Vísir - 28.11.1974, Blaðsíða 1
VISIR
64. árg. — Fimmtudagur 28. nóvember 1974. — 239. tbl.
Dómur var kveðinn upp fyrir hádegið:
12 MlliJÓNIR TIL RÍKISINS
Dómur var kveöinn upp I máli
skipstjórans á togaranum
Arcturus frá Bremerhaven
klukkan 12:30. Var honum gert
að greiða 1,5 miljón króna sekt i
landheigissjóð innan fjögurra
vikna frá birtingu dómsins eða
sæta 5 mánaða fangelsisvist
ella. Afli og veiðarfæri þar á
meðal dragstrengir voru gerð
upptæk. Verðmæti aflans var
ekki mikið en veiðarfæri þeim
mun verðmætari. Samtals voru
þessir liðir metnir á 10,8
miijónir. Akærða var einungis
falið að greiða sakarkostnað 65
þúsund og laun verjanda sfns
Jóns N. Sigurðssonar 45 þúsund.
Málfiutningi lauk um háifeitt f
nótt og var dómur kveðinn upp
nú um hádegið eins og áður
segir. Nú er veriö að ganga frá
tryggingu fyrir greiöslu og að
þvf loknu siglir Arcturus utan.
Skipstjórinn hefur áfrýjað
málinu til Hæstaréttar.
—JB
Brestur í
fjöreggi
þjóðarinnar
— Sjá leiðara
bls. 6
Eilífðar-
stúdentar
rœgja út-
vegsmenn
— bls. 3
Ungir
íslend-
ingar
teknir
fyrir
eitur-
brask
í Svíþjóð
— Baksíða
•
BOÐA TRÚ
MEÐ SÖNG
- Bls. 3
Vilja Þjóðverjar sýna íslendingum í tvo heimana?
Senda ekkert jólatré í ár
Jólatréð/ sem Þjóðverjar
hafa sent Reykjavíkurhöfn
um hver jól mörg undan-
farin ár/ verður ekki sent
til islands í ár.
Það eru ýmsir þýzkir aðilar,
sem staðið hafa að gjöf þessari
undanfarin ár, en þó einkum
félagsskapurinn Wikingerrunde,
sem meðal annars er félags-
skapur blaðamanna og sjó-
manna. Vísir hafði i morgun sam-
band við Werner Hoenig i Ham-
borg, sem er einn talsmaður
félagskaparins, og spurði hann
um ástæðuna.
Svarið, sem barst hljóðaði
þannig: „Okkur þykir mjög leitt,
að gefendurnir skuli hafa lent i
slikum vandræðum með sam-
göngur, að ekki er hægt að leysa
þær i tæka tið.”
Þess skal þó getið að Eim-
skipafélag Islands heldur uppi
hraðferðum til Hamborgar einu
sinni f viku, svo ástæðan hlýtur að
vera ófærð I Þýzkalandi. Nema
þá taka þýzka togarans eigi hér
hlut að máli og Þjóöverjar vilji nú
sýna íslendingum i tvo heimana.
—JB
Deilur hafa staðið f nokkur ár f
Keflavfk um hvort varðveita eigi
hús Stjána bláa, sjómannsins sem
Örn Arnarson gerði frægan og
ódauðlegan f kvæði sinu.
Þetta hús er nokkuð gamalt, en
i þvf bjó Stjáni ásamt konu sinni
og mörgum börnum. En á meðan
deilurnar um varðveizlu hússins
hafa' staöið yfir, hefur húsið
staðið óvariö og grotnað niöur.
Telja kunnugir að það sé nú i
sliku ástandi, að slysahætta stafi
af fyrir börn og að vonlaust sé að
gera við húsið.
Bæjarstjórn hefur ákveðið að
láta mæla húsið allt upp og
teikna það sem nákvæmast.
Hæpið er, að úr þessu verði það
byggt upp, þrátt fyrir áskoranir
margra. -óH.
Vinkonan í
Bandaríkj-
unum sendi
387 grömmin
Fikniefnamálið mikla, er
upphófst , er 387 grömm af
marijuana komu i pósti til
| tveggja pilta i Keflavik, er nú til
| lykta leitt.
