Vísir - 18.11.1974, Side 20

Vísir - 18.11.1974, Side 20
VISIR Mánudagur 18. nóvember 1974. Snöggur bílþjófur t nokkrar mlnútur brá maður nokkur sér inn I verzlun úti á Granda i morgun. Hann lagði nýja Mazda-bllnum sinum fyrir utan, með lyklana I kveikju- lásnum. Þegar maðurinn kom aftur út úr verzluninni eftir þessar örfáu minútur, var billinn horfinn. Þjófnaðurinn var að sjálfsögðu tilkynntur samstundis. Þegar blaðið frétti siðast af, áður en það fór I prentun, var enn leitað að bilnum. —ÓH Taska með mikilvœgum gðgnum hvarf Svört skjalataska með mikil vægum pappirum og teikningum hvarf i afgreiöslusal Flugfélags tslands á Reykjavikurflugvelii I gærkvöldi. Maður sem var að koma frá Hornafirði var með þessa tösku. Hann lagði hana frá sér augna- blik, meðan hann hringdi á bil, en þegar hann sneri sér við, var taskan horfin. Þetta var um kl. 19.30. Þeir, sem kynnu að hafa orðið töskunnar varir, eru beðnir að hafa samband við rannsóknar- lögregluna I Reykjavik. —ÓH Dœlt úr slökkvitœki yfir bólstur- verkstœði Innbrotsþjófar tæmdu úr siökkvitæki yfir nýbólstruð húsgögn og efnisstranga á bólstrunarverkstæði um helgina. Þegar eigendur verkstæðisins komu til vinnu, hafði verið farið inn í húsið. Hvitt slökkviduft iá yfir öllu verkstæðinu likt og snjór. Bólstrunarverkstæði þetta er I Hafnarfirði. Það er i sama húsi og prentsmiðju. Einnig var brotizt inn I prentsmiðjuna, en litlu sem engu stolið og litil spjöll unnin. Tjónið á bólstrunarverkstæðinu er talsvert, þvi óvist er, hvort takist að hreinsa slökkviduftið úr efninu. —ÓH Hörkuspennandi kosningar ó flokksþingi Alþýðuflokks 'f Gylfí áfram sterkastur" Hörkuspennandi kosningar voru á flokksþingi Alþýðu- flokksins, sem lauk i nótt. Eggert G. Þorsteinsson, sem hafði verið ritari fiokksins, tapaði fyrir Kjartani Jóhannssyni verkfræðingi úr Hafnarfirði í baráttu um varaformanns- stöðuna. Atkvæði voru 83:48. Jón Þorsteinsson tapaði fyrir Birni Jóns- syni i baráttu um ritarasætið með svipuðu atkvæðahlut- falli. öllu var umturnað I æðstu stjórn flokksins. Benedikt Gröndal tók við formannsstöðu af Gylfa Þ. Gislasyni, sem baðst undan endurkosningu. Menn segja, að Gylfi muni þó áfram miklu ráða, „halda í spottana”. Hann er formaður þingflokks Alþýðuflokksins, og með sam- vinnu við Björn og Benedikt, sem verið hefur góð, er talið, að Gylfi muni enn manna æðstur i flokknum. Björn Jónsson fékk ritara- 1 þessari tösku eru horfnu munirnir úr Port Vale. Mest ber. á æfingatæki, svonefndu „Bullworker,” en ofan I skjóðunni eru út- varp, kikir, segulbandstæki og 30 segulbandshylki. — Gæzlan bjargaði einnig matvælum úr togaranum. Ljósm. Visis Bragi. SNORRI STURLUSON: Taldi sig á mörkum friðaða hólfsins — 3,5 — 4 mílur fyrir innan, segja varðskipsmenn „Það er eins og oft kemur fyrir, að ekki ber saman mælingum togarans og varðskips- ins”, sagði Þorvarður K. Þorsteinssoir, sýslu- maður á ísafirði. „Skipstjórinn á Snorra Sfurlusyni telur sig hafa verið á mörkum friðaða svæðisins norður af Kögri, en samkvæmt mælingum varðskipsins var hann 3,5-4 milur innan mark- anna”. Reykjavikurtogarinn Snorri Sturluson, sem er einn nýju skuttogaranna frá Spáni, var tekinn að meintum ólöglegum veiðum I miðju friðaða hólfinu norður af Kögri um 40 milur út af landi, skömmu fyrir miðnætti á laugardag. Varðskip kom að honum, meðan hann var að taka inn vörpuna og gaf honum að þvi loknu fyrirmæli um að halda inn til Isafjarðar. Þangað komu skipin kl. rúm- lega niu I gærmorgun, og réttar- höld I máli skipstjórans hófust kl. tvösiðdegis I gær. Þeim var lokið klukkan ellefu I gærkvöldi, og kom þriggja manna dómur saman klukkan tiu I morgun til að kveða upp úrskurð I málinu. Sýslumaður er oddviti dómsins, en meðdómendur eru Simon Helgason og Guðmundur Guð- mundsson, báðir fyrrverandi skipstjórar. Snorri Sturluson hafði verið niu daga á veiðum, er hann var tekinn, og var aflinn sagður heldur rýr. Eftir að meta aflann um borð, „ef til þess kemur”, sagði sýslumaður —SH stöðuna eftir talsverð umbrot. Uppstillinganefnd mælti helzt með Karli Steinari Guðnasyni, kennara og verkalýðsfélagsfor- manni frá Keflavik. Framboð hans var dregið til baka, þegar Björn Jónsson varð I kjöri. Ritarastaðan gengur nú