Tíminn - 17.03.1966, Blaðsíða 8
8
í
FIMMTUDAGUR 17. marz 1966
TÍMINN
)
Fór hring umhverfis
jörðu utan geimfars
loknu mun hann losa sig við
styttri línuna, en í lengri lín-
unni er einnig símalína, oig get
ur hann því áfram talaS við
Armstrong, sem verður inni í
geimfarinu og stjórnar því. Súr
efnið mun aftur á móti fconna
frá bakpokanum, en í honum
eru tveir súrefnisgeymar, sem
hafa inni að halda nægilegt
súrefni til 106 mínútna neyzlu.
Eldneytisgeymirinn í bakpok
anum inniheldur 7.6 kg af
Freon-gasi með 350 kg. á fer
sentimetra. Veitir þetta Scott
tækifæri til að vera utan geim
farsins mun lengur en Edward
White, seim var aðeins í 20
mínútur fyrir utan Gemini-4
geimfarið í júní s. 1. Stjórn
byssan notar 0.9 kg við hvert
„skot“, en það nægir til þess
að hreyfa Scott á meðan hann
er í lofttómu rúmi og þyngdar
afls gætir ekki.
Seott mun gera ýmsar at-
huganir úti í geimnum. M. a.
mun hann nota tvenns konar
tæki til þess að vísindamenn
geti fundið út, hvaða áhrif
þyngdarleysið hefur á hæfileika
hans til vinnu. Með tækjum
þessum mun hann m. a. vinna
við að losa og festa bolta á
sérstakri plötu, sem er föst við
geimfarið.
Þá er einnig líklegt, að Scott
muni athuga Agena-gervihnött
inn, sem þá hefur verið fest
við Gemini-8. Einnig mun hann
setja tæki, sem mælir geisla-
virkni, í gang úti í geimnum, og
hafa það síðan með sér inn
í geimfarið. Þá er einnig lik-
legt, að hann muni festa tæki.
sem mælir geimryk, við Agena
eldflaugina og skilja það eftir
þar. Agena-flaugin mun halda
áfram á braut sinni umhverfis
jörðu eftir að Gemini-8 hefur
lent, og er áætlað, að geimfar
inn Michael Collins muni taka
mælitæki þetta með sér til jarð
ar, þegar hann fer upp í geim
inn með Gemini-10 síðar á þessu
ári.
í heild mun dvöl Scotts fyrir
utan geimfarið vera þýðingar-
mikill þáttur í rannsókninni á
hæfileikum manna til starfa í
þyngdarlausu rúmi úti í geimn
um.
Margar aðrar athuganir verða
gerðar á meðan Gemini-8 verð
ur á lofti ■— í heild eiga þeir
að gera a. m. k. 10 tilraunir.
Meðal þeirra verður tilraun til
að mæla þyngd hluta úti í
geimnum með því að finna út
Hér sjást geimfararnir inn í
geimfarinu. David Scott, sem fór
einn hring umhverfis júörðu ut-
an geimfarsins, er ti! vinstri, en
stjórnandinn Neil Amstrong er
til hægri. Á myndinni efst á
siðunni er geimfarið Gemini 8.
í gær hófst ferð bandariska
geimfarsins Gemini-8, en til-
gangur þeirrar geimferðar er
margvíslegur. Tveir stærstu at-
burðir geimferðarinnar verða
þó, að David Scott geimfari, fer
út úr geimfarinu, er það verður
á braut sinni umhverfis jörðu,
og dvelur utan þesls við ýmis
ramnsótenarstörf í tvær klukku-
stundir og 40 mínútur, og, að
Gemini-geimfarið mun hitta
gervihnött af Agena-geró, sem
festur verður við geimfarið.
Tveir geimfarar eru um borð
í Gemimi-8. Stjórnandi geimfars
ins er Neil Anmstrong. Hann
fæddist í Wapakoneta í Ohio
1930. Hann getek í bandaríska
flotann 1949 og lauk herþjón-
ustu 1952. Síðustu tvð ár her-
þjónustu sinnar var hann í
Kóreu, og flaug 78 árásarferð
ir. Hann var einu sinni skotinn
niður, en bjar.gaðist í fallhlíf.
