Vísir - 28.11.1974, Síða 2
2
Visir. Fimmtudagur 28. nóvember 1974.
visntsm:
Þykir
yður
góður
- hákarl?
Bragi Eggertsson, húsgagna-
smiöameistari: — Já, ef islenzkt
brennivin er með. Ég vil hann
helzt frá Vopnafiröi, þaðan fær
hann beztu meömælin.
Sigurbergur Hávarösson, út-
varpsvirki: — Já, mér finnst
hann ágætur. En þaö er skilyröi
aö islenzkt brennivin sé með
honum.
Þorsteinn Gunnarsson, stýri-
mannaskólanemi: — Ég er ekkert
hrifinn af honum. En það má éta
hann ef hann er sæmilega verk-
aöur.
Guömundur Karlsson, sölu-
maöur: — Ég hef bara aldrei
smakkað hann. Mér finnst lyktin
svo vond aö ég hef aldrei lagt i
hann.
Jónas Jónsson, leigubifreiöar-
stjóri: — Ja, þaö fer nú eftir þvi
hvernig hann er verkaöur og hvaö
hann er gamall. Þaö sem kallaö
er glerhákarl finnst mér bezti há-
karlinn. Hann veröur svona gul-
grænn á litinn og eiginlega glær.
Gunnar Jóhannsson, sendill: —
Ég hef aldrei smakkaö hann,
lyktin er alveg hræðileg. Þá vil
ég heldur brennivinið.
BaaMBBBaam
LESENDUR HAFA ORÐIÐ
Orð í eyru Arnar
frá Bjögga
Björgvin Halldórsson hljóm-
listarmaöur skrifar:
Hr. örn Petersen.
Ástæðan fyrir þvi að ég skrifa
ÞINUM EYRUM er sú aö leið-
rétta hrapallegan misskilning
sem þér hefur oröið á i dómum
á vissum plötum. Ef þú skoðar
velplötuna Diggy-Liggy-ló (þaö
er að segja plastið sjálft) þá
sérðu strax aö þaö eru ekki
Hljómar sem eru skrifaöir fyrir
þvi, heldur hljómsv. Ðe Lónli
blú bois, hin dularfulla. Svo
segir þú að lagið Diggy-Liggy-ló
sé stoliö. Ég verð aö biðja þig
um að lesa plötuna enn þá betur
og þá séröu að bæði lögin eru er-
lend, og það tekið skýrt fram.
Þau er túlkuð af Ðe Lónli blú
bois en ekki stolin, og ég sem
hélt að þú kynnir að lesa.
Heitið á laginu á B hliö
plötunnar er Kurrjóðaglyöra en
ekki Kurrjóðaglyðja, og það ern
30 mjög sniðug nýyröi i þvi lagi.
Já lagsmaður, það eru Ðe lónll
blú bois en ekki Hljómar. t
þættinum tiu á botninum, c
fyrirgefðu....toppnum, þar
notar þú nafnið Lónll blú bois
eins og góöur strákur en ekki á
slðu þinni I Visi. Af hverju?
Yfir höfuð finnst mér plötu-
dómar þlnir alveg út I hött. Eins
og skrif þin t.d. um plöturnar
Walking Man (James Taylor
L.P») og Its only rock and roll
L.P. (Rolling Stones). Þar segir
þú að James Taylor lepji
dauðann úr skel. En sú þvæla.
Walking Man er ein bezta plata
yfirvegað og gott plan. örn þú
verður að fylgjast með.
Svo er það platan með Rolling
Stones. Þar segir þú að vonandi
sé sú plata sú siðasta með
Eru þaö Hljómar eöa Ðe Lónll blú bois sem syngja og leika ú
nýju tveggja laga plötunni sem Hljómplötuútgáfan Hijómar
gefur út?
hans að minu mati og sýnir ljós-
lega hvað hann er kominn á
Stones. Þetta segir þú án þess
að gera nokkurn samanburð eða
örn Petersen poppskrlfari og
plötusnúður telur Hljóma vera
Ðe Lónli blú bois.
spekúlera neitt um fyrri plötur
þeirra og það sem verra er að
blásaklausir krakkar úti i bæ
trúa þessari þvælu úr þér. Nei
örn ég held þú eigir að leggja
pennann á hilluna og spila bara
„Ekta drykkjuvisur” af plötum
fyrir gesti I Klúbbnum.
