Tíminn - 21.05.1966, Blaðsíða 6

Tíminn - 21.05.1966, Blaðsíða 6
18 TÍMINN LAUGARDAGUR 21. maí 1966 SKYGGNZT fl BAK VID VÍGSLUTJÚLDIN A8 ondanfömu hefur varla lið ið sá dagur, að ekki hafi farið fram eins konar vígsluathafnir á hinum og þessum mannvirkjum, sem eiga flest tiltakanlega langt í land með að vera fullbúin, að það er vitaskuld skemmtilegra, að vígja þau við hátíðlega viðhöfn fyrir kosningarnar, og láta svo Morgunblaðið birta hrífandi mynd ir og fjálglegar frásagnir af öllu saman. Ekki ber að lasta það sem vel er gert, og vissulega eru þessi mannvirki, hvort sem þau eru rólu- vellir eða sjúkrahús mjög vel þeg in af borgurunum, enda greidd úr eigin vasa, en ekki gjafir frá borgarstjórnarmeirihlutanum eins og maður gæti freistazt til að ætla af sumum skrifum Morgimblaðs- ins, en þetta var nú reyndar útúr- dúr. Ein ákaflega hátíðleg, en jafn- framt ánægjuleg vígsluathðfu fór fram síðastúðinn miðvikudag. Þá gafst gestum kostur á að líta mjög reisulegt og glæst upptökuheimiii við Dalbraut hér í borg. Lýsing á þessu bamaheimili hefur áður komið hér í blaðinu, og óþarft er að endurtaka hana, en það er augljóst mál, að hér hefur verið stigið drjúgt skref í framfaraátt í barnaheimilamálum borgarinnar, enda ekki seinna vænna. Vígsla þessa reisulega upptökuheimilis, kom okkur nefnilega til að hugsa um annað óhrjálegra bamaheimili sem ekki hefur mikið verið í fréttunum, en hefur um langt árabil hýst þau böm, sem af ein- hverjum ástæðum hafa ekki getað dvalizt á heimilum sínum um lengri eða skemmri tíma og að öllum líkindum mun starfræksla þess halda áfram að minnsta kosti um nokkurn tíma, enda þótt Upp- tökúheimilið við Dalbraut verði tekið í notkun bráðlega. Barnaheimilið að Silungapolli þekkja flestir Reykvíkingar, enda eru þau efcki fá reykvisku börn- in, sem eiga þaðan einhverjar end urminningar. Húsið var reist fyr- ir hálíum fjórða áratug af félög- um úr Oddfellowreglunni, er ráku þar sumarbúðir fyrir böm um nokkurt skeið. Fyrir mörgum ár um hóf Reykjavíkurborg þar rekst ur vistheimilis fyrir böm á aldr- Gluggar aru óþéttir, og gólfdúkar úr sér gengnlr. Þessi litli drengur er eitt af tæplega þrjátlu vistbörnum á Pollinum. Eiga þau ekkl skilið betri aðbúnað en raun ber vitnl? Viðhaldið á Silungapolll hefur verið með endcmum. Húsið hefur .ekki verið málað að utan I þrjú ár og ber þess glöggiega merki. Skyldl nokkur geta ímyndað sér, að í þessum timburhjalli hafi stundum dvalizt 100 börn samtlmlf? inum tæpra tveggja til sjö ára, og voru þetta böm, sem vegna veikinda foreldra og annars kon- ar örðugleika gátu ekki dvalið á heimilum sínum eins og önnur börn. Svo sem að framan greinir var hið upprunalega hlutverk Sil- ungapolls, að hýsa yfir sumartím- ann eingöngu, böra úr Reykjavík, sem ekki áttu kost á reglulegri sveitavist, og til slíkra hluta er húsið vel til fallið og staðsetning- in ákjqsanleg. Hlutverk Silunga- polls í uppeldismálum borgarinnar hefur hins vegar verið annað og meira, þótt ekki hafi verið til þess ætlazt í upphafi. Þetta hefur verið hið eiginlega heimili marga Reykja víkurbarna, sem ytri aðstæður hafa útilokað frá því að lifa reglulegu fjölskyldulífi, lítilla umkomuleys- ingja, sem hafa átt um margt sárt að binda í lífinu. Það dylst engum, sem þekkir húsakynnin að SilungapoIIi, að þar er ákaflega erfitt að