Tíminn - 19.05.1966, Blaðsíða 9

Tíminn - 19.05.1966, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 19. maí 1966 TÍMINN MINNING Stefán Jónsson rithöfundur Stefán Jónsson, rithöfndur og keíinari, verður borinn til moldar á morgun. Stefán var fæddur að Háafelli í Hvítársíðu i Mýrasýslu 22. des- 1905 og var því rúmlega sextugur að aldri gr hann andað ist. Foreldrar hans voru hjónin Anna Stefánsdóttir frá Tungu í Svínadal og Jón Einarssou frá Fljótstunigu í Hvítársíðu Stefán nam í héraðsskólanum á Laugar- vatni og síðan Kennaraskólanum og tók kennarapróf 1933. Síðan gerðist hann kennari við Austur- bæjarskólann í Reykjavík og kenndi þar síðan til dauðadags. Hann var kvæntur Önnu Aradótt ur, ættaðri úr Stöðvarfirði og lifir hún mann sinn. Þótt Stefán gegndi kennarastörf um í þrjá áratugi og væri afburða- kennari, sem í engu dró af sér, var hann einnig mikilvirkur og virtur rithöfundur og bækur hans eru nokkuð á þriðja tugi sumar allstór skáldverk, og hvergi kast að til þeirra höndum, heldur eru þau unnin af alúð og hörðum listrænum aga. Stefán Jónsson var því tvígildur í ævistarfi og vel það og þó átti hann við mikla van heilsu að stríða hin síðari ár og dró það verulega úr star.fsþoli hans. Stefán átti sæti um skeið í stjóm Stéttarfélags bamakennara í Reykjavfk og stjóm Sambands ísL bamakennara og vann marg- vísleg trúnaðarstörf fyrir stétt sína enda bar hann hag hennar fyrir brjósti og átti traust stéttarbæðra sinma í ríkum mæli. Stefán Jónsson var afburðakenn ari, og bar margt til þeirra kosta. Hann bjó yfir óvenjulega næmri og ríkri samúð með fólki, og alveg sérstaklega bömum. Gáfur hans vora miklar, skap hans beitt en þó milt, hreinskilni hans fölskva laus, gamansemin leiftrandi og snjöll og karlmennskan í hugsun frábær. Ást hans á fögra máli og frjálsbornum hugsunum lék ætið sem bjarmi um viðmót hans og viðhorf. Ef Stefán Jónsson náði ekki vinartenigslum við börnin, ekki síður þá pilta, sem voru ofur- lítið öfugsnúnir, þá var engum treystandi til þess. En sterkasti þáttur áhrifavalds hans í kenn- j arastarfi var að mínum dómi sá, að hann dró aldrei skýra marka- línu milli fullorðinna og barna, leitaði hiins fullorðna í barninu, og bamsins í fullorðnu fól'ki. Mannskilningur hans var svo næm ur, að hann brauzt gegnum þessa ytri skel og fann þá götu í manns sálinni, þar sem börn og fullorðn ir eiga samleið. Og þetta var einn ig yndislegasti þátturinn í rithöf undarlist hans og þá meistaralegu ratvfsi átti enginn íslenzkur höf undur á borð við hann. Stefán Jónsson var ekki harður bókstafsfcenmari, og mér er nær að halda, að hann hafi stundum tekið frjálslega á námsgreinum, en hann gæddi þær lífi og lit, leiddi ung og fús böm í glaðan og forvitnilegan heim á oak við bókina, glæddi sjálfstæða og frjálsa hiuigisun þeirra, þroskaði málfar, khnni og skilning, og það var eins og hann sjálfur væri alit af að læra af börnunum, undrast og dást að skilningi þeirra á líf- inu. Hin frábæra kennsla hans átti sér ekki burðarás í þurri kennslufræði, þó að hann læsi mikið um þau mál, heldur fá- gætum mannkostum. Hér er Jm miður hvorki rúm né tóm til þess að lýsa gildi Stefáns sem rithöfundar, en það mun ekki of mælt, að verk