Vísir - 28.11.1974, Blaðsíða 16
vism
Fimmtudagur 28. nóvember 1974.
Kissinger
hingað í
næstu
viku
KEMUR
— segir Tíminn
KEMUR
EKKI
— segir
utanríkisráðherra
Dagblaðifi Timinn birtir
morgun forsiðufrétt þess efnis,
að Henry Kissinger, utanríkis-
ráðherra Bandarikjanna og
frægur ferðagarpur, sé væntan-
legur hingað tii lands á mánu-
daginn kemur.
Vfsir hafði samband við Einar
Agústsson, utanrikisráðherra,
og purði hann um komuy
Kissingers.„Þetta er ekkirétt,”
sagði utanrikisráðherra.
„Kissinger er ekki að koma og
hefur aldrei ætlað að koma.
Hins vegar stendur til, aö
Joseph Sisco, aðstoðarutan-
rikisráðherra Bandarikjanna,
komi hingað til lands á næst-
unni, og að likindum er þessi
misskilningur þannig til kom-
inn.”
Einar Agústsson vildi ekki
ræða um erindi Sisco hingað til
lands, en sagði að tilkynning
yrði gefin út um komu hans
fljótlega. - SH
— i--- -f'.. ir jjjir _grr
UNGT PAR TEKIÐ FYRIR
EITURBRASK ERLENDIS
i sænsku blaði fyrir nokkru er
sagt frá málum tveggja ungra
para, sem fyrir stuttu voru látin
mæta fyrir fikniefnadómstóin-
um I Landskrona. Annað þess-
ara para er Islenzkt.
Bæði pörin voru handtekin i
Landkrona ásökuð um
innflutning á hassi. Þau voru
nýkomin frá Kaupmannahöfn,
þar sem þau höfðu bæði Utvegað
sér efnið á sama skemmtistaðn-
um i Kaupmannahöfn.
fslendingarnir, sem hlut eiga
aö máli, er par eins og áður
segir, hann 24 ára en hún 21 árs.
Þau giftu sig 1 marz. HUn hafði
hætt vinnu um siðustu áramót,
en hann mánuði eftir
brúðkaupið. Hann hefur að eigin
sögn neytt hass siðan 1969 og
nokkrum sinnum prófað LSD,
hún hefur reykt hass i nokkur
ár.
Með 60.000 krónur upp á
vasann héldu þau héðan I ágúst.
Að hluta voru peningarnir
barnsmeðlög, en hún átti 3ja ára
strák. Að hluta kom fé frá
foreldrum eiginmannsins.
Þau höfðu hugsað sér að
heimsækja m.a. Spán og Italiu
og á leiðinni frá Islandi hittu
þau ungling, sem lagði til 20.000
með þvl skilyrði að hann fengi
aö aka þeim um Evrópu i bil,
sem þau skyldu útvega.
í Flensburg keyptu þau fólks-
vagn fyrir 1100 þýzk mörk. Þau
komust þó aldrei lengra en til
Amsterdam.Þegar þangað kom
sneri parið aftur til
Kaupmannahafnar og gat kriað
út 300 danskar krónur i fátækra-
styrk þar.
Árangurslaust reyndu þau að
útvega sér vinnu, og fóru i þeim
tilgangi meðal annars til Gauta-
borgar til vina stúlkunnar. Þar
var hægt að útvega þeim vinnu,
en kostnaðurinn við að búa I
Gautaborg reyndist of mikill.
Parið fékk nú lánaðar 500
sænskar krónur, að eigin sögn
og ók siðan til baka til Kaup-
mannahafnar. Þar tókst þeim
aftur að drýgja sjóðinn með
fátækrastyrk upp á 300 danskar
krónur.
Þá var keypt kannabis fyrir
400 danskar krónur. Þetta voru
70 grömm, og komu hjónin 60.af
þeim fyrir i tekönnu, er þau
héldu með til Sviþjóðar. Þar
voru þau handtekin. Hjónin is-
lenzku halda þvi nú fram, að
þau hefðu verið send af sænsku
vinunum til Kaupmannahafnar
til að kaupa kannabis.
Guðmundur I. Guðmundsson,
sendiherra i Sviþjóð, sagði i
samtali við blaðið, að mál þetta
heföi ekki komið til kasta
sendiráðsins og væri þvi að öll-
um likindum ekki um fangelsis-
dóm að ræða. -JB
„Takk fyrir lánið” hefðu verið réttu
kveðjurnar, er þessi linubátur frá
Kiakksvik I Færeyjum yfirgaf höfnina
I Vestmannaeyjum. Hann hafði orðið
fórnarlamb eins þeirra mörgu neta,
sem reka stjórniaust I sjónum við Is-
land. Eftir að netið hafði verið losað úr
skrúfunni, gat Jakup frá Færeyjum
haldið frá Eyjum á ný. Ljósm. Bragi.
TAKK FYRIR
LÁNIÐ!
Þjóðverjar kannast
ekki við hótanir:
„Við gjöldum
ekki rangt
með
röngu,"
— segir einn
þingmanna þeirra
í einkaskeyti AP til Visis
segir, að viðgerð á
Reykjavíkurtogaranum
Bjarna Benediktssyni
hafi tafizt, og muni skipið
ekki fara frá Hamborg
fyrr en í dag.
