Tíminn - 17.03.1966, Síða 3
FIMMTUDAGUR 17. marz 1966
TÍMINN
r
Sjálflýsandi frímerki
auövelda póstflokkun
GEReykjavík.
Um gjörvöll Bandaríkin hafa
nú veriS tekin í notkun sjálf-
lýsandi frímerki, og í sambandi
við þau munu nú áður en langt
um líður ryðja sér til níms
sérstakar póstflokkunarvélar,
sem leysa munu af hólmi fjölda
fólks, er nú starfar að póstflokk
ur.
Frímerkin eru þannig úr
garði gerð, að séu útfjólubláir
geislar látnir skína á þau, koma
fram tvenns konar litbrigði.
Þannig verða öll flugfrímerki
appelsínugul, en öll önnur
grænleit. Póstflokkunarvélarn-
ar greina milli þessara lit-
brigða, og flokka póstinn sjálf
krafa í sambandi við það, póst
flokkunarvélarnar geta flokkað
30.000 bréf á klukkutíma, <>g
mun við þessi umskipti skapast
aukihn hraði í flokkun á pósti.
Áður hafa verið gerðar tilraun
ir með þessar flokkunarvélar,
og hafa þær sýnt 99% öryggi
í notkun. Um þessar mundir
eru 204 slíkar vélar í notkun, og
80 eru 1 pöntun, vafalaust verð
ur þess ekki langt að bíða, unz
þær verða komnar í gagnið hvar
vetna í Bandaríkjunum og ef til
vill víðar. Vélarnar eru ódýrar
í rekstri, og mun aukakostnað-
ur við sjálflýsandi blek á frí-
merkin aðeins nema átta cent-
um á hver þúsund frímerki.
REYNT AÐ FINNA
VERULECA STÆRÐ
Nú fara fram víðs vegar í heiim
inum vísindalegar mælingar í
þeim tilgangi að afla aukinnar
þekkmgar á raunverulegri stærð
og lögun jarðar með hjálp gervi
hnatta. Tekur ísland þátt í al-
þjóðlegri samvinnu, sem fram fer
á þessu sviði fyrir forgöngu Banda
ríkjanna.
Áætlun þessi gerir ráð fyrir
uppsetningu allmargra mæli-
stöðva á ýmsum stöðum á yfir-
borði jarðar, svo að hægt sé að
gera samtíimaathuganir og mið að
gervihnettinum ECHO, en hann er
óvirkur endurvarpshnöttur. Ein
slík stöð er starfrækt hér á landi
og er þar notfærð nýjasta ljós-
myndatækni til mœlinganna. í
stöðinni vinna séfræðingar frá
Sjó- og landmælingastofnun Banda
ríkjanna, en sú stofnun heyrir
undir viðskiptamálaráðuneyti
landsins. Ágúst Böðvarsson vfir-
maður Landmælinga íslands er
ráðunautur við athuganir þessar.
Sunnudaginn 6. marz s. 1. hélt
Norrænafélagið í Kópavogi sam-
komu, sem helguð var Ðönum.
Ilafði Dönum búsettum hér á landi
verið sérstaklega boðið til fund-
arins.
VÍSITALAN
HÆKKARí
184 STIG
KT,Reykjavík, .. ovuuw«»
Blaðinu hefur borizt fréttatil-
kynning frá Hagstofu íslands um
vísitölu framfærslukostnaðar. Seg
ir í tilkynningunni að vísit. hafi
reiknazt einu stigi hærri 1. marz en
1. febrúar. Samkvæmt reikningum
kauplagsnefndar var vísitala fram
færsiukostnaðar 1. febrúar 183 st.
en 1. marz 184 stig.
Mælistöðin er staðsett nálægt
Keflavíkurflugvelli. Við hana
vinna 4 menn og er áætlað að hún
verði starfrækt um 6 vikna skeið.