hans séu gædd sérstæðum töfrum o® efnistökum, sem vart eigi sér hlið stæðu meðal íslemzkra samtíma- höfunda, og því var hanm sterkur og persónulegur höfundur með mjög þroskaðan stíl. Hann hafði fundið og náð tökum á strengjum, en enginn kunmi að leika á sem hann. Það er alkunna, hvemig hann gat talað beint í huga barna og unglinga og ofið þar saman alvöru og gaman lífsins, og þegar hann sendi síðar frá sér ágæt skáldverk fremur ætluð þeim, sem fleiri ár eiga að baki, komst hann jafnlangt með sömu tökunum. En þeir, sem persónuleg kynni höfðu af Stefáni, skilja þetta ef til vill betur. Maðurinn var svo óvenjulega vel af guði gerður. Ég veit ekki, hvort ég hef kynnzt manni með viðfeldnari gaman- semi og kímni á valdi sínu. Leik ur hans með létt og ljúft skáld- mál og rím var ætíð hátíð og gerði hverja stund ljúfa. Samúð hans með fól'ki og velvild í garð ann arra var svo rík, að laðaði og seiddi. Þó var krafa hans um frjálsa hugsun ætíð afdráttarlaus og stundum harðleikin, gagnrýni á yfirdrepskap, blekkingum og ó- ráðvendni eða sérgæzku dómská og óvægin, en ást hans til manns ins fölskvaði það aldrei. Með Stefáni Jónssyni, ritliöfundi er fallinn frá á bezta aldri mað ur, sem alveg óvenjulegur mann- skaði er að frábær kennari, snjall og sérstæður rithöfundur yg hug- stæður gáfu- og mannkostamaður. Slíkir menn era salt jarðarinnar og manniífsins. Eg hygg, að m'örg um þeim, seim Stefán þekktu, per sónulega eða af skáldverkum hans, og kennslu, muni fara eins og mér, að finnast sfcarð hans alveg sér- stakáega stórt og vandfyllt, þvi aS þegar maður hefur notið kynna við slíka menn, verður erfitt að sætta sig við að lifa án þeirra. Og hver er það, sem næst mun leika með sömu snilli á hörpuna, sem Stefán Jónsson er genginn frá? Hver mun kenna eins og hann eða skrifa eins og hann? Ég sendi Önnu konu hans inni- legar samúðarkveðjur. Andrés Kristjansson. Lítill telpuhnokki gengur Freyju götuna og fer sér ósköp hægt, því alvara og hátiðleiki þessarar stund ar hvílir með nokkrum þunga á herðum hennar. Hún er sumsé á leið til kennara síns að hljóta frekari tilsögn í þeirri eðlu kúnst að lesa og frumkennslu í tölu vísindum. Þung augnlok hvolf ast yfir augu, sem era alltof lít- il fyrir stórt höfuð, hálsinn er enginn og ógnarlangir leggir, já svo langir að telpunni finnst sjálfri þeir ná upp að hálsi. Hefur reynd ar séð það með augunum sínum, þar sem hún hefur virt fyrir sér spegilmynd sína í gluggarúðum á leiðinni. Það er ósköp leiðinlegt að hafa svona asnalegt útlit og vera í þokkabót svo ungur að kunna ekkert annað ráð til úr- bóta á sköpunarverkinu en glenna upp augun og teygja úr hálsinum, það sem þá er afgangs af orku fer í að hafa stjórn á þessum ógnar- löngu leggjum Svo er telpan komin inn í stofu og inn gengur kennarinn, langt höfuð. mikill hnakki, dökk gleraugu, pokabuxur, köflóttir sokkar og klossar. Telpan er sig in fremst á stólsetuna, tollir á henni einungis vegna innri spennu. Kennarinn kemur nær, telpan held ur niðri í sér andanum og ekki a ðvita hevrnig því hefði lyktað ef hún hefði ekki í tæka tíð komið auga á hvernig augu hans brostu, já meira að segja allar hrakkurn ar í andliti hans brostu. Og allt í einu gerði