Tíminn - 19.05.1966, Blaðsíða 6

Tíminn - 19.05.1966, Blaðsíða 6
6 MMMTDDAGUR 19. mai 1966 TfMINN DDÁC , m ii v i mesta þol- raun ársins Nú standa próf yfir. Nú er að standast mestu þolraun árs ins og hver nemandi verður að líta á vorprófin sem þolraun. Hvort sem nemandinn hefur verið húðlatur eða mjög sam- vizkusamur í vetur var hon- um nauðsynlegt að nýta upp- lestrarfríið til hins ítrasta, og sé rétt að farið, getur margt áunnizt. Frumskilyrðig er sálarró og kyrrlátt umhverfi, svo unnt sé að beita sér sem bezt að lestrinum. Foreldramir verða að sjá svo um, að kyrrð ríki á heknilinu meðan upplsstrar- fríið og prófin standa yfir og ennfremur að sjá fyrir því, að bamið eða unglingurinn hafi ekki við mörg persónuleg vandamál að etja. Á undanfömum árum hefur fjöldinn allur af nemendum hætt við framhaldsnám vegna persónulegra vandamála, vegna taugaóstyrks eða vegna erfiðleika við að einbeita hug- anum. Rannsóknir sýna og sanna, að því taugaóstyrkara sem nemandinn er við nám, þeim mxm erfiðar reynist hon um að lesa og ná prófi. Sálarró cr jafn nauðsynleg og skýr hugsun. >ví miður er ekki unnt að kaupa hana fyrir fé, en foreldrarnir og jafnvel heimilislæknirinn geta hjálp- að með því að sýna skilning, og nemandinn má ekki undir neinum kringumstæðum lenda í neinum æsingi eða verða fyr ir sálarröskun- Nemendumir eiga allt lífið framundan að námi loknu og þá gefst nœgur timi til alls kyns hugleiðinga um vandamálin, bæði stór og smá. Því er nauðsynlegt að láta þessi vandamál sitja á hakan- um, því að með náminu er ver ið að leggja homstein undir at vinnu framtíðarinnar. Það borg ar sig í hæsta máta að drífa í sig kjark og ráðast fullhuga í námsbækumar. Að visu er ekki unnt að vinna upp þann tíma, sem set- ið hefur verið auðum höndum um veturinn. Hið fyrsta, sem þarf að gera áður en upprifj- unin hefst er að gera sér grein fyrir námsefninu — bæði því sem vel er lesið, og einnig því sem illa er lesið. Hefur maður heildarsýn yfir námsefnið? Það er aðalatriðið að haía heildaryfirlit yfir nárasefnið. Ef námsbókin er þykk og erf itt er að gera sér grein fyrir meginatriðunum, getur verið ágætt að komast yfir lítið kver sem í stuttu og almennu máli iskýrir eingöngu aðalatriðin. Þegar heildaryfirlitinu er náð er tiltölulega auðvelt að prjóna við aðalatrjðin á hrað- virkan og auðveldan hátt Ef smáatríðin eru lærð án heild- aryfirlits gliðnar námsefnjð í höndum némandans og ferfitt veitist að muna það. Áður en próflesturinn hefst, verður nemandinn að gera sér fulla grein fyrir námsefninu, þ.e.a.s. um hvað það fjalli og Nemendur í Hagaskólanum að taka landspróf. að því loknu að ráðast í þann hluta námsefnisins, sem verst er lesinn. Það er skynsamlegt að halda sig við tímaáætlun, þannig að dagurinn snúist ekki við, og það borgar sig engan veginn að taka örvandi lyf. því að þá verða menn taugaspennt ir þegar líður að prófunum. Ef nauðsyn krefur má drekka svart kaffi, en það er óæski- legt. Þær ráðleggingar, að gott sé að fara í lamga göngutúra dag- inn fyrir próf, kunna að eiga við suma, en skynsamlegt er að lesa á daginn og svo á kvöldin er gott að hlusta á létta tónlist eða skreppa í kvik myndalhús. Næsta dag verður nemandinn að ganga til prófs frískur og bjartsýnn í þeirri trú, að hann hafi gert það sem í hans valdi stóð — og láta for sjónina sjá um afganginn- Ef prófið er skriflegt ber að lesa spurningarnar mjög vei og skrifa hjá sér aðalatriði svar anna fyrst. Ef próftíminn er þrjár Mukkustundir og spurn ingarnar eru sex, þá skal reikna hálftíma á hverja