Vísir - 28.11.1974, Page 9
Guöni Stefánsson/ formaður
knattspyrnudeiidar Breiða-
bliks:
„Þetta er stórmál og það þarf að
athuga það betur áður en eitthvað
er gert. Þvi tel ég persónulega, að
þetta sé of snemmt, og vinnubrögð-
in hjá KSl heldur vafasöm.
Við þurfum fyrst að fá fleiri og
betri velli — þeir eru að visu að
koma, en ekki nægilega margir og
nógu góðir. En það kemur að þvi að
við verðum að fjölga, hvenær sem
það verður”.
Hafsteinn Guðmundsson,
formaður iþróttabandalags
Kef lavíkur:
,,Ég get ekki talað fyrir hönd
IBK, þvi þetta hefur ekki verið rætt
hér hjá okkur. Þetta hefur bæði
kosti og galla i för með sér og mér
finnst rétt að ræða gaumgæfilega
um þá á þinginu.
Einnig að ræða um hvort þessi
leið sé rétt, sem KSl stingur upp á.
Ég er viss um að félögin hefðu hag-
að sér öðruvisi i sumar, ef þau
hefðu vitað um þessa fjölgun —
örugglega liðin sem voru i 2. deild.
Svo er spurningin hvort við séum
tilbúnir að taka við þessu. Vellirnir
eru ekki nógu margir né nógu góð-
ir. Ef t.d. Haukar fara upp verða 19
leikir I Kaplakrika, sem er malar-
völlur og erfitt að selja inn á.
Ég er að vissu leyti fylgjandi
fjölgun en ekki sama um hvernig
hún er framkvæmd né hvenær”.
Stefán Runólfsson, formað-
ur iþróttabandalags Vest-
mannaeyja:
,,Ég get ekki svaraö fyrir okkur i
Eyjum, þar sem við hóíum ekki
rætt þetta okkar á milli. En min
stefna er algjört nei viö fjölgun.
Við höfum of stutt sumar til þess
og leikmennirnir eru of hart keyrö-
ir fyrir og ekki bætandi á þá.
Sumarið er alveg nógu áskipað hjá
þeim og ég efast um að þeir geti
staðið undir fleiri leikjum. Ég
endurtek það að þetta er min per-
sónulega skoðun”.
ólafur Sigurgeirsson, for-
maður knattspyrnudeildar
Hauka:
,,Við erum búnir að ræða þetta
mál og halda fund með leikmönn-
unum okkar. Við erum allir með
þvi að það verði fjölgað, en erum
ekki ánægðir með hugmyndina
hvernig á að gera það.
Við teljum að ef á að keppa um
þessi tvö sæti i 1. deild eigi Þróttur,
Haukar og Akureyri að keppa um
sætin, en ekki að Akureyri fái að
halda sinu sæti og við hin tvö félög-
in að slást um þetta eina. Það telj-
um við óréttlátt þvi við urðum
númer tvö i deildinni en Akureyri
féll úr 1. deild”. ,
Hilmar Svavarsson, for-
maður knattspyrnudeildar
Fram:
„Við höldum fund um málið i
kvöld og er þetta þvi min persónu-
lega skoðun. Ég tel það ekki tima-
bært að fjölga i deildinni og tel gall-
ana á þvi vera fleiri en kostina.
Keppnistimabilið er nógu langt
fyrir og álagið mikið. Þá finnst mér
vafasamt að hleypa liðum inn i
deildina, sem hafa ekki boðlega
velli —malarvelli sem ekki er hægt
að selja inn á og annað eftir þvi.
Verður það ekki iþróttinni til fram-
dráttar nema siður sé, þvi menn fá
enga ánægju af þvi að leika né að
horfa á leikina við slik skilyröi”.