Þú getur alltaf farið á sjóinn
eða grafið skurö, en I guðana
bænum ekki halda aðra mál-
verkasýningu. Mundu bara eitt,
að það eru lónll blú bois, lónll
blú bois, lónll blú bois....
Ég hélt að þú heföir smásnefil
af húmor, en ég sé nú að þú
hefur alls engan, enda eru þessi
svokölluð músfkskrif þln eins
og minningargreinar.
Múslkskrif almennt eiga að
vera lifandi og viö, en ekki aö
drepast úr vosbúð og skelfingu.
Maöurinn sem heldur á penn
anum á að vera inni i þvi er
hann skrifar um en ekki fyrir
utan það.
Vertu ævinlega blessaður.
Af hverju ekki Magnús?
við frábæran
Magnúsar.
flutning Þessa mynd átti að texta, en
ekki lesa inn á”.
Óánægður skrifar:
„Ég varð fyrir ægilegum von-
brigðum með þá aðila sem sjá
um fræðslumyndirnar hjá sjón-
varpinu, þegar ég settist fyrir
framan sjónvarpstækið mitt á
sunnudagskvöldið.
Þá var að hefjast sjónvarps-
þáttur frá BBC um fornleifa-
uppgröft. Þátturinn hófst, og
yfir skjáinn runnu þær gleði-
legu upplýsingar að umsjón
þáttarins væri I höndum
Magnúsar Magnússonar. Ég
hugsaði gott til glóðarinnar, þvi
Magnús hefur hlotið mikla
viðurkenningu fyrir fornleifa-
þætti sina, og einnig talar hann
frábæra og áheyrilega ensku.
En viti menn, upphófst ekki
óáheyrilegur upplestur
þýðingarinnar á íslenzku! Ég er
ekki með þessu að halda þvi
fram að þýðandinn hafi flutt
mál sitt tiltakanlega illa, heldur
þvi, að menn mega halda vel á
spöðunum til að flutningur
þeirra fölni ekki I samanburði
Úlfarsá er ekki í Reykjavík
Ibúi á Ulfarsá I MOSFELLS-
SVEIT hringdi:
„Sigurði Hreiðari hefur aðeins
förlazt i skrifum sinum I les-
endadálknum á Vísi á þriðju-
dag. Þar segir hann, að úlfarsá
sé i Reykjavik.
Þessari fullyrðingu mótmæli
ég harðlega og þykist vita betur.
Úlfarsá er nefnilega I Mosfells-
sveit og hefur alltaf verið það.
Ég borga skatta og önnur
gjöld til Mosfellssveitar, og það
sama gerir konan min, sem
hefur búið hér siðan hún fædd-
ist.”
Leiður á þögnum í útvarpinu
„óþolinmóður” hringdi:
„Mikið óskaplega fara þessar
þagnir I útvarpinu I taugarnar á
mér.
Þagnirnar, sem ég er að tala
um, koma alls staðar fyrir.
Þetta eru að vlsu yfirleitt ekki
langar þagnir heldur nokkrar
sekúndur, en alveg upp I að vera
20 sekúndur, sem ekki heyrist
múkk I útvarpinu.
Þagnirnar koma t.d. þegar
lag endar og þulurinn er að fara
að kynna næsta lag, eða næsta
dagskrárlið. Alltaf þarf að liða
einhver tlmi þangað til rödd
þularins heyrist. Ég hef einnig
oft orðið fyrir þvi aö þegar ég er
að kveikja á útvarpinu og stilla
á útvarp Reykjavlk, þá finn ég
ekki stöðina strax, þvi þvi það
er hlé. Ég verð ákaflega
pirraður undir slíkum
kringumstæðum.