Að herþjónustu lokinni hóf
hann nám í flugverkfræði við
Purdue háskólann og tók próf í
vísindum 1955. Hann hefur síð
an stundað nám við hásikólann i
Suður-Kaliforníu. Árið 1955 hóf
hann störf hjá NASA-banda-
rísku geimvísindastofnuninni —
sem tilraunaflugmaður, og hef-
ur farið í reynsluflug með F-
100, F-104, F-102 og B-47 vél
um og x-15 eldflaug, er hann
flaug 5 sinum hraðar en hljóð
ið. Hann hefur að baki sér 3000
flugstundir, þar af 1500 í þot-
um.
NASA valdi Armstrong sem
og
hefur hann verið við þjálfun
síðan. Hann er kvæntur Janet
Shearon og eiga þau tvö börn —
Eric 9 ára og Mark 3 ára.
Aðstoðarflugmaðurinn, og sá,
sem lenda mun í mestu „ævin
týrunum“, er David Scott. Hann
fæddist í San Antonio, Texas, 6.
júnx 1932. Hann hefur stundað
nám við og lokið prófi frá US
Military Academy, og Massaehu
setts Institute of Tecknology.
Lagði hann þar stund á geimvís
indL Hanm hefur einnig verið
tilraunaflugmaður, og hefur að
bafci sér 2600 flugtíma — þar
af rúmlega 2400 með þotum.
Hann var valinn sem geimfari í
október 1963. Hann er kvænt
ur Ann Lurton Ott, sem er frá
heimaborg hans, og eiga þau tvö
börn — Tracy, sem fæddist 25.
marz 1961, og Douglas, sem
fæddist 8. október 1963.
Scott mun vera utan Gemioi
geimfarsins, á meðan það fer
eina ferð umhverfis jörðu, og
verður hann þá í 160 kilmetra
fjarlægð frá yfirborði jarðar.
Fyist mun Gemini-8 þó mæta
Agena-gervihnettinum og
munu geimfararnir tengja þessi
tvö geimför saman. Slík tilraun
hefur einu sinni mistekizt vegna
bilunar í Agena-eldflauginni.
Því næst mun Scott fara út úr
Gemini geimfarinu og hið eina,
sem tengir hann við geimfarið
meðan hann þeytist umhverfis
jörðina, verður taug, 22.5 metr
ar að lengd. Scott mun nota
litla eldflaugabyssu til þess að
hreyfa sig úti í geimnum.
Á bakinu mun hann hafa nýja
tegund af „bakpoka", sem í
verða geymar, en í þeim verð
ur bæði mjög samanþjappað
Freon-gas fyrir eldflaugabyss-
una og súrefni fyrir geimfar
ann.
Bakpoki þessi er of stór tii
þess að hægt sé að geyma hann
inni í stjórnklefanum, og hann
er því festur við bakhluta geim
farsins. Hann er um 0.6 metrar
á hæð og breidd og um hálfur
metir á þykkt.
Þegar Scott fer út úr geim
farinu, verður hann tengdur
við það með 7.5 m. leiðslu úr
nylon, en inni í henni verður
bæði súrefnisleiðsla og síma-
tug. Á brjóstinu mun hann hafa
lítinn súrefnisgeymi, sem nægir
honum til 30 mínútna neyzlu.
Er út kemur mun Scott íaka í
handrið, sem er utan á geimfar-
inu, og mjaka sér áfram að aft-
urenda geimfarsins. Þar mun
hann festa bakpokanum á sig.
Einnig mun hann taka stjórn
unartækin — þ. e. eldflauga-
byssuna —, sem er fest við bak
pokann. Er hann hefur lokið
þessu, mun hann tilkynna Ann
strong það, sem mun þá losa
bakpokann frá geimfarinu með
því að sprengja burtu boltana,
sem halda honum við geimfarið,
og getur Scott þá hreyft sig að
vild.
Þá mun Scott ,,ganga“ að
framenda geimfarsins. Þar
mun hann festa þá 22.5 metra
taug, sem áður er nefnd, við
framnef geimfarsins. Að því