Vísir - 28.09.1974, Side 3

Vísir - 28.09.1974, Side 3
Vlsir. Laugardagur 28. september 1974. 3 Þótt suðurhlió hússins hangi uppi, er hún sprungin og ónýt. Fáir innan- stokksmunir siuppu heilir. Ljósm. Matthias Gestsson. una. Hann lýsti atburðum fyrir okkur á þessa leið: „Ég var að koma á fætur og gekk að suðurglugga hússins okkar til að athuga, hvernig veður væri oghvernigskó ég þyrfti að fara i, en ég var að fara i skólann. Rétt i þvi sem ég leit á húsið, sem er i 70-80 metra fjar- lægð frá okkar og snýr að okkur norður- og suðurhorni, sá ég þakið á þvi lyftast og sag og alls konar rusl gjósa svo sem 3-4 metra upp i miklum mekki. Ég þaut strax niður og hringdi i lög- regluna, sem sagðist ætla að senda sjúkra- og slökkvibila á staðinn. Þegar ég leit aftur út, var allt komið i rúst.” Það var enginn maður á gangi, þar sem ég sá til i nánd við húsið, en getur hafa verið fyrir neðan það, þótt ég viti ekki til þess.” Innbú hússins mun hafa verið heimilistryggt, en Visi er ekki kunnugt um tryggingu á húsinu, aðra en lögboðna bruna- tryggingu. -SH KSI dtemir Víking og Akureyrí niður — ef liðin mœta ekki til leiks um fallið í 2. deild í dag — Haukar fá þá annað lausa sœtið í I. deild „Við i stjórn KSÍ lltum svo ó, að ef Vikingur eða IBA mæta ekki til leiks á morgun um fallið i 2. deild, þá séu þau hætt þátt- töku I mótinu og hafi jafnframt firrt sig rétti til að taka þátt I 1. deildarkeppninni að ári.” Þetta sagði Ellert B. Schram formaður KSl á blaðamanna- fundi, sem hann boðaði til i gær vegna ákvörðunar 1. deildarliða Vikings og Akureyrar að mæta ekki i umræddan leik, sem er um fallið i 2. deild Islandsmóts- ins I knattspvrnu, en sá leikur á að fara fram á vellinum i Kefla- vik kl. 14.00 i dag. „Stjórn KSI stendur og fellur með þessu máli”, sagði Ellert. „KSl-þing mun dæma um hvort við höfum gert rangt eða rétt, en við teljum allir sem erum i stjórninni að þetta sé það eina rétta og einnig það eina sem hægt er að gera i málinu. Við hvorki eigum né getum haft afskipti af dómum, sem kveðnir eru upp hjá dómstólum knattspyrnuhreyfingarinnar. Slikt kynni að draga ófyrirsjá- anlegan dilk á eftir sér og leiða til stjórnleysis. Ég vil minna á, að það er þing KSI, sem setur lög og ákveður verkefni. Þar er kosin stjórn sem annast framkvæmd knatt- spyrnumála, og þingið kýs sjálf- stæðan dómstól til að skera úr um ágreiningsmál. Við ráðum ekki yfir þessum dómstóli og getum ekki skipað honum fyrir verkum. Það er aðeins i okkar verkahring að sjá um að úr- skurði hans sé framfylgt.” Við spurðum Ellert að þvi hvort liðin yrðu dæmd niður i 2. eða 3. deild, ef þau mættu ekki. Hann vildi litið tjá sig um það að svo komnu máli. Ef liðin verða dæmd niður i 2. deild fara Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar upp i staðinn. FH sigraði i deildinni, en Haukar urðu i öðru sæti með sama stigafjölda og Þróttur, eða 19 stig. Komast þeir þá upp á hag- stæðari markatölu? Við reyndum i gær að hafa samband við forráðamenn IBA, en þeir voru þá á leið til Reykja- vikur til skrafs og ráðagerða við forráðamenn Vikings. Hjá þeim fengum við þær upplýsingar að bæði félögin myndu standa fast á sinu máli og mæta ekki til leiks. —klp- Hún hefur rödd eins og 12 ára stúlkubarn — andlit eins og 15 ára stúlka og likama eins og 17 ára stúlka. Hún er dýrkuð og dáð — aðallega af karlmönn- um — út um allan heim og á sér stærri aðdáendahóp — aðal- lega skipaðan karl- mönnum — en nokkur önnur kona i heimin- um. Þessi kona er Brigitte Bardot, sem i dag — laugardaginn 28. september — held- ur upp á fertugsaf- mæli sitt. Brigitte Bardot er fædd 28. sept. árið 1934 i Paris. Þegar hún var sex