Tíminn - 13.03.1966, Blaðsíða 14

Tíminn - 13.03.1966, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 13. marz 1966 TÍMINN AFLAFRÉTTIR AF VESTFJÖRÐUM Krjúl, Bolungarvík, ÍIBarfar í febrúar var mjög stirt og mikil fannkoma og stór sjóar, svo bátum gaf ekki til að •vltja um net sín í heila viku. Þegar loks gaf til þess að ná net unum voru menn yfirleitt svo heppnir, að þeir fundu öll sín net. Annars var afli allsæmilegur, þeg ar sjó gaf. Aflahæstur í mánuðinum var Einar Hálfdáns m. net, 162818 kg í 19 róðrum. Hugrún fékk í net 131217 kg. í 13 róðrum. Bergrún m. net 91482 kg. 17 r. Guðrún m. n. 66102 kg. 11 r. Guðmundur Pét ur m. n. 22801 kg 1 róður. Heið rún m. lóðir 77950 kg. í 14 róðr um. Sigurfari á lóðir og færi 3933 kg í 8 róðrum og Sædís 107 kg á færi í 1 róðri. Landburður var af loðnu í nokkra daga og var um 25 þús. tunnum skipað hér á land. Hefur nú verið tekið til við að bræða loðnuna. Áður en illviðrahrotan gekk yf ir um síðustu helgi, virtist loðn an vera komin hér nokkuð norður Erindi Félagsmála- stofnunarinnar í dag, sunnudaginn 13. marz, verða flutt 7. og 8. erindið af tíu enndum í erindaflokki Fé- lagsmálastofnunarinnar um fé- lagsmál launþega. Fyrra erindið, sem hefst kl. 4 e.h. í kvikmyndasal Austur bæjarskóla, flytur Torfi Ásgeirs son, hagfræðingur, og ræðir hann um 50 ára þróun kaupgjalds, verð lags og lífskjara á íslandi með hliðsjón af starfi Alþýðusambands íslands og félaga þess í 50 ár. Mun hann í því sambandi einnig gera grein fyrir þeim vísitölu- grundvelli, sem hér hefur verið við lýði. Síðara erindið flytur Bjarni Bragi Jónsson, hagfræðingur, og mun hann fjalla um kenningar hagfræðinnar um heilbrigðan grundvöll kjarabóta, m.a. með hliðsjón af íslenzkum aðstæðum, hagvexti, og framsýnu og fram farasinnuðu hagstjórnarviðhorfi. SERVIETTU- PRENTUN SÍMI 32-101. á leið að Djúpi, því að dæmi voru til þess, að loðnubátur, sem hér var að landa, skrapp vestur undir Barða og kom að fáum stundum liðnum til baka með fullfermi. Síð an hefur engin loðna borizt hér á land. Mikil atvinna hefur verið á landi í vetur og jafnvel vinnuafls skortur. Framsóknar félögin á Akureyri Stjórnmálafund halda. Fram- sóknaríelögin á Akureyri á Hótel KEA laugardaginn 19. þessa mán aðar k1 3.30 síðdegis. Frummæl endur alþingismennirnir Einar Ágústsson og Ingvar Gíslason. Allt stuðningsfólk flokksins vel- komið. Framsóknarfélögin, Akureyri. mistDk en ekki þjúfnaður SJ—Revkjavík, iaugardag. í blöðunum í morgun var skýrt frá meintum þjófnaði á vegaskatti að upphæð kr. 12.690. Nú hefur komið í ljós, samkvæmt frásögn lögreglunnar í Hafnarfirði, að hér var ekki um þjófnað að ræða, heldur mistök. Þegar varðmanna- skipti urðu í gj aldheimtuskýlinu við Suðurnesjaveg, tók varðmaður inn, sem var að fara af vakt, tösku sem átti að geyma reikninga og peninga, en af misgáningi hafði hann aðeins sett reikningana í töskuna en peningana í aðra tösku, sem varðmaðurinn sem var að Bókmennta kynning JRH— Skógum. Laug;;rdaginn 26. febrúar komu ágætir gestir í heimsókn í Skóga skóla undir Eyjafjöllum. Var þar á ferðinni Njörður P. Njarðvík, cand. mag. er kom þeirra erinda, að kynna verk Indriða G. Þor- steinssonar, og með honum voru frú Guðrún Ásmundsdóttir, leik- kona og rithöfundurinn sjálfur, Indriði G. Þorsteinsson. Bókmenntakynningin fór þann ig fram, að Njörður P. Njarðvík flututi yfirlitserindi um rithöf- undarferil og verk Indriða. Því næst las frú Guðrún upp úr verk- um hans, kafla úr „79 af stöð- inni“ og einnig úr bókinni ,Land og synir.