Vísir - 06.01.1975, Blaðsíða 7

Vísir - 06.01.1975, Blaðsíða 7
Vlsir. Mánudagur 6. janúar 1975. 7 Eins og ég vœri furðudýr" — heilbrigðir kynna sér hlutskipti fatlaðra Myndirnar hér á slðunni eru frá heimsókn Guðrúnar og Guð- mundar I húsgagnaverzlun sem er á þrem hæðum. — Ljósmynd- ir Bj.Bj. að okkur, og vék það sér ekki til hliðar, þannig að við urðum að fara niður aftur og hleypa þvl framhjá. Stiginn er I boga, teppalagður, brattur ca. 2m á breidd. Fólkið bauð ekki aðstoð slna, en brosti vandræðalega til okkar, auðsjáanlega af með- aumkun. Kona og litill drengur stóðu uppi við stigann og gláptu heil ósköp. Við þökkuðum af- greiðslustúlkunni fyrir upplýs- ingarnar og héldum á veitinga- stað við hliðina. Er við báðum um kaffi sagði afgreiðslustúlkan, að hér væri sjálfsafgreiðsla. Við settumst við eitt borðið, er við vorum bú- in að ná I það, sem okkur vant- aöi, og var ekkert erfitt að ferð- ast þar um. Borðið var venju- legt eldhúsborð og frekar hátt fyrirmanníhjólastól og helltist talsvert niður er Guðrún ætlaði að fá sér kaffisopa. A leiðinni út horfði fólk á okk- ur rétt eins og við værum i jóla- sveinabúningum, en um leið og Guðrún horfði á móti, sneri það sér fljótt undan. Þar sem klukkan var að verða 6 og fimmtudagur, var mjög fátt fólk bæði í húsgagna- verzluninni og á kaffistofunni og var þvl erfitt að kanna viðbrögð fólks, og má búast við að þessi tilraun hafi farið á annan veg ef meira hefði verið að gera I þess- um verzlunum. Við teljum þessa ferð okkar hafa verið okkur til mikillar reynslu, og skiljum við betur erfiðleika fatlaðra sem eru að reyna að lifa sem eðlilegt (heil- brigt) fólk.” A HÆKJUM í STRÆTÓ Sverrir Friðþjófsson segir svo frá slnum ferðum: „Ég staulaðist út I hálkuna með spelkur á hægri fæti og tvær hækjur. Ég var óvanur að Sá var troðfullur, gagnstætt við hinn fyrri. Eldri kona með fangið fullt af pökkum stóð strax upp fyrir mér, þegar ég kom inn I vagn- inn. Ég þáði boðið og bjó mig undir að setjast. Komst ég þá að þvl, að spelkaði fóturinn sneri að glugganum svo það var ógjörningur að snúa fram I sæt- inu. Varð ég þá að taka það til bragðs að snúa bakinu I gluggann en við það stóð spelk- aði fóturinn út I gangveginn, þar sem fólkið stóð. Enginn hjálpaði mér við þetta brambolt mitt og þvl siður var mér boðið sæti hinumegin við ganginn.” Og Sverrir heldur áfram máli stnu: „Mér fannst afskiptaleysi fólks gagnvart mér vera al- gjört. Það forðaðist að láta sem það sæi mann. Það leit undan, þegar ég kom inn I fyrri strætis- vagninn, og mér fannst, að það vildi ekki að ég settist hjá þvi. Þetta gerði mig óöruggan og hálf skömmustulegan. I tveim búðum I miðbænum leitaði ég að sæti, á meðan ég beið eftir afgreiðslu, en það var hvergi að sjá. Þá settist ég I stigann með svolitlu brambolti, en enginn kom með stól til min. Það er erfitt og þreytandi fyrir bæklaðan mann að standa I búðarrápi, svo að stóll I einni og einni búð er vel þeginn. Afgreiðslufólk er vingjarn- legt, þegar leitað er til þess, en það er eins og það forðist að snúa sér að manni að fyrra bragði. Það virtist allt hafa svo mikið að gera, þegar ég kom inn, að enginn mátti vera að þvi að sinna mér. Eins er það með unglingana, sem ég sagði frá f upphafi: Þeir voru fúsir til að aðstoða, eftir að ég hafði brotið fsinn með þvi að ávarpa þá. Að lokum vil ég segja þetta: Þvi miður er allt of mikið um að fólk forðist hreinlega að eiga samskipti við fatlað fólk. Astæð- an er sennilega sú, að fólk veit ekki, hvað það á að segja. Það óttast að segja eitthvað, sem ef til vill særi þann fatlaða. En þaö særir örugglega enn meir að finna það, að fólk forðast mann. Það er hlutverk okkar að hjálpa til við að koma á sem eðlilegustum samskiptum milli fatlaðra og annars almennings. Til þess þarf samhug, samvinnu og skilning allra, sem nálægt þessum málum koma,” segir Sverrir að lokum. í GLÆSIBÆ Það var á föstudagskvöldi klukkan að ganga sjö, sem Július settist I hjólastólinn og Lovisa ók með hann af stað um verzlanirnar i Glæsibæ. Voru þau þar I ferðum á milli hinna einstöku verzlana i nærri þrjá klukkutima. Þau fengu aðstoð hjálpsamra við að komast niður i verzlan- imar i kjallaranum og upp aft- ur. Þegar þau svo fóru i kaffi- teriuna á þriðju hæðinni, tókst þeim að finna lyftu, sem þau