Tíminn - 25.05.1966, Blaðsíða 1

Tíminn - 25.05.1966, Blaðsíða 1
Auglýsíng i Tímanuro kemur daglega fyrir augu 80—100 þásuad lesenda Gerizt áskriíendur aö Tímanum. HringKS 1 síma 12323. 117. tbl. — Miðvikudagur 25. maí 1966 — 50. árg. Þessi mynd var tekin fyrir skömmu af folaldinu þrifætta og móður þess. (Timamynd Sveinn ísleifss.) ÞRIFÆTT FOLALD P.E.-Hvolsvelli. Sá einstæði atburður skeði á vinnuhjúaskildaga (14 maí) að hryssa, eign Marmundar Kristjáns sonar bónda á Svanavatni í Aust •ur-Landeyjahreppi kastaði hest folaldi, sem hefur aðeins einn framfót. Svolítið mótar fyrir bógi þeirn megin, sem eftir lögmálinu fjórða fætinum ber að vera. — Sýnist þessi vanskapningur vera furðu fimur að brölta um f til- verunni. Hann er fífilbleikur að lít eins og móðirin, en bæði eru þau ihæðginin dekkri á tagl og fax. — Hryssan er 10 vetra göm- ul og hefur eignazt sex eða sjö réttsköpuð afkvæmi og fékk Mar- mundur bóndi sitt vænsta folald undan henni í fyrra. — Ekki verður annað séð, en þrí- fótur litli dafni eðlilega og sé við beztu heilsu. Hann bregður líka á leik eins og annað ungviði á vor- dögum þegar sólin þerrar gróðrar- skúrirnar af gróskumi'klum ný- græðingnum á túninu austan við Svanavatn. 3 GAMLIR URÐU .--'-xHH AÐ ÞREM NYJUM TK-Reykjavík, þriðjudag. Alþýðuflokkurinn segist hafa unnið mikinn sigur. Ekki höfum við á móti því, að litli flokkur- inn uni glaður við sitt en hins vegar viljum við gera nokkrar at- hugasemdir við „útreikningana" á þessum „mikla sigri.“ Eins og skýrt var frá í blaðinu í gær bætti Alþýðuflokkurinn við sig 1718 atkv. í Reykjavík, miðað við borgarstjórnarkosningarnar, en fékk hins vegar 51 atkvæði færra en við alþingiskosningamar 1963. Ennfremur var þess getið, að mið- að við heildarúrslit í þeim kaup- stöðum utan Reykjavíkur, þar sem hrein flokkaframboð voru nú og 1962, er Framsóknarflokkurinn eini flokkurinn sem jók hlutfalls- legt fylgi sitt þar, en Alþýðu- flokkurinn staðið í stað. í yfirliti á forsiðu Alþýðublaðsins segir, að Alþýðuflokkurinn hafi bætt við sig 4 bæjarfulltrúum, þ.e. unnið 6 fulltrúa en tapað 2 og aukið hlutfall sitt í kaupstöðunum um 3.2%. Sannleikurinn er hins vegar sá, að Alþýðuflokkurinn bætti aðeins við sig einum bæjarfulltnía þegar litið er á kaupstaðina í heild. Alþýðuflokkurinn vann fulltrúa i Reykjavík, Akureyri og Ólafs- firði eða samtals þrjá, en tapaði fulltrúa í Hafnarfirði og á Seyðis- firði eða samtals tveimur. En hvernig fær Alþýðuflokkur- inn þá þessa þrjá, sem í milli ber? Alþýðuflokkurinn telur sig hafa unnið tvo fulltrúa á ísafirði og einn fulltrúa á Sauðárkróki, en á þessum stöðum var Alþýðuflokk- urinn í samstarfi við aðra flokka 1962 og fékk þá jafnmarga full- trúa af sameiginlegum listum og hann fékk nú af flokkslistum sín- um — og það sem meira er: Al- þýðublaðið telur atkvæði Alþýðu- flokksins á ísafirði og á Sauðár- króki hreina aukningu á atkvæða magni flokksins í heild og þykist sem sagt engin atkvæði hafa átt á ísafirði eða Sauðár- króki í síðusta