Vísir - 27.12.1974, Qupperneq 3
Vísir. Föstudagur 27. desember 1974.
3
Völvan varð
sannspá um
árið 1974
Meiri hlýindi 1975
— segir „völva Vikunnar" og spáir samdrœtti og verkföllum
— „Húsavík mikið í fréttum" '
„Ég spái meiri
hlýindum en við höfum
átt við að búa undan-
farin ár. Veturinn
verður fremur snjó-
þungur en sumarið
nokkuð jafngott á öllu
landinu.” Árið |1975
verður ,,gott og ekki
gott” ár, segir „völva
Vikunnar”, sem hefur
vakið athygli með þvi
að reynast furðulega
sannspá siðustu tvö ár-
in.
Völvan segir, að erfiðleikarn-
ir, sem Islendingar glimi við
1975 verði að visu smávægilegir
miðað við ýmsar aðrar þjóðir.
En eflaust muni ýmsum þykja
nóg um, við séum svo góðu vön.
Menn muni ekki finna svo
mjög fyrir samdrættinum, og
liklega leysist verstu vandræðin
með óvæntri iántöku erlendis.
Um atvinnuleysi verði ekki að
ræða. Verkföll verði sennilega.
Völvan spáir metafla á loðnu-
vertið, ef ekki verði verkföll.
Iðnaðurinn verði i vanda.og
jafnvel kunni einhver stór fyrir-
tæki að fara á höfuðið. Enn
dragi úr ferðamannastraumi
hingaö, en Islendingar haldi
sinu striki i Spánarferðum. Að
minnsta kosti eitt meiriháttar
Karl GdsUf
„mengunarhneyksli” komi upp
á árinu.
Völvan hefur ekki reynzt eins
áberandi sannspá fyrir árið 1974
og hún var árið áður i fyrstu spá
sinni fyrir komandi ár. Margt
hefur þó komið fram af þvi, sem
hún spáði fyrir árið, sem er að
liða. Hún spáði átökum á
miðunum, einkum út af Vest-
fjörðum og góðri kartöfluupp-
skeru, sem kom á daginn. Hún
spáði náttúruhamförum, þó
ekki eins stórkostlegum og 1973,
og. verður flestum nú hugsað til
snjóflóöanna i Neskaupstað.
Niðurstaöa átti að fást i her-
stöðvarmálinu, fremur i anda
Framsóknar en Alþýðubanda-
lags, og má það til sanns vegar
færa. Hins vegar spáði hún
þjóðaratkvæði um herstöðvar-
málið, sem ekki hafa orðið,
nema þá að hún hafi séð fyrir
þingkosningarnar, sem fóru
fram á árinu en ekki var vitað
um um áramótin i fyrra. Þjóð-
hátiðahöldin tókust vel eins og
hún hafði sagt. Christina
prinsessa i Sviþjóð giftist, enda
hafði völvan spáð konunglegu
brúðkaupi þar i landi. Hún spáði
skuggalegu ári i Danmörku,
eins og fram kom. En hún taldi,
að Nixon mundi sitja út árið,
sem ekki varð.
„Þrjár konur ! topp-
stöður”
A komandi ári, 1975, segir
völvan, að landhelgismörkin
verði færð út i 200 milur. Kana-
8mija H HaraU.
sjónvarpið verði ekki leyft en
sjáist „samt óátalið”. Konur
láti mikið til sin taka, og þrjár
konur skjóti upp kollinum i
toppstöðum.
Stafsetningin verði ekki færft
aftur i gamla horfið. „Ekki á ég
von á neinum stórkostlegum
náttúruhamförum,” segir
völvan i siðasta tölublaði Vik-
unnar, „en við megum reyndar
alltaf búast við einhverju af þvi
tagi.”
Erlend fyrirmenni koma til
landsins, liklega Sviakonungur.
Ein alþjóöleg ráðstefna, haldin
hér, mun vekja sérstaka athygli
erlendis. Þekktir evrópskir
stjórnmálamenn koma. Einn af
okkar ágætustu mönnum hlýtur
viðurkenningu erlendis, að þvi
er virðist á sviði lista. „Húsavik
og nágrenni verður mikið I
fréttunum”, segir hún, en fólk
þarf engu að kviða.
Miklar barneignir hjá
kóngafólki
Eilifar skærur verða i löndun-
um fyrir botni Miðjarðarhafs og
aðstaða Israela fer versnandi.
Atvinnuleysi verður i
Danmörku og stjórnmála-
kreppa i Finnlandi. Júgóslavia
verðurmikiði fréttum. Frakkar
skipta sennilega um þjóðarleið-
toga.
Þetta verður ár mikilla barn-
eigna hjá kóngafólki á
Norðurlöndum, segir völvan
okkar. Danadrottning eignast
dóttur næsta sumar og Sonja og
Náttúruhamfarirnar I Neskaupstaft — sá völvan þær fyrir?
Haraldur i Noregi bæta við hjá
sér. Sviakonungur kvænist og
kemur rækilega á óvart I vali á
konu. Christina systir hans
eignast barn og liklega Anna
Bretaprinsessa og Mark. Fisch-
er sigrar i heimsmeistara-
keppni I skák.
—HH
Christina og „Tosse”
Magnússon.
Anna og Mark.
BOBBY FISCHER — aftur
heimsmelstari?
Reyna að troða slóð til
mjólkurflutninga
„Það var svolitið einkennilegt
að sjá hreindýr úti á miðju
Lagarfljótinu i gær,” sagði Svav-
ar Stefánsson, mjólkurbússtjóri á
Egilsstöðum, I viðtali við Visi i
morgun.
