Tíminn - 27.05.1966, Page 3

Tíminn - 27.05.1966, Page 3
FÖSTUDAGUR 27. maí 1966 TÍMINN Hafa áhrif í þing- kosningum MorgunblaSið hefur sem kunnugt er síðustu daga ham azt við að neita því. að ielja beri úrslit bæjarstjórnarkosn- inganna á nokkum hátt áfall fyrir ríkisstjómina eða stefnu hennar. Það segir, að alls ekki megi draga slíkar ályktanir af bæjarstjórnarkosningum, því að ..staðbundnar ástæður“ ráði þar ætíð svo miklu. í gær kveð ur allt í einu við annan tón í urðinni í Sir Mogga. Þar segir: ,,Á næstu vikum og mánuð- um munu stjómmálaflokkarn- ir hér á Iandi kryfja til mergj ar úrslit borgar- og sveitastjórn arkosninganna s.I. sunnudag. Vafalaust munu niðurstöður þeirra hafa áhrif á stefnu flokkanna í þingkosningum þeim, sem fram eiga að fara að ári.” Þannig játar Moggi. að rétt- mætt sc að líta svo á, að við horf þjóðarinnar til ríkisstjórn ar ckki aðeins geti komið fram í borgarstjómarkosningum, hcldur hafi komið fram í þess- um kosniingum, og réttmætt sé að stjórnmálaflokkamir — og þá væntanlega ekki sízt rík- isstjómarflokkarnir, láti niður stöður þeirra ,,hafa áhrif á stefnu flokkanna í þingkosning um”. Sir Moggi er sem sagt farinn að láta undan siga. Hann er að játa með þessum orðum að kosningarnar núna hafi ver ið ósigur fyrir Sjálfstæðisflokk inn og ríkisstjórn hans, og hann er að reyna að friða sína óánægðu menn með því að segja þeim að hann muni rcyna að læra eitthv. af þessari bend- ingu fyrir næstu þingkosning- ar. Auðséð er, að nú vill hann byrja strax að reyna að iaða til sín á ný þá óánægðu menn, sem snera við honum bakinu á sunnudaginn var. Hver á að sýna ábyrgðartilfinningu? f gær birtist í Morgunblað- inu leiðari, sem hét ,,EinföId staðreynd” og þessa einföldn staðreynd orðar Moggi á þessa leið: „Ef íslenzka þjóðin vill í raun og sannleika lækna mein verðbólgunnar verður hún að sýna meiri ábyrgðartilfinningu og líta af meira raunsæi á hag sinn heldur en hún liefur gert um skeið”. Moggi veit sem sagt upp á sína tíu fingur, hver hin „ein- falda staðreynd” um lækningu verðbólgunnar er. Hún er að- eins sú, að þjóðin sýni meiri ábyrgðartilfinningu. En ríkis- stjórnin þarf ekki að sýna á- byrgðartilfinningu hvað þá raunsæi í fangbrögðum við verðbólguna — bara þjóðin. Svo aumlegan húsbónda höfum við nú á þjóðarheimilinu að hann vanpar ábyrgðinni á helm ilisfólkið og kennir því um. þeg ar hann getur ekki gegnt hús- bóndaskyldum sínum og for- ysta öll rennur út í sand. , Kosningaúrslitin ’ Úrslit kosninganna hafa þeg ar orðið ýmsum efni f stöku eins og stundum áður. Kona í Keflavík sendi Tímanuin þessa | vísu i gær, og er ekki furða, 5 þótt slík vísa sé nú ort á þ<*-im stað: ITöpin verða meiri og raeiri, missir þráfalt veiðina íhaldið, því fleiri og fleiri fara hina leiðina. til þess að hlusta á söngvara. Mariu varð það á að koma he’l ur seint, svo að koma hennar vakti mikla athy.gli og ljós myndararnir höfðu nóg að gera við að ná af henni Ijós myndum. Eftir skemmtun- ina átti svo Maria Callas nokkr ar samræður við Juliette Greco um söng hennar og hældi henni á hvert reipi. ★ Frú Julia Mtóngwa, sem er þeldökk kona og býr í Suður Afríku hafði keypt sér eitt hvert fegrunarkrem árið 1963 og þegar hún hafði notað eina túbu af þessu kremi, tók hún eftir því, að hún var