ekkert til hvernig mað ur var í laginu, maður gat vel ver ið eitt og annað þó hálsinn væri ekki alveg eftir máli. Svo áður en hún vissi af voru þau farin að tala saman og urðu sammála um hvernig ætti að kveða að orðun- um. F skyldi vera f, en ekki v, og eitt err í orði gat sem bezt hljómað sem þrjú, gott _ef ekki fleiri ef fallegt þótti. Úr öllu þessu varð dálítið leyndarmál á milli þeirra tveggja, leyndarmál sem þau nefndu fslands er það lag, það var sál þjóðarinnar, lif- andi, viðkvæm og særanleg. Þau spjölluðu um gildi talna og það var mikill furðuheimur fyrir telp unni, því það lá ekki alveg í aug- um uppi að telpunni fannst, að einn væri einn og tveir væru tveir. En svo fór að lokum að þau sættust einnig á þetta og þá var gaman. Kennarinn sá líka fleira, en þær töliT sem á blaði stoðu. Allt«f . á hann fleiri fleti á hverjutfc steini en þá sem að snera. Stundum var farið bak hlið þess veruleika, sem menn þekkja sem lófa sína, og þar, að baki alls sem er, áttu sér rót þær hugsjónir, sem smáfólk átti sín- ar vonir í. Langa tíma ira þess um fyrstu kynnum hafði telpan þann mælistokk einn á gildi manna að í fari þeirra ytra eða ínnra fyndist eitt af því sem prýddi þennan mann. Sjaldnar og sjaldnar lágu leiðir saman, en þegar það var bar alltaf á góma þetta bákn, sem kallast þjóðfélag og það varð, að telp- unni fannst, mest áríðandi að skipta um allar innréttingar í því gamla skrifli — að hinu varð æ sjaldnar hugað hvernig voraði að baki þeirra vídda er menn sjá frá einum stað. Svo hratt feykir gustur tímans því sem er, yfir á blað þess liðna, að svo er, sem hver andrá beri í sér hvoru tveggja — liðið — bergmálar enda leysið og gerir haldlaus þau rök,. sem uppi átti að hafa. Enn var telpan að telja sér trú um brýna þörf þess að troða nýj- um skúffum í skápana, þegar hún frétti lát kennara síns — það var eins og sópaðist af henni kjör villan og henni varð litið á þessar innréttingar og spurði: Hvað í ósköpunum er ég að gera með þetta dót —* hvar er allt fólkið? Og varð ljóst að þetta var villan, sem þau ræddu fyrir þrem árum. Hana minnir að þau hafi ákveðið að spjalla betur saman síðar — en af því varð ekki. Nú finnst henni hún vera eins og telpan sem slóraði svo lengi á leið til skólans, að þegar þangað I kom hafði kennarinn lokið við i söguna skemmtilegu og stelpa varð varð af gríninu. Engu verður héðan af bætt við isögu Hjalta eða hinna, og breka barnið hann Gutti er nú pabba- laus, því Stefán Jónsson er látinn. Eftirlifandi konu Stefáns Önnu Aradóttur vildi ég mega votta einlæga samúð mína. Gunnvör Braga. Það er áreiðanlega ekki óalgengt að barnakennarinn öðlist sérstak an og áhrifamikinn sess í hugum sinna ungu nemenda, verði þeim ímynd vizku og réttlætis, nokkurs konar hálfguð. Hitt vill svo gjarn an brenna við, að eftir að barna skólaárunum sleppir gleymist þessi merkilegi lærifaðir, efcki sízt, þegar börnin fara að sjá, að hann hafði ekki alltaf rétt fyrir sér. Bamakennarar eru vitaskuld alveg eins og fólk er flest, hafa kosti og galla, veikleika og styrk leika eins og allir aðrir, en þeir eru misjafnlega vel starfi rJnu vaxnir misjafnlega sterkirpersónu leikar, O'g ná eins og allir vita misjafnlega sterkum