Ekkert bendir til þess, að
nokkur hindrun veröi lögð á
ferðir togarans, segir i skeytinu.
Stjórnin i Bonn kannast ekki við
neinar hótanir um aö hefta ferð-
ir íslenzkra skipa i þýzkum
höfnum vegna atburðanna á ís-
landsmiðum á sunnudaginn, en
Peter Hein, konsúll Islands i
Cuxhaven, segir að islenzk skip
forðist þýzkar hafnir að eigin
frumkvæði.
Karl-Heinz, þingmaður i
Bremen neitaði þvi, að áætlun
hefði verið gerð um mótmæli
gegn islenzkum fiskiskipum:
„Við gjöldum ekki rangt með
röngu,” sagði hann. — SH —
Hrossaþjófarn-
ir enn í
yfírheyrslum
Rithöfundafélag íslands
hefur veríð lagt niður
— nafn þess og eigur verða eign Rithöfundasambands íslands
Mennirnir sem játuðu á sig
hrossaþjófnaði sitja enn I gæzlu-
varðhaldi i Hafnarfirði.
Hafa þeir nú verið I haldi i 17
daga. Þeir voru upphaflega úr-
skurðaðir I 30 daga gæzluvarð-
hald.
Annar mannanna sagði i yfir-
heyrslum I fyrradag, að hann
hefði slátrað tveimur hestum
suður með sjó 1 fyrra. En hann
segir.að hestarnir hafi verið sin
eign. Verið er að kanna það mál.
Þá hafa mennirnir viðurkennt
þjófnaði á rafgeymum og start-
ara úr vegavinnutækjum, sem
notuð voru við vegagerð Sverris
Runólfssonar á Kjalarnesi.
Rannsóknarlögreglan i
Hafnarfirði sótti fjóra hesta til
Hvammstanga og Miðfjarðar i
gær. Það eru hestarnir, sem
mennirnir voru upphaflega
teknir fyrir að reyna að selja til
slátrunar. Eigendur þriggja
hestanna hafa litiö á hesta sina.
—ÓH
„Þar sem flestir félagsmenn
Rithöfundafélags Isiands eru
gengnir i Rithöfundasamband Is-
lands, ákveður framhaldsaðal-
fundurinn hér með að leggja
féiagið niður og afhenda Rit-
höfundasambandi tslands cignir
þess og nafn til umráða og
varðveizlu.”
Þannig hljóðar ályktun, sem
gerð var einróma á framhalds-
aðalfundi Rithöfundafélags Is-
lans, sem haldinn var fyrir réttri
viku.
„Fram til þess, að Rithöfunda-
samband Islands var löggilt til að
fara með hagsmunamál rit-
höfunda af hálfu Rithöfunda-
félags Islands og Félags is-
lenzkra rithöfunda eftir rit-
höfundaþingið i vor, var Rit-
höfundafélag Islands stéttar- og
hagsmunafélag Islenzkra rit-
höfunda,” sagöi Vilborg Dag-
bjartsdóttir, fráfarandi for-
maður Rithöfundafélags Islands,
i viðtali við Visi.
„Þegar Rithöfundasamband
íslands haföi þannig yfirtekið
meginstarfsemi Rithöfunda-
félagsins, var hlutverki þess
raunverulega lokið. Hefði það átt
að starfa áfram, heföi þurft að
finna þvi nýjan starfsgrundvöll,
liklega sem einhvers konar
klúbbs, sem þá hefði hafið af-
skipti af einhvers konar isma,
stjórnmálum eða öðru sliku. Þvi
var haldinn opinn aðalfundur til
þess að félagar gætu velt þessu
fyrir sér. f sumar hafa svo farið
fram bréfaskriftir og umræður
um málið.
Niðurstaðan varð sú, að félagið
hefði lokið hlutverki sinu sem
slikt, og ekki væri hagkvæmt
fyrir rithöfunda og gæti skaðað
starfsemi félagsins að vera með
klúbba utan við Rithöfundasam-
bandið. Einnig er það villandi
fyrir almenning að vera með
mörg rithöfundafélög með líkum
nöfnum, til dæmis ef upp kemur
þjark Hkt og varð I blöðum fyrir
nokkru.
Rithöfundafélag fslands var
elzta félag rithöfunda á íslandi
stofnað á striðsárunum, og okkur
var annt um nafn þess og eigur,
sem að visu eru ekki miklar. Þær
voru þvi látnar renna til Rit-
höfundasambandsins til eignar og
umönnunar, en stjórn félagsins
hefur nú siðasta árið unnið að þvi
að safna saman öllum bréfunuog
skjölum varðandi félagið, og
verða þau geymd á Skjalasafninu
fyrir þá, sem vilja kynna sér
starfsemi félagsins siðar meir.
Félagar Rithöfundafélags
Islands, 96 að tölu með heiðurs
félögum, hafa nú gengið i Rit-
höfundasamband íslands, utan
liklega um 10, sem flestir eru þá
fjarstaddir.” -SH.