Vísir - 18.11.1974, Qupperneq 4
4
Vlsir. Mánudagur 18. nóvember 1974.
BILAVARA-
HLUTIR
ODYRT - ODYRT
NOTAÐIR VARAHLUTIR í.
FLESTAR GERÐIR ELDRI BILÁ
BÍLAPARTASALAN
Höfðatúni 10, sími 11397.
Opiö frá kl. 9-7 alla virka daga og 9-5
laugardaga.
ro Smurbrauðstofan
\Á
1
BJDRNINN
Njólsgötu 49 — Simi 15105
I VELJUM iSLENZKT
<M>
iSLENZKAN IDNAD
Þakventlar
Kjöljárn
Kantjárn
ÞAKRENNUR
J. B. PETURSSON SF.
ÆGISGÖTU 4-7 ^ 13125, 13126
Hve
lengi
bíða eftir
fréttunum?
Viltu fá þær heim til þín samdægurs? Eða viltu bíða til
næsta morguns? VÍSIR flytur fréttir dagsins í dag!
Fyrstui- meó
fréttirnar
visrn
REUTER
AP/NTB
ÚTLÖNDÉ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN
Ford í
Tokyo
Ford Bandarikjaforseti og Henry Kissinger
utanrikisráðherra sjást hér á myndinni fyrir ofan
boðnir velkomnir til Japan við komu þeirra á
Hanadaflugvöll við Tokyo i morgun. Ford forseti
mun dvelja fjóra daga i Japan, áður en hann
heldur yfir til rússnesku hafnarborgarinnar,
Vladivostok, þar sem hann mun eiga fund með
Leonid Brezhnev, leiðtoga rússneska
kommúnistaf lokksins.
Eiturgas lagði 14
áhafnarmeðlimi í
rúmið
Brezk yfirvöld hafa
fyrirskipað rannsókn á
tildrögum þess, að
banvænt gas siaðist inn i
lestar flutningaskips,
sem lá við akkeri við
Falmouth i Englandi. 14
af áhöfninni urðu fyrir
eitrun og liggja 4 þeirra
milli heims og helju.
Tveir geymar i skipinu inni-
héldu arsine, sem er gastegund
með miklu arsenikinnihaldi. Kom
leki að þeim. — Gastegund þessi
var meðal eiturgastegunda, sem
reyndar höfðu verið i siöari
heimsstyrjöldinni.
Skipiö var á leið með gasið til
Skotlands, þar sem það átti að
notast við framleiðslu straum-
breyta.
Rannsókn þess opinbera beinist
að því, hvernig lekinn kom til, eöa
hvernig stóö á því, að þessi
banvæni farmur var ekki á farm-
skrá sem hættuefni.
Varð uppvist um gaslekann,
þegar skipstjórinn sendi fjóra
menn sina I land veika. Læknar
áttuðu sig ekki strax á þvi, hvað
að mönnunum gengi.
Uppgötvaðist þaö ekki fyrr en tiu
höfðu veikzt til viöbótar.
Herinn var lótinn
hreinso göturnar
Jacques Chirac, for-
sætisráðherra Frakk-
lands, bjó sig undir að
ávarpa þjóð sina i sjón-
varpi i dag, en það sýn-
ist stefna til frekari
árekstra milli frönsku
stjórnarinnar og laun-
þegasamtakanna vegna
vaxandi ófriðar á vinnu-
markaðnum.
Við því er búizt, að Chirac muni
itreka, að stjórnin hyggist ekki
gefa eftir fyrir stéttarfélögunum
og láta af verðbólguaðgerðum
sinum með þvi að ganga að
launakröfum verkalýðssamtak-
anna.
Organgurinn hafði hrannazt upp á gangstéttum Parlsarborgar vegna
verkfalls öskukalla, þegar kveðja varð herinn til að grynna á rusla-
hrúgunum.
Lögreglan haföi verið kvödd til,
svo að regla kæmist á störf pósts-
ins eftir verkföll póst-
starfsmanna. Jafnframt voru
hermenn látnir hreinsa götur
Parisar, þar sem ruslið hafði
hrannazt upp.
Allsherjarverkfall hefur verið
boðaö á morgun, sem biiizt er viö
að muni lama allt athafnalíf I
Frakklandi, allt frá starfsemi
flugvalla til reksturs dýragaröa.