Vísir - 25.11.1974, Blaðsíða 3
Vlsir. Mánudagur 25. nóvember 1974.
3
hennar og miðbæjarstöðvar-
innar, þannig að séu linur
uppteknar við aðra stöðina,
tengist á millilinu yfir á hina og
þaðan til endastöðvar.
Þetta mun þó ekki hafa áhrif á
fjarlægð til Brúarlands, þvi
fyrst myndi þurfa að tengja
Brúarland við Grensásstöðina,
sem er um 12 km vegalengd, og
þaðan upp í Breiðholt. Og jafn-
vel þótt bein lina yrði tekin úr
Breiðholti í Brúarland, er
Breiðholt það vestarlega, að
vegalengdin yrði milli 10 og 15
km markanna.
Hafnarfjörður
fordæmi
Þar til fyrir röskum tiu árum
var Hafnarfjörður á þreföldu
slmagjaldi miðað við Reykja-
vík, og sambandið rofnaði eftir
fimm mlnútur. Matthlas A.
Mathiesen, núverandi fjár-
málaráðherra, tók þetta mál
upp I þinginu og þvi var breytt i
núverandi horf, mjög á móti
vilja Landssimans, sem bæði
hafði af þessu óhemju kostnað
og tekjumissi og óttaðist for-
dæmið.
Annars hefur aðaládeilan frá
landsbyggðinni á simann verið
fyrir það, að 2/3 hlutar þeirra,
sem hafa sjálfvirkan sima, geta
hringt sin i milli á heimataxta,
en 1/3 verður að borga verulega
miklu hærra fyrir öll simtöl
hingað i aðalþéttbýliskjarnann
þangað sem allar helztu
stofnanir eru.
Þessi þriðjungur, sem hefur
sjálfvirkan sima en getur ekki
hringt I þéttbýlissvæöið á
heimataxta.borgar um helming
af öllum þeim simagjöldum,
sem inn koma fyrir sjálfvirka
simann.” -SH.
— Landgrœðslusjóður
hefur ekki hug ó
uppgrœðslu á
hraunsvœði sínu
við ólverið
— Selja hraunið til
malarnóms og
nota ógóðann til
uppgrœðslu
annars staðar
gert sjóðnum kleift að styðja við
uppgræðslu á öðrum stöðum.”
//Kapeiluhraun
er nýnefni"
Að lokum fór Hákon nokkrum
orðum um nafn hraunsins og
sagði þá m.a.:
,,Um nafnið á þessu hrauni,
sem margir nefna Kapellu-
hraun, má taka það fram, að
þetta nýnefni á þvi hrauni,
sem kallað er Nýjahraun i Kjal-
nesingasögu og hefur haldiö þvi
nafni alla tið, enda mun hrauniö
runnið á 13. öld eða i byrjun
þeirrar 14. Nýnefnið er dregið
af skúta, þar sem ferðamenn
hafa haft eitthvert afdrep i
hrakviðrum, en þar hefur aldrei
kapella verið. Þetta hraun, sem
viða er 2-4 m á þykkt og laust i
sér, liggur ofan á flata hraun-
inu, sem liggur að austurrönd
Nýjahrauns og t.d. Sædýrasafn-
ið stendur á.”
— ÞJM.
Stolið úr bíl við bfó
Lögregluþjónar, sem voru i
eftirliti á laugardagskvöldið,
tóku eftir tveimur strákum, sem
voru eitthvað flóttalegir á bila-
stæðinu við Stjörnubió. Þeir
gáfu sig á tal við drengina og
kom þá i ljós, að þeir höfðu und-
ir höndum veski með miklum
verðmætum og segulbands-
spólu, sem þeir höfðu stolið úr
bil á stæðinu.
Þegar bileigandinn kom út,
varð hann hvumsa við er vörpu-
legir lögregluþjónar stöðvuöu
hann og ávörpuðu með nafni.
Honum hefur liklega létt heldur,
þegar hann komst að þvi, að
erindið var aðeins að skila hon-
um aftur þeim eigum hans, sem
hann hafði ekki hugmynd um,
að hann vantaði.
Rakst á hross
og valt síðan
Þrennt slasaðist nokkuð eftir
árekstur viö hross og útafakstui
skammt frá bænum Fiskilæk i
Melasveit á föstudagskvöldið
Fólkið var i sendiferðabil á
leið heim til sin vestur á Hellis-
sand. Þegar kom að Fiskilæk,
hljóp hross i veg fyrir bílinn og
lenti billinn á þvi, en síðan út af
og valt.
ökumaðurinn i bilnum
slasaðist mest þeirra þriggja.
Þar að auki lenti hann ofan i
iæk, er hann komst út úr biln-
um, og var orðið mjög kalt, er
hjálp barst. Hann skarst illa á
hendi, fékk högg fyrir brjóstið,
og var viða annars staðar mar-
inn og blóðrisa.
Meðal farangurs i bilnum
voru sementspokar, sem
sprungu við hnjaskið og dreifð-
ist innihaldið yfir fólkið. Einn
mannanna, fékk sement i auga,
auk annarra meiðsla.
Hrossið steindrapst við
áreksturinn. — SH.