“ Að lokum ávarpaði Indriði G. Þorsteinsson áheyr endur og rakti nokkuð tilorðingu bóka sinns starfsaðferðir og efni. Bókmenntakynning þessi tókst mjög vel og höfðu nemendur og kennarar mikla ánægju af heim- sókninni og þökkuðu gestun um komuna. Á menntamála ráðherra miklar þakkir skyldar fyrir að hafa komið þessari starf semi af stað og færi vel á að list kynningar af ýmsu tagi mættu verða fastur liður í skólastarfinu. taka við vaktinni fékk í sínar hend ur. MERKJASALA EKKNASJQÐS Merkjasöludagur Ekknasjóðs fs lands er í dag, og eru foreldrar hvattir til þess að leyfa börnum sínum að selja merki sjóðsins. Merkin verða afhent í Sjálfstæðis húsinu. SKÁ TASAMBANDIÐ Framhald af 16. síðu. ir og stúlkur, og auk þess eitt- hvað af ylfingum og ljósálfum. Guðlaugur sagðist hafa gert bráða- birgðakostnaðaráætlun að bygging unni fyrir einu og hálfu ári, og hefði sér þá reiknazt til, að um 300 þúsund krónur ættu að nægja til þess að koma húsinu svo langt á veg, að hefja mætti starf í því. Væði því að sjálfsögðu reiknað með, að fullorðnir skátar legðu eitthvað af mörkum í sjálfboða- vinnu, en margir skátar væru vel að sér 1 hinum ýmsu iðngrein um og gætu lagt hönd á plóginn. Einnig gæti margt af því, sem gera þarf innan dyra í nýbyggðu húsi orðið liður í skátastarfinu sjálfu, því krökkum og unglingum þætti gaman að slíku. Guðlaugur sagði að lokum, að skátarnir vonuðu, að hægt yrði að byrja á byggingu skátahúsanna í sumar, svo starfsemin gæti haf- izt þar næsta vetur, en ekki væri þó neitt endanlegt svar komið frá borgaryfirvöldunum enn. HERFORINGJAR Framhald aí bls. 1. nýs stuðnings Súkarnós við komm únista. Lögðu herforingjarn- ir fast að Sukarnó að láta að vilja fólksins, annars mundi múgnum hleypt inn í höllina. Súkarno mun hafa gert til- raun til þess að safna að sér auknu fylgi meðal ráðamanna en samtíniis hóf Súhartó að flytja herlið til Djakarta. Er Súkarnó frétti af þessu, yfirgaf hann höll sína, í Djakarta, og flaug í þyrlu til sumarhallar sinnar í Bogor. En þar voru þrír háttsettir her- foringjar staddir, ásamt her- liði, og höfðu þeir meðferðis skjöl sem þeir skipuðu honum að undirrita. Var það skipun þess efnis, að Súhartó hershöfðingja yrðu falin öll völd, „til þess að koma á lögum og reglu í Indó nesíu og tryggja öryggi Súkarnós forseta.“ Súkarnó skrifaði undir. Er ekki vitað, hvar hann er nú, en talið er þó, að hann sé í Dja karta. Súhartó hershöfðingi hélt ræðu í dag og gerði Kommúnistaflokk inn útlægan. Jafnframt skýrði hann frá því, að stjórn landsins yrði ácram vinstrisinnuð en eng- ar öfgastefur — hvorki til vinstri né hægri — yrðu þolaðar í land- inu. Síðan hófst geysimikil hersýn ing í Djakarta, og fagnaði mann- fjöldinn mjög, að sögn brezka útvarpsins. Skýrt var frá því í Djakartaút- varpinu, að andkommúnistiskir stúdentar og stjórnmálaflokkar hefðu lýst fyrir stuðningi við Súhartó. Formlega er Súkarno ennþá forseti, en hann hefur þessa stundina engin völd. í útvarpsræðu sinni bað Sú- hartó þjóðina um stuðning. Súhartó hefur leyst upp stjórn Súkarnós, og óstaðfestar fregnir segja, að ýmsir kommúnistar, sem í stjórninni voru, hafi verið