farin að fá hvíta bletti í andlitið og smátt og smátt varð hún hvít ari og hvítari, unz andlit henn ar, háls og bringa var orðið hvitt. Rauð af skömm yfirgaf Julia vinnustað sinn, en hún var ráðskona og hóf mál gegn fyr- irtæki því, sem framleiddi krem það, sem hún notaði og fór það svo, að fyrirtækið var dæmt til þess að greiða henni um 140.000 krónur fyrir þann miska, sem hún hafði orðið fyr ir. Nú hefur Julia fengið aftur sirtn eðlilega hörundslit, nema bringa hennar er enn hvít. ★ Charles de Gaulle er sífellt að verða fjandsamlegri og fjandsamlegri í garð Banda ríkjamanna. Fyrir skömmu kom hann á veitingastað í Lille og á matseðlinum þar stóð hum ar a 1‘americaine (humar á ameríska vísu) sem forréttur. Hershöfðinginn lét þegar í stað breyta þessu og nú héitir rétt urinn humar með tartarasósu. ★ Hér sést dansk-franska leik- konan Anne Karina og er myndin tekin í Cannes. Anna Karina leikur aðalhlutverkið í einni af mest umtöluðu kvik- myndunum, sem sýndar hafa verið í Cannes — en það er kvikmyndin Nunnan. Myr.din hefur annars verið bönnuð í Frakklandi en fékk þó að vera með á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Maður nokkur í Sydney leit aði til dómstólanna, eftir að eiginkona hans hafði af ein- hverjum óskýranlegum ástæð um ráðizt á hann, eftir að þau höfðu verið í mestu rólegheit um að ræða um það, hvort þau ættu að gróðursetja gular eða rauðar rósir í garðinn. Fyrst kastaði konan að hon um illgresi úr fötu, því næst tveim garðstólum, ösku- bakka úr messing, og með hvössum hornum og að síð- ustu ferðaútvarpstæki sem eft- ir þá meðferð var ekki lengur útvarp. Því næst réðist konan á mann sinn, skar utan af hon um öll föt með hníf og beindi að honum garðslöngunni og að lokum afklæddi hún sjálfa sig og kastaði fötunum í mann sinn. Dómurinn í máli þessu féll og hann hljóðaði ekki upp á skilnað, heldur var konan dæmd til þess að borga 6000 króna sekt fyrir ósæmilega framkomu. Þar sem hún réð ekki yfir neinum peningum, varð eiginmaður hennar að borga sektina fyrir hana. * Manni, sem á að afplána fangelsisvist, finnst það senni- lega nokkuð rýmilegt að fá viku til að kveðja konuna sína. En fyrir hinn 54 ára gamla Jantzsche í Utah verður það sennilega heldur naumur tími, því að hann á hvorki fleiri né færri konur en fimm, sem hann þarf að kveðja. Jantzsche var einmitt dæmd ur í fangelsi fyrir fjölkvæni og er dómurinn fimm ára fang- elsi — eitt fyrir hverja konu. ★ Söng- og leikkonan træga, Juliette Greco hefur að undan förnu haldið hljómleika í Olym pique i París við góðar undir tektir. Eitt kvöldið gerðist það að Maria Callas kom á tónleik ana og er þetta í fyrsta únn. sem hún kemur í hljóm'eikasal f SPEGLI TlMANS Fyrir skömmu síðan fór fram kjör ungfrú USA 1966 og varð þessi stúlka, sem hér sést á myndinni, fyrir valinu. Hún heitir Maria Remenyi og er 20 ára og hefur búið í Bandaríkjunum frá 1956, en þá flúði fjölskylda hennar þangað frá Búdapest. Maria talar fjögur tungumál og leggur stund á nám í rafeindafræði við háskól ann í Berkely. Eins og sést á myndinni er hún dökkhærð og er þetta í fyrsta sinn á fimrh árum sem dökkhærð stúlka hefur hlotið náð fyrir augum dómnefndarinnar í fegurðar- samkeppninni. Á VÍÐAVANGI

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.