Tíminn - 03.04.1966, Síða 6

Tíminn - 03.04.1966, Síða 6
18 r TÍMINN SUNNUDAGUR 3. apríl 1966 Reynt að h jálpa þeim heim- ilum, sem verst eru sett Ólafur Stephensen. Tfmamyndir Bj. Bf. Um langt árabil hefur Reyikjavíkurdeild RaufSa kross íslands rekið sumarbúðir fyrir Reykjavíkurböm úti á landi. Þessi starfsemi hefur átt mikl- nm vinsældum að fagna hjá bargarbúum, sem ekki eiga þess kost að koma börnum sín- um á venjuleg sveitaheimili yf ir sumartímann, og þau skipta vafalaust þúsundum þau börn, er átt hafa ánægjulega dvöl á barnaheimilum Rauða Kross ina á undangengnum árum. En f viðtali, sem Tíminn átti við Ólaf Stephensen framkvæmda stjóra Rauða K^oss fslands og Reykjavíkurdeíldar Rauða Krossins kom það fram, að reksturskostnaður þessara sum arbúða er það mikill, að afar örðugt er að standa undir hon- um, og er því ekki fullvíst hvort þessi starfsemi getur haldið áfram á komandi árum, nema eitthvað rætist úr. Væri það mjög bagalegt fyrir bam- margar og illa stæðar fjölskyld ur, ef Rauði Krossinn neyddist til að leggja þessa vel þegnu og ákjósanlegu starfsemi niður. — Hvað ætlið þig að reka mörg barnaheimili í sumar, Ólafur? — Að öllum líkindum verða þau tvö eins og í fyrra. Ann- ars vegar bamaheimiilið að Laugarási í Biskupstungum, sem getur rúmað 240 böm yf- ir sumarið og hins vegar bama heimilið að Efri-Brú í Gríms- nesi, en þangað komast um 80 böra í allt. Barnaheimilin eru starfrækt 3 mánuði yfir sum- artímann, og við skiptum börn unum niður í hópa, en hver hópur dvelur sex eða tólf vik- ur í sumarbúðunum. Fyrstu vik una í maí augiýsum við eftir umsóknxun og venjulega koma þær tvöfalt fleiri, en hægt er að sinna. — Hvemig snúið þið ykkur í þvi? — Á vegum Reykjavikur- deildarinnar starfar nefnd, sem fer vandiega í gegnum umsókniraar og athugar, hvar þörfin er mest fyrir að koma börnunum í burtu. Reynt er að láta þau sitja fyrir, sem eiga við erfiðar aðstæður að búa, og létta þannig undir með þeim heimilum, sem verst em sett, til dæmis ef fyrir- vinnan er veik, eða ef um ein- stæða móður eða mörg böm er að ræða. — Hvenær hófst þessi starf- semi Reykjavíkurdeildarinnar og hvaða tildrög lágu til henn- ar? — Hugmyndin mun hafa kornið úpp árið 1932, en þá var Rauði Krossinn beðinn um að veita fjárstyrk tíl baraa- heimilisins að Egilsstöðum. Styrkveitingin nam tveimur þúsundum króna, en þá hafði krónan talsvert meira verð- gildi en nú. Upp úr þessu fór Rauði Krossinn að útvega bæj- arbörnum dvalarstaði úti á landi yfir sumarmánuðina, en það bar misjafnan árangur. Ár ið 1940 var skollin á heims- styrjöld og bjuggust menn hér við hinu versta. Var þá ákveð- ið að flytja öU böm á brott úr Reykjavik, og var stofnuð nefnd í því skyni að sjá um framkvæmdiraar. Formaður hennar var Þorsteinn Schev ing Thorsteinsson lyfsali, en hann var þá jafnframt formað ur Rauða Krossins. Lét nefnd- in útbúa tólí bamaheimili, skóla og skýli, sem samtals rúmuðu sjö hundmð böm. Þannig hófst þessi starfsemi Rauða Krossins. En tveimur árum síðar var þessi sumarbúð arstarfsemi endurskipulögð undir forystu Rauða Krossins í samráði við rfki og Reykja- vfkurbæ, og fór þá Rauði Krossinn að leggja drög að eig in bamaheimili Leigt var erfða festulandið Laugarás 1 Bisk- upstungum, en vegna skorts á efnivið og fjármagni hófust framkvæmdir þar ekki fyrr en árið 1945. 