hand teknir. Ekki er vitað um Súban- dríó utanríkisráðherra — en gegn honum hafa mótmælaaðgerðir stúdenta upp á síðkastið aðal- lega beinzt — en óstaðfestar fregnir segja ýmist, að hann sé í haldi, eða farinn úr landi. Sú hartó mun brátt tilkynna hverjir verða 1 nýju stjorninni og vekur það einkum forvitni majjna, hvort Nasution hershöfðingi — sem Sú karnó setti frá fyrir skömmu verði reistur til valda að nýju. Hin nýja stjórn hefur við mörg vandamál að stríða — ekki sízt algjört éfnahagshrun. BJARNI BE|NTEINSSON LÖGFRÆÐINGUR AUSTURSTRÆTI 17 (SILLI Ge VALDl) SÍMI 13536 ÞAKKARÁVÖRP Þakka innilega auðsýnda vinsemd og nlýhug á sjö-j tugsafmæli mínu 4. marz 1966. Vigfús Gestsson. Minningarathöfn um móSur okkar, tengdamóður og ömmu, Jónínu ðsk Guðmundsdóttur frá (safirði sem andaðist að heimili sínu, Hlégerði 27, Kópavogi, 9. þessa mánað- ar fer fram frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 15. marz kl. 10,30. Athöfninni verður útvarpað. Jarðsett verður frá fsafjarðarkirkju fimmtudaginn 17. marz klukkan 14.00. Fyrir hönd aðstandenda. Andrés Bjarnason. Hljómleikar hjá Tónlistarfélaginu Hinn kunni austurríski píanó leikari Alfred Brendel er vænt- anlegur hingað til lands í byrjun næstu viku og mun halda hér tvenna tónleika á vegum Tón- listarfélagsins nk. miðvikudag og fimmtudag 16. og 17. þ.m. kl. 7 í Austurbæjarbíói. Hann kemur hingað frá Bandaríkjunum, en þar hefur hann verið í langri tón leikaferð. Brendel kom hingað fyrir réttum 2 árum, þá líka á ferð að vestan og hélt hér tvenna tónleÍKa á vegum Tónlistarfé- lagsins, auk þess, sem hann var einleikari með Sinfóníuhljómsveit inni. Alfred Brendel er fæddur í Wiesenberg í Máhren, en er bú- settur i Vínarborg. Hann stund aði tónlistarnám hjá ýmsum fræg um kennurum bæði í Zagreb, Graz Basel og Salzburg. Síðasti kennari hans og sá, sem hann álít ur sig standa í mestri þakkarskuld við, var Edwin Fischer, en undir hans leiðsögn var hann i mörg ár. Tónleikarnir hér, á miðvikudags og fimmtudagskvöld, verða haldn ir fyrir styrktarfélaga Tónlistar félagsins. Á efnisskránni eru tvær sónötur eftir Beethoven sónata í F-dúr op. 10 nr. 2 og í E-dúr op. 109 og tvær sónötur eftir Schubert, sónata í B-dúr DK 960 og sónata í C-dúr D 840 ófull gerð). Kópavogur Framséknarféiögin í Kópavogi gangast fyrir spilakvöldi i félags- heimiii Kópavogs 18. marz næst- komanai Vakin skai athygli á sérstak ega góðum verðlaunum. Fyrstu ''erðlaun '-erða flugfar fyr ir 1 á Edinborgarhátíðina 27 ag- úst n.k Þar að auki þrjú góð verð laun. Kópavogsbuar eru sérstak- lega hvattir til bess að mæta. LJpp lýsingar gefnar i sima 12504. BÓNSTÖÐIN AUGLÝSIR Höturo flutt srarfsemi okk- ar út lYyjrRvagötu að Miklubraut 1 Opið alla virk? daga. 8ÖNSTÖÐ1N MIKLUBRAUT 1. Simi 17522 Jón Grétar Sigurðsson, héraðsdómslöomaður. Laugavegi 28B II. hæð sími 18783. RYÐVÖRN Grensásvegi 18 sími 30945 Látið ekki dragast að ryð- verja og hljóðeinangra bif reiðina með Tectyl & »8 LAUGAVEGI 90-92 Stærsta úrval bifreiða á einum stað. — Salan er örugg hjá okkur. GYLLI SAMKVÆMISSKÓ Afgreiddir samdægurs Skóvinnustofan Skipholti 70, (inngangur trá bakhlið óússins) K E HF BOLHOLTi 6 (Hús Belgjagerðarinnar) PILTAR. EF ÞlÐ EIGID UNNUSTUNA /// / f/j \ V ÞÁ Á EG HRINOANA //////Aj jJg/ fyr/ð/j//////

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.