Vísir - 28.09.1974, Blaðsíða 6

Vísir - 28.09.1974, Blaðsíða 6
6 Vlsir. Laugardagur 28. september 1974. VÍSIR Ctgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjóri Fréttastjóri JRitstjórnarfuiltrúi Fréttastj. erl. frétta Auglýsingastjóri Auglýsingar Afgreibsla Ritstjórn Reykjaprent hf. Sveinn R. Eyjólfsson Jónas Kristjánsson Jón Birgir Pétursson Haukur Helgason Björn Bjarnason Skúii G. Jóhannesson Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611 Hverfisgötu 44. Simi 86611 Síðumúla 14. Simi 86611. 7 linur Askriftargjald 600 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 35 kr. eintakið. Blaðaprent hf. Lítil fórn Þegar Þjóðhagsstofnunin hafði í sumar tekið út efnahagsástandið, rikti almenn svartsýni á þróun lifskjara hér á landi. öngþveitið stefndi þá á rúmlega 70% verðbólgu á árinu og i hrun og at- vinnuleysi eftir næstu áramót. Talið var þó, að stjórnvöld gætu hindrað þessa þróun með skipu- legum aðgerðum, sem fælu það meðal annars i sér, að lifskjör yrðu svipuð og þau voru árið 1971. Þessar aðgerðir hafa nú flestar litið dagsins ljós. útkoman er töluvert hagstæðari en menn óttuðust i haust. Lifskjörin þurfa ekki að hverfa til baka til ársins 1971, ef vinnufriður helzt. Þau geta verið svipuð og þau voru i fyrra. Að visu er teflt á tæpasta vað i afkomu atvinnuveganna. En fórn þjóðarinnar er mjög litil, ef það tafl lánast. Ekki er ástæða til að ætla, að lifskjörin rými meira en þetta, þótt verðhækkanir kunni að verða meiri en ráð er fyrir gert i bráðabirgðalögum rikisstjórnarinnar. Þær umframhækkanir mundu verða bættar að fullu i kaupgreiðsluvisitölu i samræmi við ákvæði bráðabirgðalaganna. Þar með er tryggt, að endurreisn efnahagslifsins kostar ekki nema 7,5% almenna kjararýrnun og 5,3% rýrnun láglauna, hvort tveggja frá 1. ágúst i sumar. Bráðabirgðalög rikisstjómarinnar em þvi nokkru hagstæðari launþegum en tillögur Al- þýðubandalagsins voru i tilraunum vinstri flokk- anna til myndunar rikisstjómar i sumar. Þær til- lögur voru birtar i Þjóðviljanum á sinum tima og fólu i sér mun minni verndun láglaunafólks en nú er orðin raunin á. Það er von, að fólk óttist, að forustumenn stéttarfélaga stefni að afleikjum á næstu vikum. Þeir höfðu hægt um sig i vor og sumar, þegar gengið var látið leka, þegar fiskverði var með valdboði haldið óbreyttu og þegar kaupgreiðslu- visitalan var fryst. Nú láta hins vegar ófriðlega sumir þessara forustumanna og stefna að vinnu- deilum, einkum i Sjómannasambandinu, þótt nú fáist hækkun á fiskverði, sem ekki fékkst i vor. Full ástæða er þó til að benda á, að margir for- ustumenn stéttarfélaga átta sig vel á, að þjóðin á i vamarstriði i efnahagsmálunum og að lausnir bráðabirgðalaganna em launþegum langtum ódýrari en aðrar aðgerðir eða aðgerðarleysi. Énda var forustumönnum Alþýðusambandsins gefið tækifæri til að hafa áhrif á innihald laganna. Þessi skilningur endurspeglast i ályktun Al- þýðusambandsins á þriðjudaginn var. Þar kemur fram, að sambandið hafi náð fram ýmsum breyt- ingum á bráðabirgðalögunum. Ennfremur er þar tekið fram, að kjaraskerðingin sé framhald fyrri skerðingar á tima vinstristjórnarinnar. Og loks segir i ályktuninni, að uppsögn kjarasamninga sé fyrst og fremst nauðsynleg vegna þess, að við rikjandi aðstæður