„Annars teljum við það ekki
tiðindi lengur, þótt hreindýr komi
niður á Hérað, þegar harönar á.
Það er eins og þau leiti alltaf á
móti vindáttinni. En þarna stóðu
þau úti á miðju fljótinu utan við
brúna og var eins og þau væru rög
við að ferðast i snjónum.
Snjór er hér mjög jafn yfir allt
en gifurlega mikill. Ég á heima i
tveggja hæða húsi, og fönnin nær
upp á miðja glugga á efri hæðinni.
Hér hefur aðeins ein leið verið
opnuð, héðan frá mjólkusamlag-
inu niður I Egilsstaði og út á flug-
völl, en hann hefur nú verið rudd-
ur.
Mjólkurflutningar hér verða
erfiðir og litlir fyrsta kastið. Ég
veit, að búið er að lesta sex vöru-
bila á Reyðarfirði með þungum
vélarhlutum, sem eiga að fara I
Beðið fœris að leita
á Snœfellsjökli
Litil von er um, að danski flug-
maðurinn, sem flaug litilli
sænskri flugvél, sem leitað er að,
finnist á lifi. „Við biðum þó færis
að leita á hluta af Snæfeilsjökli,
en veður gefst ekki til þess enn,”
var okkur tjáð hjá flugstjórn i
morgun. Þangað verður send
þyrla, þegar betur viðrar.
Leitinni var haldið áfram i gær.
Landhelgisgæzluvélin og margar
aðrar flugu yfir Vesturland i þvi
skyni.
Flugvélin týndist á sunnudags-
kvöld. Atti hún að lenda hér um
miðnætti. Siðast heyrðist til henn-
ar um ellefuleytið. Radiómerki,
sem heyrðust þá um nóttina,
munu ekki hafa verið frá sænsku
flugvélinni, að þvi er virðist. HH
Lagarfossvirkjun, og trúlega
verður reynt að moka fyrir þá.
Mjólkurflutningar geta þá farið I
þá slóð, svo langt sem það nær, en
að öðru leyti hefur verið talað um
að flytja mjólkina á dráttarvélum
og sleðum, og reyna þá að troða
slóð til þess. Annars er lausa-
mjöllin svo mikil ofan á gamla
harðfenninu, að fremur erfitt færi
er fyrir vélsleða, mér sýnist þeir
sökkva um fet i mjöllina.
Það er sérstaklega ein sveit,
sem verður illa útundan, þegar
rutt er fyrir mjólkurflutninga, en
það er Jökulsárhliðin. Þar er um
fjallveg að fara, um Heiðarend-
ann, og hann er mjög erfiður.
Önnur leið léttari er til, út
Hróarstunguna hjá Hallveigar-
— Hreindýrin
eru komin
ofan í byggð
stöðum og yfir hjá Lagarfoss-
virkjun, en siðan upp Hjalta-
staðaþinghána. Sú leið er þó
sjaldan rudd, vegna þess að hún
er lengri en um Heiðarendann, og
mjólkurframleiðslan er ekki svo
ýkja mikil. Hins vegar væri þá
hægt að nota veginn um Hjalta-
staðaþinghána, sem er ruddur
hvort sem er.
Þeir, sem ekki koma mjólkinni
frá sér i tæka tið, reyna einna
helzt að strokka og bjarga þvi
sem bjargað verður þannig, en
þaö er ekki gert fyrr en i fulla
hnefana.” —SH
ENGIR ISLENDINGAR
í DARWIN
Ekki er vitað til að neinir Is-
lendingar hafi dvalizt i Darwin i
Astraiiu er náttúruhamfarir
lögðu borgina i rúst á jóladag.
Ekki höfðu neinar tilkynningar
borizt til utanrikisráðuneytisins i
morgun um, að tslendingar hefðu
orðiö fyrir ósköpunum.
Flestir Islendinganna, sem i
Astraliu búa, eru búsettir i Perth,
Melbourne og Bri.sbane I suður
hluta Astraliu. Darwin er aftur á
móti i Norður-Astraliu, þar sem
geysilegur hiti rikir. Vegna hitans
er litið búið á norðurströndinni og
jafnframtererfittum samgöngur
þangað vegna aurbleytu og regns.
— JB.
Margir sœkja
um hjá
útvarpi
Fjórir leikarar Þjóðleikhússins
sækja um stöðu leiklistarstjóra
rikisútvarpsins. Nú fyrir jólin
rann út umsóknarfrestur um þá
stöðu og stööu tónlistarstjóra.
Hér fer á eftir listi yfir þá, sem
sóttu um störf hjá ríkisútvarpinu.
Umsækjendur um starf leik-
listarstjóra:
Erlingur GIsli Gislason, Laufás-
vegi 22
Geirlaug Þorvaldsdóttir, Háuhliö
12
Halldór Þorsteinsson, Miðstræti 7
Hrafn Gunnlaugsson, Fálkagötu
17
Jónas Jónasson, Eskihlið 10
Klemenz Jónsson, Bræðra-
borgarstig 26
Magnús Jónsson, Neshaga 9
Stefán Egill Baldursson, Hrafn-
hólum 2
Ævar R. Kvaran, Æsufelli 6
Umsækjendur um starf tón-
listarstjóra:
Atli Heimir Sveinsson, Efsta-
sundi 69
Guðmundur Gilsson, Freyjugötu
24
Guðmundur Jónsson, Kapla-
skjólsvegi 41
Þorsteinn H. Hannesson, Hóf-
gerði 26