Tíminn - 03.04.1966, Blaðsíða 7
19
SUNNTJDAGUR 3. apríl 1966
TÍMiNN
rætzt ór þessu, svo að það er
nokkum veginn öruggt, að
þetta geti blessazt, og við von-
ntn að með góðum skilningi
bæjarbúa og borgarstjómar
geti rekstur sumarbúðanna
haldið áfram á komandi árum.
En rekstrarhallinn er mikill
og Reykjavíkurdeildin getur
vart staðið undir honum. Þótt
húsakynnin að Laugarási séu
vistleg og rúmgóð, er viðhalds
kostnaður við skálana afar mik
ill, og til þess að vel megi
fara er nauðsyniegt að gera á
þeim fullnægjandi endurbætur,
en til þess höfum við ekki
fjárhagslegt bolmagn sem
stendur. Við höfum tekið við
bömunum við mjög vægu
gjaldi, 600 krónum á viku, en
nú gemm við ráð fyrir því að
verða að hækka það, ef til vill
um 100 krónur.
__Vill það ekki brenna við,
að fólk standi í vanskilum með
greiðslu, eða hafi jafnvel ekki
tök á því að standa í skilum?
— Það kemur mjög sjaldan
fyrir, að fólk reyni að komast
hjá því að greiða þetta
lága gjald. Á hinn bóginn
er nokkuð algengt, að ekki
sé hægt að greiða gjaldið út
i hönd, og fódk verði síðbúið
með greiðslur, en yfirleitt er
þetta vegna skiljanlegra
ástæðna, og þá tökum við vita-
skuld ekki hart á fólkinu. Það
vill stundum til, að fólk bið-
ur okkur um fjárhagslega að
atoð við að koma böraum sín-
um í sumarbúðimar, en því
fóiki vísum við oftast á borg-
araSstoð.
— En er það ekki algengt,
að fólk, sem ef til vill hefur
mesta þörf fyrir að koma böra
nm d'nnm á bamaheimili,
veigri sér við þvi, vegna þess
að það sér sér ekki fært að »
standa í skilum.
__Við fáum stundum tilvís-
anir á siikar fjölskyldur, og
eins fylgist Reykjavíkurdeildin
nokkuð vel með, hvar þörfin
er mest. Ef við vitum af sér-
lega slæmum aðstæðum reyn-
um við stundum að hlaupa und
ir bagga með því að taka böm-
in í sumarbúðirnar endur-
gjaldslaust, en þó ekki nema
að vel athuguðu máli, því að
rekstrarhallinn er mikill.
— Þið takið eingöngu böm
úr Reykjavík?
— Já, Reykjavíkurdeildin
sér algerlega um þessa
starfsemi, við getum ekki með
nobkm móti ráðstafað börnum
utan Reykjavíkur, og eins og
ég sagði áðan, getum við ekki
sinnt helming þeirra umsókna
er berast frá Reykjavík.
— Og að lokum, Ólafur. Það
er vitaskuld einlæg von ykkar
allra, sem að þessu standið, að
þessi starfsemi Rauða Kross-
ins megi halda áfram á kom-
andi tímum.
— Alveg tvímælalaust. Þeg «
ar ég byrjaði hjá Rauða Kross-
innm var ég að vísu nokkuð
vantrúaður á þessa sumarbúð-
arstarfsemi, en eftir að hafa
kynnt henni sé ég að hún er
algerlega í anda Rauða Kross-
ins, og það ber að halda henni
áfram í lengstu lög.
GÞE.
□
ÞÁTTUR KIRKJUNNAR
Safnaðarstarf
Aðalstarf sumarstarfsnefnd
ar er undirbúningur og fram-
kvæmd ýmiss konar ferðalaga.
Hún undirbýr safnaðarferð í
Skálholt að vorinu, síðast í
júní, og hátíðaguðsþjón-
ustu þar. Þá er ferð með eldra
fólk í júlí í samstarfi við bif-
reiðastöðina Bæjarleiðir, sem
leggur til farkostinn í þá ferð.
Svo er farin sameiginleg safn-
aðarferð og- að síðustu berja-
ferð með börn. Allt era þetta
eins dags ferðir.
Ennfremur aðstoðar sumar-
starfsnefnd við ferðalag og
jafnvel mót fermingarbarna á
vori hverju. Hún gengst fyrir
umferðanámskeiði fyrir böm
úr söfnuðinum í samstarfi við
lögreglulið borgarinnar og
Slysavarnafélagið. Og þessi
nefnd aðstoðar einnig við flest-
ar framkvæmdir . kirkjudags,
sem haidinn er í ágústlok á
bverju sumri. Hún undirbýr
einnig svokallaðan vordag
safnaðarins, en það er sam-
koma og starf til fegrunar á
umhverfi kirkjunnar og safnað
arheimilisins.