Það er þó mjög háð veðurskilyrð
um og skyggni til gervihnattarins,
hvort sá tími nægir, en mælingarn
ar fara fram í myrkri og heið-
skíru veðri.
Mönnum hefur lengi verið ljos
möguleikinn á notkun gervi-
hnatta til öflunar upplýsinga, sem
Norræna félagið hefur eins og
undanfarin ár milligöngu um
skólavist á Norðurlöndum.
Á síðastliðnu sumri dvöldu rúm
lega 130 unglingar á sumarskólum,
aðallega í Danmörku, í 2—3 mán
uði að tilhlutan félagsins. Algeng-
ast er, að 2—4 íslenzkir nemendur
séu saman á skóla. Nokkrir dönsku
Formaður félagsins Hjálmar Ól-
afsson bæjarstjóri setti samkom-
una og flutti ávarp.
Síðan flutti hinn nýkomni danski
sendikennari við Háskóla íslands,
Preben M. Sörensen ágætt orindi
um danska skáldið Martin A.
Hansen.
Þá lék Kristján Stephensen á
óbó við undirleik Guðrúnar Krist
I insdóttur m. a. verk eftir Janska
tónskáldið Carl Nilsen. Kristján er
mjög efnilegur óbóleikari og var
óspart klappað lof í lófa.
Frú Eva Jóhannesson las dönsk
Ijóð eftir Tove Ditlevsen og enn-
fremur eftir Bjama Gíslason og
Jónas Guðlaugsson. Var það mál
manna, að sjaldan heyrist slíkur
afbragðsupplestur.
Kjartan Sigurðsson arkitekt
flutti fróðlegt erindi um Óðins-
vé — vinabæ Kópavogs í Dan-
mörku — og skýrði undurfagra
litkvikmynd frá Odense og ná-
grenni. Kjartan hefur dvalizt lang
dvölum við störf í Óðinsvéum.
Milli atriða sungu samkomugest
ir danska söngva við ágætan undir
leik þeirra feðgina Guðnýjar Guð
mundsdóttur. sem lék á fiðlu og
Guðmundar Matthíassonar organ
leikara, sem lék á slaghörpu.
Húsfyllir var á Danavöku þessari
og margt Dana.
RAUN-
JARDAR
ekki er unnt að öðlast með óðrum
hætti, varðandi stærð og lögun
jarðar. Árið 1964 kom „Alþjóða
samband Land- og jarðeðlisfræð-
inga“, sem ísland er aðili að, á
fót „miðstöð“ fyrir ofangreindar
mælingar, er veitir upplýsingar frá
aðildarríkjunum um árangur mæl-
inganna, og munu þær upplýsingar
verða látnar íslenzkum stjórnvöld-
um í té.
Reykjavík, 11. marz, 1966.
skólanna veita þeim aukakennslu
í dönsku og nokkrir þeirra gefa
nemendum kost á verklegu námi.
Óvenju margar umsóknir og fyr
irspurnir hafa borizt um skólavist
á norrænum lýðháskólum fyrir
næsta vetur, 1966—1967.
Á næsta skólaári mun félagið út
hluta um 100 styrkjum til lýðhá-
skóladvalar og nema styrkirnir nú
yfirleitt hálfum dvalarkostnaði
vetrarlangt..
Umsóknir um skólavist næsta
vetur skulu hafa borizt Norræna fé
laginu, pósthólfi 912, Reykjavik,
fyrir 1. maí n. k. og skal fylgja
þeim afrit af prófskírteini, tipplýs
ingar um aldur, fæðingardag og
ár (en umsækjendur mega eigi
vera yngri en 17 ára, helzt a. m. k.
18 ára), meðmæli skólastjóra, kenn
ara eða atvinnuveitenda og gjarn
an einnig upplýsingar um störf.
Æskilegt er ennfremur að tekið sé
fram í hverju landanna helzt sé
óskað eftir skólavist, en auk
þess fylgi ósk til vara.