sé ekki hægt að hafa bundna samninga til vors 1976. Með ályktuninni virðist Alþýðusambandið vera að draga úr þeirri skoðun, að eins konar striðs- yfirlýsing felist i uppsögn kjarasamninga. Vafa- laust munu þó einstök félög, ekki sizt hátekju- manna eins og trésmiða, láta draga sig af póli- tiskum ástæðum út i hörku og jafnvel vinnudeil- ur. Þessir hátekjumenn munu einnig að likindum reyna að fá verkamenn til að gerast dráttardýr fyrir sig i kjaramálum eins og stundum áður. —JK Þessar myndir eru teknar á Brent-olfusvæðinu 180 km út af Sognfirði, þar fannst nýlega gffuriegt olfu- magn. Til vinstri er sýnt, þegar verið er að mæla magnið i stærstu borholunni og tii vinstri sjást menn við borvinnu. Norðmenn óttast að olíuauðurinn leiði til vandrœða Flest Vestur-Evrópulönd lita þannig á oliuna úti fyrir ströndum sinum, að hún komi til með að veita þeim fótfestu I ólgusjó efna- hagslifsins. Þetta er þó ekki unnt að segja um eitt land, Noreg, þvl að þar lfta menn þannig á, að olian sé hættuvaldur úti I hafs- auga, púðurtunna, sem getur sprungið hvenær sem er og breytt allri þjóðlifsmynd Noregs. Þannig kemst Michael Binyon, fréttamaður The Times i London, að orði I nýlegri grein, sem hann ritar um viðbrögð Norömanna við þeim fréttum, að þeir kunni innan fárra ára að verða auðug oliu-út- flutningsþjóð. Hér verður stiklað á stóru I grein hans. Olla er um það bil að breyta Noregi þannig, að landsmenn hafa aldrei áöur kynnzt öðru eins. Þvl að landið kann að vera auð- ugra en nokkrum hefur til hugar komið. Meiri olia hefur fundizt I þeim hluta Norðursjávar, sem til- heyrir Noregi, en efnahagslif landsins getur tekið á móti. Meira ollumagn hefur nú verið nýtt heldur en rlkisstjórnin telur skyn- samlegt. Sérfróðir menn telja, að undan ströndum Noregs kunni að finnast meira olíumagn en I öllum Persaflóa. Esso hefur nýlega fundiö svo mikið magn af jarö- gasi, að það þykir sanna, að hvergi I heiminum sé meira gas að finna en á norska Frigg-svæð- inu. Ríkisstjórnin óttast þá efnahagslegu ólgu, sem koma mun i kjölfar olluauðsins. Hún er ekkert fyrir þann aukna þrýsting, sem vinaþjóðir og bandamenn Noregs hafa sett á landið til að fá þaöan oliu. Hún óttast einnig hernaðarlegar afleiðingar ollu- vinnslunnar einkum með tilliti til nágrennis við Sovétrlkin. Rlkis- stjórnin leggur sig þvi fram um að halda olluvinnslunni I skef jum. Nú er bannað að bora fyrir norðan 62.gráðu, sem er á móts við Bergen. Reglur hafa veriö settar um hámark þess, sem vinna má. En úr öllum áttum koma óskir um, að vinnslumagnið sé aukiö. Noregur er mikilvægt aðildarland Atlantshafsbandalagsins og menn llta aldrei fram hjá hern- aðarlegu mikilvægi landsins á norður-jaðri bandalagssvæöisins. Raunar má segja, að Vesturlönd I heild llti einnig til Noregs sem bjargvættar gegn hótunum Arabarlkjanna. Norðurlöndin hvetja Norðmenn til þess að hefta ekki oliufram- leiðsluna um of. Svlar, sem hafa fylgzt með þvl, hvernig vegur Norðmanna hefur aukizt á undan- förnum árum, hafa oftar en einu sinni minnt stjórnmálamenn I Osló á það, að norræn samvinna sé meira en samræming á utan- rlkis- og menningarmálastefnu. Siðast en ekki slzt verður norska ríkisstjórnin að taka tillit til almenningsálitsins. Enda þótt llfskjör Norömanna séu