9 stórir skálar, upp runalega herskálar vora endur byggðir og fluttir þangað aust- ur, þetta þótti ódýrara heldur en að reisa nýja byggingu, en á hinn bóginn hefur viðhalds- kostnaður við skálana verið af- ar mikill allt frá fyrstu tíð. Bryjað var að starfrækja sum- arbúðimar að Laugarási árið 1962, hafa þær síðan starfað á hverju sumri og rúma fleiri böm en nokkrar aðrar sumar- búðir á landinu. Til skamms tíma höfðum við rúm fyrir nokkur böm á Silungapolli, en það misstum við fyrir tveimur Brú hafa verið starfræktar frá 1963. — Er ekki dálítið slæmt fyr- ir ykkur að vera svona langt fná bænum upp á aðdrætti að gesra? — Nei, við erum mjög ánægðir með staðsetningu bamaheimilanna, þau era hæfi lega langt frá bænum og eng in vandræði era með vista- sendingar þangað. Á Laugar ási er mjög stór frystir, sem gerir það að verkum, að stór- ar sendingar þarf ekki að flytja þangað nema tvisvar í viku, en smærri sendingar fara þangað daglega. Á skrifstofu Rauða krossins er algeriega séð um pantanir og innkaup til beggja heimilanna. Við höfum átt því láni að fagna að hafa afar dug- lega forstöðukonu að Laugar- ási, fröken Jónu Hansen, en hún hefur gegnt þeim starfa með mesta skörungsskap. Það er afar fallegt í Biskupstung- um, og frá Laugarási er skammt til Skálholts. Á sunnu dögum fer fröken Jóna Hansen með allan baraahópinn þangað til kirkju, og það er að mín- um dómi mjög góður siður. Bændumir í Biskupstungunum ‘hafa sýnt starfi okkar mifcla vinsemd og skilning, og hafa rétt okkur hjálparhönd á allan hugsanlegan hátt. — Hafa börnin nokkur tæki- færi til að kynnast reglulegu sveitalífi, meðan þau dveljast í sumarbúðum ykkar? — Þeim er stundum skipt niður í hópa, marserað með þau á næstu bæi og þau kynnt fyrir húsdýrunum. Þau geta vitaskuld ekki kynnzt búskapar háttum á sama hátt og börn, sem dveljast á sveitaheimilum, en þarna fá þau nokkra nasa- sjón af sveitalífi og svo er bændunum í Biskupstungum fyrir að þakka. — Hvernig er með starfslið við sumarbúðiraar? — Það er ekki nóg með það, að við getum ekki veitt öllum þeim bömum viðtöku, sem um hana sækja, heldur getum við alls ekki ráðið allar þær stúlk ur, sem sækja um vinnu við sumarbúðimar. Við höfum yfir leitt ekki ráðið yngri stúlkur en 16 ára, og reynt að hafa einhverjar útlærðar fóstrur með, en það er mikill hörgull á þeim. Það er mjög æskilegt að stúlkurnar hafi einhvem tíma unnið að barnagæzlu, en í mörgum tilfellum er svo ekki, og þær gera sér litla grein fyr ir þvi hvað þær era að ganga út í. Til þess að ráða bót á þessu erum við með áætlanir um að halda viku til 10 daga námskeið fyrir stúlkumar núna í vor áður en sumarbúð- imar taka til starfa. Verður þetta námskeið undir umsjón fröken Jónu Hansen, forstöðu- konu, og við vonumst eftir því að fá einhverjar útlærðar fóstr ur til að kenna stúlkunum. Það væri æskilegt að Vorboðinn og önnur félög, sem reka sumar- búðir fyrir böm, tækju sig saman um að halda slík nám- skeið í framtíðinni, en þetta er allt i deiglunni enn sem komið er. — Hvemig hefur rekstur barnaheimilanna gengið? — Fjáhhagslega séð stönd- um við mjög höllum fætí, og í vetur var jafnvel álitið, að við gætum ekki haldið uppi rekstri sumarbúðanna þetta árið. Það hefur sem betur fer Bðrn að leik v!8 sumarbúSir Reykjavíkurdelldar RKÍ aS Laugar- ási I Blskupstungum. Barnahópur I Laugarásl. Rætt við Ólaf Stephensen, fram- kvæmdastjóra Rauða kross íslands árum. Sumarbúðirnar við Efri

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.