Nánari upplýsingar um skóla,
námstilhögun o. fl. gefur Magnús
Gíslason, framkvæmdastjóri Nor-
ræna félagsins (sími 37668).
(Frá Norrænafélaginu).
KRISTINAR-
SÝNING Í
STOKKHOLMI
Kristín Svíadrottning og menn-
ingarlíf Evrópu á hennar döguin
verður sýningarefnið á 11. Evropu
sýningunni, sem haldin verður
í Stokkhólmi á vegum Evrópuráðs
ins 1. júlí til 16. október n. k.
Kristín var dóttir Gústavs Adólfs
og varð drottning 6 ára gömul.
Hún afsalaði sér völdum 1656, tók
kaþólska trú og settist að í Róma
borg, þar sem hún bjó í þrjá ára
tugi. Hún var í forystusveit evr-
ópskrar menningar um sína daga
og hefur verið nefnd fyrsta nú-
tímakonan.
Sýningin verður í 35 sölum og
herbergjum í sænska listasafninu,
og er hún einhver umfangsmesti
listviðburður, sem skipulagður hef
ur verið í Svíþjóð. Listaverk hafa
verið fengin að láni í ýmsum lönd
um, m. a. hefur Páll páfi persóml
lega veitt undanþágu frá reglum
Vatíkansafnsins og leyft að senda
megi mjög dýrmæt handrit þaðan
á sýninguna. Þar verða 250 mál-
verk og ótal aðrir listmunir, sem
með einhverjum hætti eru tengdir
minningum um Kristínu. Lista-
verkin eru m. a. eftir Rafael, Rub
ens, Titian, Tintoretto, Veronese,
Bernini og Bourdon. Á sýningunni
verður einnig frægt handrit, Silfur
biblían, sem geymd er í háskóla
bókasafninu í Uppsölum. Þá verður
á sýningunni eftirlíking Barberini
leikhússins í Róm, en þar fögnuðu
borgarbúar Kristínu í janúar 1655
með sýningu á leikriti eftir Klem
enz páfa IX. í hallarleikhúsinu á
Drottningarhókni rétt við Stokk
hólm verða sýningar á óperunni
„L'honestá negli armori", sem
Scarlatti samdi árið 1680 að beiðni
Kristínar. Ýmsir aðrir viðburðir í
Stoikkhólmi á sumri komandi
verða tengdir Kristínar-sýning-
unni.
Kistín Svíadrottning er flesturn
kunn, m. a. af kvikmyndum og
sögu hennar, sem gefin hefur ver
ið út á ísl-enzku og lesin í útvarp.
Drottningin var hámenntuð kona,
sem bjó yfir ríkri spauggreind,
hafði sjálfstæðar skoðanir og kjark
til að fara út af alfaraleið. Hún
blandaði geði við ágætustu heim
spekinga og listamenn samtíðar
sinnar. Hún var svo aðsópsmikil og
áhrifarík, að á þessari Kristínar-
sýningu birtist barok-tímabilið á al
hliða og athyglisverðan hátt.
Frétt frá upplýsingadeild
Evrópuráðsins, 8.3.
MANNFJÖLDI Í EVRÓPU
Ráðstefna um mannfjölda-
skýrslur verður haldin á vegum
Evrópuráðsins í Strassburg 30.
ágúst til 6. september n. k-
Er það í fyrsta sinn, sem þróun
varðandi fólksfjölda í allri Vest
ur- og Suður-Evrópu er rædd á
alþjóðlegum sérfræðingafundi.
Fjallað verður um fjölda fæð-
inga og dauðsfalla, fólksflutn-
inga, ýmiss konar flokkun fólks
í mannfjöldaskýrslum og um
kennslu og rannsóknir varð-
andi mannfjölda. Sérstakar
kannanir hafa verið fram-
kvæmdar i ýmsum Evrópulönd
um til undirbúnings ráðstefnu
þessari.