Þœr hollenzku betri, en
litlu munaði í lokini
Litli Doninn
óstöðvandi!
varð að sætta sig við 2:0 tap á
heimavelli fyrir Banik Ostrava
frá Tékkóslóvakiu. Þá gerði
Dukla Prag það ekki siöur gott i
gærkveldi með þvi að sigra FC
Twente frá Hollandi 3:1. Skoruðu
Tékkarnir öll mörkin i fyrri hálf-
leik. Þessi lið mætast aftur 11.
desember og verða þá 8 liö eftir i
UEFA keppninni eins og hinum
tveim Evrópumótunum — en
leikirnir i 8 liða úrslitunum fara
fram i marz á næsta ári. -klp-
ÚRSLITIN
Úrslit i einstökum leikjum i
UEFA keppninni i gærkveldi urðu
sem hér segir:
Derby Englandi — Valez
Mostar Júgóslaviu 3:1
Napoli ítaliu — Banik
Ostrava Tékkoslóvak. 0:2
SV Hamborg V. Þýzkl. —
Dynamo Dresden A.-Þýzkl. 4:1
Partizan Júgóslaviu —
FC Köln Vestur-Þýzkal. 1:0
Dukla Prag Tékkoslóvak. —
FC Twente Hoilandi 3:1
Juventus ítaliu — Ajax Hol-
landi 1:0
Borussia Mönchgl. V.-Þýzkal. —
Real Zaragoza Spáni 5:0
FC Amsterdam Iiollandi —
Fortuna Vestur-Þýzkal. 3:0
Þeir Hörður Harðarson, vita-
skytta Armanns, og Kristinn
Pedersen, markvörður, urðu sig-
urvegarar i vltakeppni 1. deildar-
liðanna I handbolta eftir lands-
leikinn i Laugardalshöll i gær-
kvöldi. Þeir léku til úrslita við 1R,
sem var með Hörð Hákonarson og
Jens Einarsson I marki — og
Hörður vann þvi Hörð og Ármann
sigraði 4-2. Hvort lið fékk fimm
vitaköst.
1 fystu keppninni 'vann Fram-
FH 5-4, þar sem Guðmundur
Sveinsson skoraði úr öllum vitun-
um, en Þórarni Ragnarssyni mis-
tóksteitt. Þá vann Ármann Hauka
5-4, Kristinn varði eitt skot frá
Stefáni Jónssyni. Grótta vann Val
5-3, en Víkingur mætti ekki til
leiks gegn 1R.
1R vann svo Fram eftir fram-
lengingu (4-4)7-6, og Armann vann
Gróttu 4-3 I hinum leiknum I
undanúrslitunum. I úrslitum
vann Ármann svo örugglega.-
Markvörður Gróttu, Guðmundur
Ingimundarson, varöi flest vita-
köst markvarða. -hsim.
Steindór Gunnarsson, fram-
kvæmdarstjóri íþrótta-
bandalags Akureyrar:
„Við hér á Akureyri teljum það
orðið timabært að fjölga, og vonum
aö það verði samþykkt á fundinum
um helgina.
Erlendu þjálfararnir sem hér
voru I sumar bentu allir á nauðsyn
þess að fjölga liðum i deildinni og
ég er sammála þeim. Lið, sem er
óheppið vegna meiðsla eða af öðr-
um orsökum i 3 til 4 fyrstu leikjun-
um i deildinni, er hreinlega úr leik
vegna þess að leikirnir eru of fáir.
Menn mega ekki aðeins horfa á
árið 1975 heldur fram i timann.
Þegarfjölgaðvar 1959 voru menn á
móti þvi, en ég sé ekki betur en að
sú fjölgun hafi tekizt vel, og þvi ætti
ekki þessi að gera það lika”.
Björn Gíslason, formaður
knattspyrnudeildar Selfoss:
„Ég er samþykkur þvi að fjölga i
deildinni og láta þá tvö lið fara upp
á milli deilda á hverju ári. Knatt-
spyrnan i 2. deild hefur verið á
heldur lágu plani undanfarin ár og
aðsóknin léleg þrátt fyrir marga
góða leiki.
— Holland sigraði í fyrri landsleiknum í Laugardalshöllinni í gœrkvöldi með 10-9
íslenzka kvennalandsliðiö i
handboltanum stóð sig vonum
framar i landsleiknum við Hol-
íand i Laugardalshöllinni I gær-
kvöldi. Að visu tap — en aöeins
með einu marki — og það var litið
gegn liði, sem greinilega stóö
mun framar okkar — liöi, sem I
tvö siðustu skiptin hefur komizt I
lokakeppni heimsmeistarakeppni
kvenna. Lokatölur 10-9 fyrir Hol-
land og i kvöld I Hafnarfirði
mætast liðin á ný. Þrjár
breytingar hafa verið geröar á
Islenzka liðinu fyrir þann leik.
