Vísir - 18.11.1974, Page 5

Vísir - 18.11.1974, Page 5
Vlsir. Mánudagur 18. nóvember 1974. I LÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND I MORGUN Umsjón Guðmundur Pétursson Yfírburðasigur hjá Karamanlis Konstatin Karaman- lis vann yfirburðasigur i þingkosningunum i Grikklandi i gær. Flokkur hans, ,,nýi demókrataflokkurinn” fékk hreinan meiri- hluta atkvæða. Fylgi hans var samkvæmt tölum fyrir hádegið 54,6%, en þá var enn ótalið viða. Aöalkeppinauturinn, George Mavros, var langt á eftir. Flokkur hans, miöflokkasam- bandiö, haföi aöeins fengiö 20,6%. Sósialistaflokkur Andreas Papandreous haföi fengiö 13,4% og var i þriöja sæti. Úrslitin sýna glöggt traust Grikkja á Karamanlis, 67 ára, leiötoga hægri manna um ára- tugaskeiö. Karamanlis var kall- aður heim fyrir fjórum Ýmsar fylkingar kommúnista bræddu sig saman I einn flokk fyrir kosningarnar, en biöu ósigur. Hér er Elias Eliou foringi flokksins aö flytja ræöu. Viö hlið hans (til hægri) er tónskáldiö Mikis Theodorakis, sem einnig er kommúnisti. — hreinn meirihluti at- kvœða — kommúnistar minna en 10 prósent mánuðum. Hann hafði að eigin vild farið i útlegð i tið her- foringjastjórnarinnar. Hann tók i sumar við stjórn i Grikklandi, sem sat fram aö kosningunum. Samkvæmt tölum i morgun haföi „sameinaöi vinstri flokk- urinn”, sem er i meiginatriðum samband kommúnistaflokka, aöeins fengið 8,8% atkvæða. „Þjóöarlýöræöissambandiö” haföi 1,1% og óháöir frambjóö- endur 1,1% prósent. Karamanlis hefur heitið við- tækum umbótum. Ennfremur veröur 8. desember haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um framtið konungdæmisins. Kýpurdeilan erfiðust Erfiöasta vandamálið i utan- rikismálum er Kýpurdeilan. Minnstu munaöi I júli, að Tyrk- land og Grikkland berðust út af Kýpur. Karamanlis hefur sagt aö Grikkland muni samþykkja sérhvert samkomulag, sem þjóðarbrotin á eynni geta komið sér saman um. Hann leggur áherzlu á, aö slikt samkomulag veröi aö skapast með samn- ingum en ekki verða til vegna þvingana, er Tyrkjaher á eynni veldur. A heimavigstöðvum veröur hann aö glima við verðbólguna, sem hefur valdið ókyrrö á vinnumarkaöi. Vinstri sinnaöir stúdentar kunna að valda honum vanda. Kommúnistar kunna aö grafa undan stjórninni meöal verkamanna og stúdenta. Þeir töpuðu þó þessum kosn- ingum, meö þvi að þeir viröast ekki ná 10%. Þá veröur Karamanlis að láta dómstóla dæma forsprakka her- foringjastjórnarinnar. Mavros, leiðtogi miðflokka- sambandsins, sagði i nótt, að „kjósendur hefðu falliö fyrir slagorðum um, að ekki væri um annaö að ræða en Karamanlis eða herforingjastjórn”. Papandreous sagöi, aö úr- slitin sýndu, að „verulegur fjöldi Grikkja vildi sósialisma”. Námumenn vildu ekki auka afköst sín móti áætlunum kolaráðs rikisins. Áætlunin fól i sér, að allt að 12,50 punda hærri tekjur á viku fyrir námumanninn, en um leið meiri vinnu. — Samtök kola- námumanna höfðu fordæmt hana. Höfðu samtökin það helzt á móti áætluninni, að hún gat leitt til innbyrðis samkeppni milli námumanna og grafið undan samstöðu innan stéttarfélagsins. Auk þess gæti kappið i námu- mönnum, sem vildu auka afköst sin, komið þeim til að gleyma öryggisráðstöfunum og stofna sér og félögum sinum i hættu. 225 þúsund námumenn Breta hafa hafnað tillög- um um aukna fram- leiðni, sem tryggja mundi vinnslu 120 milljón smálesta úr námunum fyrir n.k. marz-mánuð. í kosningum, sem fram fóru fyrir helgi hjá námumönnum, greiddu 38,5% atkvæði með til- lögunni, en 61,5% voru á Libanonfjölskylda virðir fyrir sér rústir heimilis sins, sem oröið hafði fyrir sprengikúlu eftir árás israelsmanna á Nabatiyeh-þorp I S-LIbanon. — israelsmenn gerðu aðra árás á annaö þorp I S-LIbanon i nótt. Fallbyssubátar í nœturárás Ofriðarblikur á lofti í Austuriöndum nœr Skriðdrekar, stór- skotalið og sprengju- vörpur Libanonmanna héldu uppi skothrið á tvo israelska fallbyssubáta, sem ráðizt höfðu á Rashidiyeh-flótta- mannabúðirnar i S- Libanon seint i gær- kvöldi Eftir stundar- fjórðungs bardaga höfðu fallbyssubátarnir sig á brott, og segjast Liban- onmenn ekki hafa beðið manntjón, en af hinum er fátt að segja. óljósar fréttir herma, að fall- byssubátarnir hafi snúið aftur og látið fallbyssuskotum rigna yfir búðirnar — Israelsmenn segja, að frá Rashidiéhbúðunum hafi fjöldi skæruliðaleiðangra Araba lagt upp. Þessi átök eiga sér stað á tim- um, sem andrúmsloftiö er magn- að mikilli spennu. Minnir ástand- iö um margt á siðustu daga fyrir sex daga striðið. Eftir ræðu Arafats á allsherjarþinginu, þar sem hann lýsti þvi yfir, að Gyðingar hefðu engan rétt til Palestinurikis, eru þeir fáir, sem búa við þennan hluta Miðjarðar- hafsins, er trúa þvi, að komizt verði hjá striði. Rabin forsætisráðherra Israels hefur I ræðum itrekað, að ísrael vilji umfram allt ná friði við Arabana nágranna sina, en neitar að eiga nokkrar viðræður viö „hryðjuvekasamtök”, eins og Gyðingar nefna þjóðfrelsis- hreyfingu Palestinuaraba, sem Arafat er talsmaður fyrir. — Rabin varaði Arabarikin við þvi, að bæði væri Israel reiðubúið til að láta hart mæta hörðu, ef til striös kæmi, og að þeir væru hernaðarlega öflugri núna en fyrir Yom Kippur-striðið. A Golan-hæðum, sem hafa verið aðalbaráttusvæði ísraels- manna og Sýrlendinga, hefur ekki orðið vart neinna óvenjulegra aðgerða. Eru flestar þeirrar skoðunar að þar muni örugglega ekki koma til átaka fyrr en i fyrsta lagi eftir 30. nóvember. Þá rennur út sá timi, sem gæzlulið Sameinuðu þjóðanna skilur að fylkingar Isra- elsmanna og Sýrlendinga. Hafa Sýrlendingar ekki farið fram á, aö gæzlutiminn verði fram- lengdur.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.