Vísir - 06.01.1975, Blaðsíða 9

Vísir - 06.01.1975, Blaðsíða 9
Vlsir. Mánudagur 6. janúar 1975. EFTIR ÓLAF JÓNSSON visu ekki neinni slikri né þvilikri ráðningu efnisins þótt leikurinn bjóði upp á hana. Jökull Jakobs- son hefur alla tið notið mikillar leikni að fara i skopi og hálfkær- ingi með ýmis hin hversdags- legustu umtalsefni, og persónu- lýsingar hans lifa jafnan og dafna á þvi trúverðuga mælta máli sem þeim er lagt i munn. í þennan efnivið hins banala og hversdagslega yrkir Jökull hin öfgafengnu ævintýr sinna siðustu leikja, svo samstæðir innbyrðis og þó sjálfstæðir sem þeir eru Návigi og nákvæmni Það er ekki of mikið sagt að leikkonur eins og Sigriður Þor- valdsdóttir sem er Dóra, ekkja Péturs, og Guðbjörg Þorbjarnar- dóttir, Lovisa.móðir hans, fari á kostum einmitt á þessu mælta máli allra hinna venjulegustu kvennafrasa. Leikurinn er sýndur á nýju sviði i Leikhúskjallaranum og leikið á miðju gólfi en áhorf- endum skipað allt um kring, og fannst mér leikurinn njóta vel þessa návigis við áhorfendur sina i sviðsetningu Kristbjargar Kjeld , sem var vel unnið og yfir- vegað verk að sjá, enda þarf hann á að halda mikilli nákvæmni i meðförunum, svo að fram komi samspil hins banala og dularfulla sem þrátt fyrir allt er liftaug hans. Aðrar konur I kringum Pétur eru Lovisa dóttir hans, Guðrún Alfreðsdóttir, Stella ástkona Péturs, Brynja Benediktsdóttir og Anna systir hans, Briet Héðinsdóttir sem dró upp alveg bráðkostulega svipmynd hinnar „kúguðu konu”, ambáttar heimilisverkanna. Gisli Alfreðs- son var eini karlmaður i leiknum, siðasti gestur að sunnan, Albert, æskuvinur Péturs, arkitekt og skipulagsfræðingur. Það er kannski ekki vert að ljóstra þvi upp fyrir tilvonandi áhorfendum leiksins hvernig fer fyrir Albert. En ég man ekki eftir öðru skemmtilegra hlutverki Gisla um langt skeið, hetjulegri baráttu Al- berts við hin ýmsu hefðbundnu „hlutverk karlmanns” sem honum eru ætluð i samfélagi kvenna i Herbergi 213. Danir gátu ekki unnt íslendingum að sigra! — Skipuðu danskan dómstól til að geta dœmt sigur af íslandi í Kaupmannahafnarmóti í körfubolta Til mikilla átaka kom milii Is- lendinga og Dana i KB-höllinni i Kaupmannahöfn i gær. Þau urðu ekki á fjölum þessarar frægu iþróttahallar, heidur fyrir utan hana, og áður en leikur Islands og Danmerkur i Kaupmannahafnar- keppninni i körfuknattleik hófst. tslendingar komu til leiksins á móti Dönum sem sigurvegarar i mótinu — höfðu lagt að velli stór- veldið Vestur-Þýzkaland og siðan Luxemborg. En Danir — vel studdir af Luxemborgarmönnum — gátu ekki unnt íslendingunum þess, og skipuðu danskan dóm- stól, sem dæmdi sigurinn af Is- lendingum i leiknum við Luxem- borg. Fundu þeir i lögum FIBA, Al- þjóða körfuknattleikssambands- ins — klásúlu, sem segir að ekki megi nota nema 10 menn i keppni sem þessari. Um það vissu for- ráðamenn islenzka liðsins áður en þeir fóru utan, og höfðu löngu fyr- ir áramót sent Dönum nöfn 12 leikmanna, sem þeir sögðust ætla að nota I þessari keppni, — þó lög- legan f