íslenzka liðiö byrjaði þó
skinandi vel — komst i 3-1 eftir
aðeins 5 min. Erla Sverrisdóttir
jafnaði fyrsta mark Hollands úr
vitakasti — siðan skoraði
Arnþrúður Karlsdóttir tvö falleg
mörk úr hornunum. En eftir að
Erlu hafði mistekizt vitakast fóru
þær hollenzku að siga á. Nel
Martens, langbezta handknatt-
Björg Jónsdóttir, fyrirliði Is-
lenzka landsliðsins, (til vinstri)
reynir langskot, sem markvörður
Hollands varði. Þær hollenzku á
linunni brosa, þegar boltinn var
varinn. Ljósmynd Bjarnleifur.
leikskonan I leiknum, skoraði
þrjú næstu mörk leiksins. Eftir
19 mln. var staðan orðin 5-3 fyrir
Holland, en minútu siðar tókst
Erlu að skora fjórða mark Is-
lands. Liðið hafði þá ekki skorað
mark i 15 minútur.
I leikhléi var staðan 8-6 fyrir
Holland — en byrjunin i siðari
hálfleiknum var góð hjá íslandi.
Arnþrúður skoraði tvivegis —
fyrst viti,'Og jafnaði I 6-6. Holland
komst I 7-6, en fyrirliðinn Björg
Jónsdóttir jafnaði — en siðar
urðu henni á mistök, sem kostuðu
mark. Missti boltann beint til
Martens úr aukakasti og sú
hollenzka brunaði upp og skoraði.
Næsta mark Hollands kom einnig
úr hraðaupphlaupi, og Holland
komst i 10-7 eftir vitakast. I lokin
réttu íslenzku stúlkurnar talsvert
sinn hlut og skoruðu tvivegis —
Guðrún Sigurþórsdóttir og
Arnþrúður — en hollenzka liðið
var ekki hið sama I lokakafla
leiksins, þar sem Martens meidd-
ist og lék ekki meira með.
Hollenzka liðið lék mun hraðar
og sendingar voru fastari, en það
voru þó fyrst og fremst
hraðaupphlaupin, sem gerðu út
um leikinn. Þar er Martens
snillingur —og þær Pottuijt, Els
Boesten og Gretha Balstra komu
næst henni I liðinu. Hjá Islandi
bar Arnþrúður af — og hef ég ekki
i annan tima séð hana leika betur.
Björg og Erla eru góða leikkonur,
en fengu að þessu sinni ekki nógu
mikið út úr leik sinum. Þá var
Guðrún hættuleg, þegar hún fór út
i hornin. Markvarzlan var ekki
nógu góð — en varnarleikurinn
hins vegar aðall liðsins.
Mörk Hollands skoruðu
Martens 4, Pottuijt 3 (2 viti), Puts
1, de Kok 1 og Boesten 1. Fyrir ts
land skoruðu Arnþrúður 5 (2 vlti),
Erla 2 (1 viti), Björg 1 og Guðrún
1.
1 kvöld verða þrjár breytingar
gerðar á islenzka liðinu. Þórdis
Magnúsdóttir, Viking, Jóhanna
Halldórsdóttir Val, — þær leika
sinn fyrsta landsleik — og Sigrún
Guðmundsdóttir Val, sem leikur i
kvöld sinn 17. landsleik og jafnar
þar með landsleikjamet Rutar
Guðmundsdóttur,Ármanni, koma
i stað Jónínu Kristjánsdóttur,
KR, öldu Helgadóttur, Breiða-
bliki, og Elinar Kristinsdóttur,
Val. — Þórdis leikur sinn fyrsta
landsleik I marki, en hún er systir
hins kunna handknattleiksmanns
67 heimsmet þess sterkasta!
Sovétmaðurinn Vasili Alexeyev
setti sitt 67. heimsmet i lyftinga-
keppni „sterkustu manna
heims”, sem háð var i London I
gærkveidi, jafnhenti 242,5 kfló,
sem er hálfu kflói meira en gamla
metiö, sem hann átti sjálfur og
setti I siðasta mánuði.
