Vísir - 04.12.1974, Blaðsíða 4

Vísir - 04.12.1974, Blaðsíða 4
4 Vlsir. MiBvikudagur 4. desember 1974. DiómnmiuR Fjölbreyttar veitingar.Munið kalda borðið Opiðfrá kl. 12—14.30 og 19—23.30. wnmnpsBftn HOTEL LOFTLEIÐIR Bifreiðaeigendur athugið Enn er nokkuð eftir af hinum vinsælu LYDEX-hljóðkútum og púströrum i flest- ar gerðir bifreiða, á gamla ótrúlega lága verðinu. Komið og athugið verðið á meðan birgð- ir endast. Setjum pústkerfi undir bila. Siminn á verkstæðinu er 83466. Sendum i póstkröfu um land allt. Bílavörubúðin Fjöðrin Skeifunni 2. Simi 82944. Smurbrauðstofan Njólsgötu 49 — Simi 15105 BÆKUR Leikur að ljóðum Almenna bókafélagið hefur gefið út nýja bók eftir Krist- mann Guðmundsson. Nefnist hún „Leikur að ljóðum”, og er, eins og nafnið ber með sér, ljóöabók, þótt Kristmann sé þekktari fyrir sögur sinar. Elzta ljóðið i bókinni er frá 1913, en bókin skiptist i þrjá megin- kafla: Æskuljóð, Ljóð frá miðj- um aldri og Ljóð frá siðari ár- um. í Ljóöum frá miðjum aldri eru nokkur á norsku. Bókin er 107 bls. að stærð og kostar 1298 krónur. Kjarvalskver Helgafell hefur gefiö út bók- ina Kjarvalskver eftir Matthias Johannessen ritstjóra, og er þab safn viðtala, sem Matthias átti við listamanninn á sinum tima. Bókin er i fremur stóru broti, prýdd nokkrum myndum og sumum i lit. Fjöldi blaðsiðna er 108 og verðið er 1726 krónur. Islands kóngur SJÁLFSÆVISAGA JÖRUNDAR HUNDADAGAKONUNGS Skipstjórinn, erindrekinn, byltingarmaöurinn, njósnar- inn, Islandskóngurinn, rit- höfundurinn, leikskáldið, presturinn, refsifanginn, spilagikkurinn, hjúkrunar- maðurinn, landkönnuðurinn, blaðamaðurinn, útgefandinn og lögregiuþjónninn Jörgen Jurgensen segir frá. Hilmirhí Akureyri Með þessari bók er höfuöstað Norðurlands sannarlega gerð verðug skil með fjölmörgum fallegum og vel völdum lit- myndum. Það er Iceland Review, sem gefur út þessa fall- egu myndabók, en Kristján skáld frá Djúpalæk hefur ritað textann. Hér er um að ræða ákjósanlega vinarkveðju til út- lendinga, sem upplifað hafa Akureyri, og eflaust munu ís- lendingar ekki siöur hafa gam- an af að skoða bókina, enda þótt textinn sé á ensku. Bókin kostar 2380 krónur. Ást og öngþveiti i íslendingasögum Thomas Bredsdorff, danskur rithöfundur og fræðimaður, er höfundur að nýútkominni bók, sem heitir Ast og öngþveiti i ís- lendingasögum. Er þar að finna niðurstöður rannsókna höfund- ar á llfsmynd íslendingasagna, þar sem fram kemur sagna- mynstur hinna ástriðufullu ásta og hættunnar, sem þjóðfélaginu er búin, þegar þeim er fylgt eftir án þess að hirða um lög og réttarvenjur. Þetta er tilraun til að skýra ástæðuna fyrir öng- þveiti og upplausn islenzka þjóöveldisins. Almenna bóka- félagið gefur bókina út, hún er 164 bls. að stærð og kostar 1428 krónur. DIPREIÐA EIGEnDUR! Aukið ÖRYGGI, SPARNAÐ og ÁNÆGJU ( keyrslu yðar, mcð því að lófa okkur annast stillingarnar á bifroiðinni. Framkvaamum véla-, hjóla- og Ijósastillingar ósamt tilheyrandi viðgorðum. Ný og fullkomin stillitaeki. O. Engilbert//on h/I Stilli- og Auðbrekku 51 vélaverkstæði Kópavogi, sími 43140 SCULPTOR ASMUNDUR SVlCINSStKN Sculptor Asmundi Sveinssyni eru gerð skil i þessari bók frá Iceland Review. Sáralitið hefur verið gefið út af bókum um islenzka listsköpun á erlendum tungum, en hér er leitazt við að bæta nokkuð úr. Matthias Johannes- sen ritstjóri, hefur ritað texta bókarinnar og notar að sjálf- sögðu samtalsformið, sem hann er þekktur fyrir. Nær 40 ágætar myndir eru i þessari nýstárlegu útgáfu, en þær tóku Sigurgeir Sigurjónsson og Guðmundur Ingólfsson, ljósmyndarar hjá ímynd. Textann þýddu May og Hallberg Hallmundsson, en Auglýsingastofa Gisla B. Björnssonar sá um útlit bókar- innar. Bókin kostar 1785 krónur út úr búð. Hjalti kemur heim Þessi bók er þriðji og siðasti hluti Sögunnar hans Hjalta litla og fimmta bindið í heildarút- gáfu ísafoldar á barna og ung- lingabókum Stefáns Jónssonar. SÖgurnar af Hjalta litla hafa náð miklum vinsældum og hafa ekki dofnað, enda þótt langt sé siðan hægt var að festa kaup á bókum um hann i bókaverzlun- um. Sovézki listamaðurinn Orest Vereiski hefur gert 11 teikningar sérstaklega fyrir þessa útgáfu bókarinnar. Verð úr bókabúð er 1488 krónur. Ljóðasafn Jóhannesar úr Kötlum Heimskringla sendi frá sér fyrir nokkru 5. og 6. bindi ljóða- safns Jóhannesar heitins úr Kötlum. Fyrra bindið nefnist Sól tér sortna — Sóleyjarkvæði. Hið siðara Annarlegar tungur og Hlið hins himneska friðar. Verð bókaranna er 1547 krónur hvor. nokkrar SKÓLA IÁ! rOSTSENDUM SPORT&4L ! HHrUMMTORGi SAAJASJAR SMÁSJÁR

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.