spurn ingu og byrja á þeim léttmtu. Það er betra að skrjfa þokka lega um allar spurningamar en gera helmingnum af þeim góð skil og sleppa hinum. Um- fram allt ber að skrifa snyrti- lega og greinilega. Prófdóm- arinn er mannlegur og hann vrður argur yfir að þurfa að lesa úr illa skrifuðu verkefnj. í munnleg próf ber nemand um að fara snyrtilega klædd um og einnig að haga sér kurt eislega. Munið það, að kennar inn er efcki að reyna að gera ykkur erfitt fyrir, heldur leyn ir hann í alla staðj að hjálpa ykkur. Það er nefnilega kenn aranum metnaður, að nemend nmir standi sig vel. Hlustið vel á, hvað spurt er um, og svarið rólega og íhug að. Ef eitthvað stendur i manni má biðja um að geyma spuminguna, svarig kcmur af sjálfu sér. þegar maður er að svara næstu spurningum. Nem endurnir verða að vera sallaró legir og umfram ajlt mega þeir ekki „lokast”. Gangi nemanda mjög illa í ejnu prófi, verr en hann á skii ið, dugir ekki að missa kjark inn, hann verður að vona, að næst gangi honum betar en hann á sMlið og oftast revnist það rétt. Ef nemanda gengur afskap lega illa og hann fellur, þá verður hann að taka þeim ó sigri sem maður, þv[ ag mói- byr mætir öllum í lífinu, herða hugann, bíta á jaxlinn og bvrja á nýjan leik — reynsluani rík ari. Svar að Kirkjubóli Það er ekki miklu við að bæta grein Halldórs Kristjánssonar, Kirkjubóli í Tímanum í gær. En sannarlega veit ég ekki hvað ég má kalla Halldór ef ekki Halldór á Kirkjubóli, og það einmitt í Timanum! Þó er skylt að leiðrétta nokkr- ar vafasömustu fullyrðingar Hall- dórs. 1) Eg hef ekki farið skakkt með, rangfært eða falsað neitt af ummælum Halldórs um Þórodd Guðmundsson frá Sandi. Halldór segir um eina hendingu Bertel Gripenbergs í þýðingu Þórodds, þar sem þýðandi snýr mérkingu frumtextans alveg við, að á þýð- ingunni sé „meira blæmunur en efnismunur beinlínis." Þessi um- mæli Halldórs tók ég upp með þessum orðum: „Það kallar Hall- dór á Kirkjubóli blæmun en ekki efnisP' Hver er rangfærslan? Þessa átyllu notar Halld. Kristjáns son, Kirkjubóli til að halda áfram leiðinlegum persónulegum dylgj- um í minn garð. Má ég rifja upp fyrir Halldóri það sem hann seg- ir sjálfur svo spaklega, „að með því að fara rangt með annarra orð eru menn sjálfir að koma því inn hjá lesendum sínum að ann- aðhvort hafi þá brostið greind til að fara rétt með eða rangfært vilj- andi — vegna óvöndunar." Hvers vegna kýs hann útúrsnúninga og dylgjur sem deiluaðferð? 2) Þar sem ég segi að mikið efni bíði enn lítt eða ekki athug- að þar sem séu verk okkar helztu Ijóðaþýðenda, Matthíasar, Stein- grims, Magnúsar Ásgeirssonar, á ég einfaldlega við það að þessi efni hafa enn ekki verið könnuð á fræðilegan hátt frekar en svo margt annað í seinni bókmennt- um okkar. Rannsókn á ljóðaþýð- ingum 19. aldar með athugun á vinnubrögðum þýðendanna og sam anburði við frumtexta, mati á verð leikum og áhrifum þýðinganna, er þó forvitnilegt viðfangsefni og yrði markvert tillag tO íslenzkrar menningar- og bókmenntasögu, sama gildir að sínu leyti um verk Magnúsar Ásgeirssonar. Það kem- ur þessu máli hins vegar ekki hót við hvort við Halldór Kristjánsson, Kirkjubóli höfum lesið þessar þýð ingar lengur eða skemur. 3) Þessi deila snýst ekki um það hvort einstakar þýðingar ein- stakra þýðenda séu „affallalaus- ar“. Hún snýst um það hvort höf- undum sé leyfilegt að gefa út af sér ómengaðan íslenzkan leirburð undir nafni erlendra höfuðskálda. Ég tel að slíkt háttalag sé óleyfi- Framhald á 11. siðu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.