Flestum af beztu lyftingamönn-
um heims I yfirvigt var boðið til
þessa móts, og sigraði Alexeyev
með yfirburðum. Hann var með
samtals 420 kiló — 242,5 kg. og
177,5 kg. — Næstur kom landi
hans Analhek Enaldiev með
samtals 402,5 kg, en aðrir
keppendur komu þar þó nokkuö á
eftir.
Jóns Hjaltalin Magnússonar,
Vlking / Lugi. -hsím
Stoke í
3ja sœti
Stoke sigraði QPR I 1.
deiidinni ensku I gær 1-0 á
heimavelli sinum og færðist
við sigurinn upp I 3ja sæti á
töflunni. Er með 23 stig, eins
og Liverpool, en einu stigi á
eftir efsta liðinu, Manch.
City.
1 4. umferð deildabikarsins
sigraði Norwich Sheff. Utd.
2-1 eftir framlengingu og
leikur þvl á heimavelli við
Ipswich I 8-liða úrslitum. 1
Texakó-bikarnum sigraöi
Southampton Newcastle 1-0 I
fyrri úrslitaleik liðanna.
Tottenham sigraði Rauðu
stjörnuna, Belgrad, 2-0 i
gærkvöldi I ágóöaleik fyrir
Alan Giizean. t FA-bikarn-
um urðu úrslit þessi:
Tooting-Crystal Palace 1-2,
Ashford - Walshall 1-3,
Marine (áhugamannalið i
LiverpooK — Rochdale 1-2,
Lincoln-Pott Vale 2-0.1. deild
iSkotlandi Dundee Utd. -
Aberdeen 4-0.
Neil Young, sem lengi lék
með Manch. City, en fór
siðan til Preston, skoraði
sigurmark Rochdale gegn
Marine. -hsim.
Minnsti leikmaðurinn i vestur-
þýzku knattspyrnunni, Daninn
Alian Simonsen, var maðurinn á
bak við stærsta sigurinn i 16 liöa
úrslitum UEFA keppninnar I
knattspyrnu, sem leikinn var I
gærkveldi.
Þá voru leiknir átta leikir og
varsástærsti5:0. sigur Borussia
Mönchengladbach frá Vestur-
Þýzkalandi yfir spánska liðinu
Real Zaragoza. Simonsen skoraði
strax á 8. min. leiksins og aftur
rétt fyrir hálfleik. I siðari hálfleik
tók Josef Heynckes við og skoraði
næstu tvö mörk en Dieter Bonhof
skoraði það fimmta og siðasta.
Vestur-Þjóðverjar áttu þrjú lið
fyrir utan Borussia i eldlinunni i
UEFA keppninni i gærkveldi. SV
Hamburg vann einnig stórt — tók
Dynamo Dresden frá Austur-
Þýzkalandi 4:1, og skoraði
Daninn Björnemose tvö af mörk-
um Hamborgarliðsins i i leiknum.
Hin vestur-þýzku iiðin töpuðu
bæði — Köln fyrir Partizan frá
Júgóslaviu 1:0 og Fortuna fyrir
FC Amsterdam frá Hollandi 3:0
— Bæði léku þau úti en Borussia
og SV Hamburg voru á heima-
velli.
Juventus frá ítaliu marði
sigur gegn Ajax frá Hollandi.
Damiani skoraði eina mark
leiksins á 19. minútu en hitt
italska liðið i keppninni, Napoli
Með þvi að fjölga
ætti að koma gróska i 2. deildina
eftir nokkur ár, þvi þá verða þar
ætið nokkur lið, sem hafa leikið i 1.
deild, og hafa þvi þann gæða-
stimpil á sér.
Það þýðir ekki að standa og biða
og hugsa um málið — það verður að
gera eitthvað róttækt og til þess er
tækifæri á ntesta þingi”.
Hans Guðmundsson for-
maður knattspyrnudeildar
Vals:
„Við höfum rætt þetta hjá Val en
ekki myndað okkur heildarskoöun.
En ég er persónulega fylgjandi
fjölgun og þá að tvö lið fari upp og
tvö niður á hverju ári. Auk þess að
markatalan verði látin ráða.
