Vísir - 27.12.1974, Qupperneq 6
6
Vísir. Föstudagur 27. desember 1974.
VÍSIR
Útgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulitrúi: Haukur Helgason
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Siöumúla 14. Slmi 86611. 7 Hnur
Áskriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands.
1 lausasölu 35 kr. eintakiö. Blaöaprent hf.
Varanlegur viðlagasjóður
Mannskaðinn mikli á Norðfirði er enn efst i (
huga þjóðarinnar, þótt heil vika jólaundirbúnings /
og jólahalds sé liðin. Harmleikur sem þessi kallar )
fram samhug þjóðarinnar allrar og varpar )
skugga á mestu hátið ársins. Við hugsum til hins (t
mikla barnafjölda, sem misst hefur annað for- //
eldri sitt. Og við höfum enn einu sinni verið minnt ))
á, að þrátt fyrir tækni nútimans geisa hér á landi \\
hin óbliðu og óheftu náttúruöfl elds og isa. /f
En ekki dugir að örvænta. Lifið heldur áfram. /f
Þess vegna skiptir nú mestu að átta sig á, hvað /)
tekur við á Norðfirði, þegar meira en þrir fjórðu /
hlutar atvinnulifsins hafa verið lagðir i rúst. Það )
er þörfin fyrir uppbygginguna sem kallar á allar \
fúsar hendur. Og sú uppbygging má ekki dragast, (
þvi að hver dagurinn er dýrmætur. /
Rikisstjórnin brást fljótt og vel við. Geir /
Hallgrimsson forsætisráðherra fór strax austur )
til að skoða vegsummerki og ræða við heima- \
menn. Tjáði hann þeim, að rikisstjórn, alþingi og (
þjóðin öll stæði með Norðfirðingum i /
uppbyggingarstarfi þeirra. Mundi þeim verða )
veitt öll sú aðstoð, sem þörf væri á. )
Gizkað hefur verið á, að eignatjónið á Norðfirði )
nemi einum til tveimur milljörðum króna. Mest (
er tjónið á loðnubræðslunni, sem er að mestu /
ónýt, en mikið tjón hefur einnig orðið á bilaverk- \
stæði, steypustöð, nokkrum húsum og á vélasal (
frystihússins. Alvarlegastur er missir /
bræðslunnar vegna loðnuvertiðarinnar, sem er )
að fara i hönd. Norðfjörður hefur á undanförnum /
árum verið aðallöndunarstaðurinn i upphafi ver- (
tiðar, en er úr leik i þetta sinn. /
Islendingar eru vafalitið sammála um, að /
þjóðin eigi að bregðast við þessu á svipaðan hátt )
og eldgosinu á Heimaey. Annaðhvort þarf að fela \
Viðlagasjóði fjármögnun uppbyggingarinnar á (
Norðfirði eða koma á fót nýrri hliðstæðri stofnun. /
Ef til vill er komið tækifæri til að setja á stofn /
fastan viðlagasjóð, er hafi það verkefni að bæta )
tjón, sem náttúruöflin valda. Slikur sjóður yrði \
eins konar ,,force majeur”-tryggingafélag ((
þjóðarinnar. Við gerðum tilraun með þetta i sam- //
bandi við Vestmannaeyjagosið og nú er komið ))
tækifæri til að koma þvi i fast form. )
Náttúruhamfarasjóðurinn á ekki eingöngu að )
bæta stórtjón heilla byggðarlaga, heldur einnig (
einstök tjón, svo sem þegar stök hús eyðileggjast /
i snjóflóðum. Allir eiga að vera jafnir fyrir slik- \
um sjóði, er taki við, þar sem hefðbundnar (
tryggingar enda.Við höfum lært af reynslunni að (
við verðum á hverju ári að leggja til hliðar )
örlitinn hluta af sameiginlegu fé okkar til að \
byggja upp slikan viðlagasjóð. (
Norðfirðingar bera harm sinn af æðruleysi. (
Þeirra biða nú gifurleg verkefni, sem þeir geta /
ráðizt i af alefli, þvi að þeir vita, að fjármagn )
þjóðarinnar er til reiðu. Þeir munu dreifa hugan- )
um frá harmi sinum og einbeita sér að skjótri (
uppbyggingu atvinnutækjanna. /
Þvi miður vitum við öll, að hið mikla eignatjón /
er minnstur hluti harmleiksins á Norðfirði. Mikill )
mannskaði i fámennu byggðarlagi verður ekki )
bættur, þótt lifið haldi áfram sina braut. Við get- (
um aðeins hryggzt með Norðfirðingum. /
-JK.
