Vísir - 18.11.1974, Page 1

Vísir - 18.11.1974, Page 1
64. arg. — Mánudagur 18.nóvember 1974 — 23Ö.tbl. Gáskafullur leikur endaði á Landakoti Gáskafullur leikur tveggja pilta, sem voru að vinna við uppskipun við Reykjavíkurhöfn sl. laugardag, endaði með þvi, að annar þeirra var fluttur á Landakot. Kalkpoki, sem félagi hans hafði kastað að honunt, rifnaði og kalk fór i augu piltsins. Nafn hans er úlfar Guðmundsson og er hann 16 ára gamall. Er hann nú til meðferðar á Landakoti og var liðan hans i morgun fremur slæm. Sér hann ekkert með vinstra auga, en hægra augað skaddaðist ekki. —ÞJM Erfitt að spila fyrir landann — sjá tónlistar- gagnrýni á bls. 7 Flaug suður með bíl- inn sinn — bls. 3 PETER GILMORE / ONEDIN — sjá bls. 16 KRATAR BÖRÐUST UM FORYSTU- CÆTIk| —BAKSÍÐA Borge, — óborganlegur! dansk/ameriska haðfuglsins Victors Borge núna um helgina, hann fór á kostum, og engu var likara en þak Háskólabiós ætlaöi að rifna af I fögnuöinum. „Alveg óborganlegur”, sagði einn samkomugesta, sem Visir hitti að máii I morgun. Myndina tók Bj. Bj. á æfingu fyrir tónleikana. Lögreglubifreið varð að snarhemla á gatnamótum Stórholts og Einholts aðfaranótt sunnudags, er fólksbíll beygði allt í einu í veg fyrir hana. Fólksbíllinn vará mikilli ferð, og mynduðust löng svört för á malbikið eftir hjól hans. Rétt i þann mund, sem lögregluþjón- arnir horfðu á eftir bifreiðinni niður Stór- holtið, kom annar bfII í kjölfarið, á ekki minni ferð. Hann svínaði einnig fyrir framan nefið á lögreglubílnum og hélt í humátt á eftir þeim fyrri. Lögreglan stöðvaði öku- þórana að sjálfsögðu. Við yfirheyrslur kváðust þeir hafa verið í kappakstri og hafa ekið með þessu lagi nokkra stund. Ástæðan fyrir kappakstrinum var sú, að bíllinn fyrir aftan vildi fram úr hinum, en ökumaður þess bíls var ekki á þeim buxunum að hleypa einum eða neinum fram úr sér. „Skrens"för- in á gatnamótunum mæld- ust 28 metrar eftir annan bíllinn, og sagði ökumaður hafa verið á 70 til 80 km hraða i beygjunni. ökumennirnir voru sviptir ökuskírteinum til bráðabirgða. —ÓH „Vondu ríkin" og þau „góðu" í Sameinuðu þjóðunum — sjá leiðara á bls. 6 Svínuðu á lögreglubíl í kappakstrinum — öku„kapparnir"sviptir ökuskírteini eftir nœturakstur um borgina Það sá vist enginn eftir aðgangseyrinum að tónleikum Enn um bensín- stöðvarmál Breiðhyltinga: VILJA EKKI BRÁÐA- BIRGÐABYGGINGUNA! Ekki er bensinstöðvarmáiinu i efra Breiðholti lokið enn, þó að borgarverkfræðingur hafi skýrt ibúum hverfisins frá þvi, að út- gefin leyfi til byggingafram- kvæmda Skeljungs séu óafturkalianleg. Framfarafélag Breiðhoits III samþykkti til- lögur til breytinga þar að lút- andi á fundi sl. laugardag. „Tillaga okkar er sú,” segir i ályktun fundarins, „að tveimur innkeyrslum og útkeyrslum verði komið við bensinstöðina, annarri við Norðurfell, en hinni af afrennslisbraut, sem leggja mætti fyrir umferð, sem leið ætti vestur Breiðholtsbraut og norður Höfðabakka. Jafnframt að bensinstöðin yrði tviskipt frá noröri til suðurs, með eyjum, til þess að hindra gegnumgang- andi umferð frá Norðurfelli að Höfðabakka og öfugt.” Þá leggur fundurinn einnig til, að hætt verði við fyrirhugaða bráðabirgðabyggingu fyrir ben- sinafgreiðsluá umræddum stað. En þess i stað verði þegar ’haf'izt handa við byggingu Varanlegra mannvirkja samkvæmt fyrir- liggjandi teikningu. I lok ályktunarinnar segir: „Framfarafélag Breiðholts telur, að bensinstöð Skeljungs samkvæmt teikningum, með 18 þvottastæðum, sé framfara- og hagsmunamál til handa ibúum hverfisins — sem þegar eru fleiri en allir ibúar Akureyrar”. Þegar Visir hafði tal af for- svarsmönnum Skeljungs i morgun, hafði ”kki verið tekin afstaða til ofangreindra óska ibúanna. „En við höfum alltaf tekið mjög jákvætt i það, sem þetta fólk hefur haft til málanna að leggja, og gerum ráð fyrir, að svo verði einnig nú,” sögðu þeir þar. —ÞJM I

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.