Vísir - 25.11.1974, Síða 17
Vlsir. Mánudagur 25. nóvember 1974.
17
Þann 7. sept. voru gefin saman I
hjónaband af séra Eiriki J.
Eirikssyni i Þingvallakirkju
Þórunn B. Björnsdóttirog Pálmi
V. Jónsson. Heimili þeirra er að
Hringbraut 105
Nýja myndastofan.
Þann 14. sept. voru gefin saman i
hjónaband af séra Arngrimi
Jónssyni i Háteigskirkju Þórunn
Snorradóttir og Jón Þorvaldsson.
Heimili þeirra er að Safamýri 37.
Nýja myndastofan.
Þann 14. sept. voru gefin saman i
hjónaband af séra Ólafi Skúlasyni
I Bústaðakirkju Sigrún Guö-
mundsdóttir og Kjartan Ingva-
son.Heimili þeirra er að Austur-
brún 23.
Nýja myndastofan
*
ŒJ
:í:
LU
k
*£*
*** *
spa
Spáin gildir fyrir þriðjudaginn 2G. nóv.
Hrúturinn, 21. marz — 20. april. Hjálpaðu
annarri manneskju til að leysa vandamál
hennar en varastu að vera of dómharður. Farðu
varlega i peningamálum. Óvenjulegar aðstæður
gætu snert verðmæti.
Nautiö, 21. april — 21. mal. Þér finnst ef til vill
sumt fólk óútreiknanlegt á stundum, en þú
verður bara að læra að lifa með því. Sjálfs-
ábyrgð er það sem gildir i dag.
Tviburarnir, 22, mai — 21. júní.Þú ættir að yfir-
fara fjármálin snemma dagsins. Reyndu að
finna betri leiðir til að spara og vera nýtnari.
Eitthvert vandamál gæti stungið upp kollinum
seinni partinn.
Krabbinn, 22. júnl — 23. júlí. Mál yfirmanna
snerta þig á einhvern hátt i dag. íhugaðu þau af
skynsemi, og reyndu að gera þér grein fyrir i
hvaða átt vindurinn blæs. Sýndu ábyrgðar-
tilfinningu.
Ljónið, 24. júll — 23. ágúst. Athugaðu gaumgæfi-
lega núverandi og nýlega þróun mála. Þú ættir
að endurskoða áætlanir, jafnvel þó það valdi
smávegis töfum. Þú færð leiðinlegar fréttir.
Meyjan, 24. ágúst — 23. sept.Taktu eftir hvernig
annað fólk meðhöndlar vandamálin. Bjóddu
fram aðstoð þina. Seinni part dagsins færðu
fréttir sem koma þér mjög á óvart. Hertu upp
hugann.
Vogin, 24. sept. — 23. okt. Morguninn skaltu nota
til að einbeita þér að þvi að halda i við aðra,
annars fara þeirlangt fram úr þér. Seinna verða
einhverjar breytingar varðandi peninga.
Drekinn, 24. okt. — 22. nóv. Þú ert eitthvað
útundan i dag eða utan við þig. Þú ættir að
reyna að fylgja samstarfsmanni eftir. 1 kvöld
skaltu gæta þess að tala ekki af þér.
Bogmaðurinn, 23. nóv. — 21. des.Reyndu að fá
ánægju út úr þvi að læra nýjar aðferðir i stað
þess að setja þig i varnarstöðu sökum ihalds-
semi. Varastu hvers konar óreglusemi. Eitthvað
óvænt gerist.
Steingeitin, 22. des. — 20. jan. Astvinir æskja
meira frjálsræðis i gerðum eða tækifæris til að
láta að sér kveða. Vertu ekki eigingjarn. Barn
æskir vitneskju um óvenjulegt málefni.
Vatnsberinn, 21. jan. — 19. febr.Þennan morgun
skaltu reyna að hlusta jafnvel og þú lætur ljós
þitt skina. Samt sem áður eru þinar hugmyndir
liklega þær gáfulegustu.
Fiskarnir, 20. febr. — 20. marz. Dagurinn er
tileinkaður aðalatriðum. Alit nágranna eða
skyldfólks gæti gengið alveg fram af þér, en
vertu ekki of hneykslunargjarn. Hafðu augun
opin.
►♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ *■♦♦♦♦♦♦*♦ 4-»-» ♦ ♦ ♦ ♦ » ♦ 4-1
m
m
••
DS
Ji
u □AG | B KVÖLD n □AG | D KVÖLD| n □AG ]
Útvarp kl. 20.50
Þegar sódavatnsflaskan sprakk
Björn Helgason,
hæstaréttarritari, flyt-
ur þáttinn Af vettvangi
dómsmálanna i kvöld,
,,í>ar er tekið fyrir
skaðabótamál stúlku,
vegna slyss er hún varð
fyrir þegar sódavatns-
flaska sprakk i búðinni,
sem hún vann i,” sagði
Björn.
