Tíminn - 13.03.1966, Blaðsíða 3

Tíminn - 13.03.1966, Blaðsíða 3
\ SUNNUDAGUR 13. marz 1966 TfMINN ISPEGLITÍMANS -■"j ' ... -? Þetta er nú kannski ekki rétta leiðin til að komast inn í veitingahús, en þessi óvenju legi atburður, sem myndin sýnir átti sér stað í Gatlinburg í Tennesee í Bandaríkjunum, ný lega. Bílstjóri missti tök á bíl ☆ Elzti stúdentinn í yngsta há- skóla Þýzkalands í Bochum í Bhur-héraðinu er 74 ára göm- ul kona. Nafn hennar er Bertha Hoepper og áður en hún hóf háskólanám sitt var hún kenn- ari við verzlunarskóla, en er nú komin á eftirlaun, og auð- vitað stefnir hún að því að verða doktor frá háskólanum. sínum á hábraut, ók í gegnum girðingu og bíllinn þeyttist í þak veitingahúss þar fyrir neð an, og sat þar fastur. Bæjarstjórn Jakobshafn í Grænlandi hefur ákveðið að taka ekki á móti fatasendingu frá Danmörku þar sem þeim finnst það lítilsvirðandi fýrir Grænlendinga að taka á móti og nota notuð föt frá Dan- mörku. Þess í stað ákvað bæj- arstjórnin sjálf að gangast fyr ir söfnun meðal bæjarbúa til þess að hjálpa hinum bág- stöddu í úthverfum bæjarins. Vændi var bannað með lög- um í Paris fyrir nokkrum ár- um og yfirvöld þar töldu sig nú vera að gera borgina að virðulegri og ráðsettri borg. En þeim háu herrum hefur ekki tekizt að uppræta „elzta starf konunnar" eins og sést á eftirfarandi sögu: Maður nokkur gekk eftir Les Champs-Élysée. Allt í einu fann hann að það var þrifið í hann og hann heyrði háa barnsrödd, sem hrópaði: „Papa . . . Papa! Hann leit undrandi niður og sá þá fimm-sex ára gamla stúlku með augun full af tárum. Ung kona kom hlaup andi og þreif barnið í burtu og sagði ásakandi: En Jeanne þó, sérðu ekki, að þetta er ekki pabbi þinn? — Jeanne grét og móðirin baðst afsök- unar á þessari hegðun barns- ins og sagði svolítið vandræða- leg, að hún byggist einmitt við manninum sínum heim erlend- is frá þar sem hann hefði ver- ið í tvö ár. Dóttirin, sem mundi lítið eftir honum hafði hreint og beint haldið að hann væri faðir hennar, og konan bætti því við og roðnaði örlítið að maðurinn líktist eiginmanni sínum ótrúlega mikið. Maðurinn, sem fyrir þessu hafði orðið var ekki vitund reiður. Þvert á móti. Þetta var ósköp þokkalegt barn, vel klætt og snyrtilegt og móðir in há, grönn og falleg. Hann langaði mest til þess að bjóða þeim á næsta veitingastað, en því miður mundi hann eftir því, að hann varð að fara á áríðandi fund. Hann tók því ofan, strauk barninu um kinn- ina og hélt áfram sína leið en hugsaði þó að hann hefði nú átt að fá stefnumót við kon- una daginn eftir. En viku síðar var þessi sami Sá atburður gerðist í Tel Aviv fyrir skömmu að eldur kom þar upp á fyrstu hæð í stórbyggingu einni og breidd- ist óðfluga út. í þessari stór- byggingu var aðeins ein út- gönguleið, einn stigi og um leið og eldurinn kom upp lokaðist maður á göngu eftir Champs- Elýsée og kom hann þá auga á litlu stúlkuna aftur. Hún kom hlaupandi, ekki í áttina til hans, heldur til miðaldra manns, sem var bæði sköllóttur og með ýstru. Hþn kastaði sér í fangið á honum og hrópaði: Papa! Unga konan kom þar að og afsakaði sig og hóf að skýra þetta úr: Maðurinn minn er er- lendis . . . W.vwffi-áwwíi Aw* ...-ÍSÍ.V. ■. í einni og sömu kvikmynd- inni, þrjú frægustu nöfnin í kvikmyndaheiminum . . . hin fagra Sophia Loren, hinn frá- bæri Marlon Brando og fræg- asti gamanleikari allra tíma, Charlie Chaplin. Myndin hér að ofan er tekin í Pinewood kvikmyndaverinu, þar sem hinn 76 ára gamli Chaplin stjórnar töku kvikmyndarinn- A Countess From Hong Kong. Sophia Loren leikur titilhlut- verkið, e.n Brando bandarísk- an milljónamæring. Og gamli Chaplin, sem verður 77 ára í næsta mánuði, mun leika lítið hlutverk í myndinni — í fyrsta sinn, sem hann kemur fram í kvikmynd í níu ár. Hann hefur einnig skrifað kvikmyndahand- ritið — og samið tónlist í mynd ina. □ stiginn af logunum. Eina björg unarleiðin fyrir starfsfólk byggingarinnar voru því glugg- arnir. Hér á myndinni sést þegar starfsfólkið er komið út um gluggana og standa á smá- palli fyrir utan gluggana og bíða eftir því að hjálp berist. Nú er lokið brúðkaupi þeirra Beatrix Hollandsprinsessu og þýzka aðalmannsins Claus von Amsberg og sjálfsagt er þungu fargi af mörgum Hol- lendingum létt. Undirbúning- urinn undir brúðkaupið var geysivíðtækur og má sem dæmi nefna það, að allir konung- bornir gestir urðu að láta stærstu spítala Amsterdam vita hvaða blóðflokki þeir tilheyrðu, svo spítalarnir gætu haft blóð af þeirra blóðflokki til staðar ef eitthvað henti þe'ssa tignu gesti. Nú er Claus von Amsberg ekki lengur þýzkur heldur hol- lenzkur og nefnist nú Prins Claus af Niðurlöndum, Jonk- heer van Amsberg (þýzka orð- ið von hefur breytzt í hoilenzka orðið van). Flestir stúdentar í Hollandi segja meira að segja, að Claus verði sennilega ekki sem verstur Hoilendingur og að hann verði farinn að tala hollenzku með minni þýzkum áherzlum en tengdafaðir hans, sem kvæntist Juliu Hollands- drottningu 1938. Josephine Baker var milli heims og helju eftir uppskurð, sem hún hafði gengið undir í París ekki alls fyrir löngu og var ekki búizt við, að hún lifði aðgerðina af. Áður en hún lagðist inn á spítala gerði hún erfðaskrá sína og tryggði þar með framtíð fósturbarna sinna 12, en þau eru af ýmsu þjóð- erni. Meðan Josephine lá á spítalanum kom fyrrverandi eiginmaður hennar frá Argen- tínu þar sem hann hefur starf- að síðan þau skildu og nú eru þau aftur í sameiningu farin að annast börnin 12.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.