Vísir - 06.01.1975, Síða 1
65. árg. —Mánudagur 6. janúar 1975 — 4. tbl.
Þýzkir afþökkuðu
verðlaun íslands!
— íþróttir bls. 9
Þessir stöövuöu á siöustu
stundu rambandi á heljar-
brúninni.
Brúin féll
yfír skipið
og sökkti
því þegar
80 m kafli brúar hrundi
yfir 7200 lesta flutningaskip,
sem rekizt haföi á brúar-
stólpana og brotiö þá i
Hobart i Tasmaniu i gær-
kvöidi. — Sökk skipiö sam-
stundis, þegar steinsteypu-
helian féll niöur á þaö.
Fjögurra akreina umferö
lá yfir brúna og óku fjórir
bílar fram af henni, þegar
ökumennirnir áttuöu sig ekki
i tæka tiö tii aö stööva.
Tveir bílar vógu salt á blá-
brúninni, þegar bflstjórarnir
stöövuöu á allra siöustu
stundu. Sjá bls. 5.
Guðmundur
hékk í
topaðri
biðstöðunni
— baksíða
Sótu að
sumbli í
Naustinu,
- í morgun
— baksíða
Strokufangar
teknir á leið
úr kirkju
— baksíða
ÓTTAST ÞRETTÁNDA-
ÓLÆTI Í FIRÐINUM
Vegna ótta um aö ólátaskrfll mundi safnast aö bæjarbrennunni I Hafnarfiröi, ef kveikt væri f henni á
þrettánda, var kveikt óvænt Ibrennunni I gærdag og séö kirfilega um aö hún brynni tii grunna, meö þvl
aö dæla olíu á hana. Ljósm.: Magnús Hjörleifsson.
Fyrii' einhver mistök
var ekki kveikt i bæjar-
brennunni i Hafnarfirði
á gamlárskvöld, þar
sem hún stóð á Hval-
eyrarholtinu.
Hafnfirðingar stóðu
þvi flestir i þeirri trú að
brennan fengi að fuðra
upp i kvöld, á þrettánd-
anum.
Mörgum brá þvi i brún i gær-
dag, þegar bæjarbrennan stóð allt
i einu i ljósum logum, og oliu var
dælt á hana af miklum krafti.
Þessi skyndibruni var'fram-
kvæmdur i samræmi við þá
ákvörðun bæjaryfirvalda að eng-
ar útiskemmtanir né samkomur
skyldu haldnar á þrettándakvöld.
Bæjaryfirvöld, lögregla, skóla- .
stjórar og forráðamenn félaga-
samtaka i Garðahreppi og
Hafnarfirði létu bera út i öll hús i
byggöarlögunum dreifibréf, sem
fjallaði um þrettándakvöld.
Þar lýstu þessir aðilar áhyggj-
um sinum vegna óspekta og
skemmdarverka, sem fram-
kvæmd hafa verið undanfarin ár,
aðallega i Hafnarfirði, á
þrettándakvöld.
í dreifibréfinu stendur, að þessi
ólæti séu byggðarlögunum til
vansæmdar. Skorað var á börn og
unglinga að taka ekki þátt i sliku
á þrettándakvöld, og skirskotað
til foreldra að koma i veg fyrir
þátttöku barna sinna i ólátum og
óspektum. Lagt var til, að fólk
stefndiaðþvi að hafa þetta kvöld
sameiginlegt og friðsælt kvöld
allrar fjölskyldunnar.
Hafnfirðingar munu margir
óhressir yfir þessari ákvörðun, og
segja það óþarfa ótta að hræöast
ólætinú. Hafnfirðingur, sem haföi
samband við Visi i morgun, sagði
að siðustu tvö ár hefðu sáralitil
ólæti verið i bænum á þrettánda-
kvöld. En þetta á semsagt eftir að
sannreyna i kvöld.
—ÓH
Lífið um
soðninguna
— bls. 3
Kröfugerðin undirbúin hjá mið-
stjórn Alþýðusambandsins
Fjallað verður um
allsherjarsamninga
verkalýðsfélaganna á
fundi miðstjórnar ASÍ,
sem hefst i dag kl. 4.
Alþýðusamband tslands hefur
fengið umboð margra verka-
lýðsfélaga til samninga við
vinnuveitendur. A fundinum i
dag verður um það fjallað,
hvaða leiðir eigi að fara og hve-
nær eigi að hefjast handa. Má
búast við, að kröfur verði lagðar
fram fljótlega.
Eins og komið hefur fram af
hálfu Alþýðusambandsins,
munu fyrirhugaðar kröfur bein-
ast að þvi að ná aftur launa-
mætti sambærilegum við það,
sem hann var fyrst eftir alls-
herjarsamningana fyrir tæpu
ári.
A fundi Alþýðusambandsins,
sem haldinn var i nóvember á
siöasta ári, voru mótaðar þær
kröfur, sem gera skal, og liklegt
má telja, að á fundinum i dag
veröi ákveðið, hvenær þær
veröa lagðar fram. — SH