Vísir - 12.10.1974, Page 8

Vísir - 12.10.1974, Page 8
8 Vlsir. Laugardagur 12. októbcr 1974 MEÐ MÍNUM EYRUM ORN PETERSEN LENNON AFTUR Á JÖRÐINNI John Lennon: „WALLS AND BRIDGES” Eftir að hafa að- stoðað vin sinn Harry Nilsson dyggilega við gerð albúms hans „Pussycats” er John Lennon kominn aftur og nú einn á ferð (og þó) Það góða við þessa plötu er það, að Lennon virðist loksins vera hættur að reyna að troða inn á fólk tónlist, sem enginn nema hann botnar i (má ég vitna i Ono og alla vitleysuna i kringum hana). Nei, John Lennon er kominn niður aftur, og tónlist sú, er hann býður okkur upp á i þessu albúmi, er sosum ekkert galin, þó að textarnir séu allflestir hálf dapurlegir og lýsi öllu helzt ein- mannakennd. Já, einmanna- kennd, lesiði textana, „Got to get down my knee” „I’ m scared, so scared, every day of my life, I just manage to survive, just wanna stay alive” I’ m tired, I’ m tired, I’ m tired, of being alone, no place to call my ov/n. íike a rolling’ stone” „Noboby loves you, when your’e down and out nobody loves you, when your’ e old and grey”. (Þetta voru frasar úr fjórum textum). — Jæja, en litum á ljósu punktana. Tónlistin er þrælgóð, enda ætti Lennon að kunna fagið. Hann hefur fengið marga fræga tónlistarmenn til liðs við sig, en auk þess notar hann allmikið strengi i bakhljóm, sem koma mjög vel út, þó einkum i laginu „ 9 DREAM” Meðal þeirra, er að- stoða snillinginn á þessu al- búmi, eru Elton John, Klaus Voorman, Nicky Hopkins, Jesse Ed Davis og Jim Keltner, og þarf vart aö spyrja um frammi stöðu þeirra. Sérstaklega ber að benda á framlag _ Elton John' s á þessu albúmi, þvi hann syngur (og spilar á pianó) með Lennon i tveimur lögum þess, og virðast raddir þeirra félaga hljóma nokkuð vel saman. Aö lokum þetta. Ég hef ekki verið mikill aðdáandi Lennons siðan hann gaf út „Image” albúm sitt, (sem var þrælgutt að minum dómi), en „Walls and Bridges” slær jafnvel það út og nú get ég hlustaö á Lennon á ný (en gaman!) Beztu lög: „9 Drcam” „Whatever get ’s you trough the night” „Going down on love”. Hér sést John Lennon vinna aðplötu sinni ásamt Elton John. Breyttir - stórgóðir hana hérna um árið, var eins og allur kraftur dytti snögglega úr henni. Siðan hefur grúppan gefið út þrjú albúm, en ekkert þeirra þótt mjög merkilegt, og reyndar furðuðu margir sig á þvi, að hún leystist ekki upp. En þeir gáfust ekki upp, bættu viö nýjum hljóöfæraleikurum, sið- ast einum Svia, gitarleikaran- um George Wadenius. Nú hafa þeir svo gefið út albúmið „Mirr- or Image”, og er skemmst frá þvl að segja, þeir eru breyttir og stórgóðir. Tónlist þeirra nú er öllu liflegri. og taktfastari en fyrr, og má nærri likja henni við „soul-músik”. Einnig hefur söng-stillinn breytzt, hann er mýkri en áöur, en sönginn annast Jerry LaCroix að mestu. Einnig vekur það athygli mina, hve mikið Sviinn Wadenius á I BLODD SWEAT & TEARS: „MIRROR IMAGE” Eftir að aðalsöngvari grúpp- unnar, T.D.C. Thomas, yfirgaf þessari plötu. Þrjú lög plötunn- ar eru eftir hann, og hvarvetna skln góður gitarleikur hans i gegn, en þar með er ég ekki að segja, að Wadenius hafi haft svona mikil áhrif á tónlist hljómsveitarinnar heldur stendur hann bara uppi sem sterkur einstaklingur innan hennar. Blood Sweat & Tears hefur tekið miklum breytingum siðan að A1 Cooper stofnaði hana árið ’68, og I raun og veru aöeins þrir upprunalegir meðlimir hennar ennþá meö en þeir eru Bobby Colomby, Jerry LaCroix, og Jerry Fischer, engu að slður er þetta albúm þeirra hið bezta frá upphafi. Beztu lög: „Love looks good on you” „Tell me that I’m wrong” „Look up to the sky” THE NEW MOOT" TÍU LITLIR HLJÓM- SVEITARSTRAKAR... Eins og flestum er kunnugt hefur RICK WAKEMAN yfir- gefið YES, en nú er kominn nýr maður i hans stað. Sá heitir PATRICK MORAZ, Sviss- lendingur að uppruna, og fyrrum meðlimur brezku hljómsveitarinnar REFUGEE. Þá má svo einnig geta þess, aö öðrum meðlimum REFUGEE varð svo mikið um brottför Moraz úr hópnum, að þeir ákváðu að hætta. ARIEL BENDER yfirgaf einnig MOOT THE HOOPLE fyrir skömmu (bölvað flakk er þetta á þessum tónlistar- mönnum), og nú hefur nýr gitarleikari veriðfenginn i hans stað. Sá er enginn annar en fyrrv. aöstoðarmaöur DAVID BOWIE, MICK RONSON. Ron- son var reyndar búinn aö segja bless við BOWIE fyrr, og gefið út sina fyrstu sóló plötu áöur en að hann ákvað að taka tilboði MOOT THE HOOPLE. Næsta sóló plata JACK BRUCE á að heita „OUT OF THE STORM”, og næsta „single” plata CLAPTON’ S hefur aö geyma lagið „WILLY AND THE HAND JIVE”. KING CRIMSON er búinn aö vera, ROBERT FRIPP ákvaö nýlega að hætta þessu veseni, og þá leystist grúppan vitanlega upp. JOHN WETTON, bassaleikarinn, er sagöur vera aö ganga yfir i ROXY MUSIC, (en það er kannski bara ein af þessum kjaftasögum)? Ekki meir i dag, kannski meira i næstu viku.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.