Piltarnir voru handteknir fyrir
tæpri viku og viöurkenndu aö þeir
hefðu verið i félagi tveggja
annarra pilta, sem lögðu peninga
i sjóð til að kaupa marijuana.
Þeir halda þvi fram, að þeir hafi
safnað saman 320 dollurum til
kaupanna. Slík upphæð þykir þó
furðulega litil til kaupa á eins
miklu magni.
Sendinguna fengu piltarnir frá
stúlku einni, sem verið hafði hér á
landi i sumar, en hélt út til
Bandarikjanna i september
siðastliðnum.
Stúlka þessi er bandariskur
rikisborgari, en annað foreldrið
er islenzkt. Piltarnir sem eru á
aldrinum 18-19 ára þekktu
stúlkuna litillega og fengu hana
til aö annast kaupin fyrir sig.
Marijuana sendingin var póstsett
i Florida 20. september og var
þvi um tvo mánuði á leiðinni.
Stúlkan er á llku reki og
piltarnir. Piltarnir halda þvi
fram, að magniö hafi aðeins veriö
ætlað þeim sjálfum. Máli þeirra
verður nú skotið til fikniefna-
dómstólsins, þar sem það veröur
rannsakaö nánar og siðan sent til
saksóknara rikisins. -JB.
ólafur Kjartansson, póstur I Keflavfk, stendur hér fyrir framan Holt, hús Stjána bláa. Húsið er nær
ónýtt. Ólafur, sem hefur veriöpóstur i 30 ár, þekkti til á heimiii Stjána. Ljósm. VIsis: BG.
HÚSIÐ GROTNAR NIÐUR MEÐAN
DEILT ER UM VARÐVEIZLU ÞESS
Þrír hermenn í
haldi vegna
fíkniefnasölu
- bls. 3
Margir líkjast eftir-
lýsta manninum
— nokkrir þegar yfirheyrðir
vegna þess að þeir líkjast
leirmyndinni — höfðu allir
fjarvistarsönnun
— yfir hundrað ábendingar
komnar
Nokkrir menn hafa
veriö yfirheyrðir vegna
þess að þeir líktust mynd-
inni af eftirlýsta mannin-
um í Keflavík. Enginn
hefur verið handtekinn/
því að allir gátu sannað
ferðir sínar á þriðjudags-
kvöld i fyrri viku.
John Hill, rannsóknarlög-
reglumaður i Keflavik sagði i
morgun, að um eða yfir hundraö
nöfn hefðu borizt til lögreglunn-
ar, sem talið var að gætu átt við
eftirlýsta manninn.
Þegar er farið að vinna úr
upplýsingunum, og hafa nokkrir
menn verið yfirheyrðir, eins og
fyrr sagði.
John Hill sagði, að mennirnir
sem yfirheyrðir voru, hafi
margir verið anzi likir leirstytt-
unni.
Hinsvegar sagði hann, að
böndin hefðu enn ekki borizt að
neinum ákveönum manni.
Flest nöfnin, sem borizt hafa
sem ábendingar, eiga við menn
búsetta á Reykjavikursvæöinu.
Sem dæmi um hvað hefur bor-
izt af tilkynningum, má nefna
atvik i Hvalfirði. A þriöjudag
kom maður á bil með A númeri
við á benzinstöð þar. Daginn
eftir kom hann einnig við. En i
þaö skiptiö vakti hann athygli
fyrir það, að hann ætlaði að
borga benzinið meö 13 þúsund
króna ávisun. Benzinafgreiðslu-
maðurinn sagðist ekki geta tek-
iö viö svo hárri ávísun. Maður-
inn reif hana þá i tætlur, og
skrifaði aðra lægri. Þennan
mann telur benzinafgreiöslu-
maðurinn likjast myndinni af
eftirlýsta manninum. Það var á
þriöjudagskvöldið, sem Geir-
finnur hvarf.
Þetta er aðeins eitt af þeim
fjölmörgu atriðum, sem lög-
reglan þarf að kanna.
—ÓH