Vísir - 25.11.1974, Blaðsíða 9

Vísir - 25.11.1974, Blaðsíða 9
Vlsir. Mánudagur 25. nóvember 1974. 9 á síðustu sekúndu Sigur Fjórar sekúndur voru eftir af framlengingunni i leik ÍR og Ár- manns I 1. deildinni i körfuknatt- leik og staðan 82:82. IR-ingarnir náðu boltanum og Kristinn Jörundsson, markakóngur Fram I knattspyrnunni, rakti hann á undan sér fram yfir miðlinu og framhjá borði timavarðarins, sem stóð tilbúinn til að flauta. Cr mjög þröngri aðstöðu og af ótrú- lega löngu færi sendi hann bolt- ann af stað i átt að körfunni, en um leiö gall flautan... Boltinn sigldi i gegnum loftið og rambaði I gegnum körfuhringinn við óstjórnlegan fögnuð iR-inganna og stuðningsmanna þeirra, sem héldu niðri I sér andanum af spenningi á meðan að boltinn var að kljúfa loftið. Karfan var gild — Kristinn hafði sleppt boltanum áður en flauta timavarðarins gall — og 1R var sigurvegari i leiknum. Þaö var svo sannalega „heppnisþef- ur” af þessum sigri, en sætur var hann og skemmtilegur fyrir 1R- ingana, sem nú hafa örugga for- ustu i deildinni og eina liöiö sem ekki hefur tapaö leik. Leikurinn var geysilega skemmtilegur og maður talar nú ekki um spenninginn sem var ofsalegur. ÍR haföi 2 stig yfir i hálfleik 36:34 og komst 10 stigum yfir i siöari hálfleik 59:49. Ar- mann náöi að jafna 68:68 og kom- ast yfir 72:70 og siöan 74:72. En IR-ingarnir jöfnuöu er 10 sekúnd- ur voru eftir 74:74, og fengu tvö vlti eftir þaö, sem bæði mis- heppnuöust — eins og skot Ar- mennings á lokasekúndunni. Þá var framlengt i 1x5 minútur og komst Armann strax i 78:74 og siðan 182:76. Sigurinn virtist vera i húsi hjá Armanni jafnvel eftir aö 1R haföi minnkað biliö i 80:82 er ein mínúta var eftir. Þá fékk Simon Ólafsson dæmd tvö vitaköst annað eða bæði niöur þýddi öruggan sigur fyrir Ar- mann — en þessum unga manni, sem tvivegis áður hefur orðið að standa undir þvi álagi að ráða sigri eöa tapi I heilu móti með hittni sinni I vitaköstum, mistók- ust bæði skotin, og ÍR náði boltan- um og jafnaði 82:82. Þá voru inn- an við 30 sekúndur eftir — Ar- mann var með boltann og ætlaði að eiga siðasta skotið i leiknum. En hann var dæmdur af liðinu þegar fjórar sekúndur voru eftir og það nægði Kristni Jörundssyni til að skora þessa mikilvægu körfu. Hann og Jón Sigurðsson Ar- manni voru menn leiksins — menn sem .virkilega gaman er að horfa á leika körfubolta. Jón skoraði 29 stig i leiknum en Krist inn mikið færri eða 17 stig. Agnar Friðriksson var stigahæstur allra með 33 stig, og var hittni hans á köflum með eindæmum. Mikið var suðað I dómurunum i þessum leik, enda alltaf hægt aö gera það I svona jöfnum og hörð- um leikjum. En mistök þeirra voru ekki fleiri né verri en leik- mannanna þótt siður sé tekið eftir þeim og óllkt minna skammazt út af þeim en mistökum dómaranna. —klp— iimbínmálvið ro úti i lðndum? Viltu hafa áhrif á afgreiðslu þeirra? Sendu þá islenskan minjagrip þeim manni sem við borðið situr. Grip sem fer vel á borði hans. irip sem minnir á þig og þitt land. Sendu honum litla öskubakkann í póstkortinu. Hann fæst í næstu gjafavörubúð. N © Hvað er g.t. 9 g.t. er skammstöfun orðanna gagnkvæmt tryggingafélag. Samvinnutryggingar g.t. eru gagnkvæmt tryggingafélag.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.