reka vistheimili, enda þótt það hafi verið gert um margra ára skeið, og í samanburði við Upptökuheimilið við Dalbraut virðist Silungapollur eins og nokk- urs konar fátæktarheimili eins og maður þekkir úr skáldsögum eftir Dickens. Það er varla orðum auk- ið. að húsið sé hvorki vatnshelt, né fokhelt og að sögn einnar starfs stúlkunnar er á vetrum jafnvel kaldara þar inni en úti Húsið var málað gult fyrir þremur ámm, en málningin er flögnuð af á köflum, og má byggingin öllu fremur kall- ast móskelótt en guL Gluggar em óþéttir, gólfdúkar úr sér gengnir og ðll aðstaða afar óheppileg, sagði Stefanía Jóhannsdóttir fósta á Sil ungapolli, er við gerðum okkur ferð þangað fyrir skemmstu. — Aðbúnaður starfsliðsins er afar slæmur. Um innbyggða skápa er varla að ræða, og geymslupláss mjög takmarkað. Það kann að eiga sinn þátt í því, hve starfs- stúlkur tolla hér skamman tíma, en vinnan er ákaflega erfið, eins og yfirleitt á svona vistheimilum, og vitaskuld bæta þessar óhent- ugu aðstæður ekki úr skák. Þrengsli em efcki teljandi sem stendur, enda em börnin með fæsta móti núna, tæplega þrjátíu talsins. Til skamms tima hafði Reykjavíkurdeild Rauða krossins hér 40—50 böm tvo mánuði yfir sumartímann, og þá vom þrengsl- in gífurleg og engin aðstaða til leikja innanhúss. Flest munu bömin hafa verið hér 100 samtím- is, en með góðu móti er ekki hægt að hafa hér nema um 30 börn. En aðstaðan er þó hvergi nærri góð sem stendur, börnunum er skipt niður í tvær deildir, eldri og yngri, en það er varla nokkur leið að láta þessar tvær deildir blandast og leika sér saman. Þær tvær leikstofur, sem við höfum, em hvor í sínum enda hússins og hvor ug nægilega stór til að börnin geti verið þar öll samtímis. Þetta er þeim mun erfiðara, þar sem oft er um að ræða systkini hvort í sinni deild. Hér em þrír svefn- skálar, tveir fyrir yngri börnin, en krakkarair í eldri deildinni sofa öll í sama skála. Þvi miður em hér engin eins manns herbergi handa þeim, sem erfið eru og geta á einn eða annan hátt ekki blandað geði við hin, en slíkt vill oft brenna við fyrst þegar börnin koma hing- að. Ef eitt 'bamið veikist af smit- andi sjúkdóm smitar það öll hin, því að ekki er hægt að einangra það. Það er mjög margt hér sem þarfnast lagfæringa við, og helzt þyrfti að gera gagngerðar endur- bætur á húsinu, ef vel ætti að vera, en staðurinn hér er ljóm- andi skemmtilegur og yfir sum artímann, þegar krakkarnir geta verið úti mestallan daginn hafa þau mjög margt við að vera, og þá finnur maður ekki eins fyrir því, hve aðsteeðurnar em óheppi- legar. Ekki væri ólíklegt að ætla, að eftir að Upptökuheimilið við Dal- braut er komið, verði Silunga- gollur lagður niður meg pomp og pragt, en fái ef til vill að gegna sínu upprunalega hlutverki, þ.e. að hýsa einungis börn nokkra mánuði um sumartímann. En hlut verki Silungapolls sem uppeldis- héimilis er alls ekki lokið að því er virðist, og hann á- greinilega eftir áð hýsa marga munaðarleys- ingjana enn í náinni framtíð. Upp tökuheimilið við Dalbraut rúmar nú nákvæmlega 15 börn og þegar öllum framkvæmdum þar verður lokið geta dvalizt þar 45 börn allt Framhald á bls. 22. Niðurlægingin blasir hvarvetna við. Það er ekki sök starfsfóiksins. Það á | þökk skilið að vinna við þessar erfiðu aðstæður.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.