Vísir - 18.11.1974, Síða 3

Vísir - 18.11.1974, Síða 3
Vísir. Mánudagur 18. nóvember 1974. Óvenjulegt hraðamet Klukkutíma með bíl frá Þlngeyri tll Rvíkur! „Þetta er harðamet. Ég hef aldrei fyrr vitað bil fara frá Þingeyri til Reykjavikur á tæpum klukkutima”. Þetta sagði Magnús Jónasson, eigandi fyrsta bilsins, sem fluttur hefur verið með flugvél i innanlands- flugi. Sá atburður gerðist á laugardaginn. Blllinn var fluttur i einum nýjasta faxa Flugfélags Islands. Sú flugvél hefur óvenju stórar farangursdyr. „Astæðan fyrir þessu er sú, að ég þurfti nauðsynlega að komast til Reykjavikur með bilinn til smáviðgerðar. Það er allt ófært fyrir vestan, og ég hefði þurft að biða i viku eftir skipsferð. Þess vegna datt mér þetta i hug, þegar ég var úti á flugvelli um daginn og skoðaði einmitt þessa vél Flugfélagsins. Ég kannaði málið, og það kom i ljós, að billinn kæmist um borð. Nú, ég var þá ekkert að hika og pantaði pláss fyrir mig og bflinn”, sagði Magnús, þegar Visir ræddi við hann úti á Reykjavikurflugvelli eftir lendinguna. „Dýrt? Kannski og kannski ekki. Flutningsgjaldið er 6.500 krónur, en ýmiss konar af- greiðslugjöld gera heildarupp- hæöina um 9 þúsund krónur. Ætli ég hefði ekki farið með svona 3 þúsund krónur i bensin, ef ég hefði ekið leiðina suður, auk slits á bilnum. En þetta er auðvitað miklu fljótlegra og þægilegra”, hélt Magnús áfram. Magnús er 21 árs gamall. Billinn hans er af gerðinni Austin Mini, keyptur nýr fyrir mánuði. Að lokinni viðgerðinni á bilnum ætlar Magnús að aka honum norður til Akureyrar, þar sem hann fer að vinna hjá Vegagerðinni. „Þetta er framtiðin”, sagði Magnús um þessa óvenjulegu „bilferð”, um leið og hann steig upp i bilinn við hlið Flugfélagsfaxans og ók af stað. —ÓH mt 4 1§f l AF Bmr ". iliTí »«<’ —' ^jiPÍp^gÍ r TH - V'*- HB zsmúgm % H| mmV 1|1PÍI '144; 1 Blllinn, sem setti „hraðametið”, kominn á Reykjavikurflugvöli eftir 50 minútna „akstur” frá Þingeyri til Reykjavikur. Eigandi bilsins, Magnús Jónasson, stendur I dyrum hans. Ljósm. Visis: BG. ÖLVAÐIR VIÐ STÝRI NÁLGAST 1100 í REYKJAVÍK Stútur var iðinn við stýrið um helgina. 24 ökumenn voru teknir i Reykjavik á iaugardag og sunnudag, grunaðir um ölvun við akstur. 1 framhaldi af þvi má vitna til orða lögregluvarðstjóra, sem Visir ræddi við I morgun. Hann sagði, að það væri óhugnanlegt aö vita til þess, að þeir, sem næðust, væru ekki nema hluti af öllum þeim fjölda, sem ekur meira eöa minna ölvaður um hverja helgi. Tala þeirra, sem teknir eru grunaðir um ölvun við akstur I Reykjavik, nálgast nú óðum töluna ellefu hundruö. —ÓH Tilbúnu íþróttamann- virkjunum var hafnað Byggja Vest- manna- eyingar sjálfir? Ekki liggur enn ljóst fyrir, hve- nær Vestmannaeyingar mega vænta nýs iþróttahúss og sund- hallarhúss. Gerðar höfðu verið teikningar að báðum þessum mannvirkjum fyrir gosið og þau siðan boðin út, eftir að hamförunum lauk. Það, sem menn höfðu einkum i huga, voru tilbúin hús, og bárust 3 þannig tilboð. Fyrir skömmu var þeim þó öllum hafnað, enda var veröiö, sem upp var gefið, 300-340 milljónir, talið of hátt. Augu manna beindust i upphafi að tilbúnum húsum, þar sem mik- ið þótti liggja á að koma upp Iþróttahúsi og sundhöll sem fyrst. Eins ýtti hér undir vinnuafls- skortur. Nú eru menn aftur að kanna hug sinn um það, hvort borgi sig að flytja inn tilbúin iþróttamann- virki frekar en að byggja á staðn- um. Þessa dagana er unnið að upplýsingasöfnun varöandi þetta. —JB FYRSTA HÉRLíNDA VERZLUN- IN MEÐ SNYRTIAÐSTÖÐU FYRIR KUNNANN Fyrsta Islenzka verzlunin, sem hefur upp á snvrtiaöstöðu að bjóða fyrir viðskiptavini, er Rammageröin i Hafnarstræti. Verzlunin hefur flutzt yfir I Hafnarstræti 19 og stækkað um helming. Nokkurn tima hefur tekið að flytja verzlunina, en hún var formlega opnuð á laugar- daginn. Haukur Gunnarsson verzlunar- stjóri sagði, að eigendum verzlunarinnar þætti sjálfsagt að geta boðið viðskiptavinum sinum upp á snyrtiaðstöðu. Slikt væri viða að finna erlendis, en hefði ekki tiökazt hingað til I verzlun- um hér. Eins og nafn verzlunarinnar bendir til, var hún upprunalega stofnuð sem innrömmunarstofa. Við spurðum Hauk Gunnarsson, hvort sú starfsemi væri enn við lýöi hjá verzluninni. Hann sagði að svo væri, þó hún hefði nú all- miklu minni umsvif en sjálf verzlunin. „Við viljum hins vegar alls ekki hætta með innrömm- unina. Það væri kaldhæðni. Þá stæöum við varla lengur undir nafni”, sagði Haukur. Rammagerðin hefur löngum verið talin ein helzta minjagripa- búð útlendinga á leið hér um. „Ég hef hins vegar orðið var við þá ánægjulegu þróun undan- farið, að eftirtekt Islendinga sjálfra á vörum þeim, sem viö seljum, hefur farið vaxandi”, sagði Haukur verzlunarstjóri, og benti hann sérstaklega á skinn- kápur þær og frakka, sem verzlunin framleiðir sjálf. —ÓH Haukur Gunnarsson verzlunai ’ stjóri Rammagerðarinnar i hinum nýju húsakynnum verzlunarinnar i Hafnarstræti 19 Börnin sýna eina vinsælustu vöru sem útlendingar kaupa lonaDevsur. Liósm.: BG. ALLTAF EITTHVAÐ NÝTT! ® ^ST‘un BRAUTARHOLTI 2 SIMI 1V940

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.