ára gömul byrjaði hún að læra ballett hjá hinum þekkta ballettmeistara, Boris Kniaseff, og var talin mjög efni- leg á þvi sviði. Þegar hún var 15 ára gömul, var tekin mynd af henni sem birtist á forsiðu vikurits, sem gefið er út i.Frakklandi. Meðal þeirra sem hrifust af Bardot á þeirri mynd var kvikmynda- stjórinn Marc Allegret, og bauð hann henni hlutverk i næstu mynd sinni. Sú mynd var algjörlega mis- heppnuð, en hún varð þó til þess, að Bardot sneri sér að þvi að læra leiklist, og þrem árum sið- ar varð hún heimsfræg er Roger Vadim, leikstjórinn frægi, tók hana upp á sina arma — giftist henni meira að segja — og bjó tii hverja myndina á fætur annarri með hana i aðalhlutverkum. Ég er ósköp venjuleg kona... En hvað segir Brigitte Bardot um það að vera að komast á fimmtugsaldurinn? Það fékk sænskur blaðamað- ur sem heimsótti hana á frönsku Rivierunni að heyra, er hann ræddi við hana á dögunum, en Bardot hefur jafnan verið spör á að tala við blaðamenn um dag- ana og jafnan litið viljað segja um sjálfa sig. „Það skiptir mig engu máli lengur. Það er sagt að lif kon- unnar byrji, þegar hún verður fertug, en ég tel það ekki vera rétt. Lifið byrjar þegar maður fer að skilja það, og siðan heldur það bara áfram.” En hvernig finnst henni þá að vera sexdrottning heimsins og á leið inn i ellina? „Ég er engin sexdrottning — ég er ósköp venjuleg kona, sem er að eldast eins og aðrar konur. Ég mun aldrei reyna að fela það með þvi að mála yfir hrukkurn- ARA I DAG! ar, þvi að ég tek þeim eins og öðru sem að mér er rétt i lífinu. Kvikmyndirnar hafa ekki breytt mér neitt. Innst inni er ég eins og var þegar ég var ung stúlka. Það er ekkert sem fær þvi breytt. Ég er og vil vera frjáls. Það versta sem ég veit er að þurfa að klæða mig upp og fara i boð og annað, sem krefst þess að ég sé eins og sýningarbrúða. Ég er ánægðust þegar ég get gengið frjáls um i peysu og gallabux um. Það skal enginn geta sagt það um mig.... Frá og með afmælisdeginum mlnum á laugardaginn ætla ég að vera eins og náttúran skapaði mig. Margar konur leita að horfinni æsku sinni á snyrtistofum og i fegurðar- meðalaglösum og túpum. Það fær enginn mig til að gera slikt — ég er og verð eins og ég er. Ég veit að ég hef efni á að segja þetta frekar en aðrar kon- ur á minum aldri, þvi likami minn er enn eins og þegar ég byrjaði að leika i kvikmyndum fyrir um það bil 23 árum.” Telur hún að frægð hennar fölni þegar aldurinn fer að fær- ast yfir hana? „Að sjálfsögðu gerir hún það. En ég ætla mér að vera sterk við sjálfa mig og koma mér út úr kvikmyndaheiminum áður en það verður. Það skal enginn segja um mig.... — þessi þarna Bardot, hún er ekki neitt leng- ur.” Allir minir menn hafa verið góðir... Bardot er þrigift og auk þess hefur hún búið með nokkrum öðrum. Þeir sem hún hefur gifzt eru Roger Vadim, Jacques Charrier og Gunther Sachs. Nú býr hún með 29 ára gömlum leikara Laurent Vergez að nafni. Hún segir að allir hennar menn hafi verið góðir — hver á sinu sviði. „En ég vil fá að vera frjáls og gera það sem ég óska mér. I hjónabandi verður mað- ur loftlaus og fær innilokunar- kennd. Og þegar ég er lokuð inni þá verð ég að komast út og flýja. Ég verð oft ofsalega ástfangin — jafnvel i fyrsta sinn sem ég sé manninn og án þess að hafa nokkuð talað við hann. Og þegar ég er ástfangin hef ég ekki nokkurn áhuga á öðrum — ég geri allt fyrir þann mann sem ég elska. Ég held að það sé mjög auð- velt að lifa með mér, þótt sumir sem ég hef verið gift og búið með segi annað. Ég krefst að visu mikils, en ég legg mig lika alla fram til að gera minn mann hamingjusaman."

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.