DANAVAKA í KÓPAVOGI
Námsvist á Norðurlöndum
Á VÍÐAVANGl
Osvífnar blekkingar
Morgunblaðið segir í forystn
grein í gær:
,,Um það þarf heldur eng-
inn að fara í grafgötur, að ef
Framsóknarflokkurinn hefði
verið í ríkisstjóm í dag,
mundi hann hafa léð fylgi
sitt við byggingu alúmínverk-
smiðju á sama hátt og hann
fylgdi byggingu áburðarverk-
smiðju og sementsverksmiðju“-
Með þesum orðum er enn
einu sinni reynt að bera þá
blekkingu á borð, að erlend ál-
bræðsla auðhrings hér á landi
sé hliðstæð framkvæmd við
áburðarverksmiðjuna og sem-
entsverksmiðjuna, sem Fram-
sóknarflokkurinn hafði forystu
um og studdi, og nú sé það að
eins hótfyndni af honum að
vilja ekki vera með álbræðsi-
unni, af því að hann sé ekki
í ríkisstjórn.
Þetta eru auðvitað fráleitar
blekkingar, en gott að Morgun
blaðið minnist á þessar ís-
lenzku verksmiðjur í þessu
sambandi. Sá samanburður sýn
ir einmitt mjög greinilega mun
inn á þeirri stóriðju, sem
Framsóknarflokkurinn vill
styðja hér á landi og hinni,
sem hann vill ekki styðja.
Sementsverksmíðjan og
áburðarverksmiðjan eru ÍS-
LENZK STÓRIÐJA OG EIGN
ÞJÓÐARINNAR. Álbræðslan
er erlend og verður ævarandi
eign erlends auðhrings. Áburð
arverksmiðjan og sementsverk
smiðjan kaupa rafmagn frá ís-
lenzkum orkuverum á kostnað
arverði en ekki undir verði
og 12% lægra verði en svipuð
álbræðsla í Noregi. Munurinn
er sá, að annars vegar er ÍS-
LENZK stóriðja, hins vegar
erlend með ókjörum og mikilll
áhættu fyrir þjóðina.
Þetta gerir gæfumuninn.
íslenzk stóríðja
Áburðarverksmiðjan og
sementsverksmiðjan eru ein-
mitt táknræn dæmi um þess
konar stóriðju, sem Framsókn
arflokkurinn vill styðja. Þessi
stóriðja er íslenzk eign, hyggð
upp með erlendum lánum en
án kvaða og yfirráða erlends
fjármagns. Hún er algerlega
undir íslenzkri stjórn. Hún
greiðir rafmagn á fullu fram
leiðsluverði að minnsta kosti.
Þessi stóriðja þjónar í einu og
öllu íslenzkum sjónarmiðum
og hagsmunum. Hana þarf að
auka, og má minna á, að
fyrir löngu hefur verið yfir-
lýst að bæta þurfi við áburðar-
verksmiðjuna og reisa við
hana fósforverksmiðju, en
þessi ríkisstjórn hefur gersam
lega vanrækt að vinna að því
máli, enda vantar rafmagn,
þar sem ríkisstjórnin hefar
dregið allar stórvirkjanir á
Ianginn.
Vel má hugsa sér, að hér sé
reist stóriðja sem sé
fyrst í stað að mestu eign er-
lends áhættufjármagns, en al
gert skilyrði er, að hún verði
á hæfilegum tfma íslenzk eign,
þjóni íslenzkum hagsmunum
og sé undir íslenzkri stjórn,
kaupi rafmagn á framleiðslu-
verði án meðgjafaráhættu fyr
ir íslendinga og síðast en ekkl
sízt, að slík stóriðja sé stað-
sett í samræmi við uppbygg
ingaráætlun og byggðastefnu
þjóðarinnar.
Á allt þetta brestur f ál-
Framhald á 14. sfðu