Kannski er ég bara svona
taugaóstyrkur. En það er þá
ekki á taugaóstyrkinn bætandi
með þessum andsk....þögnum.
Rlkisútvarpiö má taka Kana-
útvarpið sér til fyrirmyndar.
Það er nær undantekningar-
laust að útsending þar er
stanzlaus. Þulurinn talar um
leið og lagið endar. Og ef það
verður hlé milli atriða, þá hafa
þeir alls konar efni til þess að
fylla upp I.
Min skoðun er sem sagt sú, að
útvarpið eigi að útvarpa efni,
en ekki þögnum”..
PRETTAÐIR I VIÐSKIPTUM
Kúöá 20.11/74
Fyrir nokkru var hér á ferð
fyrir norðan maður að nafni
Magnús ólafsson frá Vestur-
botni. Flestir tslendingar kann-
ast örugglega við hann, að
minnsta kosti fólk til sveita, þar
sem hann ekur um og selur fólki
vörur sinar. Verzlun hans, sem
er I yfirbyggðum bll, er full af
alls konar skrani, já skrani segi
ég. Alla vega hef ég og félagar
mlnir ekki kynnzt þvilikri
skranbúð. Fengum við að fara
inn I verzlun hans að kvöldlagi,
bara rétt til að skoða, þar sem
hann mátti ekki selja á þeim
stað sem hann hafði lagt rút-
unni. Er við vorum komnir inn
byrjaði hann að reyna að
pranga- inn á okkur. Má sem
dæmi taka vitamin öll sem hann
hafði sjálfur étið svo og svo
mikið af. Byrjaði hann að hræða
okkur með þvi að við værum
með mikið hárlos og ráölagði
okkur að kaupa vitamin af sér.
Tókst honum að pranga inn á
einn okkar vitamini fyrir rúmar
þrettán hundruð krónur og átti
vítamínið auk þess að virka sem
f jörefnameðal. Ráðlagði
Magnús honum að taka allt upp
I 9 töflur á dag. Er við fórum að
spyrja hann hvort hann hefði
þetta eftir læknisráði varð hann
allbyrstur á svip og sagði að
læknar væru glæpamenn. Strák-
urinn keypti vítamínið i þeirri
góðu trú að ráð Magnúsar ættu
við rök að styðjast. Tók hann
siðan vitaminið inn, en viti
menn, hann fékk svona rosa
magaverki og varð allsljór á
eftir. Reyndi hann þetta nokkr-
um dögum siðar en allt fór á
sömu leið.
Nú vik ég að sjálfum mér, þar
sem mér þykir það miklu verra.
Þannig er mál með vexti að ég
er með nokkra filapensla eins og
það er kallað. Sýndi Magnús
mér allstóra túpu og sagði að
innihald þessarar túpu myndi
drepa filapenslana á svip-
stundu. I barnaskap keypti ég
þessa túpu. Þetta smyrsl heitir
Helosan-Salva og stendur ekki
einu sinni hvers lenzkt það er.
Hugsaði ég mér gott til glóðar-
innar að losna við þennan
óþverra og bar á mig I nokkra
daga eítir fyrirsögn frá
Magnúsi. En þessi óskhyggja
mln varð að engu enda ekki
nema von þar sem áhrifin urðu
á annan veg en ég hafði búizt
við. Andlitið roðnaðiallt og varð
rauðflekkótt. Mig klæjaði einnig
mjög I framan en filapenslarnir
döfnuðu vel áfram, ekki einn
einasti hvarf. heldur hafa þeir
bætzt við. Ég spyr, á að leyfa
svona manni eins og Magnúsi
frá Vesturbotni að reka verzlun
hér á landi ef sala hans er
ekkert nema svik og srettir ?
Vonast ég til að fólk sem hefur
átt viðskipti við Magnús frá
Botni láti skoðun sína i ljós.
Þökk fyrir.
Þorgrlmur óli