Einn út af og
tveir saman
Bfll lenti út af veginum við
Urriöaá I Borgarfirði um átta-
leytið á föstudagskvöldið. Þetta
var jeppi úr Reykjavlk, og var-
aði ökumaðurinn sig ekki á
hálkukafla, sem myndast hafði
á þessum slóðum.
Um svipað leyti bar að bll af
Akranesi, og nam ökumaður
hans staðar til þess að kanna,
hvort orðið hefði slys á fólki.
Þegar hann var kominn út, kom
annar bill frá Akranesi þar að
og rakst á hinn Akranesbilinn.
Slys urðu ekki á fólki, og sá
sem slöast kom til sögunnar
slapp óskemmdur. Hinir bllarn-
ir skcmmdust ekki verulega.
SH
Með kúbein á
nœturgöngu
Töluvert var að gera hjá lög-
reglunni um helgina og meöal
annars nokkuð um innbrot.
Brotizt var m.a. inn i kaffi-
söluna i Sigtúni 3 og mjólkur-
búðina við Skaftahllð. Þá var
maður nokkur tekinn i grennd
við bílasölu Matthlasar og
reyndist sá vel búinn til
innbrota, hafði meðal annars
meö sér forláta gott kúbein og
fleiri riftól. Hvergi mun veru-
legum verðmætum hafa verið
stolið. -SH.
Þungfœrir af
tíköllum
Tveir smástrákar komust á
laugardagskvöldið inn i kvenna-
klefa Sundhallarinnar og þaðan
inn i afgreiðsluna, þar sem þeir
brutu upp gossjálfsalann. Úr
honum náöu þeir kassanum,
sem tekur á móti tiu króna
peningunum, en lögreglan kom
á staðinn áöur en drengjunum
tókst aö komast burtu. Þá los-
uöu þeir sig við kassann, en
voru anzi þungir af tiköllum i
vösunum, þegar lögreglan hafði
hendur i hári þeirra. — SH.
Nýja sjúkrahúsið I Eyjum var
formlega tekið I notkun á laugar-
daginn, en það hafði þá vcrið not-
að um nokkurn tima. Sú litla á
myndinni varð fyrst til að fæöast
á nýja sjúkrahúsinu, en það gcrð^
ist 16. nóvember kl. 27 mlnútur
yfir miðnætti. Telpan var 4200
grömm á þyngd og 52 sm löng, —
Móðir heitir Sigurborg Engil-
bertsdóttir, en faðirinn Eiður
Marinósson. Siöan sú litla á
myndinni kom i heiminn, hafa tvö
börn til viðbótar fæðzt á sjúkra-
húsinu nýja — Ljósmynd Guð-
mundur Sigfússon.
Tveir slösuðust al-
varlega í árekstri
Tveir menn slösuðust alvar-
iega I árekstri á Keflavikurvegi
um áttaleytið i gærmorgun.
Rákust þar á tveir fólksbllar
skammt frá Grindavikuraf-
leggjaranum, sinn á hvorri leið,
og ,var sá á leiðinni suðureftir á
vinstra vegarhelmingi, þegar
áreksturinn varð. Fljúgandi
hálka vará Keflavikurveginum,
þegar þetta gerðist, og báðir
bilarnir illa búnir til aksturs \
hálku.
Eftir að áreksturinn hafði átt
sér stað, kom þriðji billinn þar
að og lenti I hliðinni á öðrum
þeirra, sem fyrir voru. Engan
sakaöi I þeim bíl, en allir
skemmdust bilarnir mikið.
Mennirnir, sem slösuðust,
voru fluttir á Borgarsjúkrahús-
ið i Reykjavlk. Þar fengust þær
fréttir I morgun, að liöan þeirra
væri eftir atvikum. — SH
Öður farþegi réðst
á bílstjórann
Leigubllstjóri varð fyrir árás
farþega sins siðast liðið laugar-
dagskvöld.
Bilstjórinn var að aka manni
heim, en er komið var á áfanga-
stað varð maðurinn skyndilega
óður án nokkurrar sýnilegrar
ástæðu — það var ekki einu sinni
farið að reikna út túrinn. Hann
réðst á bílstjórann og tókust
harðar sviptingar, en bll-
stjóranum tókst að kalla á hjálp
um talstöðina. Vörpulegur lög-
regluþjónn, sem stundum
gripur i leigubilaakstur i fri-
stundum. var þar nærstaddur
og kom á vettvang. Honum
tókst að yfirbuga árásar-
manninn og halda honum, þar
til lögreglan kom og hafði
gripinn með sér á brott. -SH.
Verkamönnum í Sigöldu fannst öryggi ábótavant
Lá við að framkvœmdir
legðust niður
Engu munaði að verkalýðs-
félag Rangæinga stæði fyrir þvi
fyrir helgina, að vinnusvæöinu
inni við Sigöldu yröi lokað.
Var ástæðan sú, að ekkert
hafði verið aðhafzt við uppsetn-
ingu handriðs við bergvegg,
sem nú er verið að vinna við.
Við hálku og raka myndast
þarna slysahætta og jafnvel slys
orðið af þessum sökum.
Þrátt fyrir beiðnir um að eitt-
hvað væri aðhafzt höfðu að-
gerðirnar látið á sér standa, en
er lá við að i odda skærist var þó
hafizt handa. Féll málið þvi nið-
ur áö sinni.
—JB
Hón
fœddist
fyrst