kosningum. í yfir- litinu er Alþbl. birtir um hlutfall flokkanna telur blaðið að Fram- sóknarflokkurinn hafi tapað tveim Samningar verkalýösfélaganna aö renna út SAMNINGAVIDRÆDUR EKKI HAFNAR ENNÞÁ •eykjavík þriðjudag. mningaviðræður milli laun- og atvinnurekenda virðast að byrja fyrir alvöru óvenju þetta árið. Þótt aðeins sé vika þar til samningar verka na og verkakvenna renna út, r ekki heitih, að samningav'ð ræður séu liafnar, og engar kröf- ur hafa enn verið lajðar fram fyr- ir atvinnurekendur. Munu bæjar- og sveitastjórnarkosningarnar, sem nú eru ný afstaðnar, vafa- laust eiga höfuðsök á þessum drætti á samningaviðræðum. Blaðið ræddi í dag við Hannibal Valdimarsson, forseta«-Alþýðusam- bands íslands, og Þórir Daníels- son hjá Verkamannasambandi ís- lands, og spurði þá um væntan- legar samningaviðræður. — Nú sem stendur eru samn- ingar aðeins lausir hjá almennu verkalýðsfélögunum, þ. e. verka- manna- og verkakvennafélögunum, — sagði Hannibal. — Samningar iðnfélaganna. svo sem járnsmiða. trésmiða og annarra iðnaðarmanna eru ekki lausir fyrr en með haust- inu, flestir í október. — Samningarnir nú fyrri hluta Framhaid á bls. 14. ur bæjarfulltrúum á Akranesi og öllu atkvæðafylgi sínu þar, þótt flokkurinn hafi þar tvo fulltrúa eins og áður, en kosna af sam- eiginlegum lista. Þannig fær Al- þýðuflokkurinn fylgisaukningu sína — hvað þessa 2 staði sneirtir — með því raunverulega að draga frá hlutfallstölunni 1962 og bæta jafnmiklu við hlutfallstöluna núna, Framhald á bls. 14. LAXVEIÐI- VIKAN Á 500 POND KJ—Reykjavík, þriðjudag. Eitt af því, sem ferða- skrifstofur í Englandi bjóða fólki upp á, er laxveiði í Vatnsdalsá í vikutíma, en eins og kunnugt er, hefur brezkur maður, Mr. Cooper, ána á leigu. Þessi vikudvöl kostar rúm 500 sterlings- pund eða um 60 þús. ísl. krónur, en þá ber að geta, að allt er innifalið, ferðir, veiðileyfi o. s. frv. Cooper hefur endurleigt Stanga- veiðifélaginu Laxinn júní- mánuð og september, og hjá því félagi kostar einn dagur í ánni með fæði og uppihaldi í hinu gfæsilega veiðihúsi 1.700 krónur. Cooper gerði tíu ára leigusamning um ána fyrir tveim árum, og voru þar í ákvæði um byggingu veiði húss, fiskirækt í ánni o. fl. svo að erfitt er að reikna út í beinhörðum peningum hvað hann greiðir fyrir ána á ári, en bein peninga- greiðsla til leigjendanna mun vera í kring um 900 þúsund, sem getur breytzt ef gengisbreytingar verða á leigutímabilinu. Cooper leigir fjórar steng ur á dag í ánni, svo hann fær 2000 sterlingspund á viku í leigu, en verður að sjá veiðimönnum fyrir ferð um frá Reykjavík, sem oft- ast eru með leigubílum, öllu uppihaldi fyrir norðan akstri til og frá veiðistöðun um, auk ótal margs annars sem laxveiðimenn óska eft ir þegar þeir eru við veiðar. Þrátt fyrir þessa háu leigu í augum okkar, mun hagnaður Coopers af ánni ekki vera svo oskaplegur, og mikið af leigunni fer aftur í vasa íslendinga fyrir margs konar þjónustu við laxveiðimennina.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.