Vetrarstarfsnefnd sem tek-
ur við starfi sumamefndar á
haustin undirbýr svonefnd
kynningarkvöld og spilakvöld
safnaðarins. En slókar samkom
ur em annað hvert sunnudags
kvöld allan veturinn. Og er
starfið að vissu leyti tvíþætt
hvert kvöld. Annars vegar
framsóknarvist fyrir þá, sem
vilja spila, en bins vegar
myndasýningar og upplest-
ur handa þeim, sem ekki taka
þátt í spilunum, en það eru
einkum yngstu og elztu þátt-
takendurair.
Kynningarkvöldin eru með
nokkuð öðm sniði en spila-
kvöldin. Þá eru fengnir til
rfarfa ræðumenn, söngvarar
og sýningamenn. En kaffiveit-
ingar em fastur liður á þess-
um kvöldum, sem oft eru fjöi-
sótt.
Oft eru smáhappdrætti og
bögglauppboð til fjáröflunar,
ásamt veitingunum.
En allt sem inn kemur í
peningum bæði gefið og greitt
er lagt í sjóð, sem síðan er
skipt á milli félaganna, eða
lagt fram til sameiginlegra
kaupa t.d. í Mukknasjóð kirkj-
unnar til að kaupa sýningar-
vélar, hljóðfæri, fjölritunar-
tæki o.s.frv.
Vetrarstarfsnefnd undinbýr
eða aðstoðar við kirkjukvöld,
jólavöku og jólafagnað fyrir
eldra fólk, en þá ganga fé-
lagsstjómirnar einnig sjálfar
beint að verki.
Ekkert starf í öllu umstangi
safnaðarstarfseminnar mun
vera öllu erfiðara og umfangs-
meira en starf framkvæmda-
stjórans eða formannsins í
vetrar- og sumarstarfsnefnd.
Og er mikils um vert, að í það
sé valinn ötull, fómfús og
sókndjarfur maður.
Þá má nefna hinar sérstöku
nefndir, sem starfa að mestu
eða öllu leyti sjálfstætt en
em ekki í beinu sambandi við
safnaðarféiögin.
Þar er fyrst Bindindisnefnd,
skipuð af þrem mönnum, sem
er valin á vegum Bindindis-
samtaka kristinna safnaða,
sem er nýtt starf í kirkju fs-
lands, en hefur verið lengi í
kirkjum Norðurlanda. Þessi
nefnd starfrækir barnastúku á
vegum safnaðarins. Hún und-
irbýr og efnir til tveggja bind-
indisdaga árlega, þar sem veitt
er fræðsla um bindindismál
og hættur áfengis- og tóbaks-
nautnar, og þessi nefnd tekur
þátt í sameiginlegri félags-
starfsemi safnaðarins eftir
föngum og væntir þess að geta
eflt þannig átök sín, að hún
geti liðsinnt þeim innan safn-
aðarins, sem líða við böl áfeng
isnautnarinnar. Er starfsemi
prests mikilsverður þáttur í
framkvæmdum nefndarinnar.
Þá er Líknarstarfsnefnd, en
hún er skipuð sjö manns, prest-
um eða presti, húsfreyjum
þeirra, safnaðarformanni og
helzt lækni eða hjúkrunarkonu.
En slík skipun í nefndina er
engan veginn skilyrði, þótt
hún sé að ýmsu leyti æskileg.
Þetta fólk athugar sérstaklega
ástæður og vandamál gamals
og bágstadds fólks innan safn-
aðar og hvað gera megi til að
gleðja það og aðstoða.
Nefnd þessi annast um jóla-
glaðning fyrir einstæðinga
og syrgjendur eftir því sem
unnt er, gefur ráð viðvíkjandi
jólavöku gamila fólksins og
hverjum skuli helzt veitt þátt-
taka í skemmtiferð eldra fólks-
ins. Ennfremur leitast hún við
að veita aðstóð s'júkum og bág-
stöddum, ef því verður við
bomið.
Á vegum þessarar nefndar
hefur verið stofnaður svonefnd
ur líknarstarfssjóður og þarf
hún þá að hafa minnsta kosti
einn söfnunardag árlega til
eflingar þessum sjóði sínum og
undirbúa fleira, sem gera
mætti honum til fj árhagslegs
stuðnings.
í þessu sambandi má nefna
fieiri sjóði á vegum safnaðar-
ins, t.d. klukknasjóð, orgelsjóð
og sjóð til kaupa á kvikmynda-
vél. En aHa þessa sjóði efla
safnaðarfélögin eftir megni,
og orgelsjóðinn annast kórinn
alveg sérstaklega.