ítökum í hug um hinnar ungu kynslóðar, sem þeim hefur verið falið að ala upp. Ég veit ekki hvort það var fyrir skarpar gáfur, sterkan persónu- leika og ríka réttlætiskennd, sem Stefán Jónsson öðlaðist sérstæðan og varanlegan sess í hugum okk ar nemenda sinna. Þessa framan töldu kosti hafði hann til að bera í ríkari mæli en flestir aðrir, sem ég hef kynnzt, en ég hygg, ið vinsældir hans hafi fyrst og fremst stafað af því að hann kom til móts við okkur sem maður og vinur, en ekki strangur yfir- boðari, kom til dyranna eins og hann var klæddur, en sýndi ekki hræsni eða yfirdrepshátt, kom fram við okkur sem sjálfstæðar verar með sjálfstæðar skoðanir, en efcki sem krakkakjána. Ég veit að ég rnæli fyrir munn þeirra hundruða barna, sem hann leiddi fyrstu skrefin út á námsbrautina: Það veganesti, sem hann lét okkur í té mun reynast haldgott og var anlegt alla ævi. GÞK. Það er nokkuð langt að iwra hugann reika alla leið til ársins 1931, en þá var ég ráðinn kennari við Austurbæjarskólann f Reykja vík. Ekki man ég nú, hvemig á því stóð að ég var fenginn til þess að kenna í æfingadeild Kennara- skólans, sem hafði aðsetur í Grænuborg, mun það hafa verið í forföllum einhvers æfingakenn arans. Meðal þeirra nemenda, sem komu þarna til kennslu var Stefán Jónsson rithöfundur og kennari, sem nú hvarf svo snögglega frá okfcur af vettvangi jarðlífsins. Þetta var í fyrsta sinni, sem fundum okkar bar saman. Við þessi fyrstu kynni var mér ljþst að hér fór maður sem þegar hafði rnikla innsýn í barnshugann. Hann sagði nemendum sfcutta sögu og enn man ég það, að hann sagði hana á svo listrænan hátt, með goð látlegri kímni, að allir hlutu að hlusta, sér til óblandinnar gleði. Ekki skal ég fullyrða neitt um þessa sögu af honum Bensa, sem mig minnir að söguhetjan héti, hvort hún hefur verið drög að hans fræga ritverki, sögunni af honum Hjalta litla, en ekki fcæmi mér það á óvart. Stefán varð fcennari við Austur bæjarskólann árið 1933. Þar unn um við saman til ársins 1960, er ég bætti þar störfum. Það er nú alþjóð kunnugt, hvílíkur snilling ur Stefán var að tala við nemend ur og skrifa bæfcur, einfcum fyrir yngri kynslóðina. Nokkuð ætti mér ! að vera kunnugt um kennslu Stef : áns og viðhorf nemenda til hans, þar eð við vorum svona lengi sam starfsmenn við skólann. Kennsla hans var framhald af fyrstu kynnum okkar 1931 í Grænuborg. Allir nemendur elsk uðu hann og virtu, og hugur þeirra var opinn fyrir fræðslu hans, þannig var hún framsett með snilldarbrag. Ég er viss um að þeir munu samþykkja þetta einum rómi og af hrifningu, er þeir hugsa tii skóladaga sinna. Oft er mælt að góður sé hver genginn. En ég veit engan samstarfsmann okkar Stefáns, er ekki mundi telja þessi orð meir sönn og rétt. Sagt er, að margir menn séu aðrir í störfum en í kynningu. Ekki var því svo farið með Stefán. Hann var alltaf hinn sami ijúfi og glaði félagi, bæði í starf og á gleði stundum. Störf hans og dagleg kynning einkenndist af hinu sama, mann- ást og snilligáfum. Við hjónin minnumst nú margra gleðistunda úr Austurbæjarsfcólan um, þar sem hann var hrókur alis fagnaðar. Alúðin og hin góðlát I Frambald á 1L s£3u

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.