Vísir - 07.09.1974, Side 1
VISIRI
64. árg. — Laugardagur 7. september 1974 — 169. tbl.
FORSTJÓRINN FÉKK 3
MILLJÓNIR „AÐ LÁNI"
— baksíða
GETA AFKOMENDURNIR HINDRAÐ
SÝNINGAR Á LÉNHARÐI?
með, hvernig á málum hefur
verið haidið. Visir ræddi við einn
þeirra 16 afkomenda skáldsins,
sem munu eigendur höfundar-
réttarins.
— ekkert samráð haft við þá áður en farið var út í kvikmyndatökuna
Lénharður fógeti kann að verða
lögfræðingastéttinni efniviður
næstu mánuðina. Gkki aðeins að
búast megi við opinberri
rannsókn á fjárreiðum sjón-
varpsins varðandi myndatökuna,
heidur munu nokkrir afkomendur
Einars heitins Kvarans óánægðir
Leifur og Hildegard eyða flestum sinum tómstundum við garðyrkju á sumrin. Ljósm. Bj.Bj.
Það eru líka til stór tré
á íslandi
,,Ég hef nú aðallega keyrt
hraun frá Hafnarfirði og grjót
frá Sprengisandi I garðinn,”
segir Þórhallur Leifsson og það
er ekki ofsögum sagt, að sumir
hlutir komi iangt að, sem
skreyta á fallega garða með.
Eigendur garðsins, Leifur
Þórhallsson og kona hans,
Hildegard Þórhallsson, höfðu
vikið sér frá, svo að við höldum
áfram að spyrja soninn Þórhall
um garðinn.
Hann segir okkur, að húsið sé
eitt af þessum sænsku húsum,
sem flutt voru inn fyrir um þ.b.
25 árum, Það stendur við
Karfavog 54 og er eina húsið i
götunni, sem ekki er búið að
mála eða klæða utan á, en hefur
alltaf verið ferniserað. Stóra
tréð, semvið sjáum efst á mynd-
inni, er álmur og var þriðjungi
stærri i fyrra þegar það
brotnaði i roki. Humall teygir
sig eftir húsinu hægra megin, en
I miðjunni er klifurjurt, sem
hefur skartað með hvitum
blómum i tilefni af góða veðrinu
i sumar, en hún blómstrar
aðeins þegar mikil sól hefur
verið.
Fólkið i húsinu hefur það fyrir
aðaltómstundaiðju á sumrin að
huga að garðinum, og eins og
sjá má er mikið um litadýrð.
Blómavali er hagað þannig, að
alltaf er eitthvert þeirra, að
breiða úr krónum sinum.
Ekki er hægt að segja annað
en við getum verið kát hérna á
Islandi yfir öllum þessum
fallegu görðum sem til eru. En
ef við ekki höfum garða, getum
við hæglega hengt biómakassa á
gluggasyllurnar okkur til
ánægjuauka.
—EVI/Ljósm. Bj.Bj.
Böðvar Kvaran varð fyrir
svörum fréttamanns: „Ég held
það séu 3 mánuðir eða svo frá þvi
ég varð þess fyrst áskynja, að
verið væri að vinna að kvik-
myndun Lénharðs fógeta, er um
það birtist frétt i dagblaði. Ég
man ekki lengur efni þessa frétta-
stúfs i einstökum atriðum, en mér
fannst þá þegar kynlegt, að
ráðizt væri i slikt verk án
samráðs við þá aðstandendur
höfundarins, sem helzt áttu hlut
að máli, en ég hlaut að teljast
einn þeirra. Stendur enn við það
sama i þvi efni”, sagði Böðvar.
Böðvar kvaðst hafa farið að
leggja eyrun við, þegar blaða-
skrif um kostnaðarhliðina hófust,
og lék þá forvitni á að kynnast
verkinu i hinum nýja búningi .
Varð hann sér úti um eintaK af
kvikmyndahandritinu eftir aö
hafa rifjað upp upphaflegu mynd
leikritsins. „Verð ég að segja, aö
sá samanburður olli mér von-
brigðum. Mér var að sjálfsögöu
ljóst, að óhjákvæmilegt yrði að
breyta ýmsum þáttum verksins
vegna kvikmyndatökunnar og
fékk ég ekki betur séð en þar hefði
margt vel tekizt. Hins vegar kom
mér á óvart, að ástæða hefði þótt
til að breyta verulegum efnis-
atriðum og raunar kunnum lifs-
viðhorfum höfundarins, sem
engum dylst i leikriti hans”, sagði
Böðvar Kvaran.
Aðspurður um hvernig hann
sem einn eigenda höfundarréttar
mundi bregðast við, sagði Böðvar
að lokum:
„Ég hefi ekki gert upp við mig
enn, hvernig ég tel rétt að
bregðast við i þessu furðulega
máli. Ég hef ekki einu sinni
kannað hver minn réttur er. Þó
hef ég hugboðum, að hann sé ekki
alllitill. Ef til vill fer bezt á þvi að
fyrirgefningin ráði einnig hér
rikjum gagnvartþeim, „sem ekki
vita hvað þeir gera”. Það þætti
litil fyrirhyggja að hefja
byggingaframkvæmdir og ljúka
þeim, án þess að hafa aflað sér
lóðarréttinda. Ég fæ ekki betur
séð en slik sé aðstaða þeirra, sem
að kvikmyndun Lénharðs fógeta
standa”.
—JBP
Erfiður enda-
sprettur við fjár-
mögnun Spánar-
togarakaupanna
- bls. 3
SETLÖG MEÐ OLÍU
VIÐ (SLAND
— en verður
olían unnin?
- BAKSÍÐA
I 10 þúsund fet
til að lœkna
kíghóstann!
— Baksíða