góð, vilja þeir þó gjarnan fé til frekari mmmm umsjón BB framkvæmda. Má þar nefna betri og fullkomnari vegi, lengingu járnbrautarlínunnar norður I nyrztu héruð landsins og umfram allt mundi almenningur fagna þvl, ef þungir skattar yrðu lækk- aðir. Hvers vegna I ósköpunum fer rlkisstjórnin svona gætilega? Meginótti stjórnvalda felst I þvl að þau telja, að olían kunni að laöa allt til sln. Frá lokum siðari heimsstyrjaldarinnar hefur rlkis- stjórnin fylgt byggðastefnu, sem miðar að þvl, að öll héruð lands- ins séu I byggð allt norður að Barentshafi. Nyrztu héruðin eru svo vlðáttumikil, að þau eru svip- uð aö stærö og Danmörk, Holland og Belgia væru orðin aö einu landi. í þessum héruðum býr um hálf milljón manna. Hver sá, sem íer um þessi héruð, verður undr- andi yfir þvl, hve allt virðist standa þar með miklum blóma. Flugsamgöngur eru mjög góðar við stærstu byggðirnar. í „höfuð- borg” norðursins, Tromsö, hefur verið komið á fót vlsi að háskóla, þar er stórt sjúkrahús og grósku- mikill iðnaður. Olian hefur þegar byrjað að laða fólk suður á bóginn. Innan fárra ára gæti öll byggðastefnan hrunið til grunna. Þvi að það mundi ekki duga til að halda bændum og sjómönnum á norður- hjaranum, þótt stjórnvöld greiddu þeim háa búsetustyrki. Þeir mundu falla fyrir þægilegra llfi sunnar og nær ollulindunum. Olluauður mundi hafa I för með sér verðbólgu, allir eru sammála um það. Rikisstjórnin birti nýlega áætlanir, sem sýna, að miðað við núverandi olluframleiðslu mundu Norðmenn hafa sex milljarða norskra króna til að eyða innan- lands 1980, aukalega og þeir yrðu að eyöa niu milljörðum n.kr. er- lendis. Vandinn er einfaldlega i þvl fólginn, hvað gera eigi við alla þessa peninga. Það gæti verið freistandi að verja þeim til að treysta varnirnar gegn yfirburð- um Rússa með þvl að kaupa öll fullkomnustu og nýjustu tæki. En dæmin frá Persaflóa sýna, að skyndilegar endurbætur á vörn- um leiða ekki endilega til meira öryggis heldur meiri óvissu vegna meiri viðbúnaðar hjá gagnaöilanum. Auðvitað má segja, að Norð- menn gætu leyst vinnuaflsskort sinn, sem yrði mikill, ef olluauðn- um yrði dælt inn I atvinnulifið, með þvl að flytja inn erlent vinnu- afl. Þetta mál hefur verið mikið rætt I Noregi og hallast flestir gegn innflutningi vinnuafls. Á bak við allar umræðurnar um oliuauöinn má greina rika norska þjóðernishyggju og jafnvel ein- angrunarhyggju. Almenningur hefur byrjað að tengja saman annars vegar úrslit þjóðarat- kvæðagreiðslunnar um aðildina að EBE og einstæða stöðu Noregs i Vestur-Évrópu, þar sem allir aðrir berjast svo aö segja I bökk- um. Sú skoðun virðist byrjuð að ryðja sér til rúms, að Noregur sé ekki eins háður öðrum Vestur-Evrópurlkjum og áður var talið, landið geti vel staðið á eigin fótum. Verkamannaflokk- urinn, sem fer með stjórn landsins og þar sem harðar deilur urðu um aðildina aö EBE, lltur alvarleg- um augum á það, ef Norðmenn vilja fjarlægjast Vestur-Evrópu. Raunar eru ýmsir þeirrar skoð- unar I Noregi, að viðleitni Norð- manna til að takmarka ollu- vinnsluna beri nokkurn keim af þvi, að þeir vilji haldi henni sem mest fyrir sig sjálfa. Fáir trúa þvi, að ríkisstjórninni takist að takmarka oliuframleiðsluna til langframa.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.