Vísir


Vísir - 27.12.1974, Qupperneq 1

Vísir - 27.12.1974, Qupperneq 1
64. árg. —Föstudagur 27. desember 1974, —261. tbl. HVAÐ SEGIR VÖLVAN UM ÁRIÐ 1975? - Sá hún náttúruhamfarirnar í Neskaupstað fyrir? — bls. 3 Jólin í Nes- kaupstað — rœtt við hótelstýruna í Egilsbúð, Kristrúnu Jóhannes Eðvaldsson: Lízt bezt á til- boðið frá Sviss Axel Axelsson: Liðurinn eins og í sjötugum manni Enska knattspyrnan: Efsta liðið tap- aði fyrir því neðsta Sjá íþróftir í opnu Helgadóttur Hótelstýrunni Kristrúnu Helga dóttur kom ekki dúr á auga fyrstu dagana eftir flóðið. í Egilsbúð, sem hún stýrir var straumur aðkomumanna daga og nætur, sem bjóða þurfti upp á mat og kaffi. Ljósm. Bragi. Hann sá borg- ina sína vaxa — og hverfa ,,Ég hef verið f Darwin i 40 ár. Ég hef horft á bæinn vaxa, og nú hef ég horft á hann hverfa”. Þetta höfðu fréttamenn erlendra frétta- stofa eftir ástralska bæjar- stjóranum Harold Brennan. Orð hans slitnuðu sundur i ekkasogum og tárin streymdu niður kinnar hans, sögðu fréttaménnirnir. Nán- ar um fellibylinn Tracy og afleiðingar af honum. SJA ERLENDAR FRÉTTIR ABLS. 5 • • - t|é Msiðv •• YFIR 500 METRA BREITT SNJÓFLÓÐ TÓK RAFLÍNUNA fjarskipti $11 óvirk á Austfjörðum yfir jóladagana ,,t Tungudal, sem er þröngur dalur inn af Eyvindarárdal við veginn til Reyðarfjarðar, féllu sex snjóflóð á aðfangadags- morgun,” sagði Erling Garðar Jónasson, rafveitustjóri á Egils- stöðum. ,,Það innsta var stærst, okkur virtist það vera 500-560 metra breitt, að dæma eftir breidd milli stæðna i linunni, sem það tók með sér. Við álitum, að bungan á flóðinu væri um 30 metra há. Straumurinn tilfjarskiptastöðv- arinnar á Gagnheiði rofnaði þennan dag. Þar er varavél, sem á að fara I gang, ef straumurinn rofnar, en hún fór ekki i gang núna. Oftastvinnur hún þó vel, en svona lagað getur vist alltaf kom- ið fyrir. Við ætluðum að reyna að fara á stúfana og rjúfa linuna sunnan við aðveitustöðina á Gagnheiði, sem er um 10-11 km vegalengd, en veðrið var svo óskaplegt, að það var tæplega stætt. Við gerðum þó margar til- raunir með snjóbilum, en þeir fóru ýmist út af beltunum eða út i pytti, svo við urðum að hætta við þetta, höfðum enda nóg að gera við að halda inni stöðunum. A Eskifirði og Reyðarfirði var ástandið nokkuð gott, við höfðum nýlega flutt þangað túrbinuna frá Seyöisfirði. Nokkur býli innst i Reyðarfirði voru þó rafmagns- laus allan timann. I Neskaupstað var rafmagnið I ágætu lagi. Við höfðum rafmagn á þrjú innstu húsin frá báti, er lá I höfninni, en hann slitnaði raunar frá á tima- bili, þar var algert neyðarástand i höfninni um tfma. Verst var ástandið sunnan Stuðlaheiðar. A Stöðvarfirði var rafmagnslaust frá klukkan 5 á að- fangadag fram á jóladags- morgun. I Breiðdal var raf- magnslaust frá klukkan 5 á að- fangadag til klukkan eitt á jóla- nótt. A Fáskrúðsfirði var skammtað stift allan timann. Það háði okkur mjög, að ekki var hægt að hafa fjarskiptasam- band viö þessa staði eða milli þeirra, þvi rafmagnsleysið á Gagnheiðarstöðinni gerði það að verkum, að hér var hvorki simi, sjónvarp né útvarp. Þannig var ógerlegt að samræma skömmtun og nýta til fulls þá orku, sem þó var til. Gagnheiðarstöðin er i 1000 metra hæð, og ef þar fer svo mik- ið sem öryggi, verður að fara þangað upp. Það er ekki hægt annað en undrast, að þeir menn, sem þar eiga að þjóna, skuli ekki búa við betri aðbúnað en raun