jölda i hverjum leik eins og gert var. Liðið á einnig að leika tvo leiki i Noregi og þótti þvi of litið að fara utan með aðeins 10 menn. Gerðu Danir enga athugasemd við það og skráðu meira að segja öll nöfnin i leikskrá, sem gefin var út á mótinu. Af þessum tveim aukamönnum veitti islenzka lið- inu ekki, þvi einn þeirra — Jón Sigurðsson — varð að fara heim áður en mótinu lauk og Þórir Magnússon meiddist fyrir siðasta leikinn. Þegar Islendingunum var til- kynntur úrskurður dómstólsins Ungu risarnir hefndu fyrir ósigur karlanna — Sigruðu Dani ó Norðurlandamóti unglinga í körfuknattleik ó sama tima og karlarnir voru að tapa fyrir Dönum í Kaupmannahöfn Strákarnir i islenzka unglinga- landsiiðinu i körfuknattleik hefndu fyrir ósigur karla- landsiiðsins i leiknum gegn Dan- mörku I gær. A sama tima og karlaliðið var að tapa i KB- höllinni i Kaupmannahöfn, voru strákarnir að leika við Dani i Noröurlandamótinu i Sviþjóð, og sigruðu þeir þá með 13 stiga mun — 96:83. Þetta var eini sigur islenzka liðsins i keppninni, og var hann sætur — ekki aðeins vegna þess, að Danir voru annars vegar — heldur og vegna þess, að þetta er I fyrsta sinn, sem islenzkt unglingalið tekur þátt i Norður- landamótii köruknattleik, og þetta er fyrsta islenzka unglingaliðið i þessari iþrótt, sem keppt hefur i fjölda mörg ár. Fyrirfram var búizt við, að Is- land yrði neðst i þessu móti — það var með yngsta og óreyndasta liðið, en samt skellti það Dönum. Aöeins einn piltanna hafði áður tekið þátt i úrvalsleikjum, Simon 1. delld kvenna: KR kom sér of botninum Tveir leikir voru ieiknir I 1. deild kvenna í islandsmótinu i handknattleik á laugardaginn. Þeir áttu raunverulega að vera þrir, en Þór frá Akureyri komst ekki suður i leikinn við Val, og var honum þvi frestað. Leikirnir, sem fóru fram, voru á milli Armanns og FH og KR og Vikings. Ármannsstúlkurnar sigruðu auðveldlega i fyrri leikn- um — skoruðu 19 mörk, þar af gerði Guðrún Sigurþórsdóttir 10, en FH-stúlkurnar skoruðu 11 mörk. i liinum ieiknum, sem var einn af baráttuleikjunum á botninum, sigraði KR Viking með 17 mörk- um gegn 11, og er þá Vikingur eina liðið i deiidinni, sem ekki hefur hlotið stig til þessa. Næsti ieikur i 1. deild verður á miðvikudagskvöidið i Hafnar- firði. Þá leika FH og Fram, en á laugardaginn leika I höliinni Vlkingur -Þór og KR - Armann. -klp- ólafsson, Ármanni, en hinir voru allir ókunnugir á þvi sviði. Það kom strax i ljós i fyrsta leiknum —- sem var gegn Noregi. Þar var taugaveiklunin alveg i hámarki og Norðmennirnir, sem komu mjög á óvart i mótinu urðu i 3ja sæti — sigruðu i leiknum með 93 stigum gegn 67. Simon Ólafs- son var stigahæstur islenzku piltanna i þessum leik, skoraði 17 stig, en næstur honum kom Jón Ketiláson með 12 stig. Daginn eftir lék Island tvo leiki og það við sterkustu þjóðirnar i keppninni, Finnland og Sviþjóð. 