íiiíiiiiiífi
m im
UMSJÓN: G. P.
Þannig Iltur marljúanajurt út. Þessl var tekin lögtaki I Banda-
rlkjunum I fyrra og hafði hún veriö dulbúin sem jólatré.
Rœkta maríjúana
eins og aðrir
rœkta matjurtir
Hópur ungra Ástrala,
sem starfar opinber-
lega utan við lög og rétt
hefur komið upp sér
marijunagarði i út-
hverfi Adelaide, rétt
eins og Reykvikingar
hafa kartöflugarða
uppi i Smálöndum.
Þessi marijúana-
garður sýnist vera
arðbært fyrirtæki, þvi
að til þessa hefur hann
fært eigendunum 50
þúsund dollara i tekjur
á ári.
Þessi samtök, sem kalla sig
Samtök fikniefnaneytenda (eða
Dope Smokers Union
skammstafað DSU) hafa með
auglýsingum komið upp
alþjóðlegum bréfahring þar
sem skipzt er á pöntunum og
póstsendingum. Þeir veita
ókeypis lögfræðilega aðstoð og
hafa nú stofnað stjórnmálaflokk
til þess að bjóða fram í næstu
kosningum i Astraliu.
Stofnandi þessara einstæðu
samtaka heitir Peter Carey, 24
ára piltur, sem féll á prófum og
gafst upp við námið i háskóla
Adelaide. Hann segir, að mark-
mið samtakanna sé að flytja
meðlimi sina af hippaskeiðinu
yfir i „markað miðaldra og
virðulegra borgara”.
Okkur er kunnugt um fjölda
miðaldra fólks, sem reykir
gras. Við viljum reyna að ná til
þeirra og virkja þau til að
þrýsta á rikisstjórnina að lög-
leiða ræktun á fikniefnum,”
segir Carey þessi.
Þarflaust er að taka það
fram, að Carey og samtök hans
hafa vakið mikla atygli, og
birtust nýlega i blöðum I
Astraliu og sjónvarpi viðtöl við
hann. Þar sagði hann, að sam-
tökin, þrátt fyrir ólöglega iðju
þeirra, hefðu aldrei komizt i
kast við lögin. Varpaði hann þvi
þar fram, að DSU vissi nægilega
mikið um misferli innan lög-
reglunnar i meðferð fikniefna,
til þess að ekki yrði hróflað við
þeim.
,,Og hvað sem þvi líður, þá
hafa grasreykingar með timan-
um orðið svo algengar meðal
(annars) löghlýðinna borgara,
eins og I hippahópum, að lög-
reglan hefur gefizt upp fyrir
þvl,” segir Carey.
DSU fæst einungis við
marijúana, hashish og „Búdda-
piiir.a”, sem eru efstu sprotar
marijúanajurtarinnar. Árlega
senda þau I pósti um 80 kiló-
grömm af marijúana til
meðlima og viðskiptavina. Hver
30 gramma skammtur kostar
um 30 dollara og er ágóðanum
varið til að standa straum af
ókeypis lögfræðiaðstoð til handa
fólki, sem liggur undir ákærum
fyrir fikniefnaneyzlu. Auk svo
auövitað fjárfestinga til að færa
út viðskiptin, stofnunar stjó"n-
málaflokks, sem kallaður er
, ,Af lausnarf lokkurinn’ ’.