En það er frumskilyrði, aö
leikirnir fari fram á almennilegum
völlum — sérstaklega leikirnir i 1.
deild. Að visu getur það alltaf kom-
ið fyrir að einn og einn leikur þurfi
að fara yfir á möl, en ótækt með
öllu, að sum liðin geti ekki né vilji
ekki bjóða upp á annað en malar-
velli”.
—klp—
Sigurvegarar Armanns I vltakastskeppninni. Hörður Harðarson (til
vinstri) og Kristinn Pedersen. Ljósmynd Bjarnleifur.
Varamennirnir
bjðrguðu Derby
Derby County lenti i hinum
mestu erfiðleikum með hið
óþekkta, júgóslavneska liö Velez
Moster á heimavelli slnum i
UEFA-keppninni I gær. Það var
ekki fyrr en Derby hafði sett inn
tvo varamenn aö sveifla kom I
leik liðsins. Það skoraði þrivegis
siðustu 18 minúturnar.
Vladic náði snemma i leiknum
forustu fyrir júgóslavneska liðið
— og þannig stóð þar til á 72. min.
að Jeff Bourne, sem kom inn i
stað Davies, jafnaði. Alan Hinton
— hann kom inn fyrir Francis Lee
— kom Derby svo i 2-1 og rétt i
lokin skoraði Bourne þriðja mark
Derby. Ahorfendur voru 26.131 og
voru þeir engan veginn ánægðir
með leik sinna manna, sem voru
lengi aö komast I gang. En eftir
þessi úrslit ætti Derby að hafa
góöa möguleika að komast i 8-liða
úrslitin. —hsím.
Arnþrúöur Karlsdóttir, Fram skoraði Hmm mörk I leiknum I gærkvöldi. A myndinni er hún frl á linu og
skorar fyrsta mark islands I leiknum. Ljósmynd Bjarnleifur.
Hörður vann Hörð
Fyrirgefðu, get ég
fengið eiginhandaráritun.
Ég er ferðamaður sem
elskar
Gunnlaugur Magnússon,
formaður knattspyrnudeild-
ar FH:
„Ég veit ekki — FH sem slikt
hefur ekki tekið afstöðu til þessa
máls. Málsmeðferðin er öll hin
furðulegasta að minu viti og ekki
rétt. Ef á að fjölga finnst mér að
Haukar og Þróttur eigi að fara
beint upp i 1. deild, en Akureyri
verði i 2. deild.
Þá finnst mér rétt aö málefni 2.
deildar verði könnuð betur, þvi það
er dýrt að vera i deildinni ”
Vilhelm Andersen, formað-
ur knattspyrnudeildar Vík-
ings:
„Ég tel aö það veröi knattspyrn-
unni til góös ef við fjölgum, og að
tillagan eigi skilyrðislaust rétt á
sér, enda hefur hún stuðning okkar
Vikinga.
Ég tel ekki ástæðu til að fjölga á
tveim árum eða á annan hátt, þvi
við það mun spennan i deildunum
minnka. Þetta er ágætt, eins og það
er fyrirhugað, enda ekki hægt að
gera það á annan hátt úr bessu”.
Haraldur Sturlaugsson, for-
maður knattspyrnudeildar
í A:
„Það hefur enginn fundur verið
um þetta mál hjá okkur Akur-
nesingum. En min persónulega
skoðun er, að það sé þegar nóg um
leiki og álagið á leikmenn allt of
mikið. Við erum ekki atvinnumenn
og það þarf að taka tillit til leik-
mannanna eins og annars i sam-
bandi við þetta.
Þá er sumarið hjá okkur það
stutt, að ef við fjölgum liðum verða
leikirnir það margir að það verður
aö byrja á þeim snemma i mai
leika langt fram á haust,það þýðir
margir malarleikir og af þvi eru
hvorki leikmenn né áhorfendur
sérlega hrifnir”.
Sveinn Jónsson, formaður
knattspyrnudeildar KR:
„Mitt persónulega álit er, að það
sé æskilegt að fjölga, en spurningin
er, hvort við séum tilbúnir til að
gera það núna.
