, var að gera kommúnistaflokk landsins útlægan. Brezka útvarpið skýrir svo frá, að í morgun hafi Súkarno for- seti átt fund með ýmsum hátt- settum herforingjum, þar á meðal Súharto, yfirmanni herafla lands- ins. Hafi þeir á þessum fundi, sem Súbandríó utanríkisráð- herra mun einnig hafa setið, kraf izt þess, að hernum yrði falin öll völd, en síðustu tvær vikurnar hafa miklar óeirðir verið í Djakarta, höfuðborginni, vegna Framhald á 14. síðu. IGÞ—Reykjavík, laugardag. Rús.-neski rithöfundurinn Val- er;’ Tarsis hefur I-egið boð um að koma hingað til lands í ná- inni framtíð. Aðilarnir, sem bjóða honum hingað eru Stúdentafélag Reykjavíkur o>g Almenna bóka- félagið, en ritstjórar Morgun- blaðsins og Tímans höfðu milli göngu um boðið. f bréfi, sem Valery Tarsis skrifar hingað 4. marz, en það er svar við skeyti, sem honum var sent, segir hann, að hann vonist til að geta þegið boðið á næst- unni. Hins vegar hafi hann enn ekki gert neinar áætlanir um ferð ir sínar og því geti hann ekki að svo stöddu ákveðið, hvaða dag hann kemur hingað. Valery Tarsis mun hafa borizt boð frá fjölmörgum löndum. Eins og kunnugt er af frétt- um, fór Valery Tarsis í boði Coll- ins- bókaútgáfunnar til London, en á meðan dvö' hans stóð þar, sviptu rússnesk stjórnvöld hann rússneskum ríkisborgararétti. Collins gaf út bók hans „Deild 7“ á síðastliðnu ári, og kom sú saga hans sem framhaldssaga hér í Tímanum um líkt leyti. Þessi saga er byggð á persónulegri reynslu Tarsis • en kommúnistum þótti henta að geyma hann á geð- veikrahæli í nokkurn tíma, og um lífið þar er fjallað í bókinni. Valery Tarsis er mikill tals- maður frelsis og ódeigur bar- áttumaður, og það er ánægju- efni að hann skuli sjá sér fært að koma hingað. Valery Tarsis

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.