fengu afnot af. Sú lyfta átti ekki að vera til afnota fyrir viðskiptavini Glæsibæjar og er jafnan læst, þó að þau Július og Lovisa hefðu fengið að nota hana I þetta skipti. Hvers vegna eru lyftur annars ekki viðar á stöðum sem þess- um? — Og önnur spurning, sem vaknar, er sú, hvers vegna tröppur eru svo miklu viðar en þeirra er i rauninni þörf? — ÞJM. * Hve oft leiðum við, sem höfum heila limi og hraustan iikama, hugann að þvi, hvernig það sé að þurfa að fara allra sinna ferða I hjólastól eða staulast áfram á hækjum? Já, eða hvenær hefur okkur jafnvel komið til hugar að kynna okkur það hlutskipti af eigin raun? Fimm ung- menni reyndu þaö eigi alls fyrir löngu og fer lýsing þeirra hér á eftir. Þessi fimm ungmenni eru úr hópi þeirra Iþróttakennara og hjúkrunarkvenna, sem sóttu námskeið það á vegum ISÍ, sem Vlsir sagði frá hér á siðunni á laugardaginn. Námskeið, sem ætlað var þeim, er siðar munu leiðbeina og þjálfa fatlaða i íþróttum. Að afloknu námskeiðinu voru útvegaðar spelkur og hækjur fyrir einn Iþróttakennarann og tveir hjólastólar fyrir aðra ásamt aðstoðarmönnum úr hópnum. I öðrum stól sat ung stúlka, Guðrún H. Eiriksdóttir, og var Guðmundur S. Stefáns- son henni til aðstoðar. t hinum stólnum sat aftur á móti karl- maður, Július Arnarson, og var ung stúlka, Lovisa Einarsdóttir, honum til aðstoðar. Sá með hækjurnar hét Sverrir Frið- þjófsson og var hann einn á ferðalagi sinu. SKOÐUÐU HÚSGÖGN Á ÞREM HÆÐUM Fer hér fyrst lýsing þeirra Guðrúnar og Guðmundar, en þau lögðu leið sina i húsgagna- verzlun eina, sem er á þrem hæöum: „Þegar Guðmundur opnaði dyrnar á bilnum sinum til að taka stólinn úr, kom það óhapp fyrir, að hurðin rakst I bil við hliðina. ökumaður bilsins leit fremur óhýru auga á Guðmund, en um leið og hann sá hjólastól- inn varð hann mjög vandræða- legur og samúðin skein úr aug- um hans. Er við komum að dyrum hús- gagnaverzlunarinnar, var fyrsta hindrunin tvær tröppur, sem ekki var hægt að komast upp nema með aðstoð. Þegar við fórum að skoða húsgögnin, var þeim raðað það þétt, að það þurfti að færa allt úr stað til að koma hjólastólnum á milli. Afgreiðslustúlkan kom til okkar og sneri sér að Guðmundi og bauð fram aðstoð. Við lituðumst um og spurðum um verð, og brátt breyttist viðmót hennar og hún talaði jafnt við okkur bæði. Þegar við hugðumst fara upp á loft að skoða, benti hún okkur á að fara frekar niður, þvi þar væri meira úrval. Við fórum þvi niður og hún fylgdi eftir. Þar rýmdi hún til fyrir okkur eftir þörfum og var hin hjálplegasta. Guðrún reyndi nokkra stóla meö aöstoð Guðmundar en af- greiðslustúlkan horfði á með vandræðasvip, þegar Guð- mundur ætlaði að setja fæturna á Guðrúnu upp á skemil sem var þar við einn stólinn.var hún treg til að fara með skóna upp á áklæðið, en afgreiðslustúlkan kvað það vera i lagi. Ekki vitum við hvort fólk fær almennt að æða á óhreinum skónum upp á stólana. Þegar við vorum að fara upp stigann aftur, var fólk á leið nið- ur. Við vorum komin upp ca. 3-4 tröppur, þegar fólkið var komið terðast á þennan hátt og fór afar hægt i fyrstu. Ætlupin var að fara meö strætisvagni niður i bæ. Fara i nokkrar búöir og kanna við- þrogð fólks gagnvart bækluðum ,manni. Þegar ég hafði gengið nokk- urn spöl, mætti ég hópi unglinga á leið úr skóla. Þeir voru mas- andi og hlógu mikið — þar til þeir komu að mér. Þá var eins og þeir vissu ekki, hvernig þeir ættu aö haga sér. Þeir þögnuðu og urðu hálf kjánalegir. Mér fannst eins og ég væri eitthvert furðudýr, sem hefði sprottið upp úr jörðinni. Óþægi- leg tilfinning. •Litlu seinna mætti ég öðrum hópi unglinga. Sama sagan endurtók sig, en nú ávarpaði ég krakkana. Ég spurði þau, hvar næsta strætis- vagnastöð væri. Þá losnaði um málbeinið á þeim á ný. Þau kepptust við að segja mér, hvert ég ætti að fara og voru hin vin- gjarnlegustu. Þegar ég komst i strætis- vagninn, gat ég ekki greitt far- gjaldið vegna þess, að ég hafði enga smápeninga á mér. Vagn- stjórinn kvað það vera I stak- asta lagi. Hann gaf mér farið og skiptimiða i kaupbæti. Og hartn ók ekki af stað fyrr en ég var setztur. Á Hlemmi skipti ég um vagn. „Þegar við vorum að fara upp stigann aftur, var fólk á leið niöur. Við urðum að fara niður aftur og hleypa þvl framhjá..”

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.