Ég er hræddur um að kvótinn sé
oröinn fullur hér i Reykjavik og ná-
grenni með Evrópuleikjum, lands-
leikjum og öðrum aukaleikjum.
Þá er ég ekki ánægður með fram-
kvæmdina á þessu — það heföi átt
að búa betur um þetta og láta félög-
in keppa aö þessu marki hægt og
rólega.
En það kemur að þvi að við verð-
um að fjölga, hvort sem það verður
nú eða ekki”.
Helgi Þorvaldsson, formað-
ur knattspy rnudei Idar
Þróttar:
„Við Þróttararnir erum allir með
fjölgun, en á móti þvi að Akureyri
haldi sæti sinu i deildinni keppnis-
laust. Danir voru að fjölga I
deildunum hjá sér nú i haust, og þá
fóru neðstu liðin niður en hin komu
upp — bæði þau sem áttu að fara
upp og einnig liðin sem bætt var við
i deildirnar.Þannigá aö gera þetta.
Ég er bjartsýnn á að samþykkt
verði að fjölga, en reikna með
aðdeilurnarverði miklar á þinginu,
enda eru skiptar skoðanir um þetta
mál. En það er öruggt að við verð-
um að fara að fjölga, ef knatt-
spyrnan á ekki að koðna niður hjá
okkur”.
Á ársþingi Knattspyrnusambands (slands, sem haldið
verður um næstu helgi, verða mörg stórmál á dagskrá. Þar
ber hæst tillögu, sem núverandi stjórn KSI leggur fyrir
þingið, og er um fjölgun liða i 1. deild og bráðabirgða-
ákvæði um framkvæmd hennar.
Reglugerðin er að mestu sniðin eftir gömlu reglugerð-
inni, er samþykkt var árið 1958, er f jölgað var úr 6 liðum í 8
í 1. deild.
Breytingarnar, sem nú eru gerðar, eru i því fólgnar, að í
stað 8 liða í 1. deild verði þar 10 lið, og í 2. deild 8 lið. Þá seg-
ireinnig aðtvö liðskuli flyjast á milli deilda á hverju ári —
tvö neðstu liðin í 1. deild falli í 2. deild og tvö efstu liðin í 2.
deild fari upp í 1. deild.Neðsta liðið í 2. deild falli niður í 3.
deild, en sigurvegarinn i3. deildarkeppninni, sem skal vera
leikin í riðlum eins og verið hefur, komi upp i 2. deild í
staðinn.
Þá er nýtt ákvæði, sem segir að markatala skuli ráða röð
liða i deildunum, en til þessa hefur ætíð farið fram auka-
leikur, ef lið hafa verið jöfn í efsta og neðsta sæti.
I bráðabirgðaákvæði, sem fylgir þessari tillögu, er sagt,
að liðið, sem varð í neðsta sæti i 1. deild í ár — Akureyri —
haldi sæti sínu þar, en Haukar og Þróttur, sem urðu jöf n í 2.
deild— á eftir FH — skuli leika um tíunda sætið i deildinni.
ísfirðingar haldi sínu sæti í 2. deild, og liðið sem varð í
öðru sæti í úrslitakeppninni í 3. deild — Reynir f rá Árskógs-
strönd — komi uppí2. deild til að þar séu átta lið.
Mjög skiptar skoðanir eru meðal knattspyrnuforustu-
manna um ágæti þessarar tillögu, en aftur á móti eru
knattspyrnuunnendur almennt hrifnir af henni. Forustan
skiptist í þrjá hópa — sumir alveg á móti, aðrir eindregið
með og nokkrir á báðum áttum.
Er því Ijóst, að þetta mál verður stóra málið á þinginu,
þótt fyrir því liggi mörg önnur athyglisverð mál, auk þess
sem formanns og stjórnarkjörið getur orðið allsögulegt.
Við höfðum samband við nokkra forustumenn knatt-
spyrnunnar í landinu, og spurðum þá álits á fjölgun í
deildinni, og þessari nýju tillögu stjórnar KSI. Svörin bera
vott um átökin, sem verða'á þinginu, þegar þetta mál kem-
ur til umræðu, en þau voru á þessa leið:
Á AÐ FJÖLGA f 1. DEILD NÆSTA SUMAR?