Þá hefur og verið stofnaður
Fegrunarsjóður kirkjunnar og
söfnun til hans er sérstaklega
í sambandi við „Vordag" þann,
sem áður er nefndur. En úr
honum skal veitt síðar til að
fegra umhverfi kirkjunnar
með trjám, blómum og lista-
verkum eða á annan hátt, sem
þurfa þykir og bezt gegnir
hverju sinni, einkum utan
húss.
Samstæður þessum sjóði er
Minningargjafasjóður Kvenfé-
lagsins, sem sérstaklega ann-
ast skreytingar innan húss,
helgiklæði og ornamentum
kirkjunnar sjálfrar.
Að síðustu skal svo nefnd-
ur söngflokkur barna, svokall-
áður smábarnakór, sem annast
allan söng við barnasamkom-
ur safnaðarins og syngur auk
þess á gleðimótum í safnaðar-
heimilum, þegar hentast þyik-
ir.
Það kostar mikla hugsun og
árvekni að halda öllu þessu
starfi lifandi og blómlegu ár
hvert. En alltaf kemur gott og
fórnfúst fólk til starfa, og þá
er aðalvandinn að hefja þessi
störf og koma öllu í gang. Svo
er líkt og andi Krists sé innra
afl, sem gerir bæði að byrja
og fullkomna verkið eftir
þeim krafti, sem í oss verkar.
Árelíus Níelsson.
Lokaæfingin verð-
ur sjálft flugið
Neil A. Armstxong, geimfari
sem er stjórnandi um borð í
geimfarinu Gemini 8, sem skot
ið var á loft fyrir nokkm
hefur skrifað stutta grein um
æfingar geimfaranna áður en
þeir leggja upp í geimferðir
sínar. Æfingarnar eru flóknar
og allt er gert til þess að und-
irbúa geimfarana, svo sem
fæst komi þeim að óvörum þeg
ar á hólminn er komið.
— Það er ekki nokkur lif-
andi leið að æfa aUt, sem fyr-
ir kann að koma á ferðalagi
til tunglsins. Þrátt fyrir alla
okkar útreikninga og áætlanir
hlýtur slík ferð aHtaf að verða
farin út í hið óþekkta, og
flugið sjálft verður lokaæfing-
in. Það eina, sem við getum
gert, þangað til að þvi kem-
ur, er að skipta ferðinni nið-
ur í smá hluta, geimskotið, mót
geimfaranna úti í geimnum,
lendinguna á tunglinu, brott-
förina þaðan, og afturkomuna
hingað til jarðarinnar. Síðan
er um að gera að reyna að
æfa ÖU þessi atriði eins og
framast er kostur með aðstoð
hinna mörgu og flóknu tækja,
sem ætluð eru til þessa.
Á fyrstu dögum Mercury-
áætlunarinnar vissu menn lít-
ið um hættur og erfiðleika,
sem kynnu að verða á vegi
geimfaranna í geimferðum. Af
þeim sökum urðu geimfararnir
að æfa alls kyns hluti, sem
engin þörf reyndist fyrir, þeg-
ar þeir fóm í fyrsta geimflug-
ið. Þá voru heldur ekki eins
mörg æfingatæki til og nú orð-
ið.
Æfingatækin í dag mundu
uppfylla óskadrauma hvaða
geimfara sem er. Hin hugvit-
sömu tæki geta skapað hinn
furðulegasta undraheim.
Á meðan við erum við æfing-
ar emm við umkringdir sýn-
um, hljóðum og jafnvel ilmi,
sem búast má við, að við eig-
um eftir að finna í tunglferð-
um okkar. Til dæmis em jarð-
fræðingar í aðalstöðvum okk-
ar í Houston að skapa tungl-
landslag, sem við vonumst til,
að sé svo líkt landslaginu á
tunglinu, að okkur finnist við
vera að koma út í garðinn
hjá okkur, þegar við komum
þangað.
Við þurfum að venja okkur
við aðdráttarafl tunglsins, en
það er aðeins einn sjötti af
aðdráttarafU jarðarinnar.
Geimförunum mun veitast auð
velt að stökkva sex metra í
loft upp á tunglinu, en þeir
verða að minnast þess, að mót
staða líkama þeirra verður áv-
allt hin sama, og þvi yrði það
engu sársaukaminna að rekast
á steinnibbu á tunglinu, en
það er að rekast á stein á
jörðu niðri. Af þessu leiddi,
að við urðum að æfa okkur i
því að ganga á tunglinu, og
til þess að það mætti verða,
varð að skapa aðstöðu, sem
Framhald á bls. 22.