Stúlkan var við afgreiðslu i
búð, þegar sódavatnsflaska
sprakk, öllum cð óvörum. Stúlk-
an fékk gler i auga og missti
sjón á þvi aðmestu. Hún höfðaði
mál á hendur framleiðanda
sódavatnsins, og það mál mun
Björn rekja i þættinum i kvöld.
Verzlunáreigandi flækist svo i
málið og er i fyrstu ekki auðséð,
hvernig það leysist, en svo mik-
iö er vist, að Björn skilur ekki
við það fyrr en full niðurstaða er
fengin.
,,Jú, nrér finnst ég alltaf i
hálfgerðum vandræðum með að
velja mál til að segja frá,”
svaraði Björn spurningu Visis.
,,Þáð er nokkur vandi — málin
verða að hafa ýmsa eiginleika
til að fara vel i þætti sem
þessunj. Þau mega ekki vera of
þvæld, staðreyndir verða að
vera ljósar, og þau mega ekki
vera of löng. Og þar að auki
verða þau að vera áhugavekj-
andi. Það er alls ekki auðgert að
velja mál i þáttinn.”
En málið i kvöld virðist vera
áhugavert: Hver er réttarstaða
þeirra sem verða fyrir slysi af
þessu tagi? Hvaða skyldur hvila
á framleiðandanum? Hvar
stendur verzlunareigandinn?
Þessu fáum við öllu svarað i
þættinum, sem hefst kl. 20.50.
—SH
lÍTVARP •
Mánudagur
25. nóvember
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdeigssagan:
„Fanney á Furuvölluni ”
eftir Hugrúnu. Höfundur les
(12)
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar
(16.15 Veðurfregnir)
16.25 Popphornið.
17.10 Tónlistartími barnanna.
Ólafur Þórðarson sér um
timann.
17.30 Að tafli. Ingvar As-
mundsson flytur skákþátt.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.40 Mælt mál. Bjarni
Einarsson flytur þáttinn.
19.45 Um daginn og veginn.
Friðrik Sophusson lög-
fræðingur talar.
20.05 Mánudagslögin
20.25 Blöðin okkar. Umsjón:
Páll Heiðar Jónsson.
20.35 Ileilbrigðismál:
Augnlækningar, III Úlfar
Þórðarson læknir talar um
notkun gleraugna og
ellisjón.
20.50 A vettvangi dómsmái-
anna. Björn Helgason
hæstaréttarritari flytur
þáttinn.
21.10 Píanósónata nr. 7 I h-
moll eftir Prokofjeff.
Vladimir Ashkenazy leikur.
21.30 Utvarpssagan: „Gang-
virkið” eftir Ólaf Jóh.
Sigurðsson. Þorsteinn
Gunnarsson leikari les (19)
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Byggða-
mal. Fréttamenn út-
varpsins sjá um þáttinn.
22.45 HIjómplötusafnið i
umsjá Gunnars Guðmunds-
sonar.
23.40 Kréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
SJÓNVARP •
Mánudagur
25. nóvember 1974
20.00 Fréttir
20.30 Dagskrárkynning og
auglýsingar
20.40 Onedin skipafélagið
Bresk framhaldsmynd. 8.
þáttur. t heimahöfn Þýð-
andi Óskar Ingimarsson.
21.35 tþróttir Myndir og frétt-
ir frá iþróttaviðburðum
helgarinnar. Umsjónar-
maður Ómar Ragnarsson.
22.05 Olnbogabörn Evrópu
Þýsk fræðslumynd 'um
Efnahagsbandalag Evrópu,
og lönd þau og landshluta,
sem þar hafa orðið útundan
í ýmsum skilningi. Þýðandi
Auður Gestsdóttir. Þulur
Elie’rt Sigurbjörnsson.
20.50 Dagskrárlok
Utvarp kl. 22.15
FEIKNA MIKIL SKÝRSLUVINNA
t þættinum Byggðamál, sem
er sérstakur þáttur helgaður
landsbvggðinni, er fjallað um
verðmun á hvers konar vörum
seldum i dreifbýli og i Reykja-
vlk. Fjallað er um flutnings-
kostnað út á land, samanburður
á verði ákvéðinna vörutegunda
og álagningu. Þá er borinn
saman mismunur á flutningsað-
ferðum, sem er með bílum,
skipum eða flugvélum. Loks er
rætt við nokkrar húsmæður úti
um land um vöruúrvalið.
Þetta er aðeins hálftima þátt-
ur, en að baki honum liggur
feikna mikii vinna. Til þess að
safna saman upplýsingum og
vinna úr þeim hefur verið varið
ótrúlega miklum tima, enda er
það seinlegt verk.
1 þættinum kom fram flestir
fréttamenn innlendra frétta hjá
útvarpinu, auk þeirra, sem rætt
er við.
—SH
-♦♦•♦•♦•♦•♦-♦♦•♦•♦-♦-♦♦••♦♦♦-♦♦■♦■♦-♦•■♦♦-♦-♦♦-♦♦•♦-♦■f-f ♦-♦-♦♦•♦••♦-♦■♦♦-♦♦•♦ ♦♦♦♦♦♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦♦♦-♦-♦-♦-