Vísir - 04.12.1974, Blaðsíða 2

Vísir - 04.12.1974, Blaðsíða 2
2 Vísir. Miðvikudagur 4. desember 1974. TÍSDtSm: Hafið þér keypt yöur einhverja nýútkomna bók? Siguröur Reynisson, húsasmlöa- nemi: —Nei, enga. Ég les nú ekki mikiö. Þaö er aöallega timaskort- ur sem kemur I veg fyrir bóka- lestur hjá mér. Pétur Hafstein, laganemi: — Nei, ég er ekki byrjaður að athuga markaðinn ennþá. Ég er önnum kafinn við próflestur þessa dag- ana, og hef þvi ekki haft tíma. Finnur Sigurgeirsson, bókari: — Ég hef ekki haft neinn tima til þessennþá. Ef til vill blð ég bara eftir jólunum. Maður fær venju- lega nokkur stykki I jólagjöf. Ólafur Jónsson, skrifstofumaöur: — Nei, ég er ekkert byrjaður að athuga með bækurnar ennþá. Ég bið bara eftir að hafa tima til þess. Kannski fær maður eitthvað af þeim i jólagjöf. Kristjana Jónsdóttir, skrif- stofustúlka: — Enga ennþá. En ég ætla að kaupa mér bókina Á hverfanda hveli, til að lesa um jólin. Svo fæ ég alltaf nokkrar i jólagjöf. Hjálmar Hannesson, menntá- skólakennari: — Ja,ég er nú með Farsældarikið og manngildis- stefnuna undir hendinni. Skúla Thoroddsen keypti ég um daginn og konan gaf mér Bréf til Láru Svo fæ ég yfirleitt eitthvað af bók- um i jólagjöf, og finnst það skemmtilegustu jólagjafirnar. JÓLAGETRAUNIN William Shakespeare (1564 - 1616) afrekaði það á ævi sinni að skrifa yfir 35 leikrit. Flest hafa öðlazt gifur- lega frægð, og eru talin sigild. Setjið kross fyrir framan það svar sem ykkur þykir rétt. Geymið siðan seðilinn, þangað til allir tiu hafa birzt. Bókamenn eins og við Is- lendingar erum, ættu ekki að vera I miklum efiðleikum með jólagetraunina núna. Jólasveinninn mun heimsækja alla helztu rit- höfunda, sem uppi hafa verið, og færa þeim jólagjafir. Um leið spreyta lesendur Visis sig á hvert af þremur tilnefndum verkum viðkomandi hafi samið. Auðvitað eru spurningarnar mátulega léttar, þannig að enginn á að vera I efiðleikum með að finna réttu svörin. Samtals verða það tlu rit- höfundar, sem fá heimsókn jólasveinsins og lesendanna. Þegar þeim heimsóknum er lokið, senda lesendur úrlausnir sinar I getrauninni allar saman I einu umslagi, ásamt nafni og heimilisfangi. Dregið verður úr réttum svör- um og vinningar afhentir fyrir jól. William Shakespeare A) Kardemommubæinn skrifaði: B) Hamlet C) ívar hlújárn — Að vera eða vera ekki.......í jólaskapi! WELTRON- KÚLAN FRÁ NESCO í 1. VERÐLAUN Fyrstu verðlaun i jólagetrauninni er ó- hætt að nefna pakka af krásum. Verðlaunin eru sam- byggt stereo- útvarps- segulbandstæki, með magnara og tveimur hátölurum. Weltron 2004 nefnist það. öll þessi tæki eru byggð inn i kúlu. Útvarpstækið i Weltron 2004 tækinu er með langbylgju, mið- bylgju og FM-stereobylgju. Þá er einnig magnari i tækinu, og stereo-kassettu- segulsbandstæki með upptöku. A hiiðum Weltronkúlunnar eru tveir hátalarar. En einnig er hægt að fá tækið með lausum hátölurum. Eins og fyrr er það hljóm- tækjaverzlunin Nesco á Lauga- vegi 10 sem leggur til þennan glæsilega verölaunagrip. Verðmæti Weltron-kúlunnar er 57.300,- krónur. Notkun tækisins er ekki bund- in við 220 volta heimilis- straum, þvi það gengur einnig fyrir rafhlöðum, ef þvi ér að skipta. Ýmiss konar aukahluti er hægt að fá með Weltronkúlunni, t.d. heyrnartæki, hljóðnema og aukahátalara. Hvað tæknihliðar tækisins snertir ætlum við að láta ósagt hér, en bendum forvitnum lesendum á að lita við i Nesco og fá helztu upplýsingar hjá fag- mönnunum þar. —ÓH Birgir Helgason verzlunarstjóri I Nesco viröir fyrir sér Welt- ron-kúluna, sem lesendum VIsis gefst kostur á að vinna með þátttöku I jólagetrauninni. Ljósm. VIsis: BG.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.