Vísir - 02.01.1975, Síða 1
VISIR
65. árg. — Fimmtudagur 2. janúar 1975 — 1. tbl.
rMenn skilja ekki alvöru málanna
segir Jónas H. Haralz bankastjóri um efnahagsmálin
##
„Menn virðast alls ekki gera
sér ljósa þá alvöru, sem hér er á
ferðinni”, sagði Jónas H. Haralz
bankastjóri i viðtali við Visi i
morgun. Jónas telur horfurnar I
efnahagsmálum iskyggilegar,
einmitt vegna þess að menn vilji
ekki horfast i augu við alvöru
málanna.
„Þvi fer f jarri, að hér hafi orðið
sinnaskipti i viðhorfum til þess-
ara mála, hvorki hjá almenningi
né stjórnmálamönnum. Slik
sinnaskipti eru þó óhjákvæmileg
ef vel á að fara”.
„Menn verða að gera sér ljóst,
að ekki er lengur hægt að dansa
eins og menn hafa dansað. Það er
til dæmis ekki unnt að halda
áfram að auka opinbera þjónustu
og hegða sér eins og hægt sé að
gera allt i einu”, sagði Jónas.
„Þetta á við um fleiri lönd, en
kannski ekki sizt hér á landi”.
— HH
Jólagetruunm:
Dregið í
morgun
Gifurleg þátttaka var i
jólagetraun Visis að þessu
sinni. 1 morgun var dregið
úr úriausnum og kom þá upp
nafn Sigriðar Guðmunds-
dóttur, Kleppsvegi 40 i
Reykjavik. Hún hlýtur I verð
laun glæsilegan vinning,
Weltron-kúlu frá Nesco h.f„
útvarpstæki, kassettusegul-
band og magnara innbyggt i
einu tæki. Slikur gripur
kostar 57 þúsund krónur.
Skilafrestur var fram-
lengdur til áramóta vegna
samgönguerfiðleika um
landið, enda kom á daginn,
að bréf utan af landsbyggð-
inni bárust I fjölmörgum til-
fellum ekki fyrr en milli jóla
og nýárs.
Sigriður Guðmundsdóttir
mun að öllum likindum taka
við vinningnum i dag og ætti
þá ekki að vera neitt aö van-
búnaði að hefja árið með
góðri tónlist.
Myndin var tekin, þegar
Kolbrún óðinsdóttir dró úr
hinum mikla bréfabunka i
morgun.
Skotgleði
um óramót
„Hvernig liður þér að vera
búinn að senda alla
peningana þina upp I loftið?”
spuröi móðir ein ungan son
sinn nokkrum minútum eftir
að kvennaáriö nýja hóf inn-
reið sina.
Pilturinn svaraði að
bragði, glaðklakkalegur
mjög: „Alveg stórkostlega”.
islendingar sendu ófáar
milljónir út i himingeiminn
um þessi áramót. Sigurður
Hreiðar, blaðamaður,
skrifar áramóta „hugvekju”
um skotelda i blaðið i dag,
sjá bls, 2 — en á bakslðu er
fjallað um skotgleði okkar.
•
Fóru á vél-
sleða yfír
Sprengisand
— baksiða
Hárprúð hnáta heilsaði
kvennaárinu!
2566 fœddust i Reykjavík á gamla
árinu, það síðasta i flugvél
Þó aðbúiö væri að bursta á þeirri litlu hárift og gera hana flna fyrir myndatökuna, var hún ekkert á þvl
að láta trufla svefnfrið sinn og opnaði ekki augun. Hún heilsaði árinu rétt eftir miðnættið á gamlárs-
kvöld. Ljósm.: Bragi.
EKKI AKVEÐIÐ UM KAUP A FRYSTIVELUNUM
„Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um það enn, hvort fest
verða kaup á frystivélum þeim,
sem til reiöu eru hjá
Sambandinu”, sagði ólafur
Gunnarsson, forstjóri Sildar-
vinnslunnar á Neskaupstað i
morgun.
I dag eru væntanlegir tækni-
menn til Neskaupstaðar. Er úr-
skurður þeirra liggur fyrir i dag
eða á morgun, verður ákveðið,
hvort af kaupum á nýjum
frystitækjum fyrir frystihúsið
verður.
Að sögn Ólafs Gunnarssonar
er sú frystivél.sem er fyrirliggj-
andi, heldur stór fyrir frystihús-
ið á Neskaupstað, en þess ber að
geta, að örðugt er að útvega
önnur tæki með stuttum fyrir-
vara.
—JB
Þaö var hárprúð og
myndarleg hnáta sem
heilsaði árinu 1975 á Fæð-
ingarheimili Reykjavíkur,
og var um leið fyrsta
barnið sem fæddist á ár-
inu. Hún fæddist klukkan
10 mínútur yfir 12, þannig
að hún var rétt á mörkun-
um.
„Jú, mér finnst það hæfa vel að
fæða stúlku svona i byrjun
kvennaársins”, sagði móðirin,
þegar Visismenn heimsóttu þær
mæðgur á Fæðingaheimilið i
morgun.
