Vísir - 07.09.1974, Qupperneq 5
Vlsir. Laugardagur 7. september 1974.
5
Ætlar á bifhjóli
yfír 400 m
breitt gljúfur
— Ofurhuginn Evel Knievel glaptist á veðmál um að hann
gœti stokkið á bifhjóli sínu yfir SnákafIjótsgljúfur.
— Á morgun skal á það reynt, hvor vinnur.
Evel Knievel ætlar að
bregða sér í stutta flug-
ferð á morgun. Hún
verðurvarla minútu löng.
En hvort hann á aftur-
kvæmt úr henni, það er
spurningin, sem milljónir
manna biða með öndina í
hálsinum eftir að fá svar
við.
Knievel er staögengill að at-
vinnu, 34 ára aö aldri. Hann
ætlar að skjóta sjálfum sér á
bifhjóli knúðu eldflaug, vfir
Snákafljótsgljúfur i syðri hluta
Idaho.
Til þess að minnast þessa
glæfrabragðs hefur leikfanga-
fyrirtæki eitt i Chicago látið sér
detta i hug að gera leikfanga-
eftirlikingar af sýningar-
brögðum Knievels, sem mundu
færa honum 100 milljóna dala til
viöbótar þeim 6 milljónum, sem
hann segir sjálfur, að honum
hafi veriö tryggðar fyrir sjálfs-
morðstilraun þessa.
Hér er verið að selja dauðann.
Fólk ætlar að greiða stórfé fyrir
að horfa á mann drepa sig,
segja sumir. Kvikmyndatöku-
menn, sem gera ætla sjónvarps-
mynd (sýnd samtimis þvi að
tilraunin fer fram), vonast til
þess að næla sér i 20 milljónir
dala fyrir myndina. Það er
búizt við ekki færri en 50.000
áhorfendum að gljúfrunum til
að horfa á stökkið, en hver og
einn verður að greiða 25 dali i
aðgangseyri fyrir að geta sagt
barnabörnum sinum, að hann
hafi veriö viöstaddur heljar-
stökkið.
Tvær tilraunir hafa verið
gerðar með að skjóta eld-
flaugum, ómönnuöum, yfir
gljúfrin, en þær brotlentu báðar.
Knievel segir, að það verði
ekki gerðar fleiri tilraunir. —
„Við vitum allir, að það
heppnast alltaf og er aö marka i
þriðja sinn”, sagði hann.
Það eru ekki peningarnir aö
þessu sinrii, sem staögengillinn
sækist eftir. Hann er maður vel
stöndugur. Býr hann ásamt
konu sinni og þrem börnum I
lúxusvillu i Kaliforniu. Eiga þau
tvo dýra sportbila fyrir utan
kádiljáka til daglegs brúks. —
Enda segir hann, að vel verði
fyrir fjölskyldunni séð, þótt
hann lifi ekki af tilraunina
Nei, það er ódauðleg frægð,
sem nú er sótzt eftir.
— Og svo kergja i sambandi
við veðmál.
Knievel, sem hefur lifað af
leikni sinni á bifhjólum, hefur
leikið sér að þvi að stökkva á
bifhjóli yfir sextán bifreiðir.
Hann lét hafa sig út i veömál
um, að hann gæti stokkið á
bifhjóli yfir Snákafljótsgljúfur.
— Það eru fjögur hundruð
metrar á milli gljúfurbarm-
anna.
Hálfur heimurinn hefur frétt
af þessu veðmáli, og i flestum
fjölmiðlum heims hefur Knievel
verið getið og þessarar fifl-
Flugleiöi
[Flugleiðin
Skötpallur ;
[bifhjóls. |
Palihiifarknding
Bifhjóiið j Knievel
Skotpallur
f '
i-*----Skotvegatengdin 1000 m
+ •«----40« m-
. Snákafljóts-
cljúfur
Snákafljótsgljúfur séð af öðrum bakkanum. TII hægri handar má sjá skottrönurnar, sem Knievel er
búinn að setja þar upp. — Það sem menn láta hafa sig út i fyrir peninga!
Þetta er farkosturinn, Sky Cycle. Að visu er þetta Sky Cycle X-l,
en Knievel, sem sést á myndinni prófa hvernig er að setjast upp
i tryllitækið, fer meö Sky Cycle X-3. — X-1 og X-2 brotlentu báðir
i tilraunum, án þess að komast yfir.
djörfu tilraunar, sem fyrir
dyrum stendur hjá honum á
morgun. — Hvort sem honum
heppnast eða ekki, þá er eitt
vist, að nafn hans verður heims-
frægt.
Einn þeirra, sem að tilraun-
inni standa með honum, sagði —
þegar hann var spuröur, hvað
yrði ofan á, ef Knievel lifði ekki
flugferðina af — að þá mundi
frægð hans bara aukast, eins og
tilfellið varð með kvikmynda-
stjörnuna James Dean. — Af
svarinu má marka, að þessir
piltar eru það, sem kalla mætti
„nokkuð svalir”.
Knievel er sjálfur sannfærður
um, að sér muni heppnast
tiltækið. Hann ætlar að nota
bifhjól knúið eldflaug, eins og
áður sagði, og kallar hann far-
kostinn „Sky-cycle X-3”. Þvi
verður komið fyrir á stálskot-
brautnokkur hundruð metra frá
gljúfurbarminum. — Þegar og
ef það sleppir skotbrautinni,
verður það á 160 km hraða og
mun á næstu 4 sekúndum auka
svo við hraðann, að það verður
komið á 560 km ferð, þegar búið
verður að skjóta eldflauginni,
sem gefur þvi þennan aukna
hraða.
Fallhlif, sem opnast mun i
afturenda „Sky cycle”, á að
bera það mjúklega til jarðar á
gljúfurbarminum hinum megin.
Sjálfur ber Knievel fallhlif, sem
hann opnar sjálfur, þegar
honum sýnist, og á að sjá til
þess, að hann komi mjúklega til
jarðar.
Aðspurð um það, hvernig
henni litist á þessa fifldirfsku
bónda sins, svaraði kona
Knievels, að hún hefði I fyrstu
sett sig á móti henni, en sæi, að
Knievel yrði ekki af þessu
skekinn, og væri þvi búin að
sætta sig við þetta.
En það verður áreiðanlega
ekki öllum svefnsamt á þvi
heimili i nótt.
—GP
Athugið breyttan
sýningartíma
NÝ MYND
Sýningar:
Laugardag og sunnudag kl.
6,8 og 10.
Barnasýning kl. 4.
Mánudag til föstudags kl. 8
og 10.