Carey boðar, að flokki rinn
muni bjóða fram á tólf stöðum i
suöurhluta Ástraliu i næstu
kosningum.
Stefna flokksins er i meginat
riðum sú að leyfa ræktun
marijúana, leyfa vændi og
hvetja fólk til að hverfa út i
náttúruna og hefja búskap, að
tryggja fólki möguleika til þess
að vinna og ekki lifa á þvl
oþinbera, ókeypis skólavistir,
greiðari aðgang að sjúkrahús-
um og aukin réttindi geðveikra
og meiri fjölbreytni i blaðaút-
gáfu. Auk svo þess að gera
borgina Darwin að frihöfn.
Carey leggur sérstaka
áherzlu á það, að DSU vill ekki
láta leyfa með lögum sölu á
maríjúana.
„Ef svo færi, mundu stóru
tóbaksframleiðendurnir gleypa
allt og hrista af sér smá-
mennin ,” segir hann.
DSU vill aðeins að fólk verði
frjálst að þvi að rækta marijúna
I bakgöröum sinum, ef þvi
sýnist svo. Og þá aðeins til eigin
nota.
Eins og stendur, segir Carey,
að um 30 marijúnanasalar séu i
Astraliu með nokkur þúsund
smásölumenn á sinum snærum.
„Það er að mestu I höndum
glæpamanna, sem einnig hafa
hönd i bagga með vændi og
spilavitum,” heldur hann fram.
Glæpamennirnir dreifa einnig
þvi sem almennt er kallað
eiturlyf, eins og ópium og
heróin. Segir Carey að
rannsóknir DSU hafi leitt i ljós
að ópíum hefur verið blandað
saman við sumar þær
sendingar, sem DSU hefur
fengið.
„Með þvi að leyfa með lögum
ræktun marijúana og alla vega
að hafa það með höndum, þá
verður tekið fyrir þenna gróða-
veg glæpamanna,” heldur þessi
24 ára hasspostuli.
34 starfa á skrifstofum DSU,
flestir undir þritugu. Njóta þeir
aðstoðar niu lögfræðinga i
Adelaide.
í blöðunum getur að lita
auglýsingar sem bjóða upp á
sérstök kynningarkjör. Nýjum
reykingamönnum stendur til
boða ókeypis sýnishorn hverj-
um, sem reyna vill.
Samkvæmt upplýsingum
Carey, þá hefur aðeins einn af
hverju þúsundi sem fengið hefur
sent gras, verið kærður.
„Viðskiptavinurinn er
hólpinn, svo lengi sem hann
neitar að þekkja nokkuð til
efnisins,” segir Carey. „Það er
ekkert við þig að sakast, ef ein-
hver tekur upp hjá sér að senda
þér gras upp úr þurru. Sá sem
var ákærður, álpaðist til þess að
játa, að hann hefði pantað það.”
Næsti áfangi i starfi DSU er að
setja á laggirnar ferðaskrif-
stofu, sem greiði götu fólks, sem
er á flótta undan fikniefna-
ákærum. Carey segir, að DSU
hafi þegar aðstoðar fimm við að
flýja land.
Þar sem allur hagnaðurinn af
marijúanasölunni rennur aftur I
viöskiptin, verða DSU að reka
hreingerningarþjónustu til að
vinna fyrir kaupi starfsfólksins.
Þetta fólk litur á starf sitt sem
þjónustu við almenning.
„Þegar svo er komið, að einn
af hverjum sex i þessu landi
hefur reykt marijúana, eða að
minnsta kosti reynt það einu
sinni, er fyrir löngu kominn timi
til þess að einhver hvetji þá til
þess að láta frá sér heyra,”
segir Carey.
Marljúanafarmur sem tollverðirtóku, þegar þeir komu
yfir smyglbát við Flórlda.
höndum