Vísir - 31.08.1974, Blaðsíða 10
10
Vlsir. Laugardagur 31. ágúst 1974.
Úr miklu að velja!
Botnbaráttan í 1. og 2. deild í algleymingi — Norðurlandamótið í golfi —
Unglingamót í sundi og frjálsum íþróttum og margt fleira á dagskrá
Síðustu leikirnir i 1. deild
tslandsmótsins I knattspyrnu
verða ieiknir um þessa helgi.
Tveir af þeim hafa litla þýðingu
um röð liðanna I deildinni i ár, en
hinir tveir eru þess stærri og
þýðingarmeiri hvað það varðar.
Það eru leikirnir....Akureyri-
Fram og Valur-VIkingur. Báðir
þessir leikir skipta miklu máli um
fallbaráttuna i deildinni — en þrjú
af þessum liðum standa I henni.
Akureyringar verða að ná i
a.m.k. annað stigiðá móti Fram i
dag til að halda sér i deildinni og
Fram að ná báðum stigunum ef
liðið á að hafa möguleika. Sama
er uppi á teningnum hjá Vikingi i
leiknum gegn Val á sunnudaginn.
...Vlkingarnir verða að ná báðum
stigunum i þeim leik ef þeir ætla
að halda sér i deildinni.
Hinir tveir leikirnir i 1. deild
etu á milli KR og Akraness á
Laugardalsvellinum, en ao
honum loknum verður Skaga-
mönnum afhentur Islands-
bikarinn, og leikur Keflvlkinga og
Vestmannaeyinga á Keflavik. Sá
leikur fer fram i dag kl. 16.00,
en leikir KR-Akraness og Akur
eyrar-Fram hefjast kl. 14.00.
Leikur Vikings og Vals fer aftur á
móti fram á morgun kl. 16.00.
Þá veröur einn leikur i 2. deíld I
dag....Völsungur-Breiðablik á
Húsavik. 1 þeim leik verða
Völsungarnir að ná sér i a.m.k.
eitt stig til að halda sæti sinu I
deildinni. Ef þeim tekst það eru
Isfirðingar fallnir i 3.deild.
Fyrir utan knattspyrnuna
veröur margt fleira á dagskrá um
helgina. Þar ber hæst Norður-
landamótið I golfi, sem hófst i
morgun og mun standa yfir fram
á sunnudagskvöld. Getur orðið
gaman að fylgjast með þvi enda
margir frábærir kylfingar þá á
ferð um Grafarholtsvöllinn —
þeir beztu sem nokkurn timann
hafa leikið hér.
1 Sundhöllinni hefst i dag
unglingameistaramót Islands i
sundi. Þar eru um 200 keppendur
sem keppa i 32 greinum. Keppnin
hefst i dag kl. 16.00 en á morgun
kl. 15.00.
A Laugum i Þingeyjarsýslu fer
fram unglingamót FRÍ i frjálsum
iþróttum, og er þar meðal
keppenda allt okkar bezta frjáls-
iþróttafólk af yngri kynslóðinni.
Þá verður mikið um að vera á
KR-svæðinu við Frostaskjól um
helgina. Allar deildir félagsins
efna þar til keppni og sýninga
i tilefni 75 ára afmælis fél.
Mun þessi ,,KR-hátið” standa
yfir i dag og á morgun en henni
mun ljúka með leik á milli
„Haröjaxla KR” og „Bragðarefa
Fram”, sem hefst kl. 17,00 á
morgun.
1 m í Mém 1 'W'iWffem.. j O hjLElí i r ír \
'
Sænska tenntsstjarnan Björn Borg, sem veriö hefur einhver stærsta
auglýsing fyrir tennisiþróttina á undanförnum árum, heldur áfram að
moka inn peningum I þeim mótum, sem hann tekur þátt I. Þessi mynd
af honum er tekin I Indianapolis i Bandarikjunum á dögunum, en þar
hlaut hann önnur verðlaun......og 8000 dollara....I hinni áriegu „U.S.
Clay Courts tenniskeppni”. Ilann tapaði I úrslitunum fyrir Banda-
rlkjamanninum Jimmy Conner....5:7-6:3-6:4....Að venju voru
áhorfendapallarnir, þar sem þessi ungi myndalegi Svli leikur, þétt-
setnir áhorfendum og voru ungar stúlkur þar I yfirgnæfandi meiri-
hluta.
Norðurlandamót
tvœr helgar í röð
tslandsmeistarar Fram I handknattleik kvenna utanhúss: Aftari röð frá vinstri: Ólafur Jóntson for-
maður handknattleiksdeiidar Fram, Kristin Orradóttir, Bergþóra Asmundsdóttir, Arnþrúður
Karlsdóttir, Bára Einarsdóttir, Halldóra Guðmundsdóttir, Heiga Magnúsdóttir ásamt syninum Heiðari
Hinrikssyni, Jóhanna Halldórsdóttir og Sigurbergur Sigsteinsson þjálfari. Neðri röð frá vinstri: Jenný
Magnúsdóttir, Steinunn Helgadóttir, Kolbrún Jóhannsdóttir, Oddný Sigsteinsdóttir, Elin Hjörleifsdóttir
og Guðriöur Halldórsdóttir.
Eins og fram kemur á öðrum
stað hér á siöunni fer fram
Noröurlandamót I golfi um næstu
helgi. En heigina þar á eftir
verður annað Norðurlandamót
hér i Reykjavik- Norðurlanda-
meistaramót I köstum.
Þessi iþróttagrein er enn lltt
þekkt hér á landi, en hún felst
m.a. i þvi að leysa ákveðnar
þrautir með veiðistöng og má þar
t.d. nefna hittiköst og lengdar-
köst.
Þátttakendur frá öllum
Norðurlandaþjóðunum taka þátt I
þessu móti og verða þeir um 40
talsins — flestir frá Sviþjóð og
Noregi en þær þjóðir standar
framarlega i þessari grein og
hafa átt marga heimsmeistara.
Upphaflega var ráðgert aö
mótið yrði haldiö á Laugardals-
völlunum nýju, en þar sem þeir
eru ekki enn tilbúnir, mun mótið
fara fram á KR-svæðinu við
Frostaskjól og á túninu milli
Miklubrautar og Suðurlands-
brautar gegnt Lang-
holtsveginum.
TEITLIR TOFRAMAÐUR
Hvað er að
gerast?
Þeir gætu verið að
plata okkur.
Reyniðtáragas.
Hvað gerum
við foringi?
F Byssu-
menni
bankanum.
Haltu þig
frá, frú!
Og ef þeir fá ekki bila
og flugvél, þá skjóta þeir
gislaná! Þessfr ándsk....
G'íKZiX'f
Svona er það —
fimm byssumenn
og tíu gislar...