næst formannsstöðu eftir lagabreyt- ingu, sem flokksþingið gerði nú. Áður var varaformannsstaðan næstæðst, og gegndi Benedikt henni. Kjartan hafði áður verið gjaldkeri. Sú staða er ekki valdamikil. Nú var Kristin Guðmundsdóttir, húsmóðir Reykjavik, kjörin I hana, þar sem þingið vildi veita konu meiri áhrif. Karl Steinar var kjörinn vararitari og Eyjólfur Sigurðs- son prentsmiðjustjóri vara- gjaldkeri. Þessar stöður eru nýjar. Ymsir aðrir komu til greina i æðstu embætti, til dæmis Jón Armann Héðinsson og Björgvin Guðmundsson. Þá var á þinginu til siðustu stundar mikill vafi á þvi, hvernig menn skiptust I framboðinu. Lengi kom til greina, að Eggert byði sig fram til ritaraembættisins. Gylfi og Benedikt studdu Kjartan gegn Eggerti I kosningu um varafor- mann. „Gylfi er áfram sterkasti maður flokksins,” sagði einn flokksþingsmaður I morgun. Veigamiklar breytingar urðu ekki á stefnuskránni. —HH Horfnu munirnir voru í Árvakri „Týndu hlutirnir eru komnir til Reykjavíkur”, sagði Pétur Blöndal, umboðsmaður brezkra togara á Austfjöröum, „Pétur Sigurðsson, forstjóri Landhelgis- gæziunnar, hringdi til min á föstudaginn og lét ,mig vita, aö hiutirnir hefðu verið um borð i varðskipinu, sem bjargaði Port Vale”. Visir sagði frá þvi laugar- daginn 9. nóvember, að lausa- munir hefðu horfið úr ibúð skip- stjórans á Port Vale, þar sem skipið lá strandað við Lagar- fljótsósa. Pétur Blöndal, sagði, að hann hefði gengið frá mununum i ibúð skipstjórans og læst henni, og eftir það fór engir um borð aðrir en varðskipsmenn. „Það var vaktmaður i landi”, sagði Pétur. „Að visu var það aðeins á þeim timum, sem hægt var að komast frá landi I skipið. En starfsmenn Landhelgis- gæzlunnar segja, að ibúðin hafi verið ólæst. Allt um það var búið að brjóta hana upp, þegar ég kom um borð næst — húnarnir rifnir af og skráin af til hálfs”. Varningurinn, sem hvarf, var kikir útvarp, segulband og segul bandsspólur. „Það er vist ekki margt annað fémætt af lausa- munum um borð I svona skipi”, sagði Pétur. „En ég get ekki dæmt um, hvort það er algild regla gæzlunnar að fjarlæga slikt, þvi ég hef ekki fengið annað strand á minar fjörur”. „Það er regla Landhelgis- gæzlunnar að taka lausamuni af þessu tagi I sina vörzlu”, sagði Pétur Sigurðsson, forstjóri Land- helgisgæzlunnar. „Annars getur allt farið i vitleysu, þegar menn hlaupa svona frá einkamunum sinum. Við söfnum þeim saman og gerum skýrslu um þá. Þessir munir voru i Arvakri og þeim var komið hingað til min, þegar Arvakur kom I höfn á föstu- daginn. Nú biða þeir þess, að um- boðsmaðurinn sæki þá hingað”. —SH Vilja losna við bensínið Það virðist fara illa saman að halda uppi greiðasölu og bensin- og oliusölu á sama stað. Á nýaf- staðinni ferðamáiaráöstefnu Fjórðungssambands Norðlend- inga kom það fram, aö þeir sem reka greiðasölur vildu helzt losa sig við bensin- og oliusölur. Kostnaður við sölu á bensini og oliuvörum virðist vera meiri en álagning á þessar vörur leyfir. Þar við bætist, að ónæði er mikið af þessari starfsemi, fyrir utan óþrifnað. Það virðist vera algengt að fólk noti bensinsölustaði til þess að losa sig við úrgang og hreinsa öskubakkana. Þar að auki stafar ólykt af þessum varningi, sem fer ekki vel með sölu á matvælum. Kom fram sú hugmynd að betri þjónusta fengist með þvi að fækka bensin- og oliustöðvum meðfram þjóðleiðum og hafa heldur sérstöðvar fyrir héruöin, óháðar greiðasölu. IÞ/SH LANDSVIRKJUN FYRIR RÚSSANA FYRIR LANDS- VIRKJUN Þegar Landsvirkjun bauð Sigölduvirkjun út á sinum tima, var rússneska fyrirtækið Energomachexport annar þeirra aðila, sem valdir voru sem verk- takar að véla- og rafbúnaði i virkjunina. Með viðaukasamningi hefur Landsvirkjun nú tekið að sér niðursetningu vélabúnaðar i stöðvarhúsið, sem er hluti af verksamningi Rússa. Rússar vpríSfl hanniÞ áhvröir fvrir Landsvirkjun gagnvart Landsvirkjun, og Landsvirkjun sem eftirlitsaðili litur eftir þvi, að Rússarnir liti almennilega eftir Landsvirkjun sem verktaka. Landsvirkjun verður þannig ábyrg gagnvart Landsvirkjun fyrir þvi, að Landsvirkjun vinni almennilega það verk, sem Landsvirkjun tók að sér fyrir Rússana, sem vinna fyrir Landsvirkjun. —SH

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.