1 leiknum við Sviþjóð komust gest- gjafarnir i 40 stiga mun fyrir leik- hlé — 62:22 — og sigruðu i leikn- um með 128 stigum gegn 59. Sviarnir voru i algjörum sérflokki i þessu móti, enda allir um og yfir tveir metrar á hæð, og sigruðu þeir i öllum sinum leikjum með yfirburðum. Sigurbergur Bjarnason var stigahæstur Islendinganna i þess- um leik, 20 stig,og átti mjög góðan leik. Pétur Guðmundsson kom næstur honum með 10 stig. I leiknum við Finnland var Simon ólafsson aftur á móti stigahæstur með 23 stig, en þeim leik lauk með sigri Finnlands 110:68. Sfðasti leikurinn var gegn Dön- um, og var það hörkuleikur. Is- lenzku strákarnir voru þá farnir að átta sig á hlutunum og gáfu ■þeim dönsku ekkert eftir. Þeir náðu forustunni — komust i 50:42 fyrir hálfleik- og sigruðu siðan i leiknum 96:83. Simon var stiga- hæstur með 20 stig, en næstir komu Arngrimur Thorlacius og Pétur Guðmundsson með 17 stig hvor. Pétur vakti alveg sérstaka athygli á þessu móti. Hann var langyngstur — aðeins 16 ára gamall — en samt langstærstur — eða 2,12 metrar á hæð, Kom hann mjög vel út úr leikjum sinum skoraði mikið og tók fjöldann allan af fráköstum. Strax eftir mótið héldu islenzku piltarnir ásamt þeim norsku til Noregs, en þar munu þeir leika tvo leiki við Norðmenn og jafn- framt mun karlaliðið leika þar tvo leiki við karlalið Norðmanna. - klp við komuna til KB-hallarinnar upphófst mikið rifrildi, og munaði engu að islenzku leikmennirnir löbbuðu út úr húsinu. Þeir hættu þó við það og léku leikinn við Dani með hangandi hendi og mjög sárir yfir lúalegri fram- komu þeirra. Leiknum lauk með sigri Dana 97:62. Strax að leiknum loknum gengu Islendingarnir út úr húsinu i mótmælaskyni og horfðu ekki á leik Luxemborgar og Vestur- Þýzkalands, sem þá var orðinn að úrslitaleik mótsins. Honum lauk með sigri Þjóðverjanna, en þeir neituðu að taka við 1. verðlaunun- um vegna þessa máls. Leikur Islands gegn Vestur- Þýzkalandi var stórleikur af Is- lands hálfu. Honum lauk með sigri Islands 83:70. Komu þau úr- slit mjög á óvart, enda er Vestur- Þýzkaland eitt af stórveldunum i körfuknattleik i Evrópu. Leikurinn við Luxemborg var geysilega jafn og skemmtilegur Island hafði yfir 37:31 i hálfleik. A siðustu sekúndu leiksins jafnaði Jón Sigurðsson úr vitakasti og var þá framlengt i fimm minútur. Luxemborg hafði yfir 76:75 er 15 sekúndur voru eftir af framleng- ingunni, en þá fékk Þórir Magnússon boltann og brauzt upp að körfunni með hálft Luxem- borgariiðið á herðunum og skor- aði sigurkörfuna — 78:77. Þetta tap sat i Luxemborgar- mönnum, sem höfðu sigrað Dani 69:64 og þeir fengu þá i liö meö sér til að kæra Islendingana. Danir voru til i það, enda blasti þá neðsta sætið við þeim eftir 85:68 tap fyrir Vestur-Þýzka- landi. Islendingarnir fengu ekki að verja sitt mál og ekkert að vita, fyrr en leikurinn við Dani var að hefjast. Kom úrskurðurinn eins og köld vatnsgusa á þá alla — eins og Danir ætluðust til — og voru þeir þeim þvi auðveldir viðfangs i þessum mikilvæga leik, eins og hann átti i upphafi að verða. — klp — Nýir smokinsrar í litum TERRA (Vrif HERRA /TiZ^K/ LAUGAVEG 27 - SÍMI 12303

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.