Vísir - 04.12.1974, Blaðsíða 1

Vísir - 04.12.1974, Blaðsíða 1
64. árg. — Miövikudagur 4. desember 1974 — 244. tbl > Ali kom Kaupa og vildi Nígeríumenn Skuttogarar bœta um skó frá og betur Egilsstöðum? öryggisbelti — sjá bls. 5 — baksíða — baksíða Meiri aðsókn útlendinga en nokkru sinni áður er atvinnuleysi í Evrópulöndum, segir Árni Sigurjónsson hjó útlendingaeftirlitinu ,,Ég hef veriö hér i 28 ár, og það hefur á þeim tima aldrei verið önnur eins aðsókn að landinu”, sagði Árni Sigurjónsson hjá útlendingaeftirlitinu i viðtali við Visi. „Þaö stafar náttúrlega af þvi, að það er mikið atvinnuleysi viða I Evrópu, og menn reyna þá að bjarga sér eftir beztu getu”. En ekki kunna allir réttar leiðir til þess, þvi til þess að fá að vinna hér þurfa menn að hafa fengið at- vinnuleyfi áður en þeir koma. Ef þeir koma sem ferðamenn, fá þeir leyfi til að koma inn i landið sem slikir, en geta ekki breytt þvi eftir á. „Undanfarna daga hafa menn frá útlendingaeftirlitinu farið i fyrirtæki til að kanna, hvort þar séu að störfum útlendingar, sem ekki hafa atvinnuleyfi”, sagði Arni. „I þeirri yfirferð höfðum við afskipti af 30-40 manns, sem er þó ekki verulega mikið”. Arni sagði, að margvisleg dæmi kæmu uppá, þegar þannig könnun er gerð. Stundum kæmi fólk af er- lendu þjóðerni, sem ætti hér náin skyldmenni, og enginn hugsaði út i, aö ekki gilti hið sama um þá og islenzka rikisborgara. Nýlega kom hingað maður fæddur á Islandi, en uppalinn i Danmörku, sem hefði þurft að ákveða og til- Bannað að fara á sjóinn aftur Tveir sjómenn af brezka togaranum Crystal Palace voru i gær dæmdir frá allri togarasjomennsku ævilangt af agadómstól brezku útgerðar- innar. Sá þriðj i var straffaður i 8 vikur. t máli fjórða mannsins hefur ekki verið dæmt. Sjómenn þessir komu fyrir agadómstólinn vegna spjalla og likamsmeiðsla, er þeir ollu fyrir nokkru, er togarinn lá á Þingeyri. Fóru tveir menn fram á miskpbætur, 50 þúsund krónur hvor, vegna likams- meiðinga, en samtals munu kröfur á hendur sjómönnunum hafa verið um 250 þúsund. Skipstjórinn skuldbatt út- gerðarfélagið til að greiða tjónið, er togarinn hélt frá Þingeyri.Otgerðinni mun hafa þótt upphæðin nokkuð há og fór fram á sundurliðun. En að sögn Kaupfélagsins á Þingeyri og annarra, er urðu fyrir tjóni, var sundurliðunin strax send umboðsmanni útgerðarinnar i Reykjavik. Þingeyringar hafa sjálfir ekki fengið kvartanir frá útgerðarfélaginu vegna upphæðarinnar. —JK kynna i tæka tið, hvort hann óska- aði eftir þvi að verða íslendingur eða Dani, en hvort tveggja trassað og stæði þvi uppi án nokkurra borgararéttinda i nokkru landi. Enginn útlendingur fær að koma inn i landið, sem ekki hefur farseöil til baka og nægilegt fjár- magn til að sjá sér farborða hér. Fimm manns hefur verið neitað um landgönguleyfi hér á árinu, og samkvæmt samningum um nor- ræna samvinnu fá þeir þá heldur ekki landgönguleyfi á hinum Norðurlöndunum. „Þar að auki er nokkur hópur, sem við höfum sagt að eigi ekkert 'erindi hingað inn i landið, til dæmis vegna þess að þeir hafa brotið af sér hér. Þeim mönnum er gefinn kostur á að koma sér burtu aftur af sjálfsdáðum, án þess að um beina neitun sé að ræða, sem myndi loka þeim leið til landgönguleyfis á Norðurlönd- unum. Töluverður hópur hefur lika fengið tilmæli um að koma sér i burtu af einhverjum sökum. Þar af höfum við aðstoðað minnst 30 við að komast burtu, það er að segja ekið þeim út á flugvöll og séð um, að þeir kæmust burtu — en fyrst er mönnum gefinn kostur á að gera það án slikrar að- stoðar”, sagði Arni Hjá útlendingaeftirlitinu vinna nú fimm manns, en eftirlitið fær liðsauka frá lögreglunni, þegar þörf krefur. — —SH 20 DAGAR TIL JÓLA Enn um sinn getum við keypt hangikjötið okkar á þvi veröi, scm gilt hefur óslitið frá 1. október. Og það viröist nóg af þvf á mynd- inni, sem tekin er i Rcykhúsi StS. — Ljósm, Visis: Bragi HANGI- KJÖTIÐ HÆKK- AÐI EKKI — Skrifstofumistök, segir framkvœmda- stjóri Framleiðsluróðs landbúnaðarins „Þetta var bara misskilningur milli min og þeirra I sex manna nefndinni — skrifstofumistök, sem ekki koma fyrir aftur, meðan ég sit hér”, sagði Sveinn Tryggvason, framkvæmda- stjóri Framleiösluráðs land- búnaðarins, varðandi rækilega auglýsingu Framleiðsluráðsins, um, að verö á hangikjöti hefði ekki breytzt um leiö og aðrar landhúnáöarafuröir. „Þetta stafaði af þvi, að ekki var nógu vel talað um hlutina, og ég á ékki sjálfur sæti i nefndinni lengur, svo ég veit ekki nema af frásögn hvað fram fer á fundum þéirra”, sagði Sveinn Ekki vildi hann segja til um ástæðuna fyrir þvi, að hangi- kjötið hækkaði ekki nú, en geta má þess til, að talið hafi verið að hangikjötið sem nú er til, hafi verið keypt til verkunar og verkað á lægra verði og án þess að hækkanir hafi náð til þess. Hangikjöi . verkað eftir 1. desember. mun hækka þegar þar að kemur, og verður nýja -.'erðiö þá auglýst aftur. En þangað til er smásöluverð á hangikjöti fyrsta flokks 391 króna kilóið i lærum en kr. 308 i frampörtum, og hefur það ver.ð gilt frá 1. október —SH Jólasveinninn í getrauna- heimsókn til stórskóldanna Getraunajólasveinn Visis lætur ekki á sér standa frekar en fyrri daginn. Likt og undan- farin ár ætlar hann að stytta lesendum blaðsins stundirnar og hvila þá frá jólaamstrinu þessa siðustu daga fyrir jól. Spurningarnar i jólagetrauninni eru ekki af verra tag;nu. Þær fjalla allar um heimsfræga rithöfunda og hvaða verk þeir hafi samið. Getraunin hefst i blaðinu i dag og stendur næstu 10 daga. Siðan verður dregið um verðlaunin úr réttum úrlausnum. Fyrstu verðlaun eru ekki af verri endanum. Glæsilegur stereo-útvarps-segulbandsmagnari, með sambyggðum há- tölurum, metinn á hvorki meira né minna en 57 þúsund krónur. Það er Nesco sem leggur til þennan glæsilega vinning. Getraunin bvrjar i dag á bls.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.