ber vitni — þeir hafa ekki einu sinni snjóbil. Þeir fengu raunar ein- hvern tima vélsleða, en hann er orðinn harla úr sér genginn. Það setur að okkur ugg hér, þegar við sjáum svona greinilega, hvilikt öryggisleysi við búum við i fjar- skiptamálum. Það sem næst liggur fyrir er að gera við snjóflóðalinurnar á Oddsskarði og i Tungudal og koma þannig á sambandi við Suðurkerfið á ný. Það veröur erfitt að komast til viðgerða i Tungudal, ekki sizt vegna skorts á ruðningsvélum um þessar mundir, það var svo mikið af þeim sent til Neskaupstaðar. Ef ég fæ ýtu, reynum við að komast i Tungudalinn I dag, en þar tók skriöan 8 staura með linu og öllu saman. Ég fór þangað i gær við annan mann til að kanna skemmdirnar. Ekki var sú för alveg til einskis, þvi við fundum á með lambi. Þær voru illa komnar, 5-6 tommu klakabrynja á þeim og þær gátu ekki hreyft sig, en höfðu getað krafsað ofan i svörð þar sem þær lágu. Við tókum þær með okkur hingað og erúm nú með fé á fóör- um á verkstæðinu hjá okkur.” - SH Hurðabrjótar á ferð Fjölmargar hurðir voru möl- brotnar og hvolft úr skúffum i húsi Iþróttasambands tslands um jólin. t gær uppgötvaðist að rúða hafði verið brotin á bakhlið hússins og farið þar inn. Sá eða þeir, sem það gerðu, hafa sfðan vaðið um allar þrjár hæðir húss- ins og brotið og bramlað allt, sem þeir gátu. Litlu var stolið. Þó er saknað ávisanaheftis með tólf undir- skrifuðum eyðublöðum. Gunn- laugur Briem gjaldkeri tþrótta- sambandsins undirritaði ávisanirnar, og einnig var stimplað á þær með stimpli ISt. Avisanaheftið er frá Verzlunar- bankanum. Einnig var stolið Sony segul- bandstæki. _ FORVITNIR VEGFARENDUR ÓKU Á ?"» SLÖKKVIBÍL OG LÖGREGLUÞJÓN Fólksbíll brann til kaldra kola,er kviknaði i honum við árekstur í Kúagerði í nótt. Bíllinn er af Ford Escort gerð/ sams konar bíll og maður fórst í fyrir nokkrum vikum/ þegar kviknaði i honum við árekstur á Reykjanes- brautinni. Plastslanga frá bensintank liggur rétt hjá hægra afturljósi bilsins I farangursgeymslunni. Við árekstur eins og þann i nótt brotnaði ljósið, og er talið lik- legt, að neisti hafi hrokkið úr þvi I bensin, sem flóði út, vegna þess að plastslangan fór i sund- ur. Fjórir voru i bilnum, og slös- uðust allir. Farþegi i aftursæti brenndist, þvi eldurinn læsti sig leiftursnöggt um bilinn. Bil- stjórinn skarst i andliti. Fólksbillinn lenti i árekstri við vörubil, en ekki er að fullu rannsakað hvernig þaö átti sér stað. Slökkviliðsbill og lögregla frá Keflavik komu á slysstaðinn. Meðan unnið var að þvi aö slökkvaeldinn og gera mælingar vegna óhappsins, ollu forvitnir vegfarendur erfiðleikum. Mikil hálka var á veginum. Nokkru eftir að slökkvistarfi var lokið, ók aðvifandi bill á lögregluþjón. Hann slasaðist nokkuð og var fluttur á sjúkrahús. I þann mund, sem skýrslu- gerð vegna þessa óhapps lauk og lögregla og slökkvilið voru að búa sig undir að fara, kom enn einn bill og ók á slökkvibil- inn. Báðir þessir bilstjórar voru að koma frá Keflavik og sáu strax i tveggja km fjarlægö, hvað var á seyði. Enda voru blikkandi ljós á lögreglubilnum og slökkvi- bilnum og kveikt á ljósköstur- um. Mjóu munaði, að þriðji billinn ylli óhappi. Sá kom að á nokk- urri ferð, en gat ekki stöðvað vegna hálku. Hann rann þvers- um milli lögreglubils og slökkvibils, án þess þó að snerta Þá — ÓH. I

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.