Hún sagði okkur að sú litla ætti
eina systur fyrir, en móðirin
heitir Kristin Skaftadóttir. Faðir-
inn heitir Jaime Saharapulous,
mexikariskur og starfar hér á
Iandi.
Nýársbarnið var 14 merkur og
52 cm við fæðingu, með svart og
mikið hár. En Kristin sagði okkur
það, að fyrri dóttirin hefði verið
öllu hárprúðari, því hár hennar
náði næstum niður á axlir.
Okkur Reykvikingum fjölgaði
annars talsvert á árinu ’74, þvi
samtals fæddust hér 2566 börn.
Þar af fæddust 1516 á Fæðingar-
deildinni en 1050 á Fæðingar-
heimilinu.
Það sem af er nýja árinu hafa
fæðzt samtals 7 börn i Reykjavik,
þar af fjögur á Fæðingarheimil-
inu.
Enn eru ekki komnar fram
tölur um fjölgun Islendinga á
siðasta ári, eftir þeim upplýsing-
um sem við fengum á Hagstof-
unni, en þeirra er að vænta siðar i
mánuðinum.
Siðasta barnið á árinu 1974
fæddist svo á leiðinni frá Rifi til
Reykjavikur um borð i flugvél.
Það var drengur sem kvaddi árið
svo skemmtilega, og varð vélin
að sveima um y.fir Reykjavik á
meðan gengið var frá mæðginun-
um eftir fæðinguna.
—EA
Matsmenn til að meta tjónið vœntanlegir austur
HÆTT VIÐ AÐ FÁ GAGNFRÆÐASKÓLANEMA
TIL BJÖRGUNARSTARFA VEGNA ÓVEÐURS
liafizt var aftur handa I
morgun við björgunarstörf á
Neskaupstað, eftir að bæjarbú-
ar höfðu tekið sér fri i gær og I
fyrradag.
Nýja árinu var fagnað á Nes-
kaupstað, sem annas staðar á
landinu, og ár hörmunganna
kvatt. Um áramótin reyndu
bæjarbúar að ná i lok jólahalds-
ins, sem þeir hafa að mestu
verið afskiptir með þetta árið.
Austan stormur blés á
Neskaupstað i morgun og var
þvi hætt við að senda gagn-
fræðaskólanemendur út til
björgunarstarfa eins og til stóð.
Á hinn bóginn eru fullorðnir
karlmenn á staðnum við vinnu.
Búið er að hreinsa mikið af
snjó úr frystihúsinu, en miklu er
þó enn ólokið þar. Eins er unnið
við að grafa sildarbræðsluna úr
snjónum, mest i þeim tilgangi
að sjá hversu mikið er nýtilegt.
óljóst er enn, hversu tjónið i
hamförunum hefur orðið mikið,
en ef veður leyfir eru matsmenn
væntanlegir frá Reykjavik i
dag.
Eins er von á björgunartækj-
um með Heklunni, sem leggur
af stað frá Reykjavik i dag.
Þegar Heklan kemur til
Neskaupstaðar verða þau tæki,
sem fengin voru að láni á
nærliggjandi fjörðum send með
henni til sins heima.
Oliuna, sem fór i sjóinn i
flóðinu, hefur að mestu rekið
frá. Flotgirðingin, sem fengin
var til Neskaupstaðar er notuð
til að girða fyrir lækinn, sem ber
mest af oliunni til sjávar og
hefur það tekizt eftir vonum.
Ekkert er byrjað að dæla oliunni
upp, hvorki úr sjónum, né úr
tanknum, sem enn stendur
hálfur af oliu við Sildarbræðsl-
una.
Meiri olia hefur komið i ljós,
eftir að snjórinn ofan af henni
hefur bráðnað á undanförnum
dögum.
Auk þess sem björgunarmenn
eru við störf i verksmiðjunum
er reynt að. safna saman þvi
drasli, sem flóðið hefur dreift
um flóðasvæðið. Draslinu hefur
verið ekið á haugana og verður
væntanlega urðað þar.
Engir aðkomumenn eru nú
við björgunarstörf, en væntan-
legir eru járniðnaðarmenn að
sunnan til vinnu i sildarbræðslu-
rústunum.
Viðlagasjóði hefur verið falið
að koma fram gagnvart
yfirvöldunum i Neskaupstað
vegna endurreisnarinnar. Eins
hefur samstarfsnefnd þriggja
þingmanna úr Austurlandskjör-
dæmi verið skipuð til að vera
tengiliður milli Viðlagasjóðs og
yfirvalda i Neskaupstað. Lúðvík
Jósepsson, Sverrir Hermanns-
son og Tómas Árnason eiga sæti
i nefndinni.
Allar greiðslur úr
Viðlagasjóði til aðila á Nes-
kaupstað vegna flóðanna verða
færðar á sérstakan reikning til
að aðskilja þær frá greiðslum
vegna gossins i Vestmannaeyj-
um.
Nú er i athugun hjá rikisstjórn
i samráði við Viðlagasjóð,
hvernig aflað verður fjár til
greiðslu á tjóni i Neskaupstað,